Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
13.02.2013 03:14
Víkingur AK farin til veiða
Núna er búið að auka við loðnukvótann og þá má segja að allir bátar séu settir til veiða, og á Akranesi og í Vestmannaeyjum hafa legið þrír bátar sem hafa verið notaðir til loðnuveiða sem aukabátar. Eru það Ísleifur VE, Sigurður VE og á Akranesi Víkingur AK.
Núna hefur Víkingur AK verið settur á veiðar og þegar þessi orð eru skrifuð þá er báturinn að nálgast Garðaskaga á leið á miðin.
Þessi gamli síðutogari sem er orðin 53 ára gamall ber um 1440 tonn og ef hægt er að setja loðnubátanna í virðaringarstigann þá er hann efstur í honum ásamt Sigurði VE sem er reyndar ekki farin til veiða, en líklegast fer hann til veiða líka.
![]() |
| Mynd Þorgeir Baldursson |
![]() |
| Mynd Kristján Maack |
![]() |
| Mynd Björn Lúðvíksson |
10.02.2013 20:26
Mikið líf í Sandgerðishöfn
Það er búið að vera skítaveður núna það sem af er febrúar og dagurinn í dag 10 febrúar var ansi góður og þá fóru allir á sjó. Ég átti leið um höfnina í Sandgerði og þá var verið að landa þar á öllum þeim 5 krönum sem þar eru en það samt dugði ekki til því bátar voru að koma í land og biðu eftir löndun.
Afli hjá bátunum var mjög góður um og yfir 200 kíló á bala.
Þeir bátar sem voru að landa þarna og voru að bíða voru eftirfarandi.
Kristján HF ( með 7 til 8 tonn)
Daðey GK ( um 7 tonn)
Pálína ÁGústdóttir GK ( um 7 tonn). en þess má geta að þessi löndun var næst síðasta löndun bátsins á balaveiðum því báturinn er að fara á línuveiðar með beitninavél,
Svala Dís KE ( um 6 tonn).
Muggur KE ( um 7 tonn).
Svo voru að bíða Gísli Súrsson GK ( vel siginn vissi ekki um aflann á honum)
Steini GK ( um 7,5 tonn)
Von GK
Ragnar Alfreðs GK.
Læt svo fylgja með myndir sem ég tók , enn þess má geta að allar myndirnar eru teknar á símann minn.
![]() |
| Kristján HF að landa og Muggur KE að komast undir kranann |
![]() |
|
Gísli Súrsson GK vel siginn. náði ekki að kanna aflabrögð þeirra. ef vel er gáð sést að strákarnir á bátnum eru bara að hafa það gott í brúnni. |
![]() |
| Steini GK sem var aflahæstur smábátanna frá 10 til 11 BT er þarna vel siginn með um 7,5 tonn í bátnum. |
![]() |
| Sama mynd og að ofan en þarna er ég búinn að "kroppa" Steina GK nær. og eins og sést er hann vel siginn |
![]() |
|
Svala Dís KE sem vanalega hefur verið á netum, var í fjórða línuróðri sínum á vertíðnni. aflinn um 6 tonn. Skipstjórinn tjáði mér að takmarkið væri fyrir 11 febrúar að koma með 7 tonn og þar yfir. |
![]() |
| Pálína Ágústdóttir GK. Gísli var sáttur með daginn og hann á eftir einn róður á bölunum |
![]() |
| Nokkrir bátar að bíða. til vinstri er Steini GK, blái báturinn er Ragnar Alfeðs GK og þar bakvið var svo Von GK |
![]() |
| Kiddó skipstjóri á Steina GK og Óli hásetir voru ánægðir með daginn. lestin full og öll kör líka. |
09.02.2013 18:31
Bátar Janúars 2013
|
Flokkur |
Nafn báts |
Afhverju |
|
|
Smábátar yfir 10 BT |
Tryggvi Eðvarðs SH |
Mikill darraðadans var á toppnum og strákarnir á Tryggva náðu toppnum undir lokin. Komst í rúm 13 tonn í róðri. |
|
|
Smábátar undir 10 BT |
Lilja BA |
Það eru ekki margir bátar sem eru á handfæraveiðum í janúar. Lilja BA fór í langflesta handfæraróðranna eða 14 og var með 8,3 tonn úr því |
|
|
Dragnót |
Benni Sæm GK |
Varð aflahæstur Suðurnesjabátanna og sá eini af þeim sem komst inná topp 5. Þetta er í fyrsta skipti sem báturinn er hæstur Suðurnesjabátanna |
|
|
Troll |
Steinunn SF |
Var hæstur bátanna |
|
|
Ísfiskstogarar |
Árbakur EA |
Enn og aftur er togarinn hæstur og er þetta þriðji mánuðurin í röð sem að togarinn er aflahæstur |
|
|
Netabátar |
Þórsnes SH |
Hæstur netabátanna og landaði mest 90 tonnum í einni löndun eftir útilegu á netum |
|
|
Línubátar |
Sighvatur GK |
Varð aflahæstur línubátanna |
|
|
Rækjubátar |
Egill ÍS |
Langhæstur innanfjarðarrækjubátanna og komst mest í tæp 10 tonn í einum róðri |
|
|
Annað
|
|
|
|
08.02.2013 20:09
Nýr bátur kominn á línuveiðar
Það eru ekki margir stórir bátar að stunda línuveiðar með bölum. Þeir helstu eru einungis Brimnes BA, Hamar SH og Gulltoppur GK. En núna hefur orðið breyting á því að Stormur SH hefur hafið línuveiðar. Er þetta í fyrsta skiptið sem Stormur SH fer á línuna en hann hefur hingað til verið á dragnót.
Beitt er að bátnum í Sandgerði og er báturinn búinn að landa tvisvar um 11 tonnum. Stormur SH byrjaði að veiðum utan við Sandgerði en færði síg síðan vestur á Rif og hefur verið að veiðum við Snæfellsnesið og líka vestur við Látrabjarg.
Verðru því fróðlegt að fylgjast með gengi Storms SH inná línulistanum á síðunni.
![]() |
| Mynd Grétar Þór Sæþórsson |
06.02.2013 17:50
Smábátar undir 10 BT í janúar 2013
Listi númer 3.
lokalistinn.
Það fór þá þannig að bátar Sverrisútgerðarinnar náðu tveim efstu sætunum og báðir bátarnir áttu 6,9 tonna róðra sem sína stærstu róðra.
Frábær árangur hjá Konráði EA sem nær að hanga í þriðja sætinu.
Addi AFi GK var með 8 ton í 2
Síldarbátarnir Kiddi RE og Sigrún AK fiskuðu vel og eru báðir inná topp 10
einn bátur kemst á listann
Njörður BA kom með 5,6 tn í einum ´roðri
Handfærabáturinn Lilja BA var ansi nálgt því að ná á listann en báturinn endaði sem aflahæstur handfærabátanna í sæti númer 46 með 8,3 tonna afla í 14 róðrum,
| Sæti | Sæti Síðast | Nafn | Afli | Róðrar | Mest | Veiðarfæri | Höfn |
| 1 | 1 | Glaður SH-226 | 51,27 | 12 | 6,9 | Lína | Ólafsvík |
| 2 | 3 | Sverrir SH | 44,81 | 14 | 6,9 | Lína | Ólafsvík |
| 3 | 2 | Konráð EA | 41,72 | 18 | 3,3 | Lína | Grímsey |
| 4 | 6 | Addi afi GK-97 | 39,64 | 11 | 5,6 | Lína | Sandgerði |
| 5 | 9 | Kiddi RE-89 | 36,86 | 10 | 6,2 | Síldarnet | Stykkishólmur |
| 6 | 4 | Kári SH | 36,63 | 10 | 5,7 | Lína | Stykkishólmur |
| 7 | 7 | Petra SI-18 | 35,78 | 9 | 5,8 | Lína | Siglufjörður |
| 8 | 8 | Herja ST-166 | 35,36 | 9 | 4,9 | Lína | Hólmavík |
| 9 | 5 | Björg Hauks ÍS | 34,48 | 12 | 4,2 | Lína | Ísafjörður |
| 10 | 10 | Sigrún AK | 32,09 | 11 | 6,2 | Síldarnet | Grundarfjörður |
| 11 | 13 | Eydís EA-44 | 27,86 | 12 | 3,5 | Lína | Hrísey,Dalvík |
| 12 | 14 | Blossi ÍS-125 | 21,72 | 8 | 3,9 | Lína | Flateyri |
| 13 | 11 | Jónína EA-185 | 21,21 | 10 | 3,4 | Lína | Grímsey |
| 14 | 15 | Eiður ÓF-4 | 21,18 | 14 | 3,1 | Net | Ólafsfjörður |
| 15 | 12 | Bjargey ÞH-238 | 20,68 | 9 | 3,3 | Lína | Raufarhöfn |
| 16 | 19 | Blíða VE-263 | 19,48 | 10 | 3,1 | Lína | Vestmannaeyjar |
| 17 | 18 | Sæfugl ST-81 | 19,38 | 11 | 2,6 | Lína | Hólmavík |
| 18 | 17 | Slyngur EA-74 | 18,88 | 12 | 1,9 | Lína | Dalvík |
| 19 | 20 | Sæfari SK-112 | 18,84 | 10 | 3,1 | Lína | Skagaströnd |
| 20 | 16 | Anna Karín SH-316 | 18,32 | 5 | 4,8 | Síldarnet | Stykkishólmur |
| 21 | 21 | Birta SH-203 | 16,65 | 8 | 2,9 | Lína | Grundarfjörður |
| 22 | 22 | Toni EA-62 | 15,47 | 10 | 2,3 | Lína | Dalvík |
| 23 | 24 | Birta Dís GK-135 | 14,45 | 4 | 5,4 | Lína | Sandgerði |
| 24 | 39 | Hlöddi VE-98 | 13,39 | 7 | 2,3 | Lína | Vestmannaeyjar |
| 25 | 33 | Diddi KE-56 | 12,49 | 5 | 3,7 | Lína | Sandgerði |
| 26 | 26 | Garðar ÍS-22 | 12,44 | 7 | 2,8 | Lína | Flateyri |
| 27 | 47 | Njörður BA-114 | 12,14 | 4 | 5,6 | Lína | Tálknafjörður |
| 28 | 23 | Ásþór RE | 11,95 | 9 | 1,8 | lina | Reykjavík |
| 29 | 25 | Glaður SH-46 | 11,81 | 5 | 2,8 | Síldarnet | Stykkishólmur |
| 30 | 36 | Skáley SK-32 | 11,78 | 5 | 2,8 | Lína | Hofsós |
| 31 | 31 | Gunnþór ÞH | 11,62 | 7 | 3,1 | Lína | Raufarhöfn |
| 32 | 32 | Jaki EA-15 | 11,42 | 8 | 1,9 | Lína | Dalvík |
| 33 | 27 | Litlitindur SU-508 | 10,83 | 11 | 2,1 | Net | Fáskrúðsfjörður |
| 34 | 28 | Hanna SH-28 | 10,81 | 5 | 3,4 | Lína | Stykkishólmur |
| 35 | 38 | Kristborg SH-108 | 10,81 | 10 | 1,6 | Lína | Stykkishólmur |
| 36 | 29 | Hólmarinn SH-114 | 10,75 | 6 | 2,1 | Lína | Stykkishólmur |
| 37 | 30 | Hilmir ST-1 | 10,74 | 3 | 4,9 | Lína | Hólmavík |
| 38 | 41 | Flugaldan ST-54 | 10,19 | 9 | 1,9 | Lína | Akranes |
| 39 | 45 | Ásmundur SK-123 | 9,78 | 7 | 3,1 | lína | Hofsós |
| 40 | 34 | Oliver SH 248 | 9,31 | 7 | 2,1 | Lína | Ólafsvík |
| 41 | 35 | Snjólfur ÍS-23 | 9,31 | 3 | 4,2 | Lína | Bolungarvík |
| 42 | 40 | Nonni ÞH-312 | 9,23 | 9 | 2,1 | Lína | Þórshöfn |
| 43 | 37 | Ás NS-78 | 9,17 | 14 | 1,4 | Net | Vopnafjörður |
| 44 | 44 | Andri SH-450 | 8,99 | 4 | 3,1 | Síldarnet | Stykkishólmur |
| 45 | 42 | Geisli SK-66 | 8,84 | 6 | 2,3 | lina | Hofsós |
05.02.2013 09:18
Smábátar yfir 10 BT í janúar 2013
Listi númer 6.
Já strákarnir á Tryggva Eðvarðs SH höfðu það á endanum og voru með 17 tn í 2 og náðu að negla sig í efsta sætið
Kristinn II SH var með 12 tn í 2
Miklar brælur gerður Bolungarvíkurbátunu lífið leitt og fór þeir ekki á sjó í 4 daga sem telst nokkuð mikið þar á bæ.þ
Særif SH var með 19 tn í 3
Brynja SH 8 tn í 1
Kristján HF 14 tní 2 og slefar yfir 100 tonnin
Óli Gísla HU 10 tn í 1
Birta BA 9,1 tn í 1
Bátarnir frá Sandgerði fiskuðu vel síðustu daganna og ná allir að lyfta sér upp listann.
