Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Færslur: 2009 Apríl
30.04.2009 10:37
Muggur KE að veiðum
Ennþá er nokkuð bil í Guðmund Einarsson ÍS, enn það er ekki hægt að útiloka neitt í þessum efnum.
Meðalafli bátsins er rosalegur 9,8 tonn.
Má geta þess að ef aflinn er tekin saman sem er yfir 10 tonn hjá bátnum þá er hann alls 88,7 tonn í sjófeðrum eða 12,6 tonn í róðri. Ekki annað hægt að segja að þetta sé frábær árangur.
svo að lokum Muggur KE var smíðaður í Sólplasti í Sandgerði sem fór illa útúr brunanum í Oddi á Nesi SI.
Rabbi á Óla á Stað GK sendi mér myndir af Muggi KE af veiðum núna þann 21 apríl utan við Sandgerði.
Myndir Rafn Franklín Arnarsson.
30.04.2009 08:20
Styrkja síðuna
Menn hafa spurt mig líka hvernig ég nenni að standa í þessu að halda síðunni úti miðað við alla þá vinnu sem fer í hana, svarið er ósköp einfalt. þetta er svo helvíti gaman, þetta er búið að vera hluti af lífu mínu síðustu 16 árin að spá í aflatölum og síðan er bara einn angi af því.
28.04.2009 15:59
hvað með Handfærabátanna?????
Því er til að svara að áhuginn er til staðar um að hafa þá með á síðunni enn það er reyndar einn hausverkur við hann enn það er það þarf að fara í gegnum svo gríðarlega marga báta bara til þess að búa til heilstæðan lista, og spurning hvort ég nái að sinna því.
Enn hvað segja menn vilja menn fá handfæralista á síðuna??
25.04.2009 05:32
Líf á Sjónum. bæði fuglalíf og hitt hehe.
Einn dag í apríl þá var Óli á Stað GK á leið til veiða frá Sandgerði. Ósk KE var sömuleiðis á leið frá Sandgerði á sama tíma á veiðar og Rabbi á Óla á Stað GK ákvað að smella mynd af Ósk KE. Því eitthvað fannst honum skrýtið að netalúgan að aftan var opinn.
Eða með orðunum hans Rabba: Læt fylgja myndir af Ósk KE á útleið frá sandgerði, annað hvort er kamarinn stíflaður hjá þeim eða þeim orðið svona svakalega brátt í brók."
Myndir Rafn Franklín Arnarsson.
Jamm skí... útí veður og vind :)
23.04.2009 05:27
Komið sumar
það kom að því að enn einn sumarið bankaði uppá hjá okkur.
Vil óska öllum lesendum síðunnar og öðrum gleðilegs sumars.
sumarið hjá mér byrjar allavega þannig að það verður bara vinna í það minnsta í 15 tíma í dag. þannig að síðan verður svo til ekkert hreyfð
19.04.2009 20:25
Maðurinn í Mastrinu.
Það var reyndar annað sem vakti athygli mína enn það var að mér fannst einhver hreyfing vera í mastrinu ofan við Mánaberg ÓF.
Þannig að ég tók aðra mynd og súmmaði aðeins.
Og jú það var einhver í mastrinu og eins og sést á fánanum þá var doldill vindur þarna.
enn ég varð að prufa einu sinni enn og sjá hvort ég næði Kallinum í Mastrinu betur og ég tók myndavélina og súmmaði meira og niðurstaðan varð þessi:
Jamm það er ekki um að villast og við erum að tala þarna um þónokkuð mikla hæð frá jörðu enn hvaða skip er þetta sem Kallinn í Mastrinu eru að príla í.
15.04.2009 09:32
Mok steinbítsveiði árið 1967.
Það þykir tíðindum sæta við þennan afla að þessir bátar voru allir með meiri afla heldur enn t.d aflahæsti netabáturinn bæði frá Snæfellsnesi og vestfjörðum var með þennan mánuð. Enn þessir voru ekki þeir einu sem fengu góðan afla. því nefna má að Páll Jónsson ÁR ( skipaskrárnúmer 720) sem var 37 brl eikarbátur komst í 19 tonn í einni sjóferð.
Byrjum á Ísafirði. Þar gerði út í mörg bátur sem hét Guðný ÍS 266. Guðný ÍS var 75 brl stálbátur og er t.d systurbátur Marons GK sem er gerður út frá Keflavík í dag.
