Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

18.12.2011 21:15

mikið um bátasölur

Það er búið að vera nokkuð líflegt í bátasölu núna í desember.

1.Vísir í Grindavík er búið að kaupa Hafursey VE (1416)og mun báturinn koma til Njarðvíkur þar sem báturin verður tekin í slipp.  

2.Útgerð Bíldseyjar SH(2650) er búin að kaupa Kidda Lár GK sem er systurbátur Óla Gísla GK(2714).  Og planið er að lengja hann um 2 metra.  Mun Sólplast gera þær breytingar á bátnum.  Mun þá nýi báturinn verða um 15 metrar að lengd. Vitað er að t.d útgerð Óla Gísla GK mun fylgjast með þessum breytingum með þá skoðun á að lengja Óla Gísla GK,

3.Fyrrum útgerðaraðilar Sæbjargar ST sem núna heitir Sveinbjörn Jakopsson SH(1054) hafa keypt Arnfríði Sigurðardóttir RE (177) og mun báturin væntanlega fá nafnið Sæbjörg ST og mun þá bætast við rækjubátaflotann,

4.Og svo er búið að selja Blika EA (2710) til Suðureyrar.

5.  Maggi Jóns KE (1787) sem er búinn að vera gerður út á net undanfarin ár  frá Sandgerði er farinn vestur á Ísafjörð og Lúkas ÍS (2711) kemur í stað hans og verður Lúkas ÍS gerður út frá Sandgerði á línu.  Planið er að setja Magga Jóns KE á rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi.  

Semsé nóg um að vera 

16.12.2011 21:18

Öngull


Steini GK mynd Raggi P

Svo til stærstur hluti bátaflotans stundar línuveiðar allt árið um kring.  Bæði er um að ræða báta með beitningavélar og báta með bala.  Þeim bátum sem stunda veiðar með bölum hefur farið fjölgandi enda fá þeir bátar línuívilnun.  
Þónokkrir bátar hafa tekið beitningavélarnar úr og af þeim er  Kópur BA stærstur bátanna.
Veiðar á línu með bölum skapar ansi mikla vinnu og í Sandgerði er beitningaþjónustann Öngull.  Þar á bæ ræður Kiddi ríkjum og eru eigendur Önguls að taka í noktun mjög stórt og mikið hús sem nota á fyrir beitningar.  Og því er hægt að fjölga bátum þar enda húsið rúmgott og þar verður stór og rúmgóður frystiklefi.
Öngull hefur séð um að beita fyrir nesfisksbátanna Steina GK og Berg Vigfús GK ásamt fleirum
Öngull er nýr auglýsingaaðili á síðunni og það hjálpar til þess að hægt sé að búa til betri aflafrettasíðu.  í auglýsingunni að ofan eru símanúmer Kidda og hún er jafnframt tengill inná vefpóst þar sem hægt er að senda fyrirspurn.


15.12.2011 23:16

dularfulla ábendinginn

ÞAð gerist ansi oft að ég fæ ábendingu um hitt og þetta varðandi listanna sem eru á síðunni.  t.d að það vanti róður, vanti bát eða að heimahöfn sé vitlaus.
þessar ábendingar koma á allskonar vegu.  ég hitti fólk á götunni, það er hring í mig, sent sms, og sendur netpóstur.
enn aldrei áður hef ég fengið nafntlaust sms eins og ég fékk núna áðan .  fékk ábendiguu um Hafölduna SI. ég er ´buinn að laga það, enn þessi ábending vakti athygli mína.  ekkert nafn bara dularfullur lesandi síðunnar, og jú fannst mér ansi merkielgt
  Vill þessi aðili kanski kaupa bókina mína.
en getið þið kanski áttað ykkur á því um hvað þessi ábending snerist um.  ?
kv

15.12.2011 18:02

Er þorskur útum allt???