Gísli Súrsson GK var með 19 tn í 3 þar af 10,5 tn í 1
Daðey GK 27 tonn í 3 og þar af 10 tn í 1, en báturinn landaði í Grindavík
Dóri GK 13 tn í 2
Bergur Vigfús GK 10 tn í 2
Von GK 18 tn í 1 og þar af 11,2 tn í 1
Muggur KE 11 tn í 2
Sæborg SU 10 tn í 2
Sædís Bára GK 12 tn í 2
Pálína Ágústdóttir GK 11,3 tn í 2
Steini GK 9,5 tn í 2
Bjössi RE 8,6 tn í 2
Maggi Jóns KE 9,5 tn í 2
Guðrún Petrína GK , Sæunn Sæmundsdóttir ÁR og Sæhamar SH ná allir að komast inná lokalistann.
| Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Landanir | Mest | Höfn | Meðalafli |
| 1 | 1 | Tryggvi Eðvarðs SH | 164,95 | 21 | 13,2 | Rif | 7,9 |
| 2 | 2 | Kristinn ll SH | 153,48 | 17 | 12,3 | Ólafsvík | 9,0 |
| 3 | 3 | Fríða Dagmar ÍS | 144,66 | 21 | 10,9 | Bolungarvík | 6,9 |
| 4 | 5 | Hrólfur Einarsson ÍS | 143,44 | 22 | 11,1 | Bolungarvík | 6,5 |
| 5 | 4 | Bliki ÍS | 141,67 | 26 | 11,4 | Bolungarvík | 5,4 |
| 6 | 6 | Einar Hálfdáns ÍS | 126,61 | 27 | 8,2 | Bolungarvík | 4,7 |
| 7 | 7 | Sirrý ÍS | 119,76 | 26 | 8,3 | Bolungarvík | 4,6 |
| 8 | 8 | Særif SH | 115,59 | 19 | 9,1 | Rif | 6,1 |
| 9 | 9 | Brynja SH | 102,77 | 17 | 12,5 | Ólafsvík | 6,0 |
| 10 | 11 | Kristján HF | 100,79 | 21 | 7,3 | Hafnarfjörður | 4,8 |
| 11 | 10 | Steinunn HF | 99,21 | 22 | 7,8 | Bolungarvík,flateyri | 4,5 |
| 12 | 13 | Bíldsey SH | 91,84 | 14 | 10,8 | Stykkishólmur | 6,6 |
| 13 | 16 | Óli á Stað GK | 89,56 | 19 | 7,2 | Sandgerði,hafnarfj | 4,7 |
| 14 | 12 | Siggi Bjartar ÍS | 89,55 | 22 | 6,5 | Bolungarvík | 4,1 |
| 15 | 14 | Oddur á Nesi SI | 87,26 | 20 | 6,5 | Siglufjörður | 4,4 |
| 16 | 19 | Gísli Súrsson GK | 85,52 | 17 | 10,5 | Sandgerði | 5,0 |
| 17 | 31 | Daðey GK. | 79,51 | 14 | 9,7 | Sandgerði,grindavík | 5,7 |
| 18 | 15 | Narfi SU | 79,27 | 15 | 7,7 | Stöðvarfjörður | 5,3 |
| 19 | 18 | Kvika SH | 78,95 | 20 | 6,1 | Arnarstapi | 3,9 |
| 20 | 20 | Þórkatla GK | 77,21 | 14 | 7,5 | Sandgerði | 5,5 |
| 21 | 17 | Mávur SI | 76,31 | 18 | 5,6 | Siglufjörður | 4,2 |
| 22 | 23 | Auður Vésteins SU | 74,57 | 15 | 7,8 | Sandgerði | 5,0 |
| 23 | 22 | Lilja SH | 73,64 | 17 | 7,5 | Rif,arnarstapi | 4,3 |
| 24 | 27 | Dóri GK | 70,23 | 15 | 7,3 | Sandgerði | 4,7 |
| 25 | 24 | Óli Gísla HU | 68,47 | 10 | 10,1 | Skagaströnd | 6,8 |
| 26 | 21 | Alda HU. | 68,21 | 14 | 7,8 | Skagaströnd | 4,9 |
| 27 | 37 | Von GK | 67,41 | 12 | 11,2 | Skagaströnd,sandgerði | 5,6 |
| 28 | 39 | Dúddi Gísla GK | 62,72 | 12 | 7,5 | Grindavík | 5,2 |
| 29 | 32 | Bergur Vigfús GK | 62,36 | 14 | 6,7 | Sandgerði | 4,5 |
| 30 | 29 | Sæli BA | 61,55 | 9 | 9,4 | Tálknafjörður | 6,8 |
| 31 | 26 | Stakkhamar SH | 60,87 | 16 | 5,7 | Rif | 3,8 |
| 32 | 30 | Lukka SI | 59,53 | 15 | 5,2 | Siglufjörður | 4,0 |
| 33 | 35 | Kóni II SH | 59,48 | 12 | 8,1 | Ólafsvík | 5,0 |
| 34 | 28 | Gestur Kristinsson Í | 59,44 | 15 | 6,8 | Suðureyri | 4,0 |
| 35 | 25 | Dögg SU | 57,96 | 7 | 11,1 | Stöðvarfjörður,Höfn | 8,3 |
| 36 | 33 | Lágey ÞH. | 54,33 | 11 | 7,1 | Raufarhöfn | 4,9 |
| 37 | 38 | Sólrún EA. | 53,69 | 17 | 5,3 | Árskógssandur | 3,2 |
| 38 | 40 | Indriði Kristins BA | 53,69 | 7 | 10,3 | Tálknafjörður | 7,5 |
| 39 | 46 | Muggur KE | 52,29 | 11 | 7,7 | Sandgerði | 4,7 |
| 40 | 34 | Karólína ÞH | 51,97 | 10 | 7,2 | Húsavík | 5,2 |
| 41 | 41 | Ingibjörg SH | 51,87 | 9 | 6,9 | Ólafsvík | 5,7 |
| 42 | 45 | Akraberg SI. | 51,56 | 15 | 6,3 | Akranes | 3,4 |
| 43 | 43 | Birta BA. | 51,26 | 8 | 9,5 | Patreksfjörður | 6,4 |
| 44 | 52 | Hópsnes GK | 51,21 | 14 | 8,6 | Sandgerði | 3,6 |
| 45 | 36 | Ragnar SF | 50,95 | 4 | 18,9 | Hornafjörður | 12,7 |
| 46 | 50 | Sæborg SU | 50,76 | 14 | 6,4 | Sandgerði | 4 |
| 47 | 54 | Sædís Bára GK | 48,36 | 14 | 6,3 | Sandgerði | 3,3 |
| 48 | 44 | Særún EA. | 45,89 | 18 | 4,2 | Árskógssandur | 2,5 |
| 49 | 56 | Pálína Ágústdóttir GK | 44,96 | 16 | 7,2 | Sandgerði | 2,8 |
| 50 | 48 | Hrefna ÍS | 44,61 | 11 | 6,5 | Suðureyri | 4 |
| 51 | 42 | Háey II ÞH | 44,04 | 10 | 6,5 | Húsavík | 4,4 |
| 52 | 57 | Örninn GK | 43,73 | 9 | 9,7 | Sandgerði | 4,7 |
| 53 | 47 | Guðmundur Sig SU | 42,16 | 4 | 13,8 | Hornafjörður | 10,2 |
| 54 | 49 | Guðmundur á Hópi GK | 40,71 | 10 | 7,3 | Sandgerði | 4 |
| 55 | 53 | Hlökk ST. | 40,49 | 9 | 6,1 | Hólmavík | 4,5 |
| 56 | 55 | Skúli ST . | 40,09 | 8 | 9,7 | Drangsnes | 4,9 |
| 57 | 51 | Sigrún Hrönn ÞH. | 39,17 | 7 | 7,4 | Húsavík | 5,3 |
| 58 | 65 | Steini GK | 37,13 | 11 | 5,6 | Sandgerði | 3,3 |
| 59 | 60 | Bjössi RE | 36,46 | 12 | 3,1 | Sandgerði | 3 |
| 60 | 58 | Kristján ÍS | 36,45 | 10 | 5,9 | Suðureyri | 3,5 |
| 61 | 68 | Maggi Jóns KE. | 35,24 | 10 | 5,2 | Sandgerði | 3,4 |
| 62 | 61 | Máni II ÁR | 34,39 | 10 | 4,9 | Skagaströnd,þorlákshöfn | 3,3 |
| 63 | 59 | Fönix BA. | 33,03 | 5 | 8,5 | Patreksfjörður | 6,5 |
| 64 | 66 | Signý HU | 32,32 | 12 | 4,3 | Akranes | 2,7 |
| 65 | 72 | Sæunn Sæmundsdóttir ÁR | 32,24 | 10 | 4,8 | Þorlákshöfn | 3,2 |
| 66 | 62 | Siggi Gísla EA | 32,16 | 13 | 3,3 | Hrísey | 2,5 |
| 67 | 74 | Guðrún Petrína GK | 31,92 | 8 | 5,7 | Sandgerði | 3,7 |
| 68 | 70 | Jonni SI | 29,72 | 6 | 6,7 | Siglufjörður | 4,9 |
| 69 | 69 | Vísir SH | 29,27 | 10 | 4,3 | Ólafsvík | 2,8 |
| 70 | 78 | Sæhamar S | 28,49 | 6 | 5,9 | Rif | 4,6 |
05.02.2013 09:09
Línubátar í Janúar 2013
Listi númer 3.
Flokkuninn á bátunum er eftirfarandi.
Svart eru beitningavélabátar
Rautt eru norskir bátar
Grænt eru minni beitningavélabátar
Blátt eru balabátar
Þrátt fyrir að Jóhanna Gísladóttir ÍS hafi komið með risalöndun eða 145 tonn þá dugði það ekki til þess að ná toppnum því Sighvatur GK var með 62 tn í 1 og það dugði honum til þess að ná toppnum,
Páll Jónsson GK 73 tn
Fjölnir SU 75 tn
Kristrún RE 77 tn
Sturla GK 87 tn
Núpur BA 35 tn
allir eftir eina löndun
Eins og sést þá var afli balabátanna ansi góður
og norsku bátarnri Ásta B og Saga K náðu fullfermistúrum undir lokin því Ásta B kom með 14,2 tonn að landi en Saga K kom með 22,1 tonn að landi
| Sæti | Sæti síðast | Nafn | Afli | Landanir | Mest | Höfn | Meðalafli |
| 1 | 2 | Sighvatur GK | 448,43 | 5 | 100,5 | skagaströnd | 89,7 |
| 2 | 1 | Jóhanna Gísladóttir ÍS | 436,15 | 4 | 145,3 | Grindavík,þingeyri | 109 |
| 3 | 3 | Páll Jónsson GK | 399,74 | 5 | 101,6 | djúpivogur | 79,9 |
| 4 | 4 | Fjölnir SU | 397,17 | 5 | 87,8 | Grindavík | 79,4 |
| 5 | 8 | Kristrún RE | 331,09 | 4 | 94,8 | Reykjavík | 82,8 |
| 6 | 15 | Sturla GK | 307,45 | 5 | 87,5 | Grindavík, | 61,5 |
| 7 | 6 | Núpur BA | 296,45 | 6 | 66,6 | Pareksfjörður | 49,4 |
| 8 | 5 | Tjaldur SH | 293,93 | 5 | 77,6 | Rif | 58,8 |
| 9 | 9 | Þorlákur ÍS | 281,12 | 7 | 47,8 | Bolungarvík, | 40,2 |
| 10 | 7 | Kristín ÞH | 256,36 | 3 | 100,6 | Grindavík, | 85,5 |
| 11 | 18 | Örvar SH | 250,22 | 5 | 65,4 | Rif | 50 |
| 12 | 10 | Tómas Þorvaldsson GK | 245,19 | 4 | 75,1 | Grindavík, | 61,3 |
| 13 | 11 | Grundfirðingur SH | 245,15 | 5 | 59,3 | Grundarfjörður | 49 |
| 14 | 12 | Kópur BA | 237,58 | 5 | 45,8 | Tálknafjörður | 47,5 |
| 15 | 13 | M.Solhaug | 232,65 | 5 | 59,8 | Noregur | 46,5 |
| 16 | 14 | Valdimar GK | 230,92 | 4 | 84,6 | Grindavík | 57,7 |
| 17 | 16 | Rifsnes SH | 202,42 | 5 | 59,2 | Rif | 40,5 |
| 18 | 17 | Ágúst GK | 198,14 | 3 | 75,6 | Grindavík | 66 |
| 19 | 19 | Tromsöy | 175,02 | 1 | 175,1 | Noregur | |
| 20 | 20 | Hamar SH | 170,13 | 22 | 11,3 | Rif | 7,7 |
| 21 | 21 | Ásta B | 169,31 | 16 | 14,2 | Noregur | 10,6 |
| 22 | 23 | Saga K | 165,62 | 15 | 22,1 | Noregur | 11 |
| 23 | 22 | Gulltoppur GK | 161,91 | 22 | 12,4 | djúpivogur,sandgerði, rif | 7,4 |
| 24 | 24 | Gullhólmi SH | 139,71 | 3 | 48,5 | stykkishólmur | 46,6 |
| 25 | 25 | Vestbuen | 135,24 | 7 | 24,1 | Noregur | 19,3 |
| 26 | 26 | Brimnes BA | 117,96 | 15 | 12,8 | Pareksfjörður | 7,9 |
| 27 | 27 | Hafdís SU | 111,13 | 21 | 8,1 | Sandgerði | 5,3 |
| 28 | 28 | Saxhamar SH | 70,36 | 2 | 38,8 | Rif | 35,2 |
05.02.2013 08:32
Netabátar í janúar 2013
Listi númer 5
Þessi listi er lokalistinn en reyndar vantar einn róður inná Jökul ÞH. Þórsnes SH landaði 26 tonnum í sandgerði og ansi góður janúarmánuður að baki þar sem að báturinn endar aflahæstur.
Erling KE var með 15 tn í 1
Magnús SH 16 tn í 2
Ólafur Bjarnarsson SH 10 tn í 1
Abelone Mögster var með 13,4 tn í 1
Bárður SH 11 tn í 2
Friðrik Sigurðsson ÁR 17 tn í 1
Grímsnes BA 15 tn í 2
Polarhav 9 tn í 1
Sunna Líf KE fiskaði ansi vel síðustu daganna í janúar og var með 13 tonn í 3 róðrum
Vegna þess að tveir norskir bátar eru á listanum þá er listinn 32 bátar að stærð sem þýðir að það eru 2 norskir bátar og 30 íslenskir
| Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Róðrar | Mest | Löndunarhöfn | Meðalafli |
| 1 | 1 | Þórsnes SH | 283,66 | 6 | 88,4 | Stykkishólmur,Sandgerði | 47,2 |
| 2 | 2 | Erling KE | 267,54 | 25 | 25,8 | Sandgerði | 10,7 |
| 3 | 3 | Magnús SH | 242,12 | 20 | 21,6 | Rif | 12,1 |
| 4 | 5 | Ólafur Bjarnarson SH | 219,58 | 19 | 17,3 | Ólafsvík | 11,6 |
| 5 | 4 | Hvanney SF | 218,08 | 13 | 34,9 | Höfn | 16,8 |
| 6 | 6 | Skinney SF | 217,62 | 11 | 34,3 | Höfn | 19,8 |
| 7 | 7 | Þórir SF | 211,75 | 11 | 43,3 | Höfn | 19,3 |
| 8 | 9 | Abelone Mögster | 185,48 | 8 | 29,9 | Noregur | 23,2 |
| 9 | 8 | Jökull ÞH | 174,77 | 5 | 59,1 | Húsavík | 35 |
| 10 | 10 | Bárður SH | 165,61 | 28 | 12,3 | Arnarstapi | 5,9 |
| 11 | 11 | Friðrik Sigurðsson ÁR | 148,94 | 10 | 32,5 | Keflavík,þorlákshöfn | 14,9 |
| 12 | 12 | Egill SH | 137,21 | 17 | 16,9 | Ólafsvík | 8,1 |
| 13 | 13 | Haukaberg SH | 132,03 | 19 | 16,4 | Grundarfjröður | 6,9 |
| 14 | 14 | Grímsnes BA | 122,72 | 20 | 14,1 | Bíldudalur | 6,1 |
| 15 | 16 | Brynjólfur VE | 97,69 | 4 | 31,1 | Vestmannaeyjar | 24,4 |
| 16 | 15 | Þorleifur EA | 92,65 | 20 | 11,3 | Grímsey | 4,6 |
| 17 | 19 | Polarhav Norskur | 74,61 | 5 | 21,8 | Noregur | 14,9 |
| 18 | 17 | Kristbjörg VE | 71,13 | 3 | 37,2 | Vestmannaeyjar | 23,7 |
| 19 | 18 | Happasæll KE | 71,06 | 17 | 8,3 | Sandgerði,keflavík | 4,2 |
| 20 | 22 | Maron HU | 67,51 | 21 | 10,6 | Njarðvík | 3,2 |
| 21 | 21 | Sægrímur GK | 65,79 | 11 | 7,9 | Njarðvík | 6 |
| 22 | 20 | Arnar SH | 63,12 | 14 | 9,4 | Grundarfjröður | 4,5 |
| 23 | 23 | Askur GK | 59,44 | 15 | 7,3 | Grindavik | 4 |
| 24 | 24 | Katrín SH | 54,96 | 26 | 6,1 | Ólafsvík | 2,1 |
| 25 | 147 | Sigurður Ólafsson SF | 49,25 | 2 | 46,3 | Höfn | 24,6 |
| 26 | 25 | Keilir II AK | 45,04 | 15 | 8,6 | Arnarstapi | 3 |
| 27 | 26 | Sæþór EA | 44,63 | 18 | 4,3 | Dalvík | 2,5 |
| 28 | 31 | Sunna Líf KE | 36,31 | 16 | 5,6 | Sandgerði | 2,3 |
| 29 | 30 | Reginn ÁR | 33,89 | 8 | 10,4 | Þorlákshöfn | 4,2 |
| 30 | 27 | Hafnartindur SH | 31,57 | 16 | 3,7 | Rif | 2 |
| 31 | 32 | Hraunsvík GK | 31,14 | 13 | 6,3 | Sandgerði | 2,4 |
| 32 | 28 | Níels Jónsson EA | 29,88 | 12 | 3,6 | Dalvík | 2,5 |
03.02.2013 21:10
Dragnót í janúar 2013
Listi númer 3.
