Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Færslur: 2009 September
30.09.2009 22:22
Mokafli hjá Klakki SH.
Á nýjum botnvörpulista sem er hérna undir þessum pistli kemur fram að Klakkur SH er orðin aflahæstur. og kemur það nokkuð óvart þar sem fyrir nýjasta listann þá var klakkur í 4 sætinu og um 121 tonni á eftir Sólbaki EA.
Sólbakur EA landaði 183 tonnum eftir eina löndun. Klakkur SH aftur á móti landaði fyrst 143 tonnum eftir 6 daga á veiðum sem gerir um 24 tonn á dag.
Seinni löndun Klakks SH var eftir 6 daga á veiðum og var þar þorskur 183 tonn. ( um 31 tonn ´dag) þegar þetta er skrifað á eftir að koma inn afli utan þorsks. En 183 tonn er svakalega góður afli og er þetta einn mesti afli sem hefur komið á Klakk SH undanfarin ár. líklegast þarf að fara aftur til þess tíma þegar Klakkur var á veiðum í smugunni til að finna jafn stóra löndun. Veit samt að þegar togarinn var Klakkur VE þá komst hann stundum yfir 200 tonn í löndun.
Klakkur SH er eins og flestir vita einn af Pólsku togurnum en hinir voru Ólafur Jónsson GK( sem er eini sem hefur verið lengdur), Bjarni Herjólfsson SH sem síðar varð Hrímbakur EA og þaðan Hringur SH. og svo Klakkur VE sem núna er Klakkur SH.
Jæja þessi frétt er ónýt. nýjar tölur voru að koma um þessa löndun Klakks og hún var EKKI 183 tonn heldur 158 tonn. 183 tonnin voru á fiskistofuvefnum þegar ég skrifaði pistlinn að ofan og er þetta ansi mikil breyting úr 183 tonnum niður í 158 tonn.
Mynd Grétar Þór. færi ég honum bestu þakkir fyrir.
29.09.2009 07:30
Green Iceland
Myndina tók Páll á Ástu GK og er hún tekin á Neskaupsstað.
Heitir skipið Green Iceland og gróf´ég aðeins upp smá upplýsingar um skipið.
Skipiðp er smíðað ári 1993 og er um 6700 BT.
mesta lengd er 113,7 metrar
breidd 16,3 metrar
dýpt 8,3 metrar.
silgingarhraði 18 mílur.
Skipið er sérhannað til flutinga á frystum afurðum og er með 6 aðskildum lestum og getur haldið hita frá -30 gráðum og uppí +15 gráður.
Mynd Páll á Ástu GK
27.09.2009 20:37
Róið til fiskjar
kanski einhver viti nánar um sögu eða nafn þessa báts.
23.09.2009 19:08
Hafið
það skal tekið fram að ég er ekkert búinn að eiga við myndina. litirnir voru svona þegar ég tók myndina.
mynd Gísli Reynisson
20.09.2009 22:41
Ari Einarsson GK
Mynd Aðalsteinn Sveinsson
19.09.2009 03:23
Kafbátur eða Loðnuskip
Skipið sem um, ræðir heitir Havglans og er smíðað árið 1978. og er 60 metrar á lengd og 10 metrar á breidd. mælist um 939 BT.
þessi mynd er vægast sagt helvíti svakaleg.
Mynd Christian Guttormsen af www.shipspotting.com
13.09.2009 18:30
Brjálað að gera í Grindavík í Mars árið 1968
Í mars árið 1968 þá var heldur betur líf í Grindavíkurhöfn því nokkuð vel virðist hafa viðrar til róða því bátar réru nokkuð stíft og afli var mjög góður. skulu tekin hérna 3 dæmi um fiskvinnsluhús sem ansi miklu var landað í.
Hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða var landað 1006 tonnum og þar voru atkvæðamestir Þórkatla II GK 197 sem fór í 23 róðra og var með 321 tonn sem allt fékk í net.
Þórkatla GK 97 sem var mun minni bátur enn Þórkatla II GK var með 220 tonn í 21 sjóferð allt í net.
Hjá Þorbirni HF var miklum afla landað eða alls 1616 tonnum og þar skipuðu Hrafnarnir sér allir á bekk í löndun.
