Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 825
Gestir í dag: 199
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2371469
Samtals gestir: 530462
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 08:44:35

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

Færslur: 2009 Febrúar

28.02.2009 19:39

Hafið Mynd nr. 1

Ísland er eyja um það verður ekki deilt.  Allt frá ómunatíð þá hafa íslendingar lifað á því sem umlykur landið, hafið. 
Þessi síða byggir svo til á þessu þema og útaf því þá ætla ég aðeins að breyta útaf öllum listunum og bátamyndunum , og stofna flokk hérna sem heitir Hafið myndir.
Þar mun ég birta myndir sem tengjast þessu þema, og skiptir þá engu hvort bátar eða sjómenn eru á myndunum eða ekki.

Fyrsta myndin sem ég set inn  í þessum flokki er nú reyndar með skipi á.  enn hún er tekin með miklu súmmi af Suðurgarðinu í Sandgerðishöfn eitt kvöldið.
Hvaða togari þarna er veit ég ekki enn hann er allavega Grandatogari.

Gísli reynisson

25.02.2009 09:21

Botnvörpungar í Febrúar

listi númer 3.

Ottó N Þorláksson RE er orðin hæstur eftir 140 tonna löndun.  Sólbakur EA var með 148 tonní einni löndun. 
Þorsteinn ÞH landaði á Þórshöfn 112 tonnum.
Helgi SH kom með fullfermi eð'a 62 tonn og stefnir í að verða aflahæsti trollbáturinn annan mánuðinn í röð, er Helgi SH núnaí 9 sætinu yfir heildina, 
Hringur SH kom með 87 tonn að landi úr einni sjóferð.
Brynjólfur VE er hættur á trolli og kominn á netin.
Sæfari ÁR sem stundaði sæbjúguveiðar frá Sandgerði á haustinu 2008 er kominn á troll og komst uppí tæp 15 tonn í einni sjóferð.
 
Sæti Nafn Afli landanir mest Gámar dagur fjöldi gáma
1 Ottó N Þorláksson RE 370,34 3 140,1
24
2 Björgúlfur EA 361,41 4 132,1 2 30 8
3 Sólbakur EA 348,99 3 175,5 4 30
4 Björgvin EA 341,24 2 210,5 1 29 6
5 Klakkur SH 340,92 3 134,7
22
6 Þorsteinn ÞH 290,33 3 112,1 3 26
7 Ljósafell SU 287,97 3 117,1


8 Bjartur NK 276,96 4 78,1
30 23
9 Helgi SH 272,93 5 62,2 2 29 4
10 Jón Vídalín VE 266,18 3 93,1 3 26
11 Páll Pálsson ÍS 265,33 3 101,1 1 30
12 Gullver NS 263,54 3 119,9
28
13 Múlaberg SI 259,87 3 95,8 3

14 Sturlaugur H Böðvarsson AK 258,62 2 134,9
30 11
15 Steinunn SF 254,83 4 82,6 2 27
16 Hringur SH 248,38 4 87,5 1 29 14
17 Þorvarður Lárusson SH 240,08 5 55,3 7 29 7
18 Bergey VE 239,16 3 90,1 10 30 9
19 Stefnir ÍS 225,75 3 96,1 1 29 3
20 Ásbjörn RE 218,56 2 116,4
31 18
21 Smáey VE 197,85 3 81,6 9 30 8
22 Vestmannaey VE 193,05 3 67,9 10 30 7
23 Frár VE 181,93 4 56,7 8 29
24 Gullberg VE 181,2 4 62,9 2 29 1
25 Suðurey VE 179,61 3 78,6 3 30
26 Þinganes SF 169,25 4 44,4
30 9
27 Gunnbjörn ÍS 167,82 3 60,8 6 30
28 Bergur VE 164,63 3 59,8 10 31 16
29 Sóley Sigurjóns GK 149,73 3 62,1 4 29 5
30 Skafti HF 149,2 3 60,1 6 27 7
31 Farsæll SH 146,9 3 59,7 1 29
32 Drangavík VE 144 3 67,7 3 29
33 Óskar RE 134,66 5 38,6
30 6
34 Vörður EA 129,52 3 49,7 7 29 2
35 Berglín GK 128,12 3 42,1 5 30 3

