> Aflafréttir og fleira - Blogg

 

Aflafréttir og fleira

Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir

Auglýsingapláss/styrkarlínur

auglýsingapláss
til
sölu,
og eða styrkarlínur.






 

Styrkja Síðuna

Styrktarreikningur síðunnar

kennitala.  2008753709

bankabók.0142-05-001072

Hvaða humarbátur verður hæstur árið 2010

 Ársæll ÁR

 Jón á Hofi ÁR

 Fróði II ÁR

 Kristbjörg VE

 Skinney SF

 Brynjólfur VE

 Þórir SF


Sýna niðurstöður

Hvað skoðar þú helst

 Smábátalista yfir 10 BT

 Smábátalista undir 10 BT

 NEtalista yfir 50 BT

 NEtalista undir 50 BT

 Dragnótalista

 Botnvörpunga

 Skoða alla lista jafnt

 Skoða helst Gömul tíð

 Línubátalista

 vill gerast styrkaraðili


Sýna niðurstöður

Sjá KVÓTASPJALL

 Já

 Nei


Sýna niðurstöður

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Kirkjuvegur 15

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-05-001072
Flettingar í dag: 176
Gestir í dag: 69
Flettingar í gær: 2875
Gestir í gær: 412
Samtals flettingar: 1234912
Samtals gestir: 312039
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 03:17:39

Blogg

31.3.2009

Andri BA


Mynd Þóroddur Sævar Guðlaugsson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Veiðar á Rækju í Arnarfirði voru leyfðar fyrir ári síðan.  þá réru Brynjar BA og Höfrungur BA á rækju og var veitt í um 3 mánuði á síðasta vetri.  Fyrir vertíðina 2008/2009 þá var gefin út 500 tonna kvóti og skptist hann á nokkra báta.  Brynjar BA veiðir kvótann af sjálfum sér, Ásdísi GK, Egil ÍS og Ask GK.  Höfrungur BA veiðir sinn kvóta og nýjsta viðbótin er Andri BA 101.  Andri BA er búinn að fara í tvær veiðiferðir og búinn að landa samtals 8,3 tonnum í tveimur ferðum.

Andri BA hét áður Kafari KÓ og var eins og nafnið bendir til notaður sem vinnusvæði fyrir hina ýmsu köfunarstarfsemi.  Þar á undan hét hann Hugborg SH og landaði´síðast í mars árið 2004 samtals 16,1 tonni, og var þessi síðasti róður bátsins langstærsti í mars það ár, enn báturinn fékk 47 tonn í 11 sjóferðum.

Nafnið Andri BA er nokkuð þekkt í bátasögu Barðastrandasýslu.  Andri BA 255 var gerður út frá árinu 1938 til ársins 1959 og var sá bátur 6 brl.  Andri BA 100 sem var 70 brl eikarbátur var ´gerður út frá Patreksfirði frá árinu 1961 og til ársins 1969.  þar á eftir kom svo Andri BA 100 sem hét áður Viðey RE og var 231 brl stálbátur.  Sá bátur var gerður út í um 3 ár fyrst undir nafninu Árni Kristjánsson BA 100 og svo undir nafninu Andri BA.

Skrifað 31.3.2009 kl. 9:08 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.3.2009

Steinbítsmok.



Myndir Ingólfur Þorleifsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir,

Þessir tveir bátar þótt þeir séu af sitthvorri stærðinni og þar af í sitthvorum flokknum hafa verið að moka upp steinbítnum fyrir vestann.  Ásdís ÍS hefur í nokkur skitpi komist í um og yfir 8 tonn í róðri og á myndinni sem er af Ásdísi ÍS þá er báturinn að koma til hafnar með tæp 8 tonn.
Fleiri myndir má sjá á síðunni hjá Ingólfi http://golli.123.is/.

Skrifað 30.3.2009 kl. 9:34 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

30.3.2009

Dóri GK með fullfermi.



Myndir Robbi.

Dóri GK kom vel hlaðin  til Grindavíkur núna í síðustu viku ( 25 marsI) því það vigtaði úr bátnum 14 tonn og þar af var þorskur 12,1 tonn.  Þessi góði afli ætti að lyfta bátnum ansi vel upp á listanum hérna á síðunni.