Langatkvæðamestur Hrafnanna var Hrafn Sveinbjarnarsson II GK 11 sem gerði sér lítið fyrir og fór yfir 400 tonn í þessum mánuði eða 424 tonn í 28 róðrum.
Hrafn Sveinbjarnarsson GK 255 var með 354 tonn í 28 róðrum
og Hrafn Sveinbjarnarsson II GK 10 var með 262 tonn í 21 róðrum. reyndar voru 28 tonn af þeim afla fengin á línu í 6 róðrum.
Kanski hvað mesta athygli í þessum mánuði vakti hversu miklum afla var landað hjá fyrirtæki sem hét Arnarvík hf. Þar var landað hvorki meira né minna enn 1507 tonnum af einungis 4 bátum.
Bátarnir sem lönduðu þar voru engir aukvisar. heldur voru það Albert GK 31, Arnfirðingur II RE 212 , Geirfugl GK 66 og Staðarberg GK 350 sem var á trolli enn hinir voru á netum.
Geirfugl GK mokfiskaði og fékk alls 548 tonn í 28 róðrum sem gerir um 22 tonn í róðri. þar af fékk Geirfugl GK 281 tonn í einungis 12 róðrum sem gerir rúm 23 tonn í róðri.
Arnfirðingur II RE mokfiskaði líka og var með 464 tonn í 28 róðrum sem gerir um 18 tonn í róðri.
Albert GK var með 366 tonn í 24 róðrum.
Afla var landað á nokkrum stöðum til viðbótar í Grindavík þennan mánuð og má þar nefna Hraðfrystihús Grindavíkur sem tók á móti rúmum 600 tonnum, og voru þar Máni GK og Már GK aflahæstir báðir með um 200 tonn sitthvor báturinn.
Það er því óhætt að segja að brjálað hafi verið að gera í Grindavík á þessum ´tima og kanski einhverjir lesendur síðunnar hafi verið að vinna eða á sjó einmitt á þessum tíma sem þessi pistill á við.
11.09.2009 08:20
Fyrsta ljósmyndssýning Reynis Sveinssonar.
10.09.2009 20:44
Hvað hefur Örn KE fiskað mikið á 10 árum?
Í ár´þá átti dragnótabáturin Örn KE 10 ára afmæli. og í tilefni af því þá var ég beðin um að safna sama öllum tölum um bátinn og reikna út hvað hann hefði fiskað mikið á þessumárum.
Gerði ég´það og skilaði af mér 24 blaðsíðna skýrslu um bátinn.
samhliða því þá setti ég smá könnun hérna á síðuna um hvað menn héldu að Örn KE hefði afla mikið. voru gefnir upp 10 valmöguleikar.
alls tóku 140 manns þátt í þessari könnun og voru flestir eða 24% sem giskuðu á 13200 tonn.
18 % giskuðu á 12200 tonn og 11% giskuðu á 10700 tonn.
Rétta svarið var þegar skýrslan var gerð þá var afli bátsins komin í 11700 tonn. ( 10 % giskuðu á þannafla).
Frá því að skýrslan varð gerð þá hefur bæst við aflan hjá bátnum og má búast við því að Örn KE fari yfir 12000 tonnin núna á þessu ári.
Má svo til gamans geta þess að tveir áhafnameðilimir hafa verð um borð í Erni KE öll þessi 10 ár. og eru það Skipstjórinn og bátsmaðurinn.
Mynd Guðmundur st Valdimarson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
10.09.2009 07:52
Von GK með fullfermi
09.09.2009 12:08
Mokveiði á ýsu
Er Byrjaður sð skrifa inn árið 1968 og þegar ég koma að Hornafirði þá vakti athygli mína hversu mikil ýsuafli kom á land þar. Enn alls var landað um 330 tonnum af ýsu í janúas mánuiði og veku rþað nokkra athygli.
Fékkst þessi ýsuafli í troll og á línu sem líka vekur nokkra athygli.
nokkrir bátar fengu mjög svo góðan ýsuafla og voru þeir eftirfarandi.