24.02.2009 13:14

Netabátarnir

Síðasti listi á netabátnum sem ég setti inn núna áðan, kemur heldur betur á óvart.  Það er ekki óvanalegt að Erling KE og Friðrik Sigurðsson ÁR skipi sér í efstur sætin, enn núna ber svo til að Ársæll ÁR skýtur þeim báðum ref fyrir rass og er orðin efstur bátanna og það sem meira er merkilegt við góða veiði hjá Ársæli ÁR er það að hann á núna orðin stærsta róðurinn í febrúrar eða tæp 56 tonn í einni sjóferð.
Aflalega á þessum nýja lista þá var Ársæll ÁR með 111 tonn í 3 sjóferðum eða 37 tonn í ferð.  óhægt að segja að þetta sé mokafli.
Friðrik Sigurðsson ÁR var með 52 tonn í einni ferð,
Erling KE var með 51 tonn í einni sjóferð.
SF bátarnir eru lítið búnir að róa síðan 19, og Sigurður Ólafsson SF er ekkert búinn að landa síðan þann 17.
Og svo vekur mjög mikla athygli góð byrjun hjá Hans Jakopi GK, enn hann landaði 16.4 tonnum í sinni fyrstu löndun í febrúar.  Maron GK kom með 11 tonn í einni sjóferð. 
Febrúar ætlar að enda ansi vel og aðalnetamánurðinn framunda, Mars.!

24.02.2009 08:58

Varapóstfangið

Útaf þessu leiðindar ástandi með tölvunvesenið þá er gis@rafpostur.is ónothæft.  ég er með annað póstfang gunnver@hotmail.com
hægt er að senda í það ábendingar og fleira alveg eins og þið gerðuð með hitt póstfangið.
Allavega núna þá er ég að reikna nokkra lista og koma þeim aftur af stað þeir ættu að koma inn hérna í dag þó kanski ekki allir enn allavega einhverjir

21.02.2009 19:29

síðan í lamasessi

það er ansi bágborið ástandið núna á síðunni.  þær tvær tölvur sem ég hef notað fyrir síðuna eru báðar komnar í einhver vandræði.  Makkinn sem ég nota hrundi og PC vélin mín er á einhverju  mótþróaskeiði.  ÉG veit ekki hversu lengi þetta ástand varir enn vona að það verði ekki langur tími og ræðst það aðalega af því hversu dýrt þetta verður að fá vélarnar þó ekki væri nema aðra þeirra og þá helst PC véina í gang aftur.
Verst með makkan að líklegast hafa tapast gögn þar sem ég var búinn að skrifa inn frá árunum 1981 til 1984. 
tölvan sem þessi pistill er skrifaður á er lánstölva og er ekki með Excel í sér, enn það er það forrit sem ég nota við útreiking allra lista. 

17.02.2009 13:54

Frystitogarar í október árið 2008

Förum bara strax í október á síðasta ári.
Brimnes RE var með 1400 tonn í tveimur sjóferðum,
Gnúpur GK var sömuleiðis með yfir 1000 tonn og af því var hann með 360 tonn af ufsa og 117 tonnaf Gullaxi.
Þór HF var með mestan afla í einni ferð og var hann með 330 tonn af djúpkarfa og 112 tonn af gullaxi
Höfrungur III AK var með 443 tonn af karfa.
Hrafn Sveinbjarnarsson GK var með 390 tonn af ufsa
Málmey SK var með 154 tonnaf gullaxi,  flest öll skipin voru með gullax enn þó enginn jafn mikið og Hrafn GK sem var með 310 tonn af Gullaxi. 
Athyglisvert er að sjá að Örvar HU var með einungis 98 kíló af Þorski af 450 tonna afla sínum, Örvar HU var með 97 tonn af gullaxi og 297 tonn af djúpkarfa
Sæti Nafn Afli Landanir Áætlað aflaverðmæti
1 Brimnes RE  1400,725 2 165,2
2 Gnúpur GK  1106,375 2 151,5
3 Þór HF  869,759 1 126,2
4 Höfrungur III AK  847,325 1 128,9
5 Sigurbjörg ÓF  840,633 2 162,9
6 Arnar HU  808,522 1 109,5
7 Hrafn Sveinbjarnarsson GK 767,686 2 118,5
8 Þerney RE  694,633 1 109,5
9 Vigri RE  679,329 1 121,7
10 Baldvin Njálsson GK  634,268 1 100,6
11 Málmey SK  621,978 1 76,1
12 Mánaberg ÓF 561,332 1 116,8
13 Helga María AK  556,971 1 82,5
14 Júlíus Geirmundsson ÍS  512,194 1 103,3
15 Örfirsey RE  495,01 1 87,1
16 Oddeyrin EA  487,342 1 53,6
17 Hrafn GK  479,745 1 60,3
18 Örvar HU  449,918 1 54,1
19 Freri RE  438,074 1 65,1
20 Barði NK 364,359 1 87,1
21 Frosti ÞH  243,854 1 62,1
22 Kleifaberg ÓF  212,226 1 55,8