Guðný ÍS.
Aflinn hjá Guðný ÍS var 307 tonn í 24 sjóferðum eða 12,7 tonn í róðri. Ef þessi tala er reiknuð upp miðað við 6 sjóferðir á viku þá væri vikuafli Guðnýar ÍS 77 tonn. sem er vægast sagt mjög gott. Steinbítur af þessum 307 tonnum var 295 tonn. Guðný ÍS var næst aflahæsti línubátur landsins í apríl 1967.
Sá næsti í röðinni gerði út ekki langt frá Ísafirði. Raunar til tekið á Suðureyri. Þar var bátur sem hét Sif ÍS 500. Þessi bátur var frekar stór eða 91 brl eikarbátur og er stærsti báturinn af þessum 3 sem eru hérna í yfirlitinu.
Sif ÍS
Aflinn hjá Sif ÍS var 296 tonn í 23 sjóferðum eða 12,8 tonn í sjóferð. Reiknað upp í 6 sjóferðir eða vikuafla þá var vikuafli Sif ÍS 77 tonn.
Þriðj báturinn gerði út frá Patreksfirði og þar var hann innan um mikil og stór skip eins og t.d Helga Guðmundsdóttir BA. Jón Þórðarsson BA, Jörund III RE og Náttfara ÞH enn allir þessir bátar réru frá Patreksfirði á vertíð 1967. Þessi þriðji bátur á alla athygli skilið og meira til því hann var minnsti báturinn af þessum þremur sem hérna eru skoðaðir og varð jafnframt aflahæsti línubáturinn á landinu þennan mánuð. Báturinn sem hérna um ræðið hét Brimnes RE 333. Þessi bátur var ekki nema 59 brl að stærð.
Brimnes RE 333.
Aflinn hjá Brimnesi RE var alls 312,4 tonn í einungis 20 sjóferðum eða 15,6 tonn í róðri að meðaltali. Reiknað upp í 6 sjóferðir eða vikuafla þá var vikuafli Brimnes RE, 94 tonn.
Algert mok og ótrúlega góður afli á ekki stærri báti.
Það má bæta við að þessi litli bátur var ekki bara aflahæsti línubátur landsins heldur var hann aflahæstur allra báta á svæðinu frá Akranesi og norður um og austur alveg að Fáskrúðsfirði. Á Akranesi var Sólfari AK með 423 tonn og á Fáskrúðsfirði var Hoffell SU með 337 tonn báðir á netum.
Að lokum´verður að geta þess að myndirnar eru teknar úr bókinni íslensk skip, enn ég ætlaði fyrst að skrifa þennan pistil án mynda enn það er hálftómlegt að skrifa um báta og hafa ekki myndir með sérstakalega þegar ræða á um afla.
12.04.2009 16:44
Löndunarhöfn!!!
Mér langar að vita hvað mönnum finnst um það?
er með könnun um það hérna til hliðar þar sem ég er að athuga viðbrögð manna við þessari nýjung.
og ef menn hafa eitthvað að setja útá það þá vil ég fá að vita það líka.
07.04.2009 17:44
Dragnót í Mars
Jæja nú er endanlega niðurstaða komin í hver er aflahæstur í mars. Gámur sem var að þvælast í kerfinu kom í ljós og gerði það að verkum að Sæberg HF er kominn 8 tonnum ofar enn Hásteinn ÁR.
| Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Róðrar | Mest |
| 1 | 1 | Sæberg HF | 448,4 | 29 | 29,2 |
| 2 | 5 | Hásteinn ÁR | 440,1 | 12 | 50,7 |
| 3 | 12 | Jón á Hofi ÁR | 379,5 | 7 | 81,2 |
| 4 | 3 | Steinunn SH | 360,74 | 22 | 58,5 |
| 5 | 2 | Rifsari SH | 341,29 | 20 | 34,7 |
| 6 | 4 | Margrét HF | 336,57 | 20 | 36,7 |
| 7 | 7 | Örn KE | 289,5 | 22 | 25,7 |
| 8 | 8 | Siggi Bjarna GK | 273,57 | 20 | 21,3 |
| 9 | 6 | Vestri BA | 269136 | 15 | 35,6 |
| 10 | 10 | Arnar ÁR | 266,7 | 7 | 72,5 |
| 11 | 9 | Matthías SH | 242,42 | 16 | 28,6 |
| 12 | 11 | Farsæll GK | 234,6 | 21 | 20,3 |
| 13 | 15 | Benni Sæm GK | 233783 | 18 | 18 |
| 14 | 13 | Valgerður BA | 227,78 | 18 | 23,1 |
| 15 | 22 | Fróði II ÁR | 222,51 | 5 | 56,1 |
| 16 | 14 | Guðmundur Jensson SH | 221,84 | 20 | 21,2 |
| 17 | 16 | Gunnar Bjarnarsson SH | 201,88 | 19 | 21,7 |
| 18 | 17 | Sigurfari GK | 199,85 | 17 | 24,8 |
| 19 | 18 | Arnþór GK | 192,72 | 20 | 18,8 |
| 20 | 20 | Njáll RE | 190,32 | 19 | 14,9 |
| 21 | 19 | Esjar SH | 180,77 | 19 | 21,3 |
| 22 | 21 | Gulltoppur GK | 178,39 | 23 | 20,5 |
| 23 | 26 | Sólborg RE | 176,44 | 11 | 23,1 |
| 24 | 23 | Sveinbjörn Jakopsson SH | 163,12 | 16 | 18,7 |
| 25 | 24 | Egill SH | 161,14 | 18 | 22,1 |
06.04.2009 17:01
Oddur á Nesi SI.
Myndir Gísli Reynisson
loksins náði ég betri myndum af Oddi á NEsi SI. enn eins og sést á þessum myndum þá er ótrúlega illa farinn. og má leiða að því líkum að báturinn sé ónýtur. Sjá má í bakgrunni að búið er að rífa þakið af húsi Sólplasts.
06.04.2009 11:09
Línubátar í mars
Listi númer 7.
ÞAð er vel við hæfi að myndin sem er búinn að fylgja listanum í allan mars mánuð hafi veirð að Sighvati GK því hann varð hæstur í mars. og alls 4 bátar komust yfir 400 tonnin sem er ansi góður árangur. Síðsta sala Sturlu var 153 tonn miðað við óslægt
| Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Róðrar | Mest |
| 1 | 3 | Sighvatur GK 57 | 467,431 | 6 | 90,6 |
| 2 | 4 | Jóhanna Gísladóttir ÍS | 455,635 | 5 | 109,5 |
| 3 | 1 | Kristín ÞH | 442,266 | 5 | 90,6 |
| 4 | 2 | Páll Jónsson GK 7 | 432,800 | 5 | 101,9 |
| 5 | 7 | Fjölnir SU | 359,200 | 5 | 74,1 |
| 6 | 5 | Núpur BA | 312,900 | 7 | 62,1 |
| 7 | 9 | Kópur BA | 304,500 | 7 | 54,4 |
| 8 | 6 | Tjaldur SH | 296,6 | 6 | 71,8 |
| 9 | 16 | Sturla GK | 294,500 | 4 | 152,8 |
| 10 | 12 | Valdimar GK | 280,500 | 4 | 111,2 |
| 11 | 10 | Þorlákur ÍS | 273,2 | 6 | 53,6 |
| 12 | 11 | Örvar SH | 273,06 | 7 | 62,1 |
| 13 | 8 | Tómas Þorvaldsson GK 10 | 259,88 | 4 | 91,3 |
| 14 | 13 | Rifsnes SH | 207,29 | 6 | 49,4 |
| 15 | 14 | Ágúst GK | 185,6 | 2 | 128,1 |
| 16 | 18 | Grundfirðingur SH | 185,3 | 4 | 48,2 |
| 17 | 15 | Kristrún II RE | 155,6 | 4 | 58,4 |
| 18 | 17 | Gullhólmi SH 201 | 134,3 | 4 | 40,5 |
| 19 | 19 | Arnarberg ÁR 150 | 121,6 | 4 | 42 |
| 20 | 20 | Kristinn SH 2468 | 103,1 | 12 | 15,3 |
| 21 | 21 | Hafdís GK 2400 | 50,7 | 11 | 6,5 |
| 22 | 22 | Hafrún HU balalína | 27,2 | 6 | 5,6 |
| 23 | 23 | Ásta GK 1231 | 21,01 | 5 | 5,8 |
05.04.2009 19:13
1000 tonna múrinn rofinn!
