Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

21.12.2007 05:53

Kristinn SH


Desember 2007 er búinn að vera mörgum sjómanninum ansi erfiður, sífelldar brælur  hafa gert það að verkum að bátar hafa ekki komist út svo dögum skipti.  Margir smábátar hafa t.d ekkert róið í hátt í viku eða svo.  
Kristinn SH sem er mjög þekkt nafn í smábátaútgerð íslendinga hefur ekki farið varhluta af því.  báturinn hefur ekkert róið síðan 12 desember.  Fram að því þá var báturinn búinn að fara í 8 ferðir og var kominn með rúm 51 tonn, meðalafli nokkuð góður eða um 6.5 tonn. Meðalafli Kristins SH t.d í nóvember varð hæstur allra smábáta á landinu (6.8 tonn) og jafnframt varð hann eini báturinn ásamt Auði Vésteins GK sem yfir 10 tonn komst.
Núverandi bátur sem byrjaði að róa 31 desember 2006 ásamt gamla Kristni SH sem núna heitir Júlíus Pálsson SH, víkja nú báðir fyrir nýjum báti. 
Mynd Gísli Reynisson
Útgerðin hefur keypt fyrrum Grindavík GK sem myndin er af koma til grindavíkur, og mun hann fá nafnið Kristinn SH.  þykir þetta nokkrun tíðindum sæta þar sem ansi margir hafa undanfarin ár farið úr aflamarkskerfinu og yfir í smábátakerfið.  Þarna er því öfugt farið. Við það að þessi bátur kemur á snæfellsnesið þá verður þriðji Kínabáturinn kominn vestur, enn fyrir voru Matthías SH og Gunnar Bjarnarsson SH.


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1080
Gestir í dag: 291
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611752
Samtals gestir: 580970
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 19:47:45

Tenglar