Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
09.11.2007 18:32
Frystitogarar í Október
Einn er sá flokkur skipa sem ég hef ekki gert skil í Listanum mínuim í Fiskifréttum, það er flokkur Frystitogara. Ætlaði ég mér einu sinni að útbúa lista með að nota aflaverðmæti, enn það reyndist nokkuð þungt í vöfum.
framvegis mun ég gera grein hérna á síðunni fyrir þeim 10 aflahæstu frystitogurnum í hverjum mánuði fyrir sig. reyndar er rétt að hafa í huga að aflatölur um þá segir ekki alla söguna. því skipting afla ræður öllu varðandi aflaverðmætið.
Annars lítur listinn fyrir október svona út.
Sæti. Nafn. Afli. Landanir.
1. Mánaberg ÓF 1097,4 2
2. Júlíus Geirmundsson ÍS 968,5 2
3. Kleifaberg ÓF 921,8 2
4. Þór HF 868,1 1
5. Brimnes RE 787,6 1
6. Þerney RE 736,3 1
7. Örfirsey RE 682,1 1
8. Arnar HU 600,8 1
9. Vigri RE 550,046 1
10. Höfrungur III AK 550,028 1
Þegar um svona háar tölur er að ræða, þá er athyglisvert að einungis munar 18 kílóum á milli Vigra RE og Höfrungs III AK. er það mjög svo lítill munur .