Mynd Jón Páll Ásgeirsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Eins og botnvörpulistinn af ofan ber með sér þá rauf Sólbakur EA ( áður Kaldbakur EA) 1000 tonna múrinn núna í mars. Er það nokkuð sjaldfjæft að togari komist yfir 1000 tonn, og síðast gerði Ásbjörn RE það fyrir nokkrum árum síðan.
Fyrsta löndun var 166 tonn eftir um viku túr og þar af var þorskur 162 tonn.
Löndun 2 var 197 tonn eftir 5 daga túr eða 39 tonn á dag. af þessum afla ´var þorskur 191 tonn.
Löndun 3 var 82 tonn eftir 3 daga á veiðum og af því var þorskur 79 tonn.
Löndun 4 var 186 tonn eftir 6 daga á veiðum eða 31 tonn á dag. Þorskur var þarna 175 tonn.
Löndun 5 var 207 tonn eftir 7 daga túr eða um 30 tonn á dag og af þessum afla var þorskur 173 tonn .
Löndun 6 var 171 tonn eftir 6 daga túr og af því var þorskur 103 tonn. af þessum afla voru sett 17 tonn í einn gám.
Um aflaverðmætið hef e´g ekki reiður á enn líklegast er það allavega yfir 150 milljónir króna.
05.04.2009 19:13
Botnvörpungar í Mars
Mynd Snorri Þ Guðmundsson stýrimaður á Drífu SH. færi ég honum bestu þakkir fyrir myndina
Listli númer 7.
Þessi listi má svo til skrifast sem lokalist. og þvílíkur endir Sólbakur EA gerði sér lítið fyrir og rauf 1000 tonna múrinn. Nánar verður fjallað um Sólbak EA í frétt h´érna að neðan.
Steinunn SF sem er trollbátur nær í 6 sæti og komst yfir 500 tonna afla. var STeinunn SF með 132 tonn eftir 2 róðra og báðir róðarnir voru um 2 dagar á lengd.
Þinganes SF var með 105 tonn í 3 sjóferðum og landaði hann þessum afla í Þorlákshöfn eins og STeinunn SF. Óskar RE var svo með 51 tonn í einni sjóferð.
| Sæti | Nafn | Afli | landanir | mest | Gámar |
| 1 | Sólbakur EA | 1009,32 | 6 | 207,4 | 1 |
| 2 | Ottó N Þorláksson RE | 706,92 | 4 | 201,4 | |
| 3 | Ásbjörn RE | 691,9 | 5 | 166,6 | |
| 4 | Björgúlfur EA | 666,65 | 7 | 141,4 | 1 |
| 5 | Sturlaugur H Böðvarsson AK | 655,71 | 5 | 146,8 | |
| 6 | Steinunn SF | 503,86 | 8 | 71,9 | 2 |
| 7 | Klakkur SH | 471,93 | 4 | 126,6 | |
| 8 | Frár VE | 458,68 | 8 | 69,7 | 17 |
| 9 | Drangavík VE | 456,64 | 8 | 60,8 | 17 |
| 10 | Jón Vídalín VE | 446,87 | 6 | 98,6 | 12 |
| 11 | Mars RE | 429,45 | 5 | 116,6 | 5 |
| 12 | Gullver NS | 428,89 | 5 | 107,6 | |
| 13 | Þorsteinn ÞH | 416,91 | 5 | 114,1 | 13 |
| 14 | Suðurey VE | 407,13 | 6 | 86,9 | 6 |
| 15 | Berglín GK | 400,95 | 5 | 93,7 | 6 |
| 16 | Múlaberg SI | 385,06 | 4 | 107,4 | 2 |
| 17 | Stefnir ÍS | 363,69 | 6 | 146,9 | 3 |
| 18 | Sóley Sigurjóns GK | 361,49 | 4 | 103,1 | 6 |
| 19 | Páll Pálsson ÍS | 358,45 | 5 | 122,7 | 3 |
| 20 | Vestmannaey VE | 358,24 | 5 | 86,17 | 12 |
| 21 | Ljósafell SU | 345,05 | 6 | 101,8 | |
| 22 | Bergey VE | 343,1 | 5 | 75,7 | 13 |
| 23 | Smáey VE | 341,89 | 6 | 69,8 | 12 |
| 24 | Helgi SH | 324,27 | 6 | 62,2 | 1 |
| 25 | Vörður EA | 311,39 | 5 | 79,2 | 15 |
| 26 | Þorvarður Lárusson SH | 300,17 | 6 | 59,7 | 8 |
| 27 | Þinganes SF | 291,01 | 9 | 50,3 | |
| 28 | Dala Rafn VE | 267,13 | 5 | 84,1 | 14 |
| 29 | Oddgeir EA | 263,19 | 5 | 65,8 | 12 |
| 30 | Farsæll SH | 254,62 | 6 | 44,4 | 1 |
| 31 | Bergur VE | 245,81 | 4 | 69,7 | 15 |
| 32 | Gullberg VE | 230,05 | 4 | 73,2 | 10 |
| 33 | Bjartur NK | 224,18 | 4 | 92,1 | |
| 34 | Hringur SH | 223,62 | 3 | 78,8 | |
| 35 | Sóley SH | 209,75 | 5 | 46,3 | 12 |
| 36 | Óskar RE | 196,17 | 5 | 50,8 |
04.04.2009 20:28
Von GK með fullfermi.