þetta haust er búið að vera ansi óvenjulegt.  og þá sérstaklega við norðanvert landið. því mjög  mikil þorskveiði er búinn að vera þar og sést það bara á því hversu mikinn afla Björgúlfur EA, Björgvin EA og Kaldbakur EA hafa verið með.  
Núna í desember þá halda þessi skip áfram að fiska vel.  Kaldbakur EA byrjaði með 214 tonna löndun og kom síðan með 193 tonn eftir 6 daga túr, það gerir um 32 tonn á dag,
Björgúlfur EA kom með 143 tonn eftir um 5 daga á veiðum sem gerir tæp 29 tonn á dag, og er búinn að fá um 400 tonn núna í desember í þrem löndunum.
og Björgvin EA kom með 113 tonn eftir um 5 daga á veiðum,

Svo kom þorskskot hjá nokkrum dragnótabátum.  Guðmundur Jensson SH kom með 28 tonn að landi og var uppistaðan þorskur.  Örn KE kom með 22 tonn.  Aðalbjörg II RE 12,6 tonn og Aðalbjörg RE 13,2 tonn.  hjá öllum þessum bátum var þorskur uppistaða afla.  
Og svo Sólborg RE sem getið er um að neðan.  með sín 36 tonn.
Semsé þorskur útum allt og það er ekki að furða að liggur við hver einasti skipstjóri á landinu segir það það sé vel hægt að auka þorskkvótann.  verður spennandi að sjá hvernig næsta vetrarvertíð kemur til með að vera

Mynd Fiskifréttir

15.12.2011 16:24

Drekkhlaðin Sólborg RE

desember mánuður hefur nú oftast verið ansi lélegur mánuður hjá dragnótabátum og t.d núna þá eru þónokkrir bátar sem eru ekki að stunda veiðar.  t.d Farsæll GK, Steinunn SH og Hásteinn ÁR

Það eru þó nokkrir sem halda úti róðrum núna í des og einn af þeim er Sólborg RE sem Brim gerir út.  Sólborg RE var í kroppi þangað til núna nokkrum dögum,

Því báturin kom með 35,6 tonn að landi og var það svo til allt þorskur.

vekur þessi róður ansi mikla athygli 


Sólborg RE Mynd Gísli Reynisson

14.12.2011 04:22

dagurinn í dag

Já kæru vinir þið eruð ábyggilega orðin þreytt á að hafa sama efnið fast efst á síðunni.  Bókin mín er búinn að vera þarna efst, enda jú var ég að reyna að auglýsa hana. 

Enn get nú glatt ykkur á því að einhvern tímann í dag þá munu nokkrir listar verða uppfærðir og mun þá bókin mín fara aðeins niður síðuna, 

Takk líka fyrir að sýna þessu bókarverkefni mínu áhuga.



14.12.2011 04:21

Bókin komin út og í sölu

Þetta er búið að vera ansi langt og mikið ferli að safna og vinna úr aflaupplýsungunum fyrir árið 1971 saman.  loksins er því lokið og bókin er kominn út.



Bókin er 120 blaðsíður og fæst hjá síðuhöfundi.

Þeir sem hafa áhuga á eintaki geta pantað í síma 6635575
eða sent póst á gis@rafpostur.is
eða í einkapóst hérna á síðunni


06.12.2011 09:43

Bátar nóvembers

Nóvember búinn og þá er fyrsta valið komið hérna að neðan

Flokkur

Nafn báts

Afhverju

 

Smábátar yfir 10 BT

Dögg SU

Hvað er hægt að segja.  Ævintýrið um Dögg SU heldur bara áfram.  Ótrúlegt hvað báturinn hefur fiskað vel

 

Smábátar undir 10 BT

Birta Dís GK

Átti stærsta einstaka róður allra smábáta undir 10 BT og að auki stærsta róður allra smábáta sem réru frá Suðurnesjunum.

 

Dragnót

Stormur SH

Mjög dræm dragnótaveiði var í nóv, Enn Stormur SH lét það ekkert á sig fá og var langhæstur. 

 

Troll

Hringur SH

Var langhæstur trollbátanna og slagaði vel uppí ísfiskstogaranna

 

Ísfiskstogarar

Kaldbakur EA

Tvær landanir yfir 190 tonn og varð hæstur. Náði yfir 800 tonna afla sem er mjög gott

 

Netabátar

Jökull ÞH

Setti met í mestum afla sem netabátur frá Norðurlandi hefur fengið.  Varð annar á eftir Hvanney SF

 

Línubátar

Sighvatur GK

Varð annar í nóv og komst tvisvar í 100 tonn í einum róðri

 

Rækjubátar

Halldór Sigurðsson ÍS

Mokveiddi í Ísafirðinum og var hæstur þar, ekki nóg með það því báturinn varð hæstur allra rækjubáta á landinu

 

Annað

 

 

 

 

 

05.12.2011 20:02

Njörður BA 114

Smábátalistinn undir 10 BT er einn erfiðasti listinn á síðunni sem ég reikna.  á meðan að forritið sem ég hafði er ekki nothæft þá þarf ég að handreikna alla bátanna og það getur tekið nokkrar klukkutíma.
og þá getur það skeð að einn og einn bátur er ekki með.

