Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
31.12.2007 23:11
Ósk KE. .....2008
mynd Gísli Reynisson
Það er vel við hæfi að síðasti pistill minn hérna á síðunni verði um bátinn Ósk KE.
Báturinn sem er fyrrum Hafnarberg RE, er eins og staðan er núna eini netabáturinn ásamt Erling KE sem er gerður út frá Keflavík. og þá á ég við í aflamarkskerfinu. Reyndar er Maron GK sem er svipaður að stærð og Ósk KE gerður út á net einnig.
Maron GK og Ósk KE eiga eitt sameiginlegt, .það er að báðir bátarnir hafa borið nafnið Ósk. því Einar gerði út Maron GK í þónokkur ár undir nafninu Ósk KE.
Eina vertíðina eftir 1990, þá var mikill aflaslagur milli Ósk KE( sem nú er Maron GK) og Hafnarbergs RE ( sem nú er Dúa SH). voru báðir bátarnir í mokveiði í mars, og komust t.d uppí 120 tonna vikuafla í 5 sjóferðum. Vakti afli þeirra ansi mikla athygli á sínum tíma.
Ósk KE mun hafa úr ansi miklum kvóta að veiða þar sem hann veiðir af heimildum sínum sem og af heimildum Happasæls KE, plastbátnum. Skipstjórinn á Ósk KE með Happasæl KE áður enn honum var lagt.
Reyndar sagði Einar Magnússon útgerðarmaður Ósk KE að honum hugnaðist það að fara á sjóinn sem skipstjóri á vertíð.
Verður forvitnilegt að fylgjast með bátnum og hvort að Einar skelli sér nokkra túra á honum.
Ósk KE hefur verð gerð út núna á netin allt haustið og gegnið nokkuð vel
t.d í desember þá var afli bátsins 64 tonn í 16 ferðum. Réri báturinn líka milli jóla og nýárs.
Talandi um nýtt ár.
Þá vil ég færa öllum lesendum síðunnar gleðilegs nýs árs, og með þökk fyrir innlitin.
vonandi verður komandi ár gjöfult fyrir alla.