Skrifað 30.3.2009 kl. 9:27 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.3.2009

Keilir II AK með 32 tonn á einum degi!!!


Mynd Pétur Þór Lárusson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Strákarnir á bátnum Keili II AK duttu heldur betur í góða veiði núna 24 síðastliðinn þegar samtals afli bátsins var 32 tonn eftir daginn.  Pétur Þór háseti á Keili II AK sendi mér ansi góða lýsingu á því hvernig dagurinn varð og leit dagurinn svona út.

þá vil ég segja þér frá því
að samanlagður afli Keilis AK 4 úr róðinum 24.mars var 32.295 kíló.  Já rúm 32
tonn, við lönduðum reyndr þrisvar því stutt var í land.  Bara svona til
hægðarauka komum í land fyrst um hádegi með rúm 14 tonn úr 3 trossum aftur um
níuleitið um kvöldið með rúm 11 tonn úr 2 trossum og svo kl 1.30 um nóttina með
um 7 tonn úr síðustu trossuni samtals viktaði þetta 32tonn 295 kíló úr þessum
róðri. Bara þokkalegt það hjá þremur köllum ekki satt.
þess má geta að þessi afli var í 70 net.

Flott lýsing og svo endar hann á skemmtilegri línu.
(ég held að frysti togari hafi vinnslugetu upp á um 30 tonn á sólahring og þar
eru 24-30 kallar um borð hahahaha...)
 

Skrifað 30.3.2009 kl. 9:19 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.3.2009

Áfram skal haldið með söfnun

Jæja ég geri nú fleira heldur enn að vera heima með börnin mín tvö. keyra rútur fyrir hópbíla. vinna á þvottastöð Hagvagna og halda úti síðunni.  Því söfnun aflatalna er eitt að stærstu verkefnum mínum
og nú er næsta verkefni sem ég mun fara í líklegast í þessari viku að skrifa allt niður um afla báta og skipa fyrir árin 1967 og 1968.

Þesssi ár eru nokkuð merkilegt eða í það minnsta fyrir síldarbátanna því 1967 þá hrundi síldveiðin niður í brotabrot af því sem það var 1966 enn þá veiddumst rétt tæp 800 þúsund tonn af síld.

'Þó nokkrir bátar voru smíðaður á þessum árum (1967 og 1968). og af þeim sem eru til í dag má nefna eftirfarandi báta.
Sveinbjörn Jakopsson SH
Kap II VE
Sæljós GK
Kópur BA
Oddgeir EA
Páll Jónsson GK
Rifsnes SH
Saxhamar SH
Arnar ÁR
Geir KE
Börkur NK
Súlan EA
Sturla GK
 og síðast enn ekki síst Snæfell EA, sem hét lengi vel Akureyrin EA. enn Snæfell EA var keypt inn notað og fékk  þá nafnið Sléttbakur EA.  Er því Snæfell EA orðið 41 árs gamalt skip.

Og svo að lokum voru einhverji lesendur síðunnar á sjó á þessum árum og þá á hvaða skipum. 
Ég mun koma með glefsur af þessum árum´hérna á síðuna

Skrifað 29.3.2009 kl. 20:52 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.3.2009

Hraunsvík GK í ólgusjó.




Ljósmyndari Eyjólfur Vilbergsson.

Fékk sendar þessar myndir af Hraunsvík GK á landleið til Grindavíkur.  Hraunsvík GK hefur verð að fiska mjög vel í mars og var um tima aflahæsti báturinn í sínum flokki í núna í mars.

Set hinn hina myndna líka enn hún gleymdist þegar ég setti inn efri myndina.

Skrifað 29.3.2009 kl. 5:20 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.3.2009

Oddur á Nesi SI endanlega út leik??




Myndir Reynir Sveinsson

Mikill bruni var í plastsmiðjunni Sólplasti í Sandgerði.  Brann þar Oddur á Nesi sem var þarna í viðgerð eftir bruna sem varð í honum í febrúar.    þá eru skemmdirnar gríðarlegar miklar og spurning hvort að báturinn sé orðin ónýtur.  Skemmdir á húsnæði eru sömuleiðis mjög miklar enn vindátt bjargaði því að húsalengjan brann ekki heldur var eldurin einungis bundinn við húsnæði Sólplasts. 