Njörður BA sem er cleopatra 28 bátur sem er búið að breyta í Cleopötru 31 L eins og Birta Dís GK.  var t.d ekki á síðustu þrem listum.  

Njörður BA á Tálknafirði.  Mynd Gísli Reynisson.

ég er búinn að reikna bátinn og búinn að setja hann á septemberlistann þar sem báturinn lenti frekar neðarlega
í október þá var báturinn í 20 sætinu 
og núna í nóvember þá náði Njörður BA alla leið í 13 sætið.

Ekki nóg með að báturinn hafi náð inná topp 15 heldur var stærsti róður bátsins 6,4 tonn og var með næststærsti róður allra smábáta undir 10 BT í nóvember,

Að sögn Bjarna útgerðarmanns og skipstjóra á Njörð BA þá róa þeir með 24 bala og það gerir því 270 kíló á bala í 6,4 tonna róðrinum.  þeir eru um 25 til 30  mílur út frá Tálknafirði enn þess má geta að sjálfur Tálknafjörðurinn er um 14 mílur.

Allavega Njörður BA er kominn í útreikinganna mína og því getum við fylgst með bátnum í vetur.  

05.12.2011 15:56

Mesti afli netabáts á norðurlandinu!

Þeir netabátar sem hafa verð að róa frá Norðurlandinu og hafa beint sjónum sínum af ufsanum hafa nú verð nokkrir.  En undanfarin sirks 10 ár eða svo þá hafa ekki margir stóri bátar stundað þær veiðar.  Ufsinn er helst að gefa sig á milli Grímseyjar og Kolbeinseyjar.  
Jökull ÞH er eini stóri netabáturinn sem hefur verið að veiða ufsann og hefur gengið bara nokkuð vel.  hefur verið að koma með allt að 50 tonn í róðri.
Þangað til undir lok nóvember.  
Báturinn var um 4 daga úti, reyndar var skítabræla hjá þeim fyrstu svo til 2 daganna.  Þeir lögðu 3  12 neta trossur og þau voru bunkuð af ufsa.  þessar 3 trossur voru lagðar aftur legið yfir og dregið og var þá annað eins í þeim.  
Þegar upp var staðið þá var lestin í Jökli ÞH orðin sneisafull og báturinn eins og góður loðnubátur á leið til hafnar í Húsavík. En þangað er um 5 til 6 tíma stím.  
Og þegar landað var úr bátnum þá var aflinn 87 tonn, þar af ufsi um 80 tonn.  Þessi risaróður er án efa einn stærsti róður sem netabátur frá Norðurlandi hefur fengið.  

Jökull ÞH Mynd Hafþór Hreiðarsson.

05.12.2011 15:51

Netabátar í Nóvember

Listi númer 5

Hvanney SF var með 35 tn í 4 róðrum

og Jökull ÞH nær yfir 200 tonnin

Friðrik Sigurðsson ÁR var með 76 tní 2 og þar af 54 tní einum róðri

Erling KE 15 tní 4

Haukaberg SH 14 tní 5

Kristbjörg VE og Brynjólfur VE er báðir byrjaðir á netum og er þetta óvenjulega snemmt hjá báðum þessum bátum

gefur góða fyrirheit varðandi næstu vetrarvertíð að þessir tveir VE bátar skulu byrja svona snemma

