Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370780
Samtals gestir: 530320
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 02:17:59

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

25.11.2007 01:00

Skafti HF.


Mynd.  Þorgeir Baldursson.

Skafti HF er gamalgróið nafn í skuttogaraútgerð landsins.  Togarinn var lengi vel eða í 17 ár gerður út frá Sauðárkróki undir nafninu Skafti SK.  var reyndar Skafti SK gerður út frá Sauðárkróki nokkru lengur eða í alls 31 ár. 
allt árið 2007 hefur togarinn verið gerður út frá Hafnarfirði og landað öllum sínum afla sínum þar,  er togarinn einn af fáum togurum sem hefur verið að ansi mikið í djúpkarfaveiðum, og er togarinn stærsti kvótalausi bátur/togari landsins. 
þrátt fyrir það hefur honum gengið nokkuð vel. 
Til að mynda var Skafti HF með rúm 216 tonn í október, og var aflinn þar svo til helminga Ufsi og djúpkarfi. 
núna í Nóvember þá er t.d stærsta löndun Skafta HF tæp 83 tonn eftir 6 daga túr,  var aflinn í þeim túr ufsi 49 tonn og djúpkarfi 31 tonn.  Hefur togarnum gengið nokkuð vel að forðast þorskinn, því af 444 tonna heildarhaustafla er þorskur einungis 1,6 tonn.

Aflatölur í fortíð:
það eru oft ansi stórar og miklar tölur sem togarnir voru að koma með hérna á árum áður.  Skafti SK er einn af þeim, verður hérna litið á tvö dæmi.
í júlí árið 1978 gekk Skafta SK nokkuð vel og fékk 444,7 tonn í einungis 3 löndunum. mesta löndun var 157,8 tonn.  þessi afli er nokkru meiri heldur enn togarinn er búinn að fá á  haustmánuðum 2007.
árið 1977, þá landaði Skafti SK í apríl það ár 180,4 tonni eftir 8 daga túr,  ef það var ekki nóg þá bætti togarinn það enn betur með því að landa 192,3 tonni eftir 9 daga túr.  Fullfermi og vel það.

Tenglar