Skrifað 26.3.2009 kl. 12:08 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.3.2009

Siglunes SI




Mynd Gísli Reynisson

Siglunes SI er orðið blátt.  ansi merkilegt hvað margir bátar hafa komið bláir eftir yfirhalningu í Skipasmíðastöð Njarðvíkur.  Skemmst er að minnast á Geir KE sem fór úr gráum lit yfir í Blátt.  Gamla Þórey KE sem var dökkblá er orðin fagurblá undir nafninu Hellnavík AK. 
Annars lítur Siglunes SI mjög vel út svona.  og til gamans má geta þess að Skálafell ÁR var á leið upp í slippinn þegar þessi mynd var tekinn.

Efri myndin er svo að Siglunesi SH á leið til Akranes með Sólborgu RE í drætti, enn eins og sést var Siglunes SI áður svo til appelsínugulur á litinn

Skrifað 24.3.2009 kl. 21:23 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.3.2009

Mokveiði Sæþórs EA


Mynd Freyr Jónsson.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Strákarnir á Sæþóri EA eru mjög ánægðir á þessari mynd sem Freyr sendi mér .  Og mega þeir vel við því.  þarna er báturinn á landleið með 24 tonn sem þeir fengu í einni sjóferðinni og ekki nema 70 net. 
Sæþór EA er búinn að fiska ansi vel núna undanfarið og á nýjasta netalistanum þá er báturinn kominn í annað sætið og núna er bara Bárður SH eftir.
Nánar um aflann hjá Sæþóri er þannig að í síðustu 5 sjóferðum sínum þá er báturinn búin að fá 76,6 tonn og þar af komist tvisvar yfir 20 tonn í einni sjóferð. 

Hann er reyndar ekki sá eini sem hefur fiskað vel.  og skal ég nefna 3 báta til viðbótar Sæþóri EA.  enn þeir eru Sæborg ÞH, Birta SH og Bárður SH og alla skal miða við 5 sjóferðir.

Bárður SH er búinn að fá 58,5 tonn í  5 ferðum.
Birta SH er með 59,8 tonn
Sæborg ÞH er með 59,4 tonn

Verður forvitnilegt að sjá hvort að Sæþóri EA takist að minnka bilið í Bárð SH því það er ennþá um vika eftir af mars.

Skrifað 24.3.2009 kl. 16:22 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.3.2009

Síldarbátar í höfn á Höfn


Mynd Hallur Sigurðsson færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Hilmar hefur verið ansi duglegur að senda mér myndur af undanförnu og þessi er nýjasta myndin sem hann sendi mér.  mér sýnist bátarnir vera Freyr SF, Sigurður Ólafsson SF og Skógey SF.
Sigurður Ólafsson SF er búinn með kvótann og er því komin í smá stopp núna á vertíðinni 2009.

Skrifað 21.3.2009 kl. 19:44 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.3.2009

Valdimar GK í siglingu

Mynd Gísli Reynisson

 

Þriðja skip Þorbjarnar seldi daganna 16 og 17 mars. var alls aflinn 95,3 tonn og fékkst 22,8 milljónir fyrir aflann eða 239 krónur í meðalverð.

Þorskur var uppistaða afla eða 73 tonn og fór hann á 247 krónur í meðalverð.

Ýsan sem var 12 tonn fór á 232 krónur

Lúðan var 113 kíló og fór á 1007 krónur kílóið.

Samanborið við Sturlu GK og Ágúst GK þá var meðalverð Valdimar GK hærra enn Ágústs GK (226 krónur) enn nokkru lægra enn Sturlu GK (248 krónur). 

Sigling áður hjá Valdimar GK.  því er fljótsvarað.  Þetta er fyrsta löndun bátsins erlendis frá því hann kom til landsins.  Jafnframt þessu er hann yngstur bátanna sem sigla út núna og að auki sá eini sem sérstaklega er byggður sem línuskip.  Upprunalega var báturinn keyptur af Valdimar HF í Vogum sem síðar rann inní Þorbjörn HF í Grindavík.

næstur og síðastur í röðinni er Tómas Þorvaldsson GK.