lokalistinn.
Jæja það fór þá ekki svo að bátur frá Sandgerði myndi ná að troða sér inná topp 5 listann og báturinn sem nær því vekur nokkra athygli því það er Benni Sæm GK sem var með 68 tonn í 12 róðrum og er þetta í fyrsta skipti í ansi langan tíma sem sá bátur er aflahæstur Sandgerðisbátanna.
STeinunn SH var aftur á móti aflahæst allra bátanna og va rmeð 63 tonn í 7
Vestri BA 45 tonn í 3
Rifsari SH 56 tonn í 7
Matthías SH 53 tonn í 7
Sigurfari GK nær líka að troða sér upp og va rmeð 78 tonn í 11 róðrum
Örn KE 65 tonn í 12
Sveinbjörn Jakopsson GK 46 tonn í 7
Siggi Bjarna GK 69 tonn í 12
Esjar SH 41 tonn í 7
Arnþór GK 37 tonn í 9
Harpa HU fiskaði vel fyrir norðan og var með 26 tonn í 5 róðrum
Njáll RE 27 tonn í 10
Aðalbjörg RE 30 tonn í 6
Aðalbjörg II RE 29 tonn í 10
| Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Landanir | Mest | Löndunarhöfn | Meðalafli |
| 1 | 1 | Steinunn SH | 159,41 | 19 | 20,3 | Ólafsvík | 8,4 |
| 2 | 2 | Vestri BA | 126,44 | 9 | 21,8 | Ólafsvík | 14,0 |
| 3 | 5 | Rifsari SH | 118,04 | 15 | 15,3 | Rif | 7,9 |
| 4 | 10 | Benni Sæm GK | 111,25 | 22 | 13,3 | Sandgerði | 5,1 |
| 5 | 6 | Matthías SH | 110,26 | 14 | 18,1 | Rif, | 7,9 |
| 6 | 13 | Sigurfari GK | 108,21 | 20 | 14,6 | Sandgerði | 5,4 |
| 7 | 4 | Guðmundur Jensson SH | 103,18 | 15 | 11,36 | Ólafsvík | 6,9 |
| 8 | 12 | Örn KE | 102,21 | 22 | 9,8 | Sandgerði | 4,6 |
| 9 | 8 | Sveinbjörn Jakopson SH | 100,43 | 16 | 10,9 | Ólafsvík | 6,3 |
| 10 | 3 | Gunnar Bjarnarson SH | 99,85 | 16 | 13,3 | Ólafsvík | 6,2 |
| 11 | 14 | Siggi Bjarna GK | 98,51 | 22 | 13,5 | Sandgerði | 4,5 |
| 12 | 9 | Esjar SH | 91,48 | 15 | 13,1 | Rif | 6,1 |
| 13 | 7 | Arnar ÁR | 76,59 | 4 | 42,6 | Þorlákshöfn | 19,1 |
| 14 | 15 | Arnþór GK | 63,07 | 18 | 10,7 | Sandgerði | 3,5 |
| 15 | 11 | Jón Á Hofi ÁR | 58,09 | 5 | 25,7 | Þorlákshöfn | 11,6 |
| 16 | 16 | Aðalbjörg RE | 51,64 | 14 | 6,7 | Sandgerði | 3,7 |
| 17 | 23 | Sólborg RE | 49,68 | 11 | 11,8 | Sandgerði,grindavík | 4,5 |
| 18 | 21 | Aðalbjörg II RE | 41,27 | 13 | 7,7 | Reykjavík | 3,2 |
| 19 | 19 | Njáll RE | 40,88 | 18 | 7,3 | Sandgerði | 2,3 |
| 20 | 20 | Harpa HU, | 38,75 | 9 | 8,7 | Hvammstangi | 4,3 |
| 21 | 22 | Fróði II ÁR | 33,12 | 5 | 12,5 | Þorlákshöfn | 6,6 |
| 22 | 26 | Farsæll GK | 31,11 | 10 | 5,1 | Grindavík,sandgerði | 3,1 |
| 23 | 17 | Margrét ÍS | 30,36 | 15 | 3,3 | Rif | 2,0 |
| 24 | 18 | Bára SH | 27,52 | 10 | 2,7 | Rif | 2,8 |
| 25 | 25 | Tjálfi SU | 6,01 | 5 | 1,9 | Djúpavogi | 1,2 |
| 26 | 27 | Sandvík SH | 5,21 | 3 | 2,5 | Ólafsvík | 1,7 |
| 27 | 24 | Hafborg EA | 4,33 | 2 | 2,4 | dalvík | 2,2 |
| 28 | 28 | Grímsey ST | 3,72 | 3 | 1,5 | Drangsnes | 1,2 |
| 29 | 29 | Páll Helgi ÍS | 0,44 | 1 | Bolungarvík | 0,4 |
01.02.2013 20:29
Aflhæstu smábátarnir frá 10 BT og upp í 11 BT árið 2012
Jæja þá er komið að síðasta listanum fyrir smábátanna yfir 10 BT. Og hérna tökum við fyrir minnstu bátanna sem við erum með inná smábátalistanum yfir 10 BT. og það sem er kanski merkilegast við þessa báta og sérstaklega efstu bátanna að þrátt fyrir að þeir séu þetta litlir þá hafa þeir gert oft ansi góða hluti inná listanum. þetta á sérstaklega við um þrjá efstu bátanna.
Við skulum henda okkur í listann.
5 sæti.
Við skulum byrja listann í Ólafsvík. Þar eru ansi margir bátar sem við höfum séð í toppslagnum en báturinn í fimmta sætinu hefur aldrei tekið þátt í því. Vísir SH heitir sá bátur. Báturinn gerði út alla mánuðina á síðasta ári og voru línuveiðar aðalveiðarfæri bátsins, en auk þess þá fór hann á handfæri. Heildaraflin hjá Vísi SH var 156 tonn í 78 róðrum eða rúm 2 tonn í róðri. Mesti mánaðarafli var í febrúar 27 tonn í 10 róðrum. tveir stærstu róðrarnir hjá bátnum voru 5,3 og 5,2 tonn.
![]() |
| Mynd Ingólfur Þorleifsson |
4 sæti.
Hérna höfum við bát frá Grímsey og það sem er merkilegt við þennan bát er það að útgerðaraðilinn sem gerir út bátin seldi þennan bát og keypti annan aðeins minni, og við það að kaupa nýjan bát þá komst nýji báturinn inná smábátalistann undir 10 BT og núna í janúar árið 2013 þá er sá bátur að gera feiknargóða hluti. Konráð EA heitir þessi bátur og er "litli" nýji Konráð EA í toppslagnum hjá smábátunum undir 10 BT núna í janúar. Konráð EA sem við erum með hérna gerði einungis út til loka ágúst en réri ansi mikið og fór róðrafjöldinn hjá bátnum yfir 100 róðra. Báturinn stundaði línu, handfærar og grásleppuveiðar
Heildaraflinn hjá Konráð EA var 172 tonn í 112 róðrum eða 1,5 tonn í róðri. Eins og sést þá réri báturinn gríðarlega mikið og t.d í apríl þegar báturinn var á grásleppu þá fór báturinn í 24 róðra.
![]() |
| Mynd Grétar Þór Sæþórsson |
3 sæti.
Næst förum við um 200 tonnum ofar og á Arnarstapa. Þar er bátur sem við fengum ansi oft að sjá inná listanum því þessi litli bátur kom ansi oft drekkhlaðin til hafnar. heitir sá bátur Kvika SH. Báturinn stundaði línuveiðar, handfæraveiðar og grásleppuveiðar og var reyndar lítið róið um sumarið og hóf ekki veiðar fyrr enn um miðjan október.
En þvílík og önnur eins veiði hjá þessum litla báti var þegar báturinn var á línuveiðar. við fengum að sjá Kviku SH fjórum sinnum inná listanum. og besti árangur bátsins er vægast sagt rosalegur. því í janúar þá náði báturinn 15 sæti og var með 87 tonna afla. Báturinn komst ansi oft yfir 7 tonn í róðri en stærsti róður bátsins var í desember og sá róður var nú ekkert slor, því landað var út bátnum 8,7 tonni.
Heildaraflinn hjá Kviku SH var 375 tonn í 84 róðrum eða 4,5 tonn í róðri. Ótrúlega góður meðalafli svo ekki sé meira sagt.
![]() |
| Fanney SH núna Kvika SH Mynd Jón páll Ásgeirsson |
2 sæti.
Við förum ekki langt í annað sætið því við förum frá Arnarstapa og yfir til Rifs. Þar er Lilja SH og eins og með Kviku SH þá fengum við að sjá Lilju SH inná nokkrum listum því báturinn komst inná fjóra lista. Jan, feb, okt og nóv. Besti árangur bátsins var í febrúar þegar að báturinn komest í 25 sætið og var með 71 tonna afla. sem var mesti mánaðarafli bátsins. Báturinn átti ansi marga fullfermistúra og komst t.d í febrúar í 8,4 tonn í einum róðri og í nóvemberg í 8,6 tonn í einum róðri.
Báturinn stundaði línuveiðar að mestu en var þó yfir sumarið á handfærum og landaði þá t.d á Bolungarvík og Skagströnd.
Heildaraflinn hjá Lilju SH var 389 tonn í 111 róðrum eða 3,5 tonn í róðri
![]() |
| Mynd Guðmundur St Valdimarsson |
Alahæsti smábáturinn í þessum flokki.
Já þá er það toppsætið og við förum til Garðs eða Sandgerðis því þessi bátur er með sína aðallöndunarhöfn í Sandgerði. heitir þessi bátur Steini GK. báturinn stundaði línuveiðar allt árið og um sumarið fór báturinn norður á Siglufjörð og skrapp reyndar líka austur á neskaupstað. Eins og með Lilju SH og Kviku SH þá fengum við að sjá Steina á nokkrum listum á árinu. Steini GK komst inná júní, maí, apríl, feb og janúar listann. Besti árangur bátsins á listanum var í apríl 25 sæti og mesti mánaðarafli var í apríl 62 tonn. Stærsti róður bátsins var rúm 7 tonn.
Heildaraflinn hjá Steina GK var 424 tonn í 102 róðrum eða 4,2 tonn í róðri sem er mjög góður meðalafli.
![]() |
| Steini GK með 7 tonn í mars árið 2011. Mynd Ragnar Pálsson |
31.01.2013 09:30
Tveir nýir norskir bátar
Eins og þið hafið tekið eftir þá eru nokkrir norskir bátar inná línulistanum og inná netalistanum er einn norskur bátur. Allir þessir bátar eiga það sameiginlegt að vera með íslendingum um borð og á mörgum þeirra eru íslenskir skipstjórar.
t.d á öllum línubátunum sem eru á línulistanum eru íslenskir skipstjórar.
Núna hafa bæst í hópinn tveir stórir bátar
Á Línulistanum hefur línubáturinn Tromsöy bæst í hópinn en þar um borð er Halldór Jóhannsson Skipstjóri.
Báturinn er 466 BT og er um 40 metra langur.
![]() |
| Mynd www.shipspotting.com |
Hinn báturinn stundar jafn línuveiðar sem og netaveiðar og er hann núna á netaveiðum heitir Abelone Mögster. Þar um borð er Andrés Kolbeinsson Vélstjóri. Báturinn er alveg nýr eða síðan í nóvember árið 2011. báturinn er 43 metrar á lengd 12 metrar á breidd og mælist um 907 BT.
![]() |
| Mynd www.skipsrevyen.no |
Nú þegar hafa báðir bátarnir látið sjá sig á listum á síðunni og landaði Tromsöy 175 tonnum í einni löndun og Abelone Mögster sem er á netum og á netalistanum er kominn með um 180 tonn í 7 löndunum.
30.01.2013 16:21
Aflahæstur smábátarnir 11 BT til 12 BT árið 2012
Núna hafa tveir lista birst og hérna kemur þriðji smábátalistinn og núna eru það bátarnir sem eru frá 11 BT og uppí 12 BT að stærð.
Það eru nú reyndar ekki margir bátar í þessum flokki en þeir eru þó nokkrir og hérna koma fimm hæstu bátarnir árið 2012.
5 sæti.
Við byrjum þennan lista á Hólmavík. Þar er báturinn Hafbjörg ST. Báturinn var við veiðar eitthvað í öllum mánuðum ársins og stundaði alls fjórar tegundir af veiðiskap. Báturinn var á línu, grásleppu, handfærum og fór síðan í breiðarfjörðin á síldveiðar. Alls var heildaraflinn hjá Hafbjörgu ST 83 tonn í 48 róðrum eða 1,7 tonn í róðri. Mesti mánaðarafli var í apríl en þá var báturinn á grásleppiveiðum og landaði 17 tonnum í 9 róðrum. Stærsti róður var tæp 4 tonn.