Ég hef ekki myndir af bátunum enn ef þeir eru "googlaðir" þá má finna myndir af þeim t.d á síðunni hjá Þorgeiri sem og á síðunni hans Hauks Snorrasonar.
Fyrst ber að nefna Eikarbátinn Gissur Hvíta SF 55 sem var 71 brl að stærð.
báturinn var á línu í janúr og fékk alls 123 tonn í 14 róðrum og af Því var ýsa 67 tonn.
Gissur Hvíti SF var næst aflahæsti báturinn í janúar það ár tæpum 10 tonnum á eftir þeim aflahæsta sem var Guðbjartur Kristján ÍS sem var á línu. Meðalafli Gissurs Hvíta SF var tæp 9 tonn sem verður að teljast nokkuð gott miðað við janúarmánuð
Hvanney SF var ekki langt frá Gissuri Hvíta SF. Hvanney SF var 65 brl eikarbátur og fékk alls 121 tonní 14 róðrum og af því var ýsa 59 tonn. báðir bátarnir réru á línu.
Ólafur Tryggvasson SF 60 var 150 brl stálbátur og réri hann á trolli og fór ekki nema 7 róðra en var með 83 tonn og var ýsa þar af 75 tonn. meðalafli bátsins tæp 12 tonn.
4 báturinn sem fiskaði vel af ýsu var Jón Eiríksson SF 100. Sá bátur varð 101 brl Eikarbátur og réri á trolli. Fór báturin einungis 4 róðra en var með 66 tonna afla og var það meginhluti ýsa því ýsuaflinn var 65 tonn. meðaflinn var 16.5 tonn.
08.09.2009 19:36
Ótitlað
Hérna kemur ein óþekkt. Myndin er tekin árið 1978 og báturinn er óþekktur.
hvaða bátur er á myndinni?
Mynd Aðalsteinn Sveinsson
07.09.2009 03:46
Sighvatur Bjarnarsson VE
05.09.2009 15:53
Smábátar yfir 10 BT í ágúst
| Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Róðrar | Mest | Löndunarhöfn |
| 1 | 1 | Ragnar SF | 217.041 | 23 | 20.4 | Stöðvarfjörður, Seyðisförður |
| 2 | 2 | Guðmundur.Sigurðsso.SF........ | 156.463 | 25 | 14.2 | Stöðvarfjörður, Seyðisförður |
| 3 | 3 | Daðey GK | 102.381 | 17 | 10.5 | Djúpivogur |
| 4 | 7 | Auður Vésteins GK | 97.752 | 19 | 9.3 | Stöðvarfjörður, Neskaupstaður |
| 5 | 4 | Hrólfur Einarsson ÍS | 85.609 | 26 | 5.4 | Bolungarvík |
| 6 | 5 | Sirrý ÍS | 83.905 | 24 | 5.8 | Bolungarvík |
| 7 | 6 | Bíldsey SH | 77.055 | 19 | 5.9 | Hofsós |
| 8 | 8 | Guðmundur Einarsson ÍS | 71.927 | 23 | 4.5 | Bolungarvík |
| 9 | 14 | Dögg SF | 71.215 | 12 | 10.6 | Stöðvarfjörður Fáskrúðsfj |
| 10 | 9 | Jonni SI | 7.165 | 16 | 6.7 | Siglufjörður |
| 11 | 11 | Þórkatla GK | 71.111 | 14 | 7.5 | Siglufjörður |
| 12 | 10 | Gísli Súrsson GK | 70.158 | 17 | 6.7 | Siglufjörður |
| 13 | 13 | Óli á Stað GK | 63.426 | 14 | 6.5 | Siglufjörður |
| 14 | 12 | Kristinn II SH | 62.704 | 15 | 6.9 | Ólafsvík |
| 15 | 15 | Von GK | 56.460 | 12 | 12.2 | Djúpivogur |