17.02.2009 13:22

Frystitogarar í September árið 2008

Það er mikið búið að spyrja mig hvort ég sé hættur að koma með lista yfir Frystitogaranna. 
Það hefur dregist ansi mikið á langinn að búa þá til.  Enda er ansi mikið verk að gera þá. 
Allavega í september árið 2008 þá var kanski enginn mokafli hjá skipunum .
Einungis 4 skip lönduðu yfir 600 tonna afla og varð Helga María AK aflahæst.
áætlað aflaverðmæti miðast sem fyrr við tölur sem ég fékk hjá einum skipstjóranum.  Áhrif gengisfellingar er ekki í þessum tölum. 
miðað við þessar áætluðu tölur þá voru Mánaberg ÓF, Kleifaberg ÓF og Höfrungur III AK allir með svipað aflaverðmæti í kringum 130 milljónir.
Sæti Nafn Afli Landanir Áætlað aflaverðmæti
1 Helga María AK  636,903 1 112,1
2 Örfirsey RE  618,85 1 113,3
3 Höfrungur III AK  616,116 1 129,2
4 Brimnes RE  601,853 1 71,1
5 Kleifaberg ÓF  595,378 1 129,7
6 Venus HF  589,209 1 101,7
7 Arnar HU  587,389 1 96,1
8 Mánaberg ÓF  560,305 1 128,7
9 Oddeyrin EA  539,52 1 59,4
10 Þerney RE 529,155 1 124,1
11 Málmey SK  525,269 1 88,6
12 Guðmundur í Nesi RE 493,232 1 111,9
13 Júlíus Geirmundsson ÍS  457,736 1 100,5
14 Björgvin EA  395,014 1 100,2
15 Frosti ÞH  326,288 1 85,8
16 Arnar HU  257,592 1 53,2
17 Hrafn GK  257,135 1 47,8
18 Júlíus Geirmundsson ÍS  220,217 1 50,3
19 Örvar HU  196,81 1 29,1
20 Baldvin Njálsson GK 185,073 1 39,2
21 Gnúpur GK 173,674 1 31,8
22 Freri RE  135,0421 1 28,5
23 Sigurbjörg ÓF  103,403 1 28,4
24
25

13.02.2009 13:10

Blómfríður SH og Benjamín Guðmundsson SH



Myndir Alfons Finnson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Það er búið að vera síðan í haust þó nokkur aukning í því að fara að gera út báta sem hafa legið við bryggju í kanski þónokkurn tíma.  t.d Sæljós GK, og Harpa HU sem var keypt frá Hornafirði.
Tveir dragnótabátar sem hafa legið í Ólafsvík eru byrjaðir á dragnótaveiðum og meira segja annar þeirra kominn inná dragnótalistann fyrir febrúar.  Þarna er ég að tala um Benjamín Guðmundsson SH og Blómfríði SH.  Blómfríður SH er reyndar mun þekktar undir nafninu Gunnar Bjarnarsson SH.  Sá bátur vék fyrir nýjun Gunnari Bjarnarssyni SH. 
Benjamín Guðmundsson SH landaði síðast þann 26 apríl árið 2007.  Blómfríður SH landaði síðast 14. febrúar árið 2006. 
Smá svona aflatölur í lokin.  á vertíðinni árið 2001 í janúar mánuði það ár þá fékk Gunnar Bjarnarsson SH 92,1 tonn í 23 ferðum, mest 12,5 tonn í róðri.  Benjamín Guðmundsson SH fékk 24,2 tonn í 11 ferðum mest 7,1 tonn.  Í febrúar sama ár þá fékk Benjamín Guðmundsson SH 28,1 tonn í 14 ferðum, mest 7,5 tonn og Gunnar Bjarnarsson SH 107,3 tonn í 19 ferðum mest 20,5 tonn.

13.02.2009 12:05

Kvótaverð og verð á mörkuðum.

Tölur fyrir 12.febrúar.  leigurverð á þorski féll niður um 15 krónur og meðalverð á þorskinu fór upp um 3 krónur.  miðað við þessar tölur þá er liðlega 80 króna mismunur á milli leigurverð og markaðsverð.  það verð er það sem margir leiguliðar telja raunhæft að gera útá. 
verð á óslægðu ýsu fellur niður um 20 krónur milli daga.  