![]() |
| Mynd Þorgeir Baldursson |
4 sæti.
Kópavogur telst nú seint til stærstu útgerðarstaða á landinu þrátt fyrir að bærinn sjálfur sé með stærstu bæjum á landinu. Þó er þar einn bátur sem er með Kópavog sem aðalútgerðstað sinn og það sem meira er að báturinn er nafni síðuritara. Heitir sá bátur Gísli KÓ. Báturinn stundaði línuveiðar, handfæraveiðar og grásleppuveiðar. Kópavogur var hans aðallöndunarhöfn nema á handfærunum þá fór báturinn á Suðureyri. Honum gekk ansi vel á handfærunum og kom tvisvar með yfir 7 tonn að landi og var voru tveir stærstu róðrar Gísla KÓ 7,5 og 7,3 tonn á handfærunum,
Heildaraflinn hjá bátnum var 164 tonn í 65 róðrum eða 2,5 tonn í róðri, mesti mánaðarafli var í janúar 31 tonn og báturinn komst í 41 sætið á listanum í júní þá á handfærum
![]() |
| Mynd Ríkarður Ríkarðsson |
3 sæti.
Eins og sást á listanum yfir aflahæstu smábátanna fyrir árið 2012 þá eru bátar frá Bolungarvík ansi hátt skrifaðir þar. Reyndar er ekki allir bátar frá Bolungarvík í svona feiknarlegum aflaslag eins og bátarnir sem við sjáum. Gunnar Leós ÍS var gerður út þaðan en reyndar ekki nema í 7 mánuði því báturin hætti veiðum í lok júní og fór ekki aftur af stað fyrr en í desember. Báturinn komst þó tvisvar inná listann, í 39 sætið í mars og í 26 sætið í júní þegar að báturinn landaði 50 tonnum sem var mesti mánaðaraflin bátsins á árinu. Heildaraflinn hjá Gunnari var 216 tonn í 95 róðrum eða 2,4 tonn í róðri. Báturinn var að mestu á línuveiðum og á grásleppu april og maí.
![]() |
| Mynd Guðmundur St Valdimarsson |
2 sæti.
Báturinn í öðru sætinu fór ekki í marga róðra en átti ansi marga stóra túra. Stella GK heitir sá bátur. Stellan fór einungis í 49 sjóferðir á árinu. Báturinn stundaði línuveiðar alla þessa róðra, fyrst var báturin í Sangerði en fór síðan til Drangsnes þar sem að báturinn er t.d núna. Útgerðaraðilin sem á Stellu GK á líka Guðrúnu Petrínu GK og færist áhöfninn á milli bátanna. Heildaraflinn hjá Stellu GK var 230 tonn í 49 róðrum eða 4,7 tonn í róðri sem er ansi góður meðalafli. stærsti róður var 9,1 tonn og síðan komu tveir róðrar sem voru 8,1 tonn. Mesti mánaðarafli var í janúar 46 tonn.
![]() |
| Mynd Valur Björn Línberg |
Aflahæsti báturinn í þessum flokki árið 2012.
Sá sem var aflahæstur í þessum flokki var með afgerandi meiri afla en báturinn í öðru sætinu því hann var með hátt í 180 tonnum meiri afla . Særún EA var aflahæst í þessum flokki og er þessi bátur gerður út af sama útgerðaraðila og gerir út Sólrúnu EA en Sólrún EA var annar aflahæsti smábáturinn í flokknum 12 BT til 13 BT. Særún EA réri mjög mikið á síðasta ári og var á línu nema í mars og apríl þegar að báturinn fór á grásleppuna. Heildaflinn hjá Særúnu EA var 407 tonn í 163 róðrum eða 2,5 tonn í róðri. Við fengum að sjá bátinn inná nokkrum listum á árinu því Særún EA komst inná mars, júní, september, nóvember og desember listanna. Besti árangur bátsins var í júní 27 sætið og þá var líka mesti mánaðaraflinn 46 tonn. Særún EA tók þátt í mokinu sem Sólrún EA fór í norður undir Kolbeinsey og kom mest með í maí tæp 10 tonn sem er drekkhlaðinn bátur. í júní þá var stærsti róður bátsins tæp 9 tonn.
![]() |
| Mynd Skipaskrá Fiskifrétta |
28.01.2013 10:06
Aflhæstu smábátarnir frá 12 BT til 13 BT árið 2012
Í gær þá birti ég pistil yfir aflahæstu smábátanna fyrir árið 2012. Eins og gefur að skilja þá eru það mestmegnis stóru smábátarnir og þeir sem hafa yfir ansi miklum kvóta að ráða sem voru á þeim lista.
Það eru nokkrir bátar sem eru stærri en 10 BT sem hafa verið að róa líka í fyrra og hérna að neðan verður birti listi yfir 5 aflahæstu smábátanna sem eru á stærðinni frá 12 BT til 13 BT:
5 Sæti.
Við förum hérna alla leið austur á Borgafjörð Eystri. Þar er bátur sem heitir Emil NS Er hann stærsti báturinn sem er gerður út þaðan. Báturinn gerði út á línu allt árið og réri eitthvað í öllum mánuðum á árinu. Heildaraflinn hjá Emil NS var 159 tonn í 60 róðrum eða 2,7 tonn í róðri. Mesti mánaðarafli var í mars 23 tonn í 9 róðrum.
![]() |
| Mynd Jón Páll Ásgeirsson |
4 sæti.
Ein af frægari setningum sem hefur verið skrifuð hérna á síðunni var í janúar árið 2010, þá voru Tryggvi Eðvars SH og Sirrý ÍS í hörkuslag um toppsætið og endaði það þannig að báðir bátarnir fóru yfir 220 tonn þar sem að Tryggvi Eðvars SH hafði sigurinn. Þá kom þessi setning " En strákar sjáiði Lúkas ÍS ", já þá var þessi 12 tonna bátur að ryðja sér inná topp 10 með ansi góðum afla. Þessi bátur var síðan seldur til Keflavíkur og heitir þar í dag Maggi Jóns KE Útgerðaraðilar Magga Jóns KE höfðu átt stálbál með sama nafni og voru iðulega á netaveiðum. Með kaupunum á nýja bátnum þá fóru þeir að gera út á handfæri og línu. Báturinn gerði út allt síðasta ár og var á handfæraveiðum frá því í maí og fram í september. Heildaraflinn hjá bátnum var 210 tonn í 66 róðrum eða 3,1 tonn í róðri. Mesti mánaðarafli var í febrúar 30 tonn og stærsti róður var um 7 tonn.
![]() |
| Mynd af Marinetraffic.com |
3 sæti.
Næst förum við til Hríseyjar. Þar er nokkur útgerð og stærsti báturinn þar heitir Siggi Gísla EA. Báturinn gerði út alla mánuðina á síðasta ári og var á handfæraveiðum í hluta af júní og júlí. Var á línu alla hina mánuðina. Heildaraflinn hjá Sigga Gísla EA var 276 tonn í 91 róðrum eða 3,1 tonn í róðri. Mesti mánaðarafli var í júní 39 tonn, sem fengust bæði á línu og færi og var stærsti róður tæp 6 tonn. og besti árangur bátsins á listanum var líka í júní 37 sætið.
![]() |
| Mynd Þorgeir Baldursson |
2 sæti.
Við höldum okkur áfram í Eyjafirðinum og hérna kemur bátur sem hefur ansi oft gert feiknarlega góða hluti og það sem meira er að báturinn hefur náð að koma með meira en 10 tonn að landi sem er ansi gott. Sólrún EA heitir þessi bátur. Báturinn réri allt árið og fór á grásleppuna í mars og frammí maí. Sólrún EA var í hópi með þeim bátum sem réri hvað ofast allra báta á síðasta ári því báturinn fór í 170 róðra og heildaraflinn 438 tonn eða 2,6 tonn í róðri. Báturinn var nokkuð tíður gestur inná listanum því Sólrún EA komst 6 sinnum inná listann og var besti árangur bátsins 25 sætið í júní. Mesti mánaðarafli var í júní 55 tonn og í maí var báturinn með 52 tonn.
Maí mánuður var algert ævíntýri fyrir strákanna á bátnum því hann byrjaði mánuðinn á grásleppu fór síðan á línu og gekk frekar illa. Var með nestu bátum á listanum. Svo sóttu þeir út alla leið norður undir Kolbeinsey og gjörsamlega mokfiskuðu því þeir fengu í 5 róðrum 47 tonn og komu þrisvar með meira en 10 tonn að landi.
Þess má geta að þónokkrar fréttir hafa verð skrifaðar um mokafla hjá Sólrúnu EA hérna á síðunni
![]() |
| Mynd Hafþór Hreiðarsson |
Aflahæsti báturinn í þessum flokki árið 2012.
Við höldum okkur enn fyrir norðan land því Akraberg SI var aflahæstur í þessum flokki. Báturinn gerði út allt síðasta ár og landaði mestum hluta aflans á Siglufirði. Auk þess þá kom báturinn við á Akranesi, Seyðisfirði og Raufarhöfn. Báturinn var á línu allt árið nema 5 róðra í ágúst. Heildaraflinn hjá bátnum var 505 tonn í 127 róðrum eða 3,9 tonn í róðri. Mesti mánaðarafli var í janúar 67 tonn og besti árangur á listanum var í júní 21 sæti fyrir 65 tonn. Mesti afli í róðri var í október þegar að báturinn var á Raufarhöfn þá kom hann mest með 11,3 tonn að landi. Akraberg SI gekk líka vel þessa 5 róðra sem hann fór á handfæri því báturinn kom mest m eð 10,6 tonn að landi í einum róðri þá
![]() |
| Mynd Hafþór Hreiðarsson |
27.01.2013 09:27
Aflahæstu smábátarnir árið 2012
Ég ætla mér að byrja bara strax á aflahæstu smábátunum árið 2012.
smábátarnir yfir 10 BT voru um 150 talsins og lönduðu þeir rúmum 52 þúsund tonnum af afla.
56 bátar náðu yfir 400 tonnin
39 yfir 500 tonnin
34 náðu yfir 600 tonn
23 yfir 700 tonn
17 yfir 800 tonn
11 yfir 900 tonn
og 9 bátar yfir 1000 tonn.
Þess má geta að þessi listi miðast einungis við bátsnöfnin sjálf
Ég ætla að nefna þessa 17 báta sem náðu yfir 800 tonn og verða birtar myndir af 5 hæstu bátunum.
í 17 sætinu var Daðey GK sem stundaði bæði línuveiðar og handfæraveiðar og fiskaði alls 801 tonn í 149 róðrum eða 5,3 tn í róðri. Mesti mánaðarafli 113 tonn í október og besti árangur á listanum, mars 8 sætið.
16 sæti. Þar var Kristinn II SH. Báturinn fór á grásleppunet og var þá stálbáturinn Kristinn SH settur á línuveiðar en við fengum að sjá hann inná línubátalistanum. Afli hjá bátnum var 804 tonn í 128 róðrum eða 6,3 tn í róðri. Þessa fáu mánuði sem báturinn var gerður út þá gekk honum feiknarvel. Mesti afli var 165 tonn í janúar og báturnn náði toppsætinu í janúar og nóvember. var í öðru sætinu í febrúar og 3 sætinu í október
15 sæti. Þar kemur bátur sem komst í hóp báta sem Einhamar í Grindavík er með á sínum snærum. Narfi SU heitir sá bátur og fiskaði hann 812 tonn í 149 róðrum eða 5,4 tn í róðri. Mesti mánaðarafli var í júlí 115 tonn og besti árangur á listanum júlí 4 sætið.
14 sæti Þar er bátur sem er ansi þekktur vegna fullfermistúra sem báturinn hefur komið með. Ragnar SF heitir hann og fiskaði alls 857 tonn í 102 róðrum eða 8,4 tn í róðri. Ragnar SF var með mestan meðalafla allra smbátanna á síðasta ári. Mesti mánaðarafli var í Maí 152 tn og besti árangur á listanu líka í maí 4 sætið. stærsti róður um 18 tonn.
13 sæti. Þrátt fyrir að ansi margir bátar geri oft út frá Sandgerði þá því miður eru ekki margir bátar gerðir út sem eru skráðir frá Sandgerði. Báturinn í 13 sætinu er þó skráður þaðan. Von GK heitir sá bátur. Fiskaði hann alls 867 tonn í 150 róðrum eða 5,8 tn í róðri. Báturinn fór í maí austur á Neskaupstað og var lengst allra suðurnesjabátanna í burtu frá heimahöfn því báturin kom ekki til baka í Sandgerði fyrr en í byrjun janúar á þessu ári. Mesti mánaðarafli var í júní 134 tn og besti árangur á listanum 7 sæti í júní. mest afli í róðri 15,1 tn í júlí
12 sæti. Núna á tímum kvótakerfis er ansi harður heimur að gera út á leigukvóta og það fengu strákarnir sem gera út bátin í 12 sætinu að finna fyrir. Oddur Á Nesi SI endaði í 12 sætinu. Báturin var eini báturinn fyrir utan Bolungarvíkurbátanna sem gerði út frá Heimahöfn sinni allt árið, ( reynar nokkrar landanir á Hofsósi). aflinn hjá bátnum var alls 877 tonn í 179 róðrum eða 4,9 tní róðri. Mesti mánaðarafli júní 106 tn og besti árangur á listanum júní 11 sæti.
11 Sæti. Hérna höfum við bát sem náði yfir 1000 tonn árið 2011 en var með þónokkra aflaminnkun á milli árana. Það sem skýrir þennan mun er t.d það að báturinn var ekkert gerður út í júlí og stóran hluta af ágúst. Gísli Súrsson GK var með um 125 tonna aflaminnkun og var heildaraflinn hjá bátnum 901 tn í 152 róðrum eða 5,9 tn í róðri. Mesti mánaðarafli var í október 122 tonn og besti árangur á listanum apríl 8 sæti.
10 sæti. Hérna höfum við bát þar sem að útgerðarmaðurinn átti 15 BT bát, seldi hann og heitir hann núna Guðbjörg RE. þá keypti fyrirtækið bát sem var minni en 10 BT, seldi hann og fór aftur í 15 BT bát. Og báturinn sem var keyptur er vel þekktur því hann hét lengi vel Happadís GK. Siggi Bjartar ÍS heitir þessi bátur og er fyrsti Bolungarvíkurbáturinn sem við sjáum. Báturinn fiskaði 921 tonn í 235 róðrum eða 3,9 tonn í róðri. Mesti mánaðarafli var í janúar 109 tonn og besti árangur á listanum febrúar 9 sæti.
