Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 276
Gestir í dag: 98
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370920
Samtals gestir: 530361
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 04:34:52
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
08.12.2007 18:04
Ritur ÍS (612)
Mynd Gísli Reynisson
Lengi vel og ennþá þá hefur þessi myndarlegi eikarbátur legið í Sandgerðishöfn. Bátur sem hefur allavega fengið nýja brú miðað við myndina.
Ritur ÍS var smíðuð í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1962. er báturinn úr eik og Furu. Mældist báturinn 10 brúttólestir eða 14,09 brúttotonn. Vél var 54 hestafala Lister vél.
Fyrsta nafnið á bátnum var Jóhann Skúlasson SK 61 og var þá báturinn gerður út frá Sauðárkróki. Var báturinn þar til ársins 1968 að hann var seldur til Kópavogs, hélt báturinn nafninu sínu enn fékk umdæmisstafina KÓ 25.
Báturinn var seldur 3svar sinnum á meðan hann hét fram til ársins 1976. öll þau skipti þá hélt báturinn sama nafni og umdæmisnúmeri. Árið 1976 eða í ágúst það ár þá var báturinn seldur á Akranes og ennþá hélt báturinn nafni sínu enn fékk umdæmisstafina AK 35. Þeir eigendur létu skipta um vél í bátnum og settu í bátinn 88 ha lister vél.
Báturinn var ekki lengi uppá skaga þar sem í apríl 1977 þá var báturinn seldur til Hnífsdals þar sem hann fékk síðan nafnið sitt Ritur ÍS 22.
Þrátt fyrir að báturinn hafi borið umdæmisstafina KÓ þá var hann ekki beint gerður út frá Kópavogi þar sem báturinn varði mestum tíma sínum í Sandgerðishöfn, Grindavík og Keflavík.
Aflatölur:
Nokkrar aflatölur á ég um þennan bát. mun ég nefna nokkur dæmi um afla bátsins. Til að mynda er afli bátsins árið 1965 75 tonn í 60 ferðum, og árið 1968 þegar var hann með 97 tonn í 39 ferðum, eða um 2,5 tonn í róðri, sem verður að teljast nokkuð góður meðalafli. Þess má reyndar geta að þessar tvær tölur eru ekki eiginlega heildartölur þar sem ég er ekki búinn að fara nægilega vel í gegnum þessi ár.
1973 þá sótti báturinn nokkuð stíft fór í 100 sjóferðir og var með 105 tonna heildarfafla. mesti afli í róðri var 5,1 tonn.
og að lokum árið sem báturinn fær nafnið Ritur ÍS það ár var báturinn með 40 tonn af rækju í 41 ferð, á milli rækjuveiða þá var báturinn eins og flest allir rækjubátar í ísafjarðardjúpi á handfæraveiðum og var t.d mesti afli í róðri það sumar 4,8 tonn.
Skrifað af Gísli.R