Fisktegund Slægt/óslægt Magn kg Hæsta verð meðalverð 11/2 Meðalverð 12/2 leiguverð 11/2 leiguverð 12/2
Þorskur Slægt 76936 278 239,37 242,27 179,27 164,01
Þorskur Óslægt 29795 222 205,84 200,47 179,27 164,01
Ýsa Slægt 1878 253 149,43 146,87 40,77 40,84
Ýsa Óslægt 69315 252 182,77 162,79 40,77 40,84
Ufsi Slægt 45739 122 114,04 117,79 13,82 8
Ufsi Óslægt 7434 107 95,51 98,92 13,82 8
Karfi 21821 199 112,3 100,04 20 35,37
Keila Slægt 7557 105 96,53 81,52 24,71 25
Keila Óslægt 2174 85 85,46 78,45 24,71 25
Steinbítur Slægt 9887 177 153,19 167,18 58,57 54,87
Steinbítur óslægt 1649 128 98,79 102,62 58,57 54,87

08.02.2009 20:46

Bátar Janúarsmánaðars

Línubátur Janúars:  Jóhanna Gísladóttir ÍS.  byrjaði árið mjög vel fékk yfir 100 tonn í öllum þrem 
                             fyrstu sjóferðunum og varð aflahæsti línubáturinn.

Smábátur janúars undir 10 BT:  Binni í Gröf VE.  Fór ekki nema 4 sjóferðir enn var með     25  tonna afla og meðalafli í róðri því 6,3 tonn. 

Netabátur janúars undir 50 BTÍsak AK.  2 menn róa á bátnum og varð hann þriðji hæsti 
                                             ´báturinn varð fyrsti báturinn í þessum flokki til að komast yfir
                                              15 tonn í einni sjóferð.

Netabátur janúars yfir 50 BT.  Maron GK.  Af þeim bátum sem komust yfir 100 tonnin þá er 
                                           Maron GK minnstur í BT,  fiskaði ansi vel og fékk t.d 30 tonn í
                                           tveimur síðustu sjóferðunum sínum í janúar.  Meðalafli
                                            7.4 tonn sem er mjög gott.

Dragnótabátur Janúars:  Gunnar Bjarnarsson SH,  af öllum þeim listum sem voru í gangi í janúar
                                   þá var slagurinn um efsta sætið í dragnótaflokknum síbreytilegur.
                                   Rifsari SH, Gunnar Bjarnarsson SH og Guðmundur Jensson SH
                                   skiptust allir á að verða efstir.  Kalla mætti þennan slag sem drengilega
                                   baráttu.

Smábátur janúars yfir 10BT.  Tryggvi Eðvars SH.  varð snemma efstur og hélt því sæti allan janúar  Í fyrsta skipti sem báturinn nær þessum árangri.

Botnvörpungur janúars: Helgi SH.  Varð hæstur trollbátanna og í 12 sætinum yfir allan flotann.
                                  
 

08.02.2009 20:32

hinar ýmsu kannanir

það eru voru tvær kannanir um afla báta núna í janúar.

fyrst var spurt hvort að Tryggvi Eðvars SH myndi verða hæstur í janúar.  stór hluti kjósenda hafi þá trú eða 43%.  enda kom á daginn þótt það væri orðið tæpt undir lokin að Tryggvi Eðvars SH varð efstur í fyrsta skipti.  Sirrý ÍS varð önnur í könnunni með 15 %, svo komu Kristinn SH 7,4%, Daðey GK og Guðmundur Einarsson ÍS báðir með 6,7 % aðrir með minna. alls 148 kusu.

Síðan var spurt hvort Kristinn SH næði Gulltoppi GK.  Hann náði honum reyndar enn Gulltoppur GK fór svo frammúr á lokasprettinum.  65 % sögðu að Kristinn SH myndi ná Gulltoppi GK enn 35 % sögðu nei.  Enn hún fór nokkuð öðruvísi.  106 kusu.

Síðan var og er ennþá spurt hvaða efni er mest skoðað á síðunni og það kemur ekki á óvart að smábátalistinn yfir 10 BT er vinsælsta efnið á síðunni sem komið er því 28 % segjast helst skoða það.  Dragnót er í öðru sæti með 17% og netabátar yfir 50 BT með 14 % í því þriðja

Fjórða könnuninn sem er í gangi og það stendur "Sjá Kvótaspjall" þar er spurninginn sem Gunnar kom með í spjalli sem kom útaf kaupunum á Stafnesi KE.  Ég er búinn að stofna þetta kvótaspjall síðu og þar nú þegar smá efni og þar er jafnframt spurniginn.  282 er búnir að kjósa og 58 % segja nei og 42 % já.

