Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
25.12.2007 11:48
Trollað frá Ísafirði.

Efri myndin er frá Gísla Reynssyni . enn sú neðri útgerð 2003.
Aldan ÍS og Halldór Sigurðsson ÍS hafa núna á haustmánuðum verið á trollveiðum í ísafjarðardjúpi. hefur þeim gengið nokkuð vel. í nóvember þá fór Halldór Sigurðsson ÍS í 15 ferðir og var með tæp 38 tonn eða um 2.5 tonn í róðri. stærsti róður var 3,8 tonn. Aldan ÍS í desember var með tæp 41 tonn í 13 ferðum eða 3.1 tonn í róðri. þar var stærsti róður 4,1 tonn.
Núna í desember þá hafa bátarnir róið mjög stíft og það er greinilegt á sjósókn bátanna að veðrið hefur ekki verið eins slæmt þar og hérna fyrir sunnan þar sem bátar hafa ekki komist á sjó í allt að viku og jafnvel ekkert í 10 daga.
Halldór Sigurðsson ÍS er búinn að fara í 15 sjóferðir og kominn með rúm 49 tonn sem gerir meðalafla uppá 3,3 tonn , þar er stærsti róður 7.3 tonn.
Aldan ÍS er búinn að fara í 17 ferðir og er kominn með tæp 62 tonn sem gerir 3.6 tonn í róðri. stærsti róður 5.6 tonn, reyndar eru nokkrir róðrar yfir 5 tonnin hjá Öldunni ÍS.
Annað sem er merkilegt við sjósókn Öldunnar ÍS er að hann er sá bátur sem líklegast hefur farið flestar sjóferðir allra báta á landinu. svona til samanburðar þá er Sirrý ÍS búinn að fara í 15 ferðir.
Stærstur hluti afla Halldórs. S.ÍS og Öldunnar ÍS er ýsa og samtals á 2 mánuðum er afli bátanna orðin tæp 190 tonn.
