Aflafréttir og fleira
Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Auglýsingapláss/styrkarlínur
auglýsingaplásstil
sölu,
og eða styrkarlínur.
Styrkja Síðuna
Styrktarreikningur síðunnarkennitala. 2008753709
bankabók.0142-05-001072
Eldra efni
Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Kirkjuvegur 15Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-05-001072Flettingar í dag: 1061
Gestir í dag: 301
Flettingar í gær: 2136
Gestir í gær: 426
Samtals flettingar: 1228338
Samtals gestir: 311029
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 16:36:16
Blogg
28.1.2009
Hvað skoðar þú helst??
Það hafa verið ýmsar kannarnir hérna í gangi á síðunni, enn þó svo til engar sem snúa að síðunni sjálfri.
Ég hef tekið eftir því allavega miðað við umsagnir að mest virðst vera fylgst með smábátalistanum hjá bátum yfir 10 BT,
t.d núna í janúar þá er búinn að vera mikil hreyfing á dragnótabátunum enn enginn umsögn.
tek það reyndar fram að umsagnir segja svo sem ekki allt um hvort menn skoði listanna eða ekki.
Langar mér því að henda fram hérna könnun um hvað menn skoði helst hérna á síðunni.
Og ef menn svara 10 spurningunni þá er hægt að hafa samband við síðuhöfund um það mál.
Já og svo má auka. enn könnuninn um hvort Tryggvi Eðvars SH nái efsta sætinu þegar ég setti inn þá könnun þá miðaði ég við bátanna sem voru á þeim tíma ofarlega á listanum og var þá Brynja SH hvergi sjánaleg. enn var að bæta henni inná núna
28.1.2009
Fjölgun netabáta á vertíð.
Mynd Gísli Reynisson
Það er ansi mikið gleðiefni hversu mikil fjölgun er orðin á stórum netabátum sem ætla sér að róa núna á vertíðinni 2009.
Nefna má að Sæljós GK er komið aftur á veiðar og hefur gengið þokkalega.
Gamli Snætindur ÁR var keyptur til Keflavíkur og fékk þar nafnið Búddi KE. Hefur honum gengið ansi vel og komist uppí tæp 17 tonn í róðri.
Dalaröst GK er búinn að fá litabreytingu og nafnabreytingu og heitir núna Hans Jakop GK og er byrjaður að róa á netum .
Gamli Þorsteinn Gíslasson GK sem hefur róið á netum undanfarin ár er komin á snæfellsnes og er byrjaður undir nafninu Arnar í Hákoti SH.
Oddur Sæmundsson er byrjaður á netum á gamla Narfa VE sem heitir Stafnes KE.
Sægrímur GK er kominn á net enn báturinn hét áður Portland VE.
og nýjasta viðbótin í netaflotanum er í eigu sömu útgerðar og Sægrímur GK.
nefnilega Kristbjörg HF. þegar þessar línur eru skrifaðar þá er núna verið að undirbúa Kristbjörgu HF á netin í sandgerði.
Önnur hlið á þessari aukningu er sú að hún tengist Sandgerði ansi mikið, því Sæljós GK, Búddi KE, Hans Jakop GK hafa allir róið frá Sandgerði og spurning um hvar Stafnes KE og Kristbjörg HF munu róa.
Í að minnsta þá má búast við skemmtilegum netalistum núna út vertíðina
24.1.2009
Hvaða Togari var hæstur í lok apríl árið 1982??
Undir lok síðasta árs þá kom ég með spurninguna að ofan í setti jafnframt smá könnun í gang varðandi þá spurningu. Sagðist ég myndu koma með svar þegar ég hefði fengið nægan fjöldan í svarinu.

