Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 210
Gestir í dag: 81
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370854
Samtals gestir: 530344
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:16:40

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

13.11.2007 15:44

Dragnótaveiðar Snæfellsnesbáta

Afli dragnótabáta sem hafa verið að róa frá Snæfellsnesi hefur undanfarið ekki verið beint beisin.  frekar lítill afli hefur verið hjá þeim bátum sem hafa haldið sig við snæfellsnesið, og því hafa nokkrir bátanna fært sig vestur um til vestfjarða þar sem þeir hafa komist í nokkru betri afla.  ef skoðaðir eru bátarnir núna í nóvember þá  líta þeir þannig út.
Esjar SH sem varð annar aflahæsti dragnótabáturinn frá snæfellsnesi í október, hefur haldið sig á Patreksfirði mest allt haust og líka það sem af er nóvember, er stærsti róður hans 8.5 tonn.
Matthías SH er kominn líka á patreksfjörð og er stærsti róður hans 12 tonn, sem verður að teljast nokkuð gott.
Steinunn SH er búinn að vera á nokkru flakki. hefur landað á Ólafsvík, Patreksfjörð og Bolungarvík.  þrátt fyrir flakkið er stærsti róður Steinunnar SH ekki nema 8.1 tonn.
Egill SH hefur haldið sig á heimamiðum og landað í ólafsvík stærsti róður 2.7 tonn.
Gunnar Bjarnarsson SH hefur einnig haldið sig á heimamiðum og landað einnig í ólafsvík og er stærsti róður hans 3.3 tonn.
Ólafur Bjarnarsson SH er líka í ólafsvík og stærsti róður hans er ekki nema 2.1 tonn.
svo að lokum má nefna nýju Báru SH (2102),  enn hún hét áður Arney HU og þar á undan Þórir SK.  hann hefur landað á Rifi og mesti afli er 1.1 tonn.  
þess má svo bæta við að gamla Bára SH sem er systurskip Esjar SH(2330) og Hafdísar GK (2400) , og heitir núna Valgerður BA (2340)hefur mokveidd frá patreksfirði.  var t.d aflahæst í september og varð í 3 sæti í október

Tenglar