07.02.2009 02:04

Mæting

Jóhanna Gísladóttir ÍS að fara frá Grindavík og Sigurpáll GK beið fyrir utan á meðan Jóhanna silgdi út.

 

07.02.2009 01:49

Myndaþema báts númer 967.


Bergur Vigfús GK ( núna Marta Ágústdóttir GK) á leið til fáskrúðsfjarðar með fullfermi að loðnu.  árið 1996.

Marta ´Ágústdóttir GK að koma til hafnar til Grindavíkur á vertíð 2007. Rauð og Gul


Marta Ágústdóttir GK að koma til hafnar á vertíð 2009. 

04.02.2009 16:09

Leiguverð á kvóta og verð á mörkuðum.

ég hef nú hingað til ekki verið að láta skoðanir mínar í ljós hérna á síðunni varðandi ýmis málefni sem tengjast sjávarútveginum.  Enn þetta mál er eitthvað sem ekki er hægt að horfa frammhjá.  Á mínum bryggjurúntum undanfarna góðvirðisdaga þá hefur vakið athygli mína að netabátar hafa verið í landi þrátt fyrir góða sjótíð.  má þar nefna t.d Búdda KE,  Reynir GK, Hans Jakop GK.  
hvað veldur jú, í auðlindinni þann 3 febrúar var viðtal við skipstjórann á Katrínu SH og þar talaði hann um það að leiguverð á kvóta væri það hátt miðað við verð að fiskmörkuðum að hann ætlaði að taka upp netin þar sem hann var ekki að hafa nema um 18 til 22 krónur í sinn vasa.

ef litið er á leiguverð síðustu mánað þá sést að t.d leiguverð á þorski var í byrjun árs um 212 krónur og fór upp í um 220 krónur.  fór það svo niður undir miðan mánuð í 190 krónur og núna í tæpum 190 krónum.  Meðalverð á þorski á fiskmörkuðum var í byrjun árs rúmar 250 krónur og rokkaði á bilinu 220 til 255 krónur framm í enda janúar þá hríðféll verðið og er núna í 185 krónum.  semsé leiguverð er hærra heldur enn verð á markaðir.
hvernig stendur á þessu?.  nú er búið að gefa út 30.000 tonna þorskaukningu enn hver fór hún.?
þetta ástand er ansi slæmt og ég vona að annaðhvort leiguverðið lækki og verð á markaði fari nú að hækka til þessa að þessir bátar geti farið aftur út að róa.  
þetta kemur á ansi slæmum tíma.  hávertíð í gangi og mars mánuður á eftir að koma enn hann er yfirleitt mjög aflasæll og mokveiði í öll veiðarfæri.  



04.02.2009 16:00

Línubátar í Janúar

Listi númer 7.

 Balabátarnir og litlu beitingavélabátarnir verða aðgreindir frá hinum því þeir ferða feitletraðir

Lokalistinn og Jóhanna Gísladóttir ÍS endaði í efsta sætinu.  
Gulltoppur GK endaði um 10 tonnum ofar enn Kristinn SH enn þó ert merkilegt að hvorugur bátanna náði afla Tryggva Eðvars SH.  smábáturinn Tryggvi Eðvars SH er rúmu einu tonni með meiri afla heldur enn Gulltoppur GK.


Sæti Sæti áður Nafn afli Róðrar mest
1 1 Jóhanna Gísladóttir ÍS  386,914 117,4
2 2Páll Jónsson GK374,0584105,5
3 6Sighvatur GK349,032581,1
4 5Kristín ÞH343,149585,4
5 8Fjölnir SU333,973579,5
63Sturla GK316,135492,1
74Núpur BA306,479673,5
8 7Ágúst GK304,274485,3
9 9Valdimar GK270,977477,4
10 10Tjaldur SH261,481476,5
11 15Rifsnes SH259,117654,1
12 11Þorlákur ÍS 254,687651,3
1312Kristrún II RE250,854659,2
14 13Tómas Þorvaldsson GK249,413483,5
15 14Örvar SH229,963555,4
16 16Kópur BA218,808655,8
17 17Grundfirðingur SH202,37457,3
18 18 Saxhamar SH 196,081650,1
19 19 Gullhólmi SH  154,2874 55,9
2021Gulltoppur GK148,7131811,3
21 20Kristinn SH138,8441711,6
22 22Arnarberg ÁR98,462257,4
23 23Kristbjörg HF92,987720,2
24 24Hafdís GK87,144167,3
25 25 Ásta GK  51,43511 7,7
26 26 Valur ÍS  15,9465 4,9
  • 1

Tenglar