Árni á Teigi GK va rmeð 13,3 tn´i 6

Sæti Sæti áður Nafn Afli Róðrar ..Mest.. Löndunarhöfn
1 1 Hvanney SF 294,5 13 51,2 Höfn
2 2 Jökull ÞH 206,5 4 87,6 Húsavík
3 6 Friðrik.Sigurðsson.ÁR.... 148,3 6 54,5 Þorlákshöfn
4 3 Erling KE 100,6 17 14,3 Njarðvík
5 4 Magnús SH 87,1 8 19,5 Rif
6 5 Glófaxi VE 79,4 6 23,6 Vestmannaeyjar
7 7 Grímsnes BA 78,1 17 14,5 Grindavík,Njarðvík,Bíldudalur
8 8 Happasæll KE 59,6 19 12,7 Keflavík.
9 9 Maron HU 46,6 16 4,8 Njarðvík
10 10 Egill SH 44,6 10 7,1 Ólafsvík
11 13 Haukaberg SH 38,4 14 4,4 Grundarfjörður
12 122 Kristbjörg VE 38,1 1 38,1 Vestmannaeyjar
13 11 Sægrímur GK 33,7 13 7,6 Njarðvík
14 14 Askur GK 33,1 16 5,9 Grindavík,Sandgerði
15 12 Sæþór EA 32,3 15 3,7 Dalvík
16 15 Níels Jónsson EA 20,5 17 3,2 Hauganes
17 16 Arnar SH 2660 20,2 10 3,1 Grundarfjörður
18 74 Brynjólfur VE 20,1 1 20,1 Vestmannaeyjar
19 18 Bárður SH 18,8 14 3,4 Arnarstapi
20 35 Árni í Teigi GK 17,1 10 3,5 Grindavík,Sandgerði
21 22 Ísak AK 16,7 10 2,1 Arnarstapi
22 21 Hraunsvík GK 16,6 10 3,1 Grindavík
23 19 Katrín SH 16,5 12 2,7 Arnarstapi
24 20 Hafnartindur SH 16,4 15 2,7 Rif
25 17 Sandvík SH 15,0 9 4 Stykkishólmur
26 24 Keilir II AK 14,7 14 2,4 ,Arnarstapi
27 23 Haförn ÞH 12,2 9 1,9 Húsavík
28 27 Halldór NS 9,9 9 1,3 Grundarfjröður
29 25 Dagrún ST 9,5 5 4,3 Skagaströnd
30 26 Svala Dís KE 8,30 9 1,8 Rif

05.12.2011 15:43

Netabátar í Desember

Listi númer 1,

Florr byrjun hjá Maroni HU enn hann er í öðru sætinu,  Happasæll KE kominn til Sandgerðis.

Ólafur Bjarnarsson SH og Eiður ÓF komnir á netin og flott byrjun hjá Eiði ÓF 

Sandvík SH er á síldveiðum

Sæti Sæti áður Nafn Afli Róðrar Mest Löndunarhöfn
1
Hvanney SF 41,35 4 12,3 Höfn
2
Maron HU 22,49 4 7,8 Njarðvík
3
Erling KE 17,82 3 9,1 Njarðvík
4
Glófaxi VE 16,40 1 16,3 Vestmannaeyjar
5
Happasæll KE 14,73 4 5,3 Sandgerði
6
Egill SH 11,28 2 5,9 Ólafsvík
7
Ólafur.Bjarnarsson.SH 10,91 2 6,2 Ólafsvík
8
Eiður ÓF 8,53 2 4,9 Ólafsfjörður
9
Grímsnes BA 6,98 2 4,4 Grindavík
10
Sægrímur GK 6,59 4 3,2 Njarðvík
11
Magnús SH 3,94 1 3,9 Rif
12
Askur GK  2,86 4
Grindavík
13
Sandvík SH 2,00 1 2 Stykkishólmur
14
Ársæll Sigurðsson GK  1,19 1 1,1 Sandgerði
15
Bárður SH 0,97 1
Arnarstapi
16
Hafnartindur SH  0,77 1
Rif
17
Sædís ÍS  0,74 3
Bolungarvík
18
Árni í Teigi GK  0,69 1
Grindavík,Sandgerði
19
Keilir II AK 0,59 1
,Arnarstapi
20
Gullfari HF 0,44 1
Grindavík
21
Sunna Líf KE 0,30 1
Sandgerði

05.12.2011 15:36

Dragnót í Nóvember

Listi númer 5

Stormur endar vel komst í 28 tonn í einum róðri undir lok nóv.  og endaði lang hæstur.

annars var afli hinnar bátanna frekar dræmur.  

Þó náði Sólborg RE smá skoti undir lokinn þegar að báturinn kom með 13,4 tní einum róðri og var með 18,6 tn í 2 róðrum inná þennan lista