Mynd ljósmyndari ókunnur. tekið af www.haraldarhús.is,
Og ég er orðinn sáttur núna við fjöldann, enn þeir sem kusu voru alls 159 talsins og þið kusuð togarnna í eftirfarandi röð. byrjað neðst og endar á togarnum sem var efstur í niðurstöðu ykkar.
| Sæti | ........Nafn................................... | % |
| 11 | Snorri Sturlusson RE | 1,89 |
| 10 | Sléttbakur EA | 2,52 |
| 9 | Hólmanes SU | 2,52 |
| 8 | Sveinn Jónsson KE | 3,14 |
| 7 | Ólafur Jónsson GK | 3,14 |
| 6 | Kaldbakur EA | 3,14 |
| 5 | Arinbjörn RE | 5,03 |
| 4 | Páll Pálsson ÍS | 6,92 |
| 3 | Bessi ÍS | 6,92 |
| 2 | Breki VE | 19,5 |
| 1 | Guðbjörg ÍS | 30,19 |
Þessi niðurstaða kemur mér ekki á óvart, Mig grunaði strax að þið mynduð setja Guðbjörgu ÍS og Breka VE í efstu sætin, enda í textanum sem setti með fréttinni í byrjun þá sagði ég að Guðbjörg ÍS hefði fengið 235 tonn í sinni fyrstu löndun. Smá blekking þar á ferð.
Kemur mér reyndar á óvart að Kaldbakur EA skuli ekki hafa náð nema í 6 í þessari könnun sem ég gerði.
Niðurstaðan er reyndar allt önnur. og það var einmitt ástæðan afhverju ég setti inn þessa könnun fyrir það fyrsta.
Áður enn ég set inn tölfuna um aflann, þá langar mér að henda fram spurningu um hvaða ísfiskstogari var og hefur verið aflasælastur allra suðurnesjatogara???.
Það koma nokkrir til greina t.d Ólafur Jónsson GK, Aðalvík KE, Bergvík KE og Erlingur GK svo dæmi séu tekinn.
Ég er reyndar á þeirri skoðun að einn sá minnsti Sveinn Jónsson KE hafi verið aflasælastur allra suðurnesjatogara fyrr og síðar. Sveinn Jónsson KE var oftar enn ekki aflahæsti togarinn á suðvesturlandi og var oft inná topp 10 yfir aflahæstu togara landsins.
Getur því verið að minnsti togarinn í þessari litlu könnun minni hafi verið orðinn hæstur í lok apríl árið 1982???
| Sæti | ................Nafn.................. | Afli | Landanir | Meðalafli |
| 11 | Ólafur Jónsson GK | 1359,2 | 10 | 135,9 |
| 10 | Hólmanes SU | 1371,7 | 11 | 124,7 |
| 9 | Páll Pálsson ÍS | 1377,7 | 11 | 125,2 |
| 8 | Arinbjörn RE | 1380,7 | 9 | 153,4 |
| 7 | Guðbjörg ÍS | 1399 | 8 | 174,8 |
| 6 | Bessi ÍS | 1402 | 12 | 116,8 |
| 5 | Sléttbakur EA | 1420 | 7 | 202,8 |
| 4 | Snorri Sturlusson RE | 1484,3 | 6 | 247,3 |
| 3 | Kaldbakur EA | 1518 | 7 | 216,8 |
| 2 | Breki VE | 1542,6 | 10 | 154,2 |
| 1 | Sveinn Jónsson KE | 1582,6 | 11 | 143,8 |
Og jú það var þannig að minnsti togarinn var hæstur. Þetta kom mér mjög á óvart þegar ég reiknaði togaranna og var t.d Sveinn Jónsson KE með 612 tonn í apríl í 4 ferðum sem gerir 153 tonn í löndun.
Þess má svo geta að Snorri Sturlusson RE seldi í þýskalandi í apríl og var með um 310 tonn í einni ferð þar í sölu.
kanski einhverjum líki ekki við hvernig ég set þetta upp í svona hálfgerðum æsifréttastíl, enn ég vona menn fyrirgefi mér það
Mynd ljósmyndari ókunnur. tekið af www.haraldarhús.is,
24.1.2009
Frystitogarar
Hérna fyrir neðan er niðurstaða um togaranna árið 1982.
Elvar kemur með spurningu um frystitogaranna.
og jú ég hef haft síðan ég stofnaði síðuna í nóvember árið 2007 sett fram þá lista.
það hefur ýmislegt gengið á varðandi þá lista, fyrst kom fram mikil ósk um að hafa úthaldsdaga, og var reynt að halda því úti enn það gekk mjög illa þar sem ég þurfi að reikna það út sjálfur þar sem einungis ein útgerð ( Þorbjörn Fiskanes ) lét mig fá brottfarardag skipa sinna.
