Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
16.12.2007 11:43
Frystitogarar í Nóvember

Mynd Þorgeir Baldursson . Færi ég honum bestu þakkir fyrir
Nóvember frystitogara listinn er nú tilbúinn Sigurbjörg ÓF var eini togarinn sem landaði tvisvar, og það skilaði sér í annað sætið hjá henni. Höfrungur III varð langaflahæstur og af afla skipsins voru 338 tonn af ufsa og 314 tonn af gullkarfa. þar á undan landaði togarinn síðast 1. október. og þvi má segja að túrinn hafi verið tæpir 40 dagar. Margir togararnir styttu úthald sitt til að ná tveim túrum fyrir jól. Gott dæmi um það er Þór HF sem var úti í 30 daga enn vanalega er hann í um 40 daga úti.
enn annars er listinn hérna og hann skýrir sig nú að nokkru sjálfur
Sæti Nafn Heildarafli Landanir.
1. Höfrungur III AK 985.2 1
2. Sigurbjörg ÓF 686.1 2
3. Þór HF 601.8 1
4. Örfirsey RE 589.8 1
5. Freri RE 584.6 1
6. Brimnes RE 571.4 1
7. Guðmundur í Nesi RE 535.2 1
8. Víðir EA 527.8 1
9. Baldvin Njálsson GK 518.7 1
10. Arnar HU 515.8 1
Athyglisvert er að Kleifaberg ÓF, Mánaberg ÓF og Júlíus Gerimundsson ÍS sem voru í fyrstu 3 sætunum í október eru ekki hérna inná. afli ÓF togaranna var mjög lítill, báðir voru með undir 400 tonna afla.