9 sæti. Þá erum við kominn í 1000 tonna hópinn og hérna verður á vegi okkar einn af elstu beitningavélasmábátunum á landinu. Óli á Stað GK heitir hann og hann var einn af þeim bátum sem fór á flakk. byrjaði árið á Suðurnesjunum, fór síðan austur og hélt sig að mestu á Djúpavogi. Afli bátsins var 1046 tonn í 172 róðrum og meðalaflinn ansi góður eða 6,1 tonn. Mesti mánaðarafli varí maí 122 tonn og besti árangur á listanum, september 7 sæti.
8 sæti. Gísli Súrsson GK sem minnst er á hérna að ofan er úr þekkti þjóðsögu og hann var giftur konu sem hét Auður Vésteins og báturinn í 8 sætinu heitir eftir þessari konu. Auður Vésteins SU. Báturinn byrjaði vertíðina á suðurnesjunum og fór síðan austur á Stöðvarfjörð þar sem báturinn hélt sig að lang mestu leyti. Aflinn hjá bátnum var alls 1071 tonn í 190 róðrum eða 5,6 tn í róðri. Mesti mánaðafli var í júlí 126 tonn og besti árangur á listanum var líka í júlí 4 sæti.
7 sæti. Báturnn í 7 sæti var ekki nema 1,8 tonni á undan bátnum í 8 sætinu. Tryggvi Eðvars SH heitir sá bátur. Þessi bátur átti framan af árinu von um það að verða með aflahæstu smábátunum á árinu en báturinn réri síðan ekkert í júní. var síðan á handfærum í hluta af júlí og smá í ágúst. Heildaraflinn hjá bátnum var 1073 tonn í 165 róðrum og meðalaflinn 6,5 tonn. Báturinn átti í hörðum slag við annan bát af Snæfellsnesinu Kristinn II SH og skiptust þeir t.d á toppsætinu í janúar og febrúar. Mesti mánaðarafli var í janúar og febrúar um 159 tonn í báðum mánuðum, og besti árangur á listanum febrúar 1 sætið. var í öðru sæti í janúar og nóvember, og hver var í fyrsta sætinu þá? jú Kristinn II SH.
6 sæti. sumir fara ekki á sjó fyrir minna en 5 tonn í róðri en báturinn í 6 sætinu má segja að hafi ekki farið á sjóin fyrir minna en 10 tonn í róðri. Dögg SU heitir sá bátur og hann var svo til kjaftfullur í öðrum hverjum róðri. Heildaraflinn hjá bátnum var 1137 tonn í 151 róðri eða 7,5 tn í róðri og er með næst mesta meðalafla smábátanna. Reyndar fór báturinn á handfæri í júní og hluta af júlí. Mesti mánaðarafli var í ágúst 141 tonn og besti árangur á listanum janúar 4 sæti. Báturinn átti ansi oft stærstu róðra í mánuði og t.d í ágúst var stærsti róður 18,3 tonn, 18,7 tonn var stærsti róður í september og í október var stærsti róður 20,5 tonn.
5 sæti. Hérna höfum við bát sem er með nafn sem er mjög vel þekkt í Grindavík því bátar með þessu nafni hafa verið gerðir út frá Grindavík í yfir 50 ár. Þórkatla GK heitir þessi bátur. Fiskaði hann 1193 tonn í 201 róðri eða 5,9 tn í róðri. Mesti mánaðarafli var í júní 154 tonn og besti árangur á listanum. 1 sæti í júlí. var í 3 sæti í júní. Þess má geta að Þórkatla GK er eini báturinn sem er inná topp 5 sem er með sömu áhöfn því allir hinir bátarnir eru með skiptiáhafnir.
![]() |
| Mynd Valur Björn Línberg |
4 sæti. Bolungarvík er ansi mikill smábátaútgerðarstaður og þótt að báturinn í fjórða sætinu sé með heimahöfn í Hafnarfirði þá var Bolungarvík hans aðalútgerðarstaður. Steinunn HF heitir þessi bátur. Heildaflinn hjá bátnum var 1202 tonn í 271 róðri eða 4,4 tonn í róðri. Mesti mánaðarafli var í október 138 tonn og besti árangur á listanum október 4 sæti. Reyndar þá lenti áhöfnin á bátnum í nóvember í því að fá brotsjó á sig en þeir létu það ekkert stoppa sig og enduðu þann mánuð í 8 sætinu.
![]() |
| Mynd Þóroddur Sævar Guðlaugsson |
3 sæti. Við höldum okkur áfram í Bolungarvík. því í þriðja sætinu er einn af þrem nýjum bátum sem komu þangað í fyrra og eins og greint var frá í pistli hérna neðar á síðunni þá mælist þessi bátur tæpar 22 BT. Fríða Dagmar ÍS heitir þessi bátur.
Báturinn hóf róðra í mars og er heildaraflinn hjá bátnum 1393 tonn í 234 róðrum eða 5,9 tonn í róðri. báturinn átti feiknargott fyrsta ár. því mesti afli á mánuði var í maí þegar að báturnn var með 202 tonna afla. besti árangur á listanum var í desember og október þegar að báturinn náði toppsætinu. í ágúst, júní, maí og apríl var báturinn í öðru sætinu
![]() |
| Mynd Ingólfur Þorleifsson |
2 Sæti. Eitt af þeim bátsnöfnum sem hafa hvað lengsta útgerðarsögu við Bolungarvík er Einar Hálfdáns, það bátsnafn má finna alveg til ársins 1950 og þar um. Einar Hálfdáns ÍS var annar hæsti báturinn á landinu og fiskaði 1443 tonn í 291 róðri eða 4,9 tonn í róðri. Mesti afli í róðri var í júní 145 tonn. og merkilegt að þrátt fyrir að báturinn sé annar aflahæsti smábáturinn á landinu þá náði Einar Hálfdáns ÍS aldrei að verða aflahæstur yfir mánuðuinn.. Besti árangur bátsins á listanum var í mars, september og desember en þá var báturinn í öðru sætinu þessa mánuði.
![]() |
| Mynd Grétar Þór Sæþórsson |
Aflahæsti smábáturinn árið 2012.
Já það hefur legið ljóst hver er aflahæstur smábátanna fyrir árið 2012. að sjálfsögðu erum við að tala um Sirrý ÍS . Báturinn átti feiknargott ár og jók aflann sinn um um hátt í 190 tonn sem er ansi gott. heildaraflinn hjá bátnum var 1561 tonn í 287 róðrum eða 5,4 tonn í róðri. Báturinn mokveiddi í maí þegar að Sirrý ÍS landaði alls 219 tonnum sem í hópi með mestum afla sem smábátur hefur fengið á einum mánuði. Báturinn náði toppsætinu tvisvar í maí og apríl.
![]() |
| Mynd Ingólfur Þorleifsson |
27.01.2013 09:20
aflahæstu smábátarnir árið 2012 upplýsingar um listanna
Núna hef ég birt niðurstöður um aflahæstu, Netabátanna, dragnótabátanna, línubátanna, trollbátanna og ísfiskstogaranna. Næst er það vinsælasta efni síðunnar en það eru smábátarnir
Og við vitum reyndar hver er aflahæstur bátanna það eiginlega fer ekkert á milli mála. það er doldið erfitt fyrir bát sem er með sömu áhöfn að keppa við bát sem er með tvær áhafnir. En ég ætla að skipta þessum listum í nokkra hluta.
flestir smábátanna inná listanum eru í kringum 15 BT en þó eru það ekki allir. það eru nefnilega nokkrir bátar sem eru mun minni og jú við sjáum þessa báta af og til inná listanaum sem eru í gangi mánaðarlega. Og þessir bátar ná stundum að koma okkur á óvart með því að ryðja sér t.d inn á topp 15.
Það verður listi yfir aflahæstu smábátanna.
síðan verður listi yfir aflahæstu smábátanna sem eru frá 10 BT að 11 BT
það verður listi yfir bátanna sem eru frá 11 BT og í 12 BT
og listi yfir bátanna sem eru frá 12 BT og að 13 BT.
svo endum við á aflahæstu smábátunum undir 10 BT. en það var sá listi sem ég var hvað mest spenntastur fyrir.
25.01.2013 16:10
Hversu stór er báturinn?
Á síðasta ári þá komu til Bolungarvíkur þrír samskonar bátar. Hrólfur Einarsson ÍS, Jónína Brynja ÍS og Fríða Dagmar ÍS. Reyndar þá strandaði Jónína Brynja SH í nóvember í fyrra og hafði þá einungis verð gerð út í rúmar 2 vikur.
Þessi bátar flokkast sem 15 tonna smábátar en líta út fyrir að vera mun stærri.
og það er nokkuð merkilegt að skoða stærðartölur um bátanna. Á skipaskrá Fiskifrétta sem er inná www.fiskifrettir.is þá er Hrólfur Einarsson ÍS skráður 14,95 BT og Fríða Dagmar ÍS skráð 14,98
![]() |
| Hrólfur Einarsson ÍS Mynd www.trefjar.is |
Inná vef fiskistofu þá er þar aðeins öðruvísi farið.
því þar er Hrólfur Einarsson ÍS skráður 14,95 BT en Fríða Dagmar ÍS skráð 21,69 BT.
Reyndar þá er nú stærðartalan á Fríðu Dagmar ÍS örugglega nokkuð rétt með farin því báturinn er allur mun stærri en t.d Þórkatla GK sem er 14,96 BT eða þá Sirrý ÍS sem er 14,44 BT.
![]() |
| Fríða Dagmar ÍS Mynd Grétar Þór |
22.01.2013 15:26
Allt af 50 tonna afli á dag!
Árið byrjar með látum það verður ekki annað sagt, því togarnir hafa verið í mokveiði á þorski fyrir utan vestfirðina sem og norðurlandinu.
Árbakur EA kom t.d með 160 tonn eftir einungis 4 daga á veiðum sem gerir um 40 tonn á dag. Af þeim afla þá var þorskur 149 tonn. Kaldbakur EA gerði þá enn betur því hann var líka rúma 4 daga á veiðum og kom með 200 tonn að landi og var þorskur af því 177 tonn. Þessi afli gerir hátt í 50 tonn á dag sem er alger mokafli,
Þessir tveir togarar eru reynar ekki þeir einu sem hafa verið í mokþorskveiði því togarinn Bylgja VE sem er þó nokkru minni en Árbakur EA og Kaldbakur EA hefur verið að landa á Ísafirði. Togarinn hefur farið í 6 mjög svo stutta túra en gengið ansi vel.
Togarinn kom með 45 tonn eftir um 1 og hálfan dag á veiðum sem gerir hátt í 30 tonn á dag
í næsta túr sem líka var svipað langur eða tæpir 2 dagar þá var togarinn með 52 tonn eða rúm 30 tonn á dag.
tveir aðrir túrar hefur Bylgja VE farið sem hafa verið svipað langir eða tæpir tveir dagar og var togarinn með 35 tonn í öðrum túrnum og 42 tonn í hinum. í öllum þessum túrum þá hefur þorskur verið uppistaða aflans.
![]() |
| Mynd Grétar Þór |
fjórða togarannn má svo nefna en það er Björgúlfur EA. Hann hefur líka tekið þátt í mokinu því togarinn kom með 140 tonn að landi eftir ekki nema tæpa 4 daga á veiðum sem gerir um 35 til 40 tonn á dag.
20.01.2013 20:25
Niðurstaða er kominn
Ég er búinn að vera með könnun í gangi um hversu marga báta þið viljið hafa á smábátalistanum yfir 10 BT og þessi könnun var í gangi í um 20 klukkustundir og á þeim tíma tóku 150 manns þátt og niðurstaða er sú að 44% svarenda vilja hafa listann 70 báta. í öðru sæti með 28% var að hafa listann 75 báta. síðan kom 60 bátar og það var 16 %
Þannig að hérna að neðan kemur semsé fyrsti listinn sem er 70 bátar og langar mér að þakka ykkur kærlega fyrir að taka þátt í þessu. Alltaf gaman að vita álit ykkar á því sem ég er að gera hérna á síðuni.
18.01.2013 19:14
Aflahæstu Balabátarnir og Hafdís SU
Þegar skoðaðir eru línubátarnir þá raða sér þar á toppinn stóru beitningavélabátarnir. Líka á þeim lista eru stóru balabátarnir og líka Hafdís SU. En Hafdís SU er eins og við vitum beitningavélabátur og hefur verið á flakki á milli þessa lista og smábátalistans yfir 10 BT.
Þeim hefur farið fjölgandi stóru balabátunum sem róa en þó ekkert í líkingu við það hvernig var t.d 15 til 20 árum síðan.
Alls 7 bátar stunduðu línuveiðar með bölum og var afli þeirra eftirfarandi.
Sægrímur GK 40 tonn í 17 róðrum
Grímsnes BA 91 tonn í 28 róðrum
Vestri BA 157 tonn í 21 róðri
Þá koma 5 aflahæstu bátarnir í þessum flokki
5 sæti.
Báturinn í fimmta sætinu er einn af kínabátunum svokölluðu og er þessi bátur sá eini þeirra sem hefur stundað línuveiðar því hinir allir hafa verið á dragnót. Kristinn SH heitir hann. Útgerðarfyrirtækið sem á og gerir út Kristinn SH á líka smábátinn Kristinn II SH og þessi afli á Kristinn SH er hluta mars, apríl og hluta maí.
Heildarlínuafli bátsins var 246 tonn í 30 róðrum eða 8,2 tonn í róðri
![]() |
| Mynd Jobbi og Gummi |
4 sæti.
Það er ætíð ánægjulegt þegar að bátur er farin að gera út sem hefur legið við bryggju í nokkurn tíma. Báturinn í 4 sætinu var nú reyndar ekki búinn að liggja við bryggju nema í rúm 2 ár þegar honum var beitt til róðra aftur. Brimnes BA heitir sá bátur. Báturinn var gerður út á vertíðinni og svo í fyrrahaust. hann mokveiddi í apríl þegar að Brimnes BA landaði 163 tonnum í 18 róðrum og var uppistaðan í aflanum hjá bátnum þá steinbítur.
Heildaraflinn hjá Brimnesi BA var 726 tonn í 95 róðrum eða 7,6 tonn í róðri
![]() |
| Mynd Ingólfur Þorleifsson |
3 Sæti.
Það eru ekki margir bátar sem ná því að vera gerðir út af sömu útgerð í hátt í 30 ár. Báturinn í þriðja sætinu er einn af þeim fáu sem ná þeim flokki. Hamar SH og báturinn er líka stærsti balabáturinn sem var gerður út á síðasta ári. Báturinn fór reyndar á rækjuveiðar og stundaði því balaveiðar ekki allt árið. Um haustið þá fór báturinn í langt ferðalag alla leið frá Rifi til Djúpavogs þar sem að báturinn fiskaði ansi vel. Fékk báturinn t.d 217 tonn í 26 róðrum í október og var þetta mesti mánaðarlafli sem bátur í þessum flokki náði á einum mánuði í fyrra.