Svo kom ósk um að hafa aflaverðmæti, það er nú ennþá flóknara enn ónefndur skipstjóri á einum Frystitogaranna sendi mér tölur um verð á fiskitegundum og hafði ég notað þær tölur til að áætla aflaverðmætið.
Ég veit að það hefur enginn listi komið síðan í ágúst í fyrra, enn það er nú nokkuð mín sök þar sem ég komst aldrei almennilega í það að reikna það saman, ég hef unnið í því að búa þá til svona bakvið tjöldin og vona að ég geti hent inn listnum fyrir endann á árinu 2008 og út í nýja árið.
Það hefur ætíð verið ætlun mín að fylgjast með frystitogunum því það er HVERGI fylgst með þeim nema að þeir komi með mikið aflaverðmæti. t.d hefur einhvern tímann komið frétt um Frosta ÞH??.
Það er margt í gangi núna á síðunni núna á hávertíð og það er nokkuð púsluspil hjá mér að koma þessu öllu hérna inn á síðuna, enn frystitogararnir koma
20.1.2009
Auðlindin
var í smá útvarpsviðtali á Rás 2 í dag 16.1, og verður annaðhvort í dag eða eftir helgi smá umfjöllun um síðuna og smá viðtal við síðuhöfund í Auðlindinni á Rás 2 klukkan 18:15
Jæja þá er það komið í loftið. er nokkuð ánægður með hvernig það kom út.
fyrir þá sem ekki náðu að hlusta á þá er umfjölluninn hérna í tveimur pörtum.
http://dagskra.ruv.is/ras2/4451455/2009/01/20/1/
og seinni hlutinn:
http://dagskra.ruv.is/ras2/4451455/2009/01/20/2/.
Jæja þá er það komið í loftið. er nokkuð ánægður með hvernig það kom út.
fyrir þá sem ekki náðu að hlusta á þá er umfjölluninn hérna í tveimur pörtum.
http://dagskra.ruv.is/ras2/4451455/2009/01/20/1/
og seinni hlutinn:
http://dagskra.ruv.is/ras2/4451455/2009/01/20/2/.
9.1.2009
Þorsteinn Gíslasson GK
Mynd Ragnar Pálsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Ef litið er til sögu útgerðar í Grindavík þá má sjá að all mörg bátsnöfn hafa verið þar um mjög mörg ár. má þar nefna Hrafn Sveinbjarnarsson GK, Hrafn GK, Geirfugl GK og Farsæll GK svo dæmi séu tekinn. Þorsteinn Gíslasson GK er flestum Grindvíkingum sem og öðrum suðurnesjamönnum ansi vel kunnungt um. Báturinn með því nafni var búinn að vera gerður út síðan 1970, þá fyrst hét hann Þorsteinn Gíslasson KE 31, enn fékk GK 2 árið 1975.
Núna í byrjun árs 2009 þá er fyrsta nafnabreytinginn kominn á bátinn í 38 ár. Heiti báturinn núna Arnar í Hákoti SH 37. Ekki veit ég um hvaðan þetta nafn kemur. Útgerðaraðili er Fjallaskip Ehf, enn Skinney Þinganes keypti kvótann af bátnum og færði hann yfir á Þinganes SF og Steinunni SF. Ekki er Arnar í Hákoti SH byrjaður róðra.
Ekki er Arnar í Hákoti S
6.1.2009
Bátar Desembermánarðins
Lítum yfir desember mánuð.
Dragnótabátur desembers: Valgerður BA, Fór í einungis 9 sjóferðir og fékk mest rúm 20 tonn í
einni sjóferðinni, dugðu þessir 9 róðrar til þess að Valgerður BA var
aflahæst í desember.
Botnvörpungur Desembers: Skafti HF, líklegast einn af stærri kvótalausum skipum sem gerður
er út hérna við land. desember mánuður var einn sá besti hjá
Skafta HF og komst hann í fyrsta skipti inná topp 10 listann sem
kemur í Fiskifréttum.
Netabátur Desembers: Þorleifur EA, Veiddi mjög vel í des og var um tíma í toppbaráttunni í kringum mun stærri báta. komst mest í tæp 14 tonn í róðri. Ufsi var uppistaðan hjá bátnum.
Smábátur yfir 10BT, desembers: Landey SH. var ekki á fyrstu tveimur listunum. kom svo og
klifraði upp listann og endaði í 3 sætinu, langbesti árangur
bátsins frá upphafi.
