Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
05.11.2007 23:17
Jakop Einar SH
Það er nú ekki algengt nú til dags að útgerðaraðilar sem eru í smábátakerfinu, fari yfir í stóra aflamarkskerfið. útgerðarfélagið Gildran sem gerði lengi vel út stálbátinn Jakop Einar SH (1850) sem var 14 brl að stærð. smíðaður á seyðisfirði. sá bátur var lengi vel gerður út á beitukóngsveiðar og gekk nokkuð vel á þeim veiðiskap. á vertíðum stundaði hann netaveiðar. Núna heitir sá bátur Blakkur BA, og er gerður út á net frá Patreksfirði.
nýverið þá stækkaði útgerðin við sig og fór yfir í aflamarkskerfið með því að kaupa (1436) Snæbjörgu HU. sá bátur hét lengst af Snæbjörg ÓF eða í 13 ár. Jakop Einar SH hefur verið gerður út á dragnót frá Patreksfirði og Bíldudal, stærsti róður í haust er um 5 tonn.
þessi bátur (1436) er síðuhöfundi nokkuð hugleikinn þar sem báturinn er eini aflamarksbáturinn, og jafnframt stærsti bátur sem smíðaður hefur verið í heimabænum. Sandgerði.