Fyrir tæpu ári síðan þá skrifaði ég frétt með fyrirsögninni "Fall er Fararheill". og fjallaði sú frétt um Von GK. Lesa má þann pistil í tenglinum hérna að neðan.
http://www.aflafrettir.com/blog/record/251162/
Ég endaði þann pistil á þessum orðum "Fall er Fararheill" og vísaði þá í Hópsns GK sem lenti í svipuðu atviki og Von GK lenti í í fyrra.
Strákarnir á Von GK hafa fiskað mjög vel núna það sem af er Apríl og duttu heldur betur í lukkupottinn núna í dag þegar þeir komu í land með 12,4 tonn eins og þessar myndir bera með sér.
Myndir Gísli Reynisson
Óhætt er að segja að málshátturinn " Fall er Fararheill " eigi svo sannarlega vel við núna.
Vil ég svo þakka Trausta skipstjóra á Von GK fyrir að taka smá rúnt innan hafnar fyrir myndavélina mína
03.04.2009 20:36
Vestmannaeyjar í Mars árið 1967
Mars mánuður liðin árið 2009 og mokafli í svo til öll veiðarfæri nema erfið tíð fyrir smábátasjómenn víða um land.
Hvernig var í mars árið 1967. Ég var að klára að skrifa niður tölur frá Vestmannaeyjum og þær eru nokkuð forvitnilegar.
Heildarfjöldi báta sem landaði í Vestmannaeyjum í mars árið 1967 voru alls 74 talsins. í mars árið 2009 til samanburðar þá voru þeir í kringum 20 talsins og eru þá svo til öll stóru skipin talin með enn ekki smábátarnir. Einunigs 4 bátar stunduðu netaveiðar núna í mars ( Gandí VE, Brynjólfur VE, Glófaxi VE og Erlingur SF).
Merkilegt með með mars mánuð fyrir 42 árum síðan hversu margir bátanna stunduðu trollveiðar.
skulu nefndir nokkrir.
Freyja VE sem var 51 brl eikarbátur fékk 185 tonn í 10 sjóferðum og þar af 120 tonn í 6 sjóferðum á tímabilinu 15 mars til 31 mars.
Guðjón Sigurðsson VE 120 sem var 89 brl eikarbátur var með 255 tonn í 12 ferðum og þar af 140 tonn í einungis 5 sjóferðum seinni hluta mars.
Sindri VE 203 sem var 61 brl eikarbátur var með 208 tonn í 16 sjóferðum og þar af 130 tonn í 9 sjóferðum seinni hluta mars.
Hrauney VE 80 sem var 105 brl eikarbátur fékk 264 tonn í 16 sjóferðum og þar af 191 tonn í 10 sjóferðum seinni hluta mars. Hjá öllum þessum ofantöldu bátum þá var ufsi uppistaða afla í mars. og t.d hjá Hrauney VE þá af 191 tonnum þá var 113 tonn ufsi.
Eins og sést þá þessu þá eru þetta ekki stórir bátar og svo til langt því frá hægt að bera´þá saman við þá trollbáta sem núna róa frá Vestmannaeyjum t.d Vestmannaey VE .
og heildaraflinn í mars árið 1967 í eyjum var alls 7700 tonn af bolfiski.
- 1