Smábátur undir 10 BT, desembers: Einar Hálfdáns ÍS, Er hægt að líta frammhjá bátnum.
Báturin fékk reyndar nokkra keppni í byrjun þar sem Ásdís ÍS
var efst framan af. Einar Hálfdáns ÍS var að auki 9
aflahæsti smábátur landsins.
6.1.2009
fyrstu listarnir
Seinnipartinn í dag þá koma fyrstu listarnir sem og niðurstaðan úr apríl könnun fyrir togaranna árið 1982.
4.1.2009
Í lok Apríl árið 1982
4.1.2009.Mig grunaði nú reyndar alltaf að giskað yrði mest á guðbjörgu ÍS , Breka VE og Kaldbak EA.
enn allt þetta er kolrangt.
og það er nú kanski ástæðan fyrir því afhverju ég set þessa litlu könnun eða getraun fram því svarið kom mér mjög mikið á óvart.
niðurstaðan kemur eftir 2 daga
Núna er ég kominn í árið 1982, og ég ætla að koma með smá könnun um ísfiskstogaranna það ár.
Spurninginn er þessi . Hvaða ísfiskstogari var orðinn aflahæsti togari landsins í lok apríl árið 1982???.
Þeir togarar sem eru tilnefndir eiga það allir sameiginlegt að allir voru þeir komnir með meira enn 1300 tonna afla í lok apríl það ár.
Togarnir sem eru tilnefndir raðast eftir heimahöfnum og byrjar upptalninginn í Vestmannaeyjum og fer svo vestur um og enda á austfjörðum.
Engar aflatölur fylgja með núna, enn ég mun koma með rétt svar þegar líður á næsta ár, eða þegar kominn er ágætur fjöldi í svörun á könnunni.
Togarnir eru eftirfarandi:
Breki VE, Hét fyrst Guðmundur Jónsson GK. Þarna var Breki VE gerður út frá Vestmannaeyjum og var búinn að landa 10 landanir.
Sveinn Jónsson KE. Hét þar áður Dagstjarnan KE. var einn af þessum minni togurum enn hann var um 299 brl. á meðan Breki VE var um 459 brl. búinn að landa 11 sinnum, minnsti togarinn í þessari könnun
Ólafur Jónsson GK. Var í eigu Miðnes HF sem átti líka Svein Jónsson KE, Ólafur Jónsson GK var þó mun stærri heldur enn Sveinn Jónsson KE. Var búinn að landa 10 landanir.
Jón Baldvinsson RE. 493 brl togari gerði út frá Reykjavík. var búinn að landa 8 landanir.
Snorri Sturlusson RE. Einn af þeim stóru. var 969 brl og gerður út frá Reykjavík var búinn að landa 6 landanir, þar af sigla einu sinni með 300 tonn.
Arinbjörn RE. Íslensk smíðaður togari, 378 brl, og einnig gerður út frá Reykjavík. var búinn að landa 9 landanir
Guðbjörg ÍS , Skipið heitir í dag Gnúpur GK, þarna var Guðbjörgin ÍS 484 brl, og var búinn að fara í 8 landanir. Fyrsta löndun togarans í janúar það ár var uppá alls 237 tonn.
Páll Pálsson ÍS. Þessi togari er enn gerður út og er einn af japanstogurunum. þarna var hann 462 brl og búinn að landa 11 landanir.
Bessi ÍS. enn eitt aflaskipið að vestan, núna frá Súðavík Bessi ÍS var 407 brl og var búinn að landa 12 landanir.
Harðbakur EA. Annar stór , því Harðbakur EA var 941 brl , og var búinn að landa 8 landanir. Frysta löndun togarans í janúar var ekki nema 67 tonn.
Kaldbakur EA. Stysturskip Harðbaks EA og bæði þessi skip urðu mikil aflaskip. Kaldbakur EA var búinn að landa 7 landanir.
Sléttbakur EA. Einn stór líka þó ekki eins stór og Harðbakur EA og Kaldbakur EA, Sléttbakur EA var 781 brl, og hét síðast Akureyrin EA. búinn að landa 7 landanir.
Hólmanes SU. Eini austfjarðartogarinn, 451 brl og búinn að landa 11 landanir.