Heildarlínuafli Hamars SH rétt skreið yfir 1000 tonn og var í heildina 1006 tonn í 133 róðrum eða 7,6 tonn í róðri.
![]() |
| Mynd Eyjólfur Vilbergsson. Hamar SH á leið til hafnar í Grindavík í brimi |
2 Sæti.
Í októbert þegar að Hamar SH fór yfir 200 tonnin þá var hann að etja kappi við bátinn sem endaði í öðru sætinu. Sá bátur fór þá í 24 róðra og landaði um 180 tonnum. Gulltoppur GK var í nokkru flakki á árinu, byrjaði vertíðina á suðurnesjunum, fór svo austur og í smá stund norður á Siglufjörð. Mestum tíma var þó Gulltoppur GK á Djúpavogi. Báturinn var sá balabátur sem oftast réri og var eini balabáturin sem var gerður út allt árið, báturinn stoppaði einungis í júlí.
Heildaraflinn hjá bátnum var 1216 tonn í 186 róðrum eða 6,5 tonn í róðri.
![]() |
| Mynd Guðlaugur B |
Aflahæsti báturinn í þessum flokki.
Það er búið að vera óttalegt flakk hjá strákunum sem eru á toppbátnum. báturinn hefur undanfarin ár flakkað á milli lista hérna á síðunni, annaðhvort á línulistanum eða þá á smábátalistanum yfir 10 BT. Hafdís SU varð aflahæstur bátanna í þessum flokki og báturinn átti feiknargott ár. í september og október þá náði Hafdís SU að fiska yfir 200 tonn báða mánuðina. í september þá var aflinn 211 tonn í 26 róðrum og í október þá var aflinn 200 tonn í 26 róðrum. Báturinn hóf vertíðina á suðurnesjunum og landaði þá mestu í Sandgerði fór síðan austur þar sem báturinn landaði afla á Stöðvarfirði,Eskifirði, Djúpavogi og Neskaupstað þar sem báturinn landaði oftast.
Heildaflinn hjá bátnum var 1460 tonn í 204 róðrum eða 7,2 tonn í róðri.
![]() |
| Mynd Þóroddur Sævar Guðlaugsson |
17.01.2013 18:37
Aflahæstu línubátarnir árið 2012
Þá er komið að línubátunum en þeir áttu ansi gott ár árið 2012 og 8 bátar náðu yfir 3000 tonn. Reyndar er það nú þannig að efstu 5 sætin eru öll hjá bátum sem eru í eigu sama útgerðarfyrirtækis.
Kíkjum á listann,
í 8 sætinu er Kristrún RE með 3000 tonn í 43 löndunum eða 69 tonn í löndun
7 sætinu er Sturla GK með 3148 tonn í 45 löndunum eða 70 tonn í löndun
6 sætinu er Tjaldur SH með 3759 tonn í 61 róðri eða 62 tonn í róðri
5 Sæti.
Vísir á alla bátanna sem eru á topp 5 og því verður topplistinn litaður bátum sem eru grænir að lit. Sighvatur GK er fyrstur Vísisbátanna. Haustið var mjög gott hjá bátnum og fiskaði báturinn mest í september um 470 tonn og besti árangur bátsins á listanum var toppsætið í desember. Heildarafli bátsins var 3854 tonn í 49 löndunum eða 78 tonn í löndun. Báturinn náði að komast yfir 100 tonn í löndun ansi oft á árinu.
Þrátt fyrir gott ár þá var smá aflaminnkun á milli áranna 2012 og 2011 eða 2,2%
![]() |
|
Mynd Hafþór Hreiðarsson |
4 sæti.
Það er nú ekki langt í næsta bát frá Vísi, sá bátur heitir Fjölnir SU. Báturinn átti feiknargott haust og mokveiddi í október þegar að báturinn landaði 455 tonnum í 5 róðrum. báturinn komst tvisvar í annað sætið á listanum og náði að komast yfir 100 tonn í löndun en þó ekki nema einu sinni á árinu. Heildarafli bátsins var 3908 tonn í 50 róðrum eða 78 tonn í róðri
Mikil aflaaukning var hjá bátnum á milli ára eða uppá 21 %.
![]() |
| Mynd Hilmar Bragason |
3 Sæti.
Eftir eru þrír bátar og allir þessi þrír bátar áttu það sameiginlegt að hafa náð toppsætinu einhvern mánuðinn. Kristín ÞH varð þriðji hæsti báturinn. Báturinn komst þrisvar á toppinn. Nóvember, júlí og mars. í mars þá var líka besti aflamánuðurin hjá bátnum þegar hann landaði 515 tonnum. Nokkrir róðrar fóru yfir 100 tonni þar sem að stærsti róðurinn var 106 tonn. Heildaraflinn hjá bátnum var 4000 tonn í 50 róðrum eða 80 tonn í róðri.
Smávegis aflaaukning var hjá Kristínu ÞH eða 4 %.
![]() |
|
Mynd Ragnar Pálsson |
2 Sæti.
Báturinn með stærstu lestina er í öðru sætinu. Jóhanna Gísladóttir ÍS. Báturinn átti langflestu línuróðranna sem fóru yfir 100 tonnin af öllum línubátunum og stærsta lönduninn var 140 tonn. Jóhanna komst í efsta sætið í febrúar og mesti mánaðaraflinn var í október þegar að báturinn landaði 496 tonnum í 5 löndunum.
Heildaraflinn hjá Jóhönnu var 4277 tonn í 45 róðrum eða 95 tonn í róðri
Smávegis aflaaukning var hjá bátnum uppá 3,3 %.
![]() |
| Mynd Guðmundur St Valdimarsson |
Aflahæsti línubáturinn árið 2012.
Ekki nóg með að báturinn sem er aflahæstur hafi verið aflahæstur línubátanna heldur varð báturinn líka aflahæstur allra báta á landinu árið 2012. þetta aflaskip heitir Páll Jónsson GK. Báturinn átti feiknar gott ár og náði eins og Jóhanna Gísladóttir ÍS að koma ansi oft með yfir 100 tonn að landi. Báturinn varð afahæstur í janúar, apríl , maí. ágúst og í október. Mesti mánaðafli hjá bátnum var í október þegar báturinn landaði 503 tonnum í 5 löndunum sem gerir yfir 100 tonn í róðri.
Heildafli aflinn hjá aflahæsta bátnum var 4506 tonn í 53 róðrum eða 85 tonn í róðri
Mikil aflaaukning var hjá bátnum eða uppá 17% á milli ára.
Skipstjórinn á Páli Jónssyni GK og nafni síðuritara Gísli Jónsson fangaði í fyrra 40 ára skipstjórnarferli sínum og vel við hæfi að fagna með svona miklum afla. Til hamingju nafni
![]() |
| Mynd Markús Karl Valsson |
16.01.2013 08:00
Fyrsti pistill síðunnar
Ég hef lengi vel því fyrir mér að birta pistal sem þið lesendur góðir skrifið um sjávarútsmál og birta það hérna á síðunni. Ég mun ekki skrifa sjálfur pistlanna enda hef ég nóg að skrifa um allt í sambandi við efni síðunnar.
Fyrsti pistilinn sem birtist í þessum nýja flokki er frá Finnboga Vikar.
Makríll 2013 og tækjakaup
Vonandi verður fljótlega gefinn út kvóti í makríl fyrir árið 2013 af Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvegaráðherra. Þá er ekki úr vegi að minna á að það er almennur vilji til þess að jafnræði verði gætt við úthlutun veiðiheimilda, ekki fáir útvaldir fái ríkulegan arð af þessari syndandi auðlind í lögsögu Íslands.
Fé frá uppboði makríl aflaheimilda til tækjakaupa
Þess vegna vil ég beina því til Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvegaráðherra og ríkisstjórnar VG og Samfylkingarinnar að gæta jafnræðis við úthlutun veiðiheimilda í makríl og slá tvær flugur í einu höggi. Það má afla peninga til tækjakaupa fyrir Landspítalann og heilbrigðisstofnanir um land allt, sem ríkið hefur ekki lokað vegna fjárskorts, með því að bjóða upp aflaheimildir í makríl á almennum og opnum uppboðsmarkaði fyrir útgerðaraðila, fiskvinnslur og almenning og skilyrða tekjur uppboðsins fyrir veiðiheimildir í makríl 2013 til tækjakaupa á Landspítalanum og heilbrigðisstofnanir um land allt. Þannig mætti fá hugsanlega milljaraða til tækjakaupa og jafnræðis gætt við úthlutun veiðiheimilda í makríl 2013.
Aflinn seldur á fiskmarkaði – rétt markaðsverð fyrir sjómenn
Skylda ætti síðan að selja allan aflan á opnum innlendum fiskmarkaði þar allir hagsmunaaðilar í vinnslu og sölu makríls gætu boðið í aflann, hvort sem er ferskan eða frosinn, unninn eða óunnin við löndun. Það er til að tryggja gegnsæi í sölu aflans og sjómönnum markaðsverð og réttmætan aflahlut í samræmi við raunverulegt aflaverðmæti skip og báta er stunda makrílveiðar.
7 milljarðarðar ef færeyska leiðin yrði innleidd
Verðmætin út úr þessari fjáröflunarleið fyrir Landspítalann eru gríðarlega mikil. Færeyingar buðu t.d. upp hluta af makrílkvóta sínum hjá Fiskmarkaði Færeyja og með heimild í færeyskjum lögum „nr. 74 frá 6.juni 2011 um serstakar treytir fyri makrelfiskiskapi í 2011“. Færeysk stjórnvöld fengu um 1 milljarð íslenskra króna fyrir 20 þúsund tonn af markíl. Ef íslensk stjórnvöld myndu bjóða íslenska makrílkvótann myndi það þýða miðað við forsendur úr færeyska uppboðinu rúmlega 7 milljarðar króna fyrir 142 þúsund tonna makrílkvóta íslendinga
5 milljarða gjöf til útgerðarmanna í uppsjávarveiði makríls
Samanlagt almennt og sérstakt veiðigjaldið af makríl mun aðeins skila tæpum 2 milljörðum króna án tillits til lækkunarheimilda samkvæmt lögum um veiðigjöld. Þarna munar meira en 5 milljörðum króna sem er verið að gefa útgerðarfyrirtækinum miðað við uppboðin hjá frændum okkar færeyingum.Það er óskiljanlegt að íslenskt stjórnvöld og ríkisstjórn Samfylkingar og VG hafi ekki farið sömu leið og færeyskt stjórnvöld. Nýtum makrílinn til að bæta tækjakost Landspítalans og heilbrigðisstofnanna um land allt með því að halda uppboð á íslenska makrílkvótanum árið 2013.
Þessu er hér með beint til Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvegaráðherra og ríkisstjórnarflokkanna, VG og Samfylkingarinnar.
Virðingarfyllst
Finnbogi Vikar, viðskiptalögfræðingur
![]() |
14.01.2013 10:33
Aflahæstu Trollbátarnir árið 2012
Núna er komið að trollbátunum.
Það hefur legið ljóst megin hluta af árinu hvaða bátur er aflahæstur í þessum flokki, en við skulum samt telja niður 6 aflahæstu trollbátanna.
Reyndar má velta þvi fyrir sér hvort trollbátar sé rétt flokkun á þessum bátum. öll þessi skip eru mjög öflug og t.d flokkast Vestmanney VE, Bergey VE, Vörður EA sem skuttogarar.
Við tökum fyrir 6 báta hérna enn þessir bátar voru með afgerandi meiri afla enn næstu bátar þar á eftir.
Alls 8 bátar náðu yfir 2000 tonn á árinu. Helgi SH var með 2065 tonn.
Reyndar er eitt sem þarf að hafa í huga Smáey VE var seld og fékk nafnið Frosti ÞH. Samanlagður afli þessara tveggja nafna var um 3300 tonn. Smáey VE á um 1000 tonn af því og Frosti ÞH 2300 tonn.
En rennum í listann.
6 Sæti.
Hérna á landinu eru tveir bæir þar sem að trollbáta útgerð er mjög mikil, Vestmanneyjar og Grundarfjörður. Báturinn í 6 sætinu er einmitt gerður út frá Grundarfirði og heitir Hringur SH Báturinn sem verður seint talin með fallegstu bátum landsins gekk ansi vel á árinu og var með fullfermi svo til í hverjum túr. Heildaraflinn hjá Hring SH var 2714 tonn í 39 löndunum eða 69,6 tonn í löndun sem er feiknargóður afli eða og styður fullkomlega að fullfermi hafi verið í hvejrum túr.
Smá aflaminnkun var á Hringi á milli áranna 2012 og 2011 eða minnkun um afla uppá 3,4%.
![]() |
| Mynd Þóroddur Sævar Gunnlaugsson |
5 sæti.
Núna erum við komin yfir 3000 tonna múrinn og þar eru tvö skip sem eru í eigu sömu útgerðar. Vestmanney VE endaði uppi sem fimmti aflahæsti trollbáturinn. mikill hluti aflans hjá bátnum fór í gáma. Heildaraflinn hjá bátnum var 3010 tonn í 55 löndunum eða 55 tonn í löndun. mestum hluta aflans var landað í Vestmanneyjum en nokkrar landanir voru á Eskifirði.
Aflaaukning var á bátnum á milli ára uppá 2,5%.
![]() |
|
Mynd Guðmundur Stefánsson |
4 sæti.
Hinn báturinn sem er eða var í eigu sömu útgerðar og Vestmanney VE er Bergey VE. þessir tveir bátar eru samskonar bátar og báðir stunda gámafiskaveiðar. Heildaraflinn hjá Bergey VE var 3075 tonn í 55 löndunum eða 56 tonn í róðri.
Þónokkur aflaaukning var hjá Bergey VE eða 6,7%.
![]() |
| Mynd Guðmundur Stefánsson |
3 sæti.
Ekki lang fyrir ofan þessu systurskip er bátur sem átti lengi vel möguleika á að verða aflahæstur trollbátanna, en sá bátur fór á humar og þar með fór toppsætið. Þessi bátur er líka gerður út frá Vestmanneyjum og atti miklu kappi við bátinn sem endaði aflahæstur. Heitir báturinn sem talað er um Drangavík VE. Báturinn átti rosalega góða vertíð og t.d í mars þá atti báturinn miklu kappi við Steinunni SF og endaði Drangavík hærri með 680 tonn í 13 löndunum sem er alger mokafli. Drangavík VE fór svo á humar í júní og var á þeim veiðum út árið.
Heildaraflinn hjá bátnum var 3110 tonn í 74 löndunum eða 42 tonn í löndun.
Aflaaukning var hjá bátnum á milli ára og var hún þónokkur eða tæp 8%.