Sæti Sæti áður Nafn Afli Landanir ...Mest... Löndunarhöfn
1 1 Stormur SH 157,12 14 27,9 Bolungarvík
2 2 Egill ÍS 117,40 17 12,5 Þingeyri
3 3 Rifsari SH 100,20 11 18,6 Bolungarvík,rif
4 4 Arnar ÁR 72,77 4 24,8 Þorlákshöfn
5 5 Geir ÞH 69,49 10 19,5 Vopnafjörður
6 6 Benni Sæm GK 60,41 14 13,1 Keflavík
7 8 Arnþór GK 56,19 15 12,1 Keflavík
8 14 Sólborg RE 55,47 14 13,4 Þorlákshöfn
9 7 Örn KE 53,53 15 13,1 Sandgerði
10 9 Njáll RE 48,36 13 14,6 Keflavík
11 13 Portland VE 47,53 8 22,5 Vestmannaeyjar
12 11 Siggi Bjarna GK 46,58 15 11,5 Sandgerði
13 10 Hafborg EA 42,60 13 7,6 Húsavík
14 12 Guðmundur.Jensson.SH.... 41,27 12 9,8 Ólafsvík
15 15 Esjar SH 37,85 12 5,6 Patreksfjörður
16 21 Aðalbjörg RE 36,70 14 6,1 Reykjavík
17 16 Eiður ÓF 34,68 9 7,2 Húsavík,ólafsfjörður
18 17 Þorleifur EA 32,75 10 9,2 Dalvík,Grímsey,Húsavík
19 24 Sigurfari GK 32,05 13 5,2 Sandgerði
20 20 Gunnar Bjarnarsson SH 31,69 14 5,4 Ólafsvík
21 18 Matthías SH 31,68 12 5,7 Rif,,patreksfjörður
22 19 Hera ÞH 31,60 12 4,5 Húsavík
23 22 Jóhanna ÁR 30,46 8 7,7 Þorlákshöfn
24 23 Páll Helgi ÍS 25,11 7 13,4 Bolungarvík
25 25 Sveinbjörn Jakopsson SH 20,18 13 4,1 Ólafsvík
26 28 Farsæll GK 17,87 13 2,3 Grindavík,Sandgerði
27 26 Egill SH 17,73 4 8,4 Ólafsvík
28 27 Aðalbjörg II RE 16,38 7 3,6 Reykjavík
29 29 Ólafur Bjarnarsson SH 13,38 11 1,4 Ólafsvík
30 30 Tjálfi SU 11,17 8 2,9 Djúpavogi

05.12.2011 15:22

Botnvörpungar í Nóvember

Listi númer 4

Mjög góður togveiði mánuður að baki.

og Kaldbakur EA kemur með 194 tonna afla í seinasta löndun sinni í nóv og stelur þar með efsta sætinu af Ásbirni RE.  

enn samt gríðarlega góður afli hjá báðum skipunum

Ottó N Þorláksson RE var með 144 tní 1
Björgvin EA 112 tn í 1
Sturlaugur H Böðvarsson AK 124 tní 1
Klakkur SK 120 tní 1
Sóley Sigurjóns GK 81 tní 1

Og í fyrsta skiptið í ansi langan tíma þá nær Jón Vídalín VE inná topp 10.  var hann með 108 tní einni löndun

Hringur SH var langhæstur trollbátanna var núna með 78 tn í 1

Sæti Sæti áður Nafn afli landanir ..Mest... Löndunarhöfn
1 2 Kaldbakur EA 813,1 5 194,6 Akureyri
2 1 Ásbjörn RE 746,2 5 155,4 Reykjavík
3 3 Ottó N. Þorláksson RE 668,8 5 181,6 Reykjavík
4 4 Björgvin EA 602,3 6 137,7 Dalvík
5 6 Sturlaugur.H.Böðvarsson.AK.... 532,1 4 156,1 Reykjavík
6 8 Klakkur SK 507,5 4 131,6 Sauðárkrókur
7 7 Sóley Sigurjóns GK 482,1 5 118,9 Sandgerði
8 5 Björgúlfur EA 460,5 4 141,1 Dalvík
9 10 Bjartur NK 428,1 5 95,7 Neskaupstaður
10 15 Jón Vídalín VE 419,6 5 122,7 Vestmannaeyjar,Reykjavík
11 11 Páll Pálsson ÍS 409,1 7 63,6 Ísafjörður
12 13 Gullver NS 399,5 5 92,1 Seyðisfjörður
13 9 Þórunn Sveinsdóttir VE 370,3 5 84,3 Vestmannaeyjar
14 16 Hringur SH 368,4 5 79,5 Grundarfjörður
15 12 Berglín GK 329,3 4 87,6 Sandgerði
16 14 Gullberg VE 315,5 4 81,8 Vestmannaeyjar
17 21 Ljósafell SU 298,2 4 85,4 Fáskrúðsfjörður
18 17 Stefnir ÍS 294,5 5 51,1 Ísafjörður
19 19 Suðurey VE 292,6 4 82,2 Þórshöfn
20 18 Vörður EA 230,6 5 60,3 Grindavík
21 20 Múlaberg SI 215,7 3 84,6 Siglufjörður, Þorlákshöfn
22 26 Helga RE 207,7 5 55,1 Reykjavík
23 25 Farsæll SH 205,1 5 46,5 Grundarfjörður
24 27 Helgi SH 203,6 3 52,2 Grundarfjörður
25 22 Bergey VE 196,3 4 62,1 Vestmannaeyjar
26 23 Steinunn SF 192,9 3 70,7 Reykjavík
27 24 Oddgeir EA 184,2 4 57,5 Grindavík
28 34 Sóley SH 152,1 5 43,6 Grundarfjörður
29 28 Bergur VE 151,7 3 62,2 Vestmannaeyjar,
30 29 Vestmannaey VE 145,1 4 46,3 Vestmannaeyjar