Og svo að lokum að sjálsögðu er í lagi að menn komi með hugmyndir sínar um hvernig hugsanlega togarnir hafa raðast upp ef svo ber undir.
3.1.2009
Góður afli í lok árs.
Mynd Alfons Finnson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Það virðist vera árlegt að nokkrir SH bátar komi með fullfermi að landi í síðustu róðrum sínum ár hvert.
Fyrir ári síðan þá komu t.d Særif SH með 8.2 tonn, Gamla Úlla SH (2055), með 8,6 tonn, Tryggvi Eðvars SH 6,3 tonn og Kristinn SH 14,6 tonn. Allar þessar landanir áttu sér stað á bilinu 28 til 30 desember árið 2007.
Núna undir lok árs 2008 þá er sama sagan. Nokkrir SH bátar komu með ansi stóra róðra.
t.d Tryggvi Eðvars SH 9,5 tonn í einni ferð.
Kvika SH 5,6 tonn.
Guðbjartur SH 8,7 tonn.
Kristinn SH 10,3 tonn
og Særif SH sem núna var langaflahæst og með þessum róðri sínum þá varð báturinn með stærstan róður allra smábátar í desember. enn báturinn var með 14,8 tonn í einni ferð.
Hvort þetta gefi fyrirheit um mokafla hjá SH bátunum á komandi vertíð er ekki gott að segja um, enn góður endaleikur hjá bátunum og kom t.d Særif SH uppí 9 sætið á desember listanum.
3.1.2009
Dragnót í desember
Listi númer 8.
Rifsari SH endar árið ansi vel, komst uppí rúm 18 tonn í einni ferð og gefur tóninn fyrir komandi vertíð. Arney HF er kominn með nafnið Portland VE og var með 24 tonn, sem að stærstum hluta fór í gáma. Aldan ÍS var með tæp 13 tonn og fór stór hluti af því í gám.
Neðar á listanum er nokkur hreyfing því SH bátniar voru margir með í kringum 6 tonn í síðust löndun sinni.
skrifað 3. janúar. Örn KE og Guðmundur Jensson SH koma báðir núna með afla inná þenna lista, líklegst má skrifa þennan lista sem lokalista desember mánaðar.
frekar dræmur afli, enda skiljanlegt þar sem desember er frekar erfiður mánuður til dragnótaveiða
| Sæti | Sæti áður | Nafn | Afli | Róðrar | Mest |
| 1 | 1 | Valgerður BA | 79,197 | 8 | 20,3 |
| 2 | 2 | Arnar ÁR | 62,564 | 4 | 30,4 |
| 3 | 9 | Rifsari SH | 55,77 | 15 | 18,1 |
| 4 | 3 | Sólborg RE | 54,056 | 3 | 20,6 |
| 5 | 18 | Portland VE | 53,162 | 4 | 24,1 |
| 6 | 4 | Þorsteinn BA | 45,926 | 14 | 6,8 |
| 7 | 14 | Aldan ÍS | 45,45 | 7 | 12,7 |
| 8 | 5 | Brimnes BA | 45,005 | 15 | 6,1 |
| 9 | 16 | Örn KE | 43,198 | 5 | 13,7 |
| 10 | 6 | Egill ÍS | 40,987 | 8 | 10,5 |
| 11 | 7 | Hafborg EA | 38,522 | 10 | 6,5 |
| 12 | 8 | Hásteinn ÁR | 38,222 | 1 | 38,2 |
| 13 | 10 | Sigurfari GK | 36,815 | 3 | 17,8 |
| 14 | 11 | Margrét HF | 36,011 | 7 | 12,6 |
| 15 | 12 | Fróði II ÁR | 35,461 | 3 | 17,1 |
| 16 | 13 | Sæberg HF | 35,342 | 3 | 22,1 |
| 17 | 25 | Guðmundur Jensson SH | 34,164 | 11 | 8,5 |
| 18 | 17 | Stefán Rögnvaldsson HU | 32,514 | 9 | 4,6 |
| 19 | 20 | Grímsey ST | 31,763 | 11 | 4,7 |
| 20 | 27 | Sveinbjörn Jakopsson SH | 31,206 | 10 | 7,4 |
| 21 | 15 | Höfrungur BA | 30,798 | 11 | 5,1 |
| 22 | 21 | Gunnar Bjarnarsson SH | 30,571 | 14 | 6,2 |
| 23 | 19 | Matthías SH | 28,763 | 9 | 7,5 |
| 24 | 24 | Harpa HU | 24,118 | 8 | 6,9 |
| 25 | 22 | Njáll RE | 22,941 | 9 | 4,8 |
2.1.2009
Smábátar yfir 10 BT í desember
Listi númer 11.
