Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
27.11.2007 13:51
Duglegir að forðasti Þorskinn
mynd:Gísli Reynisson
Þegar það lá fyrir að þorskkvótinn myndi verða skertur eins mikið og var síðan, þá varð ansi þungt hljóðið í mörgun útgerðarmönnum. Flestir töldu að núna þyrfti helst að reyna að forðast þorskinn og hafa hann bara sem meðafla.
Nokkrir smábátar bæði á svæðinu frá Akranesi og yfir til Sandgerðis hafa einbeitt sér að ýsuveiðum og að hafa þorskinn sem minnstan í aflanum, og hefur þeim gengið nokkuð vel, þegar hefur gefið á sjó.
Ef litið er aðeins á smábátanna, og byrjað þá á þeim bátum sem eru stærri enn 10 brúttótonn(BT), þá er Svalur BA (7474) sem gerir út frá Reykjavík komin með 26,5 tonn í 8 ferðum og af því er ýsa 23,9 tonn eða tæp 90% aflans.
Staðarvík GK ( sem myndin er af) er í eigu stakkavíkur í Grindavík, hefur báturinn verið gerður út frá Hafnarfirði, er báturinn kominn með 22,4 tonn og af því er ýsa 20,1 tonn eða tæp 90% af aflanum.
af minni bátunum (þ.e.a.s bátum undir 10BT) þá er Katrín KE sem landar í Sandgerði og í Keflavík kominn með 9,4 tonna af ýsu af 12 tonna afla, eða rúm 78% af aflanum sem er ýsa.
Elín Kristín GK sem hefur landað einnig í Sandgerði og í Keflavík er komin með 6,4 tonn af ýsu af 7,7 tonn afla eða 83% af aflanum
og að lokum Margrét ÍS sem gerir út frá Akranesi, báturinn er kominn með 6,4 tonna afla og af því er ýsa tæp 5,7 tonn eða 88% af aflanum.
Skrifað af Gísli.R