 

Skrifað 17.3.2009 kl. 19:14 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.3.2009

Smá breyting á könnun um netabátanna

Eins og kanski flestir hafa tekið eftir þá hefur Hvanney SF mokfiskað það sem af er mars og eru 100% líkur á að báturinn verði aflahæstur í mars, og hef ég því breytt könnunnni um netabátanna og nú er spurt.

Hvaða netabátur verður ANNAR í mars?

Skrifað 17.3.2009 kl. 9:26 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.3.2009

Sigurður Ólafsson SF á Síld 1987


Ljósmyndari ókunnur.

Hilmar Bragason sem hefur verið á Sigurður Ólafssyni SFí yfir 20 ár sendi mér þessa mynd sem er tekin árið 1987 á síldveiðunum.  áætlaður afli þarna á myndinni er um 150 tonn.
það er liðin tíð að þessi gömlu vertíðarbátar stundi síldveiðar.

Skrifað 17.3.2009 kl. 9:16 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.3.2009

Myndir af Rifsara SH


Mynd Stefán I. Guðmundsson 1.vélstjóri á Rifsara SH.

Stefán sendi síðunni nokkuð margar myndir af einni sjóferðinni hjá Rifsara og er ég búinn að setja þær myndir í myndaalbúmið enn þær eru alls 11 talsins og stofna sérstakt myndaalbúm utan um þessar myndir.  .  Hægt er að skoða hinar myndirnar hérna.
http://www.aflafrettir.com/album/default.aspx?aid=139537.

Færi ég Stefáni bestu þakkir fyrir flottar myndir, og hvet menn til að kíkja á þær.


Skrifað 16.3.2009 kl. 18:13 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.3.2009

Drekkhlaðin Katrín KE


Mynd Ívar Erlendsson.

Á myndinni sem ég setti inn af Reginn HF þá kvatti ég til þess að sjómenn eða aðrir sendu mér myndir ef þeir ættu af hlöðnum báti. 

Hérna kemur ein all svakalega svo ekki sé meira sagt.  Báturinn þarna er Katrín KE af tegundinni Sómi 800 Báturinn er 5,8 BT að stærð og þarna var báturinn með 5,1 tonn á 20 bala sem gerir 255 kíló á bala. Var þessum afla landað í Nóvember árið 2006 í Sandgerði.  Var báturinn með í þeim mánuði 20 tonn í heildarafla..Útgerðarmaðurinn Gísli Óla var með bátinn í þessum risaróðri

Orðið Kafbátur á svo sannarlega við þessa mynd.

Færi ég Ívari kærar þakkrir fyrir þessa flottu mynd

Skrifað 14.3.2009 kl. 20:41 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.3.2009

Drekkhlaðinn Reginn HF á vertíð!!

Skoða nánar

12.3.2009

Sigurður Ólafsson SF

Skoða nánar

12.3.2009

Mokveiði Rifsara SH

Skoða nánar

12.3.2009

Helling af könnunum

Skoða nánar

10.3.2009

Ágúst GK í Siglingu

Skoða nánar

7.3.2009

Hrönn ÍS sekkur í Ísafjarðarhöfn 2 hluti

Skoða nánar

7.3.2009

Hrönn ÍS sekkur í Ísafjarðarhöfn

Skoða nánar

6.3.2009

Ein gömul frá Sandgerði

Skoða nánar

5.3.2009

Smábátar yfir 10 BT í febrúar

Skoða nánar

5.3.2009

netabátar undir 50 BT í febrúar

Skoða nánar

4.3.2009

Dragnótabátar í Febrúar

Skoða nánar

4.3.2009

Smábátar undir 10 BT í febrúar

Skoða nánar

4.3.2009

línubátar í febrúar

Skoða nánar

3.3.2009

Hafið mynd nr.3

Skoða nánar

3.3.2009

Sturla GK í siglingu

Skoða nánar

3.3.2009

Netabátar yfir 50 BT í Febrúar

Skoða nánar

2.3.2009

Daðey GK með 10 tonn

Skoða nánar

2.3.2009

Sunna Líf KE

Skoða nánar

1.3.2009

Hafið mynd nr.2

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Tenglar

/body>