Eins og fyrir ári síðan þá er Sirrý ÍS hæst, og nokkrir SH bátanna fengu mokafla undir lok árs.
Flestir GK bátanna eru komnir til Sandgerðis og Þórkatla GK er kominn í 4 sætið,
Flugaldan ST var með 11 tonn í tveimur ferðum og kom mest með 7.1 tonn að landi báturinn er að róa frá Akranesi enn þar er þónokkur fjöldi báta, eins og Ebbi AK, Signý HU og Akraberg AK.
| Sæti | Sæti Áður | Nafn | Afli | Róðrar | Mest |
| 1 | 1 | Sirrý ÍS | 119,863 | 22 | 8,6 |
| 2 | 2 | Guðmundur Einarsson ÍS | 100,371 | 22 | 6,9 |
| 3 | 3 | Landey SH | 80,431 | 18 | 9,1 |
| 4 | 7 | Þórkatla GK | 78,948 | 19 | 5,3 |
| 5 | 4 | Bíldsey SH | 77,727 | 16 | 6,2 |
| 6 | 8 | Óli Gísla GK | 75,873 | 16 | 6,1 |
| 7 | 5 | Narfi SU | 71,41 | 13 | 7,2 |
| 8 | 11 | Tryggvi Eðvars SH | 69,382 | 14 | 9,5 |
| 9 | 14 | Særif SH | 68,564 | 12 | 14,8 |
| 10 | 6 | Háey II ÞH | 67,942 | 13 | 9,3 |
| 11 | 10 | Selma Dröfn BA | 67,867 | 17 | 6,8 |
| 12 | 13 | Auður Vésteins GK | 66,197 | 13 | 8,2 |
| 13 | 9 | Happadís GK | 63,737 | 16 | 6,7 |
| 14 | 26 | Kristinn SH | 58,794 | 9 | 10,3 |
| 15 | 16 | Dögg SF | 57,626 | 9 | 12,4 |
| 16 | 12 | Björgmundur ÍS | 56,816 | 15 | 11,8 |
| 17 | 22 | Dóri GK | 55,891 | 15 | 5,2 |
| 18 | 19 | Óli á Stað GK | 54,085 | 15 | 5,9 |
| 19 | 23 | Gunnar Leós ÍS | 53,833 | 13 | 5,9 |
| 20 | 33 | Hópsnes GK | 53,128 | 14 | 5,4 |
| 21 | 21 | Brynja SH | 53,074 | 10 | 7,4 |
| 22 | 34 | Flugaldan ST | 53,05 | 12 | 7,1 |
| 23 | 24 | Jonni SI | 52,795 | 11 | 6,7 |
| 24 | 15 | Karólína ÞH | 52,771 | 10 | 9,1 |
| 25 | 38 | Gísli Súrsson GK | 52,609 | 13 | 7,1 |
2.1.2009
Netabátar í Desember.
Listi númer 9.
Erling KE endar árið með því að landa í Vestmannaeyjum og var þar sett í tvo gáma. Ósk KE nær i 20 sjóferðir sem er ansi gott endar árið með 10 tonna róðri.
Sunna líf KE er búinn að fiska mjög vel milli jóla og nýárs enn báturinn fékk tæp 13 tonn í 4 ferðum.
Dalaröst GK er svo kominn í 25 sætið á listanum.
eftir áramótin þá eins og kemur fram í texta hérna neðar á síðunni þá breytist netalistnn í tvo lista.