![]() |
| Mynd Ragnar Pálsson |
2 Sæti.
Báturin í þessu sæti er gerður út frá Grenivík en þó hefur báturinn afar sjaldan komið þar inn til löndunar því aðallöndunarhöfn bátsins er Grindavík. Og það vill svo skemmtilega til að ljósmyndarinn sem tók myndina af Drangavik VE er einmitt á bátnum í öðru sætinu. Þarna er verið að tala um Vörð EA. Báturinn átti ansi gott ár í fyrra og varð heildaraflinn hjá bátnum 3256 tonn í 56 löndunum eða 58 tonn í löndun.
Mjög mikil aflaaukning var hjá bátnum eða uppá 34%
![]() |
| Mynd Eyjólfur Vilbergsson |
Aflahæsti trollbáturinn árið 2012.
já það hefur ekkert farið frammhjá neinum sem hafa fylgst með þessari síðu undanfarin ár að það er einn kóngur sem ræður ríkjum hjá trollbátunum. Þessi kóngur hefur verið aflahæstur ár eftir ár og það svo um munar. Að sjálfsögðu er hérna verið að tala um Steinunni SF. báturinn átti algera metvertíð og má t.d nefna að í apríl þá gerð báturinn sér lítið fyrir og varð aflahæstur allra báta og togara á landinum þegar landað var 724 tonnum í 10 róðrum. þá var mesti afli í túr hjá bátnum 85 tonn og til þess að koma þeim afla fyrir þá var eiginlega allt kjaftfylt því lest í bátnum tekur ekki nema um 70 til 75 tonn. Skilst að fiskur hafi verið settur í pottanna hjá kokknum, heheh.
Heildaraflinn hjá Steinunni SF var 4179 tonn í 67 róðrum eða 62 tonn í róðri. .
Og til að bæta á gott ár þá varð aflaaukning hjá Steinunni SF á milli ára uppá 2,3 %.
![]() |
| Mynd Jón Páll Ásgeirsson |
11.01.2013 15:18
Aflafhæstu Ísfiskstogararnir árið 2012
Það er löngu liðin tíð að togari er í hverri höfn eins og var á árunum 1975 og fram til 2000. Þeir fáu togarar sem eftir eru má skipta í tvo flokka. Hina hefðbundnu togara sem eru þá utan við 12 mílum. svo svo kalla 4 mílna togara en í þeim hópi er t.d Sóley Sigurjóns GK, Gullberg VE, Suðurey VE, Bergur VE, Berglín GK, Þórunn Sveinsdóttir VE. Afli togaranna var ansi góður í fyrra og toppskipin voru mjög mikið í þorski og þá sértaklega togarnir frá Norðurlandinu.
SVo til öll skipin fór á makrílveiðar og er sá afli meðtalin í tölunum að neðan
Alls 8 togarar náðu yfir 5000 tonnin.
Þórunn Sveinsdóttir VE var með 5009 tonn
Páll Pálsson ÍS 5167 tonn.
Björgvin EA 5373 tonn
5 aflahæstu togararnir árið 2012 er eftirfarandi
5 Sæti.
Frá Dalvík hafa verið gerðir út tveir togarar í yfir 30 ára sem eru orðnir rótgrónir bænum. Öðrum þeirra var reyndar skipt út fyrir nýjum togara og er það Björgvin EA se kom nýr 1988. Hinn togarinn aftur á móti er orðin 35 ára gamall. Togarinn Björgúlfur EA varð fimmsti hæsti togari landsins. þorskur var uppistaða afla togarans. en heildarafli skipsins var 6013 tonn í 54 löndunum eða 111 tonn í löndun. Mesti afli togarans á einum mánuði var í september þegar að landað var 637 tonnum í 6 löndun. tvisvar lenti skipið í öðru sæti í júní og febrúar.
![]() |
| Mynd Þorgeir Baldursson |
4 Sæti.
Björgúlfur EA er smíðaður á Akureyri og í fjórða sætinu er annar togari sem er líka smíðaður á Íslandi. Otto N Þorláksson RE er smíðaður í Garðabæ og er fjórði hæsti togari landsins. Togarinn var að mestu í karfa og ufsaveiðum og komst yfir 200 tonn í túr. Togarinn varð aflahæstur í maí og mesti afli skipins var í mars þegar landað var 735 tonnum í 5 róðrum. Heildarafli togarans var 6387 tonn í 52 löndunum eða 123 tonn í löndun
![]() |
| Mynd Guðmundur st Valdimarsson |
3 sæti.
Ottó N Þorláksson RE er gerður út af HB granda og í þriðja sætinu er enn einn íslenskur togarinn því hann er smíðaður á Akranesi, og er hann líka gerður út af HB Granda. Þessi togari heitir lengsta nafni á togara á landinu og heitir hann Sturlaugur H Böðvarsson AK. Togarinn var eins og Ottó líka á karfa og ufsaveiðum. Togarinn komst í efsta sætið í febrúar og mesti mánaðarafli var í júlí 620 tonn í 6 löndunum, Heildarafli skipsins var 6480 tonn í 56 löndunum eða 116 tonn í löndun
![]() |
| Mynd Markús Karl Valsson |
2 sæti.
Að ná yfir 7000 tonna afla á ári telst vera mjög gott og tvö efstu skipin náðu einmitt því marki og það sem meira er að munurinn á þeim er alveg fáranlega lítil. Togarinn í öðru sætinu er langstærsti ísfiskstogari landsins og heitir hann Kaldbakur EA. Togarinn var að langmestu leyti í þorski og fór nokkrar ferðir norður í barnetshaf og kom þá með fullfermi þaðan hátt í 260 tonn. Togarinn varð aflahæstur í janúar og mesti afli var í mars þegar landað var 737 tonnum í einungis þrem löndunum eða 246 tonn í löndun. Heildarafli skipsins varð 7115 tonn í 48 löndunum eða 148 tonn í löndun
![]() |
||
|
Mynd Þorgeir Baldursson
Aflahæsti ísfiskstogari landsins árið 2012.
HB Grandi í Reykjavík er samsuða úr ansi mörgum fyrirtækjum, tveim fyrirtækjum í reykjavík, einu á Akranesi sem líka teygir anga sína til Sandgerðis . Margir togarar hafa verið gerðir út á vegum allra þessara fyrirtækja og einn af þeim elstu í eigu þeirra er togari sem varð 34 ára í fyrra. Sá togari heitir Ásbjörn RE. togarinn átti ansi gott ár að baki og komst afli Ásbjarnar RE yfir 800 tonn á mánuði bæði í mars og júní og var togarinn líka aflahæstur þessa mánuði. mesti afli var í mars eða 867 tonn sem er feiknargóður afli. Heildarafli skipsins var rétt ofan við Kaldbak EA eða 7164 tonn í 57 löndunum eða 126 tonn í löndun
|
07.01.2013 19:26
Aflahæstu netabátarnir árið 2012.
Núna er komið að netabátunum,
Netaveiði bátanna var langmest um veturinn og kemur það ekki á óvart. Eftir vetrarvertíðina þá voru mjög fáir bátar sem héldu áfram netaveiðum út árið. Magnús SH var eini stóri báturinn sem réri á net allt árið. Maron HU og Happasæll KE voru líka að allt árið, sem og Þorleifur EA. það má skipta netaflokknum í nokkuð marga undirflokka. t.d skötuselsnetaveiðar. grásleppunetaveiðar, þorsknetaveiðar og síldarnetveiðar. yfir 100 bátar stunduðu netaveiðar á árinu og var afli þeirra um 25þúsund tonn. 20 bátar náðu yfir 400 tonnum og var Sæþór EA síðasti báturinn til að ná 400 tonna markinu enn afli bátsins á árinu var alls 401 tonn í 145 róðrum eða 2,8 tonn í róðri.
Af hinum svokölluðum 50 til 100 tonna vertíðarbátum sem stunduðu veiðar allt árið þá var afli þeirra eftirfarandi,
Happasæll KE var með 564 tonn í 114 róðrum eða 4,9 tonn í róðri
Maron HU var með 669 tonn í 155 róðrum eða 4,3 tonn í róðri
Þorleifur EA 789 tonn í 167 róðrum eða 4,7 tonn í róðri.
Annars voru 5 aflahæstu netabátarnir eftirfarandi.
5 Sæti.
Báturinn sem endaði fimmti hæsti er nokkuð merkilegur því þetta var síðasta vertíð bátsins undir nafni sem hafði verið á bátnum í 37 ár. Báturinn sem um ræðir er Þórsnes II SH. Afli bátsins á árinu var 1009 tonn í 55 róðrum eða 18,3 tonn í róðri. Þennan afla fékk báturinn á vetrarvertíðinni og endaði þriðji aflahæsti netabáturinn á vertíðinni. Báturinn landaði 553 tonnum í sandgerði og 456 tonnum í stykkishólmi. Mars var besti aflamánuður bátsins þegar að hann landaði 323 tonnum í 19 róðrum.
![]() |
| Mynd Valur Björn Línberg |
4 Sæti.
Hérna er bátur sem er langminnstur netabátanna sem náðu yfir 1000 tonn og í raun langminnstur allra bátanna sem náðu að fiska yfir 500 tonn á árinu og hann er ásamt Sæþór EA eini plastbáturinn sem náði þessum árangri. Þarna erum við að sjálfsögðu að tala um Bárð SH. Bárður SH átti ansi gott ár og rótfiskaði á vetrarvertíðinni. Báturinn setti aflamet í þessum stærðarflokki og ef ekki heimsmet þegar að báturinn landaði 305 tonnum í 29 róðrum í marsmánuði. Heildarafli bátsins var 1029 tonn í 193 róðrum eða 5,3 tonn í róðri.
Báturinn jók afla sinn á frá árinu 2011 um rúm 7 %.
![]() |
| Mynd Alfons Finnson |
3 sæti.
Báturinn í þriðja sætinu er mikið netaaflaskip og hefur undanfarin ár einungis stundað netaveiðar. reyndar hefur bátnum verið lagt eftir vertíð og var það þannig árið 2012 að bátnum var lagt í sex mánuði. Hérna er verið að tala um Erling KE. Bátnum gekk vel á vertíðinni og landaði þá lang mestum hluta aflans. 165 tonn voru lönduð í ágúst og hluta september. Afli bátsins var 1180 tonn í 97 róðrum eða 12,3 tonn í róðri. Febrúar var besti aflamánuður bátsins þegar að hann landaði 296 tonnum í 22 róðrum. Aldrei náði báturinn toppsætinu á netalistanum en varð í öðru sæti í janúar, ágúst og september.
Afli bátsins jókst umtalsvert á milli áranna 2012 og 2011 eða um tæp 20 %
![]() |
|
Mynd Gísli Reynisson |
2 Sæti.
Báturinn í öðru sætinu var eini stóri báturinn sem réri á netum allt árið. báturinn byrjaði vertíða á þorskanetum en var svo eftir það á skötuselsnetaveiðum. Þarna er verið að tala um Magnús SH. báturinn fiskaði 1230 tonn í 141 róðri eða 8,7 tonn í róðri. Apríl var besti aflamánuður bátsins þegar að hann landaði 265 tonnum í 10 róðrum. Besti árangur bátsins á netalistanum var í september þegar að Magnús SH varð aflahæstur netabátanna.
Afli bátsins jókst á milli ára eða um 7 %.
![]() |
| Mynd Alfons Finnson |
Aflahæsti netabáturinn árið 2012:
Þessi bátur stundaði ekki einungis netaveiðar því báturinn fór líka á dragnótaveiðar og fiskaði vel þar og á makrílveiðar. Afli bátsins fór yfir 2000 tonn á árinu. Aflahæsti báturinn heitir Hvanney SF. Reyndar var það nú þannig að í lok september þá var Hvanney SF í öðru sætinu því Erling KE var hæstur enn bæði Magnús SH og Hvanney SF fóru frammúr Erling KE því Erling KE réri ekkert frá því um miðjan september. Afli Hvanneyjar SF á netum var 1317 tonn í 75 róðrum eða 17,5 tonn í róðri sem er ansi góður meðalafli. Báturinn varð aflahæstur netabátanna í janúar og nóvember og besti aflamánuður bátsins var í mars þegar að báturinn landaði 342 tonnum í einungis 11 róðrum. Þá kom báturinn mest með 53 tonn í einni löndun.
![]() |
| Mynd Markús Karl Valsson |
06.01.2013 21:33
Aflahæstu Dragnótabátar árið 2012
Kem aftur með listann enn smávægileg misstök urðu til þess að báturinn sem er núna í þriðja sætinu vantaði. Örn KE er semsé í 7unda sætinu
Hérna kemur fyrsti listinn yfir aflahæstu báta sem ég hef talað um, og við byrjum á dragnótabátunum.
Alls 52 bátar lönduðu afla eftir veiðar á dragnót. Nokkrir þeirra voru reyndar á öðrum veiðiskap líka. t.d Fróði II ÁR , Jón á Hofi ÁR og Jóhanna ÁR sem voru á humri. Hvanney SF var líka á netaveiðum.
Alls lönduðu þessir bátar 24500 tonnum og náðu 28 bátar að afla meira enn 400 tonn. 10 bátar náðu yfir 800 tonn og sex bátar náðu að fiska meira en 1000 tonn á árinu 2012, og hérna að neða mun ég fjalla um þessa 6 báta.
6 Sæti.
Í fimmta sætinu var annar bátur sem líka gerði að mestu út frá Sandgerði en Örn KE landaði langmestum hluta afla síns í Sandgerði. Fimmti hæsti báturinn heitir Sigurfari GK. Sigurfari GK landaði 1068 tonnum í 120 róðrum eða 8,9 tonn í róðri. Besti mánuður bátsins var mars þegar að báturinn landaði 256 tonnum í 17 róðrum. En besti árangur bátsins á dragnótalistanum var í desember þegar að báturinn hafnaði í öðru sætinu þann mánuð.
Afli bátsins var mjög svipaður árið 2012 og 2011 en þó var minnkun á afla bátsins uppá rúm 1 %.
![]() |
|
Mynd Guðmundur St Valdimarsson |
5 Sæti.
Fjórði aflahæsti dragnótabáturinn var bátur sem landaði mest öllum afla sínum í Þorlákshöfn. Heitir sá bátur Hásteinn ÁR. Báturinn réri reyndar ekki nema hluta af árinu því báturinn réri ekkert í 5 mánuði. Ein ansi stór breyting var á útgerðarmynstri bátsins en hún var sú að báturinn fór að stunda dagróðra á dragnót en hingað til þá hafði báturinn verið á útilegu. Afli bátsins var 1097 tonn í 52 róðrum og er því meðalaflinn ansi góður eða 21,1 tonn. Besti mánuðurinn hjá bátnum var mars þegar að báturinn landaði 387 tonnumí 15 róðrum og kom þá mest með 53 tonn að landi í einum róðri. báturinn var líka aflahæstur í september.