| 16 | 17 | Sæunn Sæmundsdóttir ÁR | 52.406 | 14 | 5.8 | Þorlákshöf |
| 17 | 16 | Benni SF | 50.994 | 6 | 10.7 | Djúpivogur |
| 18 | 19 | Beta VE | 47.683 | 11 | 7.6 | Stöðvarfjörður |
| 19 | 18 | Lukka ÍS | 47.641 | 12 | 7.5 | Siglufjörður |
| 20 | 20 | Guðmundur á Hópi GK | 44.660 | 11 | 6.7 | Skagaströnd |
| 21 | 22 | Gestur Kristinsson ÍS | 42.713 | 17 | 3.6 | Suðureyri |
| 22 | 25 | Vilborg GK | 41.337 | 11 | 6.3 | Siglufjörður |
| 23 | 21 | Dúddi Gísla GK | 41.291 | 9 | 5.9 | Skagaströnd |
| 24 | 23 | Ólafur HF | 39.820 | 10 | 5.7 | Skagaströnd |
| 25 | 24 | Lúkas ÍS | 39.341 | 15 | 5.7 | Ísafjörður |
| 26 | 26 | Óli Gísla GK | 35.837 | 8 | 6.4 | Skagaströnd |
| 27 | 30 | Bára SI | 34.985 | 10 | 6.3 | Siglufjörður |
| 28 | 29 | Siggi Bjartar ÍS | 34.875 | 16 | 3.7 | Bolungarvík |
| 29 | 27 | Kristján ÍS | 34.216 | 14 | 3.2 | Flateyri |
| 30 | 28 | Akraberg AK | 34.063 | 7 | 8.7 | Siglufjörður |
05.09.2009 15:17
Smábátar undir 1ö BT í ágúst
| Sæti | Sæti Áður | Nafn | Afli | Róðrar | Mest | Löndunarhöfn |
| 1 | 1 | Einar Hálfdán ÍS | 51.721 | 19 | 4.2 | bolungarvík |
| 2 | 2 | Petra SK | 36.569 | 10 | 7.2 | siglufjörður |
| 3 | 3 | Snjólfur ÍS | 26.752 | 13 | 3.6 | bolungarvík |
| 4 | 4 | Berti G ÍS | 20.049 | 12 | 2.8 | Suðureyri |
| 5 | 5 | Högni NS | 19.870 | 8 | 3.9 | Borgarbjörður Eystri |
| 6 | 6 | Sæfugl ST | 18.638 | 9 | 2.8 | Drangsnes |
| 7 | 7 | Jónína EA | 15.921 | 6 | 3.4 | Grímsey |
| 8 | 10 | Björg Hauks ÍS | 14.030 | 10 | 2.2 | Ísafjörður |
| 9 | 8 | Mangi á Búðum SH | 12.784 | 9 | 2.2 | Ólafsvík |
| 10 | 9 | Milla GK | 12.523 | 8 | 1.6 | siglufjörður |
| 11 | 11 | Sær NK | 10.544 | 10 | 1.6 | Neskaupstaður |
| 12 | 15 | Bliða VE | 10.211 | 7 | 1.8 | vestmannaeyjar |
| 13 | 12 | Siggi Afi HU | 9.531 | 8 | 1.6 | Ólafsvík |
| 14 | 13 | Kópsnes ST | 9.323 | 4 | 2.6 | Hólmavík |
| 15 | 65 | Geisli SK | 8.367 | 5 | 3.1 | Sauðarkrókur |
| 16 | 14 | Skúli ST | 8.337 | 6 | 1.8 | Drangsnes |
| 17 | 16 | Litlitindur SU | 7.082 | 8 | 2.1 | Fáskrúðsfjörður |
| 18 | 17 | Sleipnir ÁR | 5.726 | 2 | 4.4 | Þorlákshöfn |
| 19 | 34 | Árni ÞH | 5.556 | 6 | 1.2 | Húsavík |
| 20 | 18 | Straumur ST | 4.986 | 5 | 1.3 | Hólmavík |
| 21 | 19 | Hólmi NS | 4.804 | 2 | 3.1 | Vopnafjörður |
| 22 | 20 | Súddi NS | 4.484 | 6 | 1.1 | Seyðisfjörður |
| 23 | 21 | Ásmundur SK | 4.387 | 4 | 1.6 | Sauðarkrókur |
| 24 | 22 | Sigrún ÍS | 2.336 | 2 | 1.4 | bolungarvík |
| 25 | 23 | Vilborg ÞH | 1.681 | 5 | husavík |
- 1
- 2