| Sæti | Sæti áður | Nafn | afli | Róðrar | mest |
| 1 | 1 | Erling KE | 295,008 | 9 | 74,6 |
| 2 | 2 | Hvanney SF | 219,288 | 17 | 26,2 |
| 3 | 3 | Kristrún RE | 189,276 | 1 | 189 |
| 4 | 4 | Grímsnes GK | 169,974 | 5 | 69,9 |
| 5 | 5 | Friðrik Sigurðsson ÁR | 127,478 | 4 | 68,9 |
| 6 | 7 | Ósk KE | 116,241 | 20 | 13,9 |
| 7 | 6 | Ársæll ÁR | 109,782 | 5 | 51,1 |
| 8 | 8 | Þorleifur EA | 99,704 | 16 | 13,8 |
| 9 | 9 | Magnús SH | 84,295 | 14 | 17,1 |
| 10 | 10 | Glófaxi VE | 66,91 | 4 | 23,2 |
| 11 | 11 | Maron GK | 58,721 | 14 | 9,1 |
| 12 | 12 | Þórsnes II SH | 57,839 | 4 | 25,6 |
| 13 | 13 | Egill SH | 53,687 | 14 | 8,3 |
| 14 | 14 | Ólafur Bjarnarsson SH | 48,001 | 15 | 6,2 |
| 15 | 15 | Sæbjörg EA | 46,648 | 11 | 5,9 |
| 16 | 19 | Marta Ágústdóttir GK | 42,646 | 8 | 9,7 |
| 17 | 16 | KAtrín SH | 38,961 | 15 | 6,7 |
| 18 | 17 | Happasæll KE | 35,229 | 16 | 5,2 |
| 19 | 18 | Haukaberg SH | 31,067 | 12 | 3,9 |
| 20 | 20 | Reynir GK | 29,788 | 13 | 6,3 |
| 21 | 21 | Sunna líf KE | 28,759 | 15 | 4,3 |
| 22 | 25 | Askur GK | 24,716 | 11 | 5,5 |
| 23 | 24 | Sæljós GK | 24,186 | 14 | 2,3 |
| 24 | 22 | Hraunsvík GK | 23,148 | 9 | 6,1 |
| 25 | 27 | Dalaröst GK | 22,989 | 10 | 7,9 |
1.1.2009
Smábátar undir 10 BT í Desember.
Listi númer 11.
3 efstu sætin er fastskipuð bolungarvíkurbátunum og spurning hvernig það verður á þessu ári. allavega miðað við umsagnir hérna á síðunni þá hafa í það minnsta tvær áhafnir lýst því yfir að bátar þeirra muni koma sterkir til leiks á þessu ári.
og á ég þarna við um Bilming SI og Huld EA.
Milla GK og Diddi GK eru hástökkvarnir á þessum lista.
Nýji listinn á þessu ári stækkar eins og aður var talað um í 25 báta eins og stóri listinn yfir stóru smábátanna.
| Sæti | Sæti Áður | Nafn | Afli | Róðrar | Mest |
| 1 | 1 | Einar Hálfdáns ÍS | 68,672 | 17 | 6,7 |
| 2 | 2 | Ásdís ÍS | 54,354 | 15 | 5,8 |
| 3 | 3 | Snjólfur ÍS | 50,222 | 14 | 5,1 |
| 4 | 4 | Glaður SH | 36,15 | 9 | 6,5 |
| 5 | 5 | Kári SH | 30,256 | 6 | 6 |
| 6 | 6 | Bilmingur SI | 28,346 | 7 | 5,8 |
| 7 | 7 | Berti G ÍS | 26,034 | 10 | 5,3 |
| 8 | 8 | Petra SK | 22,668 | 5 | 5,6 |
| 9 | 9 | Eydís EA | 22,598 | 8 | 4,1 |
| 10 | 11 | Magni á búðum SH | 21,621 | 9 | 3,6 |
| 11 | 10 | Sverrir SH | 21,113 | 5 | 6 |
| 12 | 22 | Diddi GK | 19,77 | 7 | 3,8 |
| 13 | 13 | Rán SH | 19,462 | 11 | 3,2 |
| 14 | 12 | Hrönn ÍS | 19,124 | 9 | 2,8 |
| 15 | 24 | Bensi ÍS | 17,327 | 6 | 4,2 |
| 16 | 14 | Toni EA | 17,198 | 8 | 2,5 |
| 17 | 32 | Milla GK | 16,865 | 6 | 5,5 |
| 18 | 15 | Einir SU | 16,028 | 9 | 2,2 |
| 19 | 16 | Skúli ST | 15,428 | 4 | 5,2 |
| 20 | 17 | Sæfugl ST | 15,21 | 7 | 2,7 |
s