05.12.2011 15:03

línubátar í Nóvember

Listi númer 3

Jáj ansi lítill munur á efstu skipunum og Jóhanna Gísladóttir ÍS er hæst annan mánuðinn í r0p.  var núna með 303 tonn í 3 róðrum þar af 116 tonn í einni löndun.  stelur efsta sætinu af Kristínu ÞH.

Kristín ÞH var með 167 tn í 2
Páll Jónsson GK 183 tn í 2
Fjölnir SU 165 tn í 2
Tjaldur SH 152 tní 2
Sturla GK 150 tn í 2
Valdimar GK 139 tní 2
Sighvatur GK 184 tní 2

Tómas Þorvaldsson GK 110 tní 2
Gullhólmi SH 125 tní 2

Góð veiði var hjá balabátunum

Hamar SH var með 44 tní 6 og var hæstur balabátanna
Kópur BA 84 tn í 11 

Vestri BA 48 tní 7
Gulltoppur GK 27 tní 5
Brimnes BA 40 tn í 6

Sæti Sæti áður Nafn Afli Landanir Mest Löndunarhöfn
1 11 Jóhanna.Gísladóttir.ÍS...... 460,02 5 116,5 Grindavík,Skagströnd
2 1 Kristín ÞH 446,16 5 97,5 Húsavík
3 8 Páll Jónsson GK 445,49 5 105,9 Djúpivogur
4 2 Fjölnir SU 433,66 6 87,5 Djúpivogur
5 3 Tjaldur SH 387,24 6 81,1 Dalvík,rif
6 4 Sturla GK 383,92 5 86,1 Grindavík
7 5 Valdimar GK 362,57 5 77,6 Grindavík
8 9 Sighvatur GK 361,55 4 100,3 Húsavík
9 6 Ágúst GK 339,75 5 83,5 Grindavík
10 7 Núpur BA 287,03 6 70,3 Pareksfjörður
11 10 Kristrún RE 257,83 6 64,6 Eskifjörðiur,Reykjavík
12 12 Tómas Þorvaldsson GK 257,11 4 77,5 Grindavík
13 19 Grundfirðingur SH 232,06 5 57,6 Grundarfjörður
14 16 Gullhólmi SH 222,96 5 60,6 Dalvík
15 22 Þorlákur ÍS 211,51 5 57,7 Bolungarvík,
16 13 Örvar SH 207,14 5 69,3 Bolungarvík,skagaströnd, rif
17 18 Saxhamar SH 186,35 4 54,8 Rif
18 15 Rifsnes SH 178,17 4 53,7 Rif
19 17 Hamar SH 131,42 16 11,2 Bolungarvík,
20 24 Kópur BA 122,05 17 10,1 Tálknafjörður
21 14 Þórsnes II SH 119,70 9 31,1 Breiðdalsvík
22 21 Vestri BA 117,10 18 9,1 Patreksfjörður
23 20 Gulltoppur GK 100,28 14 12,6 Djúpivogur
24 23 Brimnes BA 98,95 16 9,8 Pareksfjörður
25 28 Arnarberg ÁR 20,8 2 16,3 Þorlákshöfn
26 25 Jón Gunnlaugs ÁR 6,1 2 4,1 Hafnarfjörður
27 27 Stafnes KE 3,4 3 2,2 Sandgerði
28 31 Valþór NS 2,4 1 2,4 Hafnarfjörður
29 26 Kristbjörg ÍS 1,9 1 1,9 Flateyri

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1053
Gestir í dag: 287
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611725
Samtals gestir: 580966
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 19:26:30

Tenglar