Afli bátsins minnkaði um tæp 9 % á milli áranna 2012 og 2011.
![]() |
|
Mynd Ragnar Pálsson |
4 sætið.
alls 5 dragnótabátar hérna við land eru svokallaðir kínabátar, og einn af þeim varð þriðji aflahæsti dragnótabátur landsins. Heitir sá bátur Sólborg RE. Sólborg RE átti ansi gott ár að baki og aflaði 1151 tonn í 95 róðrum. það gerir 12 tonn í róðri sem er verulega góður meðalafli. Þetta er ansi góður árangur sérstaklega ef haft er í huga að Sólborg RE er minnsti báturinn af þessum sex sem hérna eru til umfjöllunar. Besti mánuður bátsins var mars þegar að báturinn landaði 305 tonnum í 19 róðrum og kom þá mest með 30 tonn að landi í einum róðri, þá var báturinn í þriðja sæti og er það líka besti árangur bátsins á dragnótalistanum.
þótt að afli bátsins hafi verið góður árið 2012 þá var hann samt 14% minni enn árið 2011.
![]() |
| Mynd Ragnar Pálsson |
3 sæti.
Það eru ekki margir bátar sem ná því að vera inná topp 5 á tveim listum en báturinn í þriðja sætinu er líka aflahæsti netabáturinn. Þarna er verið að tala um Hvanney SF. Báturinn átti ansi góðan maí mánuð þegar að hann landaði 490 tonnum og var langaflahæstur þann mánuðinn. Dragnótaafli Hvanneyjar SF var 1161 tonn í 59 róðrum sem gerir 19,6 tonn í róðri sem er feiknargóður meðalafli.
![]() |
| Mynd Markús Karl Valsson |
2 sæti.
Í Sandgerði í fjöldamörg ár þá var gerður út stálbátur þar sem hét Reynir GK 177. Sá bátur fór síðan í gegnum miklar breytingar og heitir í dag Stormur SH. Stormur SH var annar aflahæsti dragnótabátur landsins. Reyndar má segja að báturinn hafi átt möguleika á að ná toppsætinu því báturinn sem endaði hæstur réri ekkert í desember. Afli Storms SH var 1226 tonn í 100 róðrum sem gerir 12,2 tonn í róðri. Báturinn landaði ansi víða en þó mestu í Bolungarvík. Besti mánuður bátsins var febrúar þegar að báturinn landaði 225 tonnum í 19 róðrum. Hinsvegar var besti mánuðurinn hjá bátnum nóvember þegar að báturinn varð aflahæstur.
Afli bátsins minnkaði umtalsvert á milli ára eða um 29%.
![]() |
| Mynd Alfons Finnson |
Aflahæsti dragnótabáturinn árið 2012:
Þegar að menn eru búnir að lesa frá sjötta sætinu og niður þá ættu menn að geta séð hvaða bátur er hæstur. Steinunn SH var aflahæstur dragnótabátanna. Landaði báturinn 1288 tonnum í 107 róðrum eða 12 tonn í róðri. Báturinn var reyndar ekki gerður út í fjóran og hálfan mánuð. aflahæsti mánuður bátsins var febrúar þegar að báturinn landaði 314 tonnum í 21 róðri. Báturinn varð aflahæstur tvisvar í febrúar og í október. Maí mánuður má samt segja að hafi verið langbestur því báturinn gjörsamlega mokveiddi og fékk 229 tonn í einungis 5 róðrum sem gerir 45,8 tn í róðri. þá kom báturinn mest með 64 tonn að landi eftir einn dag á veiðum.
Afli bátsins jókst lítilsvert á milli ára eða um tæp 5%.
![]() |
| Mynd Alfons Finnson |
06.01.2013 21:30
Línubátar í Desember
Listi númer 4
Kem hérna aftur með listann enn það var ekki bara Þorlákur ÍS og Brimnes BA sem réru á milli hátíða. ÖRvar SH og Rifsnes SH lögðu eina lögn hver og Grundfirðingur SH náði fullum túr og kom til hafnar með 50 tonn sem landað var úr bátnum á gamlársdag
jæja svona endar þá árið og Sighvatur GK er hæstur bátanna.
Norskur bátarnir eru með afla sem miðastð við 19 desember.
| Útilegu beitningavélabátar | |||||||
| Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Landanir | mest | Löndunarhöfn | meðalafli |
| 1 | 3 | Sighvatur GK | 371,3 | 4 | 106,6 | djúpivogur grindav | 92,8 |
| 2 | 1 | Jóhanna Gísladóttir ÍS | 367,4 | 3 | 140,3 | Þingeyri,grinda | 122,5 |
| 3 | 2 | Páll Jónsson GK | 306,4 | 3 | 107,8 | djúpivogur,grinda | 102,1 |
| 4 | 6 | Ágúst GK | 285,1 | 5 | 73,5 | Grindavík | 57 |
| 5 | 9 | Núpur BA | 274,4 | 6 | 52,7 | Pareksfjörður | 45,7 |
| 6 | 4 | Fjölnir SU | 272,8 | 3 | 99,9 | skagaströnd, grin | 91 |
| 7 | 5 | Tjaldur SH | 271,8 | 4 | 73,5 | Seyðisfjörður,rif' | 68 |
| 8 | 10 | Sturla GK | 243,1 | 4 | 62,2 | Grindavík,djúpiv | 60,8 |
| 9 | 11 | Valdimar GK | 222,3 | 4 | 53,3 | djúpivogur | 55,6 |
| 10 | 8 | Þorlákur ÍS | 216,3 | 6 | 59,2 | Bolungarvík, | 36,1 |
| 11 | 16 | Kristrún RE | 198,4 | 4 | 57,2 | Reykjavík | 49,6 |
| 12 | 7 | Tómas Þorvaldsson GK | 191,1 | 3 | 73,5 | Grindavík,djúpiv | 63,7 |
| 13 | 12 | Saxhamar SH | 174,5 | 3 | 66,9 | Rif | 58,2 |
| 14 | 13 | Grundfirðingur SH | 170,4 | 4 | 50,4 | Grundarfjörður | 42,7 |
| 15 | 14 | Örvar | 167,7 | 5 | 45,1 | Rif | 33,6 |
| 16 | 15 | Rifsnes SH | 164,9 | 5 | 44,3 | siglufjörður, rif | 33 |
| 17 | 20 | Kristín ÞH | 144,9 | 2 | 99,7 | Grindavík, djúpi | 72,5 |
| 18 | 21 | Þórsnes SH | 119,9 | 2 | 67,1 | stykkishólmur | 60 |
| 19 | 23 | Gullhólmi SH | 97,5 | 2 | 58,7 | stykkishólmur | 48,8 |
| 20 | 24 | Kópur BA | 69,6 | 2 | 38,9 | Tálknafjörður | 34,8 |
| 21 | |||||||
| Balabátar, og 3 norskir bátar sem og Hafdís SU | |||||||
| 1 | 1 | Gulltoppur GK | 138,7 | 16 | 17,6 | djúpivogur | 9,9 |
| 2 | 3 | Ásta B | 125,8 | 14 | 11,6 | Noregur | 9,7 |
| 3 | 2 | Saga K | 124,9 | 13 | 12,4 | Noregur | 8,6 |
| 4 | 4 | Vestbuen | 111,1 | 5 | 25,1 | Noregur | 21 |
| 5 | 5 | Hafdís SU | 66,9 | 16 | 7,6 | Neskaupstaður | 5,1 |
| 6 | 6 | Brimnes BA | 64,2 | 9 | 8,7 | Rif | 5,1 |
| 7 | 7 | Hamar SH | 55,6 | 10 | 9,9 | Pareksfjörður | 4,6 |
05.01.2013 16:53
Bátar Desembers 2012
Síðasta val fyrir árið 2012.
Seinna í janúar þá kemur svo val yfir báta ársins í hverjum flokki fyrir sig,
|
Flokkur |
Nafn báts |
Afhverju |
|
|
Smábátar yfir 10 BT |
Lukka SI |
Besti mánuður ársins hjá bátnum og að auki þá báturinn með 10 tonn að landi í einum róðri. |
|
|
Smábátar undir 10 BT |
Herja ST |
Kjaftfullur bátur í einum róðri og aflahæstur. Segir allt sem segja þarf |
|
|
Dragnót |
Jón á Hofi ÁR |
Kláraði humarvertíðina og varð hæstur dragnótabátanna |
|
|
Troll |
Hringur SH |
Næsthæstur bátanna en með 72 tonn í róðri að meðaltali. Fullfermi í hverjum túr |
|
|
Ísfiskstogarar |
Árbakur EA |
Hæstur annan mánuðinn í röð. |
|
|
Netabátar |
Jökull ÞH |
Varð hæstur bátanna og átti að auki stærstu löndunina |
|
|
Línubátar |
Sighvatur GK |
Urðu aflahæstir línubátanna. |
|
|
Rækjubátar |
|
|
|
|
Annað
|
|
|
|
04.01.2013 15:57
Metár hjá 39 ára gömlum frystitogara
Árið 2012 var ansi gott hjá frystitogurunum. Brimnes RE var hæstur skipanna og var togarinn líka aflahæstur árið þar á undan. En án efa þá var þetta ár togarans Kleifabergs ÓF sem þrátt fyrir að vera 39 ára gamall þá var árið 2012 langbesta ár togarans frá upphafi.
Togarinn var næsthæstur skipanna með 9761 tonn og miðað við flakafrystitogara þá er þetta algert metafli. Brimnes RE sem var aflahæstur heilfrystir aflann um borð.
ansi mikill munur er á þessum tveim skipum. bæði skipin eru um 70 metra löng. Brimnes RE er reyndar mun breiðari 14,6 metrar á móti 11,3. Stærsti munurinn er þó vélaraflin í Brimnesi RE er 8158 hestafla vél en í Kleifaberginu ÓF er ekki nem 3000 hestafla vél. vægast sagt svakalegur munur. Enda er togkrafturinn á Kleifaberginu ÓF 43 tonn en 98 tonn á Brimnesi RE.
Er því árangur þessa 39 ára gamla togara stórmerkilegur og ástæða til að óska áhöfn skipsins til hamingju með glæsilegt aflaár.
![]() |
| Kleifaberg ÓF Mynd Gísli Hauksson |
04.01.2013 15:35
Frystitogarar árið 2012
listi númer 7.
Lokalistinn.
Allir túrar komnir inn og var Málmey SK með 709 tonn og Þór HF 734 tonn svo dæmi séu tekinn
Meðalaflinn hjá Þór HF er langhæstur skipanna eða 779 tonn.
| Sæti | Sæti Síðast | Nafn | Afli | Landanir | Mest | meðalafli |
| 1 | 1 | Brimnes RE | 10797,8 | 21 | 835 | 514 |
| 2 | 2 | Kleifaberg RE | 9761,1 | 18 | 1052 | 542 |
| 3 | 3 | Málmey SK | 8495,6 | 15 | 921 | 566 |
| 4 | 5 | Þór HF | 7793,8 | 10 | 1190 | 779 |
| 5 | 8 | Arnar HU | 7468,2 | 12 | 826 | 622 |
| 6 | 4 | Mánaberg ÓF | 7404,6 | 19 | 692 | 389 |
| 7 | 6 | Guðmundur í Nesi RE | 7371,4 | 14 | 747 | 526 |
| 8 | 9 | Þerney RE | 7353,1 | 14 | 952 | 525 |
| 9 | 7 | Helga María AK | 7047,7 | 22 | 645 | 320 |
| 10 | 11 | Baldvin Njálsson GK | 6955,5 | 14 | 725 | 496 |
| 11 | 10 | Sigurbjörg ÓF | 6941,5 | 16 | 662 | 434 |
| 12 | 12 | Venus HF | 6897,8 | 11 | 1241 | 627 |
| 13 | 13 | Höfrungur III AK | 6650,5 | 12 | 962 | 554 |
| 14 | 15 | Örfirsey RE | 6205,4 | 12 | 1030 | 517 |
| 15 | 14 | Hrafn Sveinbjarnarsson GK | 6040,2 | 26 | 392 | 232 |
| 16 | 16 | Gnúpur GK | 5966,1 | 16 | 965 | 372 |
| 17 | 20 | Snæfell EA | 5369,1 | 9 | 976 | 596 |
| 18 | 17 | Vigri RE | 5295,9 | 9 | 885 | 588 |
| 19 | 21 | Freri RE | 4981,8 | 10 | 666 | 498 |
| 20 | 19 | Hrafn GK | 4837,1 | 18 | 487 | 268 |
| 21 | 18 | Júlíus Geirmundsson ÍS | 4726,2 | 15 | 648 | 315 |
| 22 | 22 | Barði NK | 4045,6 | 16 | 382 | 252 |
| 23 | 23 | Örvar SK | 2652,8 | 10 | 399 | 262 |
| 24 | 24 | Oddeyrin EA | 1263,6 | 3 | 532 | 421 |
| 25 | 25 | Frosti ÞH | 652,9 | 2 | 349 | 326 |
| 26 | 26 | Gandí VE | 374,6 | 2 | 205 | 187 |
03.01.2013 14:48
Hæstu bátar og bátar ársins
Sæl veriði . Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
er núna staddur í Reykholti í Borgarfirði í smá rútuferð.
Þar sem árið 2012 er nú liðið þá mun hérna á síðunni verða birtir pistlar yfir hæstu báta eftir því hvaða veiðarfæri þeir voru á.
munu verða birtir 5 hæstu bátarnir og verða það í öllum veiðarfærum nema. Uppsjávarskipin ( búin að fjalla um þau), Frystitogaranna, Rækjubátanna og humarbátanna. En allir þessir listar hafa verið í gangi árið 2012 og á þeim er hægt að sjá hver er hæstur.
Þessir pistlar verða þannig að fyrst verður greint frá bátnum sem varð fimmti hæstur og svo koll af kolli þangað til við komum að aflahæsta bátnum.
Allt árið 2012 þá var valin bátar mánaðarins og reyndar á eftir að koma með valið fyrir desember 2012. þegar að það verður búið þá verður valin bátur ársins í hverjum flokki fyrir sig nema í þeim flokkum sem getið er um að ofan.
Allavega vertíðin er byrjuð og mér sýndist að fyrsti báturinn til að landa afla á þessu herrans ári 2013 hafi verið Fönix BA sem landaði 1 janúar tæpum 7 tonnum á línu.
Eigiði ánægjulegt Aflafréttaár.
kveðja
G.R






































































