Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
28.12.2007 23:11
Ásþór RE
Myndir Gísli Reynisson
Háey II ÞH. Óli Gísla GK, Vestmannaey VE, Bergey VE, Karólína ÞH, Vörður EA ásamt fleirum eiga eitt sameiginlegt. Allir þessi bátar eru nýsmíði sem komu á árinu 2007. ég nefni þessa báta hérna að ofan bara til að nefna einhverja.
Allir þessi bátar og fleir fengu umfjöllun bæði í Morgunblaðinu, Fiskifréttum og öðrum fjölmiðlum. Á sama tíma þá læddist á sjó einn bátur sem enginn frétt hefur verið um, og má segja að þessi bátur hafi róið "hljóðlaust" á miðin hérna sunnanlands.
Er ég að tala þarna um bátinn Ásþór RE. bátur þessi sem myndin er af var smíðaður hjá Bátasmiðju guðmundar og mér telst svo til að þessi bátur sem einn af fáum sem komu á flot á árinu 2007 sem hafði verið smíðaður þar. Er báturinn 6,02bt og með skipasmíðanúmer 420. Kom nýi Ásþór RE í stað annars sómabáts með skipaskrárnúmeri 7183 sem var 5 BT að stærð, var sá bátur smíðaður ári 1989 og með skipasmíðanúmerið 231. Sá bátur heitir í dag María RE.
Nýi Ásþór RE hefur róið síðan í febrúar þegar báturinn byrjaði á línu allt árið. reyndar var hann á færum apríl, maí og júlí. Afli bátsins það sem af er árinu er kominn í 111 tonn í 81 ferð. mesti afli í róðri 3.2 tonn. Á listanum mínum þá er hann í flokki smábáta undir 10brúttótonnum.
Nafnið á bátnum Ásþór RE, ætti að vera sjómönnum ansi vel kunnugt þar sem nafnið hefur verið á tveim skipum úr Reykjavík . Hið fyrra var á stálbáti ( skipaskrárnúmerið 235) sem hét Ásþór RE 395, kom sá bátur til landsins 24. apríl 1964, var sá bátur gerður út alveg til ársins 1982 er hann var seldur til Keflavíkur og fékk þar nafnið Stafnes KE 130. í lok árs 1988 þá var báturinn seldur utan til Noregs til að rýma fyrir nýju Stafnesi KE.
Seinni Ásþór RE 10 var skuttogari ( 1566) sem var systurskip t.d Sveins Jónssonar KE og Haralds Böðvarssonar AK. kom hann til landsins 21. mars 1983. var hann svo seldur til Grindavíkur og fékk þar nafnið Gnúpur GK . undir nafninu Gnúpur þá vakti hann ansi mikla athygli vegna þess að um borð þá var mestur afli togarans saltaður um borð.
Nokkrar aflatölur á ég um bæði togarann og bátinn. tek ég til hérna nokkrar tölur.
Ásþór RE. til að mynd árið 1970 þá stundaði báturinn netaveiðar á vertíð og útilegu á línu´, varð heildarafli bátsins 1610 tonn. komst báturinn í meðalafla mest í 266 tonn í einungis 5 ferðum sem gerir um 53 tonn í róðri. mesti afli í róðri það ár var tæp 82 tonn.
fyrsta heila vetrarvertíð bátsins árið 1964 varð 803 tonn í 44 ferðum eða sem gerir rúm 18 tonn í róðri sem er mjög gott. og svo að lokum smá síldartölur, til að mynd árið 1966 þá fékk báturinn 5600 tonn af síld bæði af íslandsmiðum sem og í úthafinu.
togarinn aftur á móti var með að meðaltali um 3100 tonn á ári þann tíma sem hann var hérna á landinu. Ég á heildartölur yfir skipið enn ekki tölur t.d um mestan afla í róðri.
þannig að báturinn sem " læddist" á sjóinn á nafnlega séð ansi merkilega sögu bakvið sig og ef skoðað er nánar ´þá má sjá að RE 395 er bæði á fyrsta Ásþór RE sem og þeim nýjasta sem myndin er af.
