Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
02.01.2008 12:32
Sædís ÍS

Mynd útgerð 2007.
Bolungarvík. núna síðustu ár þá hefur Bolungarvík verið miðstöð nokkura afllahæstu smábáta landsins. Bátarnir Guðmundur Einarsson ÍS, Hrólfur Einarsson ÍS og núna síðast Sirrý ÍS hafa undanfarin ár allir fiskað yfir 1000 tonn árlega, og slegið svo til öll met sem hægt er að slá með tilliti til smábáta. Nýverið bættist fyrsti beitingavélabáturinn þangað. Björgmundur ÍS sem er fyrrum Karólína ÞH.
á meðan þessir allir bátar hafa verið að keppast ef svo má að orði komast þá er þarna líka einn bátur sem er í sama stærðarflokki og ofantöldu bátarnir enn er kanski ekki beint að stunda samskonar veiðiskap og þeir bátar.
Báturinn sem um ræðir heitir Sædís ÍS. bátur þessi var smíðaður hjá Seiglu og kom á flot 3 mars árið 2006. Á haustmánuðum 2007 þá stundaði báturinn línuveiðar frá október og landaði tæpum 87 tonnum í 31 ferð. Er það nokkuð athyglisvert þar sem báturinn hefur verið mestmegnis á netaveiðum frá því hann kom á flot. var t.d vertíðarafli rúm 74 tonn í 44 ferðum. mesti afli í róðir 5.2 tonn. reyndar er inní þeim afla 3622 kg af grásleppuhrognum.
Fyrir utan þenna veiðiskap bátsins þá stundar báturinn annarskonar "veiðiskap", enn það er að sigla með ferðalanga út jökulfirðina og fyrir hornstrandir svo til alvegi inní gjögur. Núverandi bátur var einmitt keyptur með tilliti til þess að taka meira fólk með og að betur færi um það. Er semsé ansi margt merkilegt við Sædísi ÍS.
Fortíð.
Nafnið Sædís ætti mörgum vestfirðingum að vera mjög kunnugt. því árin 1938 og 1939 voru smíðaðir nokkrir 15 brl eikarbátar á ísafirði sem allir báru höfðu endinguna dís. voru þær Ásdís ÍS , Bryndís ÍS , Hjördís ÍS, Jódís ÍS ( sem reyndar kom nokkrum árum seinna) og Valdís ÍS. Sædís ÍS varð gerð út frá Bolungarvík og ísafirði í samfleytt 69 ár. núna er báturinn að fara á byggðasafn líklegast í bolungarvík, og var ráðgert að gera þær breytingar á bátnum sem færa hann í upprunalegt horf.
Sædís ÍS stundaði rækjuveiðar frá fyrstu tíð og öll árin sem rækjuveiðar voru leyfðar í ísafjarðardjúpi. Með rækjuveiðunum var báturinn meðal annars á dragnót og handfærum. Hérna á árum áður þá tíðkast það mjög mikið að rækjubátar í ísafjarðardjúpi stunduðu rækjuveiðar á sumrin og gekk mörgum mjög vel.
ef litið er á aflatölur fyrri tíma þá kíki ég á 2 ár hérna.
árið 1969 þá varð heildarafli bátsins 208.2 tonn í 47 ferðum eða um 4.4 tonn í róðri. mesti afli var 5.9 tonn sem fékkst 5 ágúst það ár.
árið eftir 1970 þá fékk Sædís ÍS tæp 71 tonn af rækju í 106 ferðum, um sumarið fékk báturinn 118.2 tonn í 33 ferðum á handfærin. mesti afli í róðri 7.2 tonn.
Skrifað af Gísli.R
