Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1940
Gestir í dag: 409
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364090
Samtals gestir: 529029
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:50:27

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

Færslur: 2008 Desember

31.12.2008 01:54

Vertíð 2009


Myndir frá Vertíð 2008.

Myndirnar að ofan eiga það allar sameiginlegt að vera teknar í Sandgerðishöfn á vertíð 2008.  Margir bátanna komu með fullfermi að landi enn því miður þá voru ekki myndavélarnar ekki alltaf til staðar þegar á þurfti.  T.d var enginn mynd af Ísaki AK enn hann kom með í kringum 20 tonn´úr einni ferðinni.

Allavega framundann er nýtt ár og náttúrulega nú vetrarvertíð. 
Á vertíðinni 2008, þá einblíndi ég á netabátanna og var með listann uppfærðann alls 31 sinni.
Núna verður mikil breyting á. Þær eru eftirfarandi:

Dragnótalisti:  Hann verður óbreyttur frá núverandi mynd, hugsanlega stækkar hann uppí 30 báta.

Botnvörpulisti:  Hann verður óbreyttur, enn verður uppfærður ekki eins oft og hinir.

smábátar yfir 10 BT:  Hann verður óbreyttur.

Smábátar undir 10BT:  Hann verður stækkaður í 25 báta eins og Smábátar yfir 10 BT er.

Línubátar:  Sérstakur línulisti kemur á síðuna núna í janúar, enn mikið er búið að biðja um hann. 
                 Verður hann þannig að balabátarnir og litlu beitningavélabátarnir verða aðgreindir frá
                 stóru bátunum.

Netabátar:  Eins og alltaf á vertíð þá einblíni ég fyrst og fremst á netabátanna.  Netalistinn verður
                 tvískiptur.  
                 Hann verður annars vegar með bátum yfir 50BT að stærð, og verður sá listi 25 bátar
                Og hins vegar verður annar netalisti sem verður með bátum yfir 50 BT og verðu hann
                Líka 25 bátar.

Heildarvertíðarlisti verður svo til hliðar á síðunni , enn sú tafla kemur ekki fram á forsíðu.

´Þetta verður óskaplega mikil vinna fyrir mig að halda þessum listum gangandi, enn ég mun reyna mitt besta til þess að þeir uppfærist oft og reglulega. ég mun þó einblína á neta, smábáta og dragnótabátanna.

Ég veit ekki hvort þetta gangi upp þar sem ég þarf að vinna "launavinnuna" mína, og hún gæti skarast á við þann tíma sem ég hef til þess að halda síðunni gangandi. 

30.12.2008 08:48

smá forsmekkur

Listi númer 4.

Gulltoppur GK byrjar strax eftir jólinn á fullu og var með 21 tonn í 3 ferðum.  Kristinn SH er í fríi fram yfir áramót,  þá byrjar slagurin milli Kristins SH og Gulltopps SH.
Ásta GK var með 10 tonn í 3 ferðum og Hafdís GK landaði einu sinni.

Hvar róa bátarnir.
Kristinn SH var á skagaströnd enn er kominn í Ólafsvík
Gulltoppur GK er á skagaströnd.
Kristrbjörg HF er á Rifi
Þórsnes II SH var á húsavík
Valur ÍS á Súðavík
Ásta GK og Hafdís GK í Sandgerði

Sæti Nafn Afli Róðrar Mest
1 Gulltoppur GK 148,824 17 13,9
2 Kristinn SH  86,683 10 12,1
3 Kristbjörg HF  67,716 6 15,8
4 Þórsnes II SH  47,108 5 10,7
5 Hafdís GK  40,528 10 6,7
6 Ásta GK  32,819 10 4,8
7 Valur ÍS 15,259 7 4,5

27.12.2008 21:54

eitt ár....

var aðeins að breyta síðunni , því núna er hægt að lesa fréttir og skoða lista heilt ár aftur í tímann,

ágætt núna undir lokin að rifja upp hvernig árið var.

líka útaf því að ég get ekki sinnt síðunni nægilega vel núna útaf vinnunni minni.

23.12.2008 10:14

Botnvörpungar í Desember

listi númer 2.

best að byrja að henda inn listunum .  byrjum á botnvörpungunum.,
Björgúlfur EA bætir aðeins við sig og er ekki langt frá 500 tonnunum.  Sólbakur EA sem getið er um á síðunni hans Þorgeirs er kominn í annað sætið, enn togarinn er búinn að vera með yfir 150 tonn í síðustu tveimur ferðum,
athygli vekur að loðnuskipið Þorsteinn ÞH er kominn í 4 sætið , enn skipið var með tæp 130 tonn í síðustu löndun sinni.
Sóley  Sigurjóns GK er orðin aflahæsti 4 mílna togarinn og Skafti HF er að fiska mjög vel.  er núna í 11 sætinu.
Hringur SH er orðinn hæstur trollbáta.
Sæti Nafn Afli Landanir Mest Fjöldi Gáma
1 Björgúlfur EA  471,377 4 135,2 3
2 Sólbakur EA  461,62 3 156,6 2
3 Klakkur SH  330,368 3 130,5
4 Þorsteinn ÞH 289,7 3 126,8 4
5 Ljósafell SU  285,854 3 118,8
6 Ottó N Þorláksson RE  268,678 3 119,5
7 Bjartur NK  245,81 3 118,7
8 Gullver NS  239,731 3 98,3 2
9 Sóley Sigurjóns GK  226,556 3 76,3 2
10 Páll Pálsson ÍS  226,266 5 50,1
11 Skafti HF   219,513 3 79,5
12 Múlaberg SI  206,456 3 76,2 2
13 Hringur SH 203,406 3 69,9 2
14 Ásbjörn RE  198,872 2 101,7
15 Berglín GK  191,092 3 76,3 2
16 Sturlaugur H Böðvarsson AK  191,034 2 103,6
17 Suðurey VE 181,938 3 74,6 8
18 Jón Vídalín VE 82  173,672 3 79,5 5
19 Helgi SH  161,022 3 56,1 2
20 Steinunn SF 141,92 3 55,1 2
21 Stefnir ÍS 135,705 3 57,1
22 Gullberg VE  130,585 4 76,2 4
23 Vestmannaey VE  122,058 3 42,5 5
24 Dala Rafn VE  98,449 3 45,2 3
25 Bergey VE  89,994 2 49,4 5
26 Bylgja VE  87,346 3 50,1 8
27 Þorvarður Lárusson SH 86,673 3 32,3 3
28 Sigurborg SH 84,674 2 46,6 4
29 Brynjólfur VE   81,266 3 43,2 6
30 Smáey VE  79,219 3 38,6 4
31 Gunnbjörn ÍS  79,059 4 40,1 3
32 Óskar RE  68,459 3 47,7
33 Vörður EA  65,409 2 36,8 3
34 Frár VE  61,82 2 41,3 3
35 Bergur VE 4 55,62 2 43,2 4

17.12.2008 10:47

Fall er Fararheill

Mynd Gísli Reynisson

Hvað eiga Úlla SH og Grímsnes GK sameiginlegt???.  reynum að finna það út.  Grímsnes GK er stálbátur og miklu stærri heldur enn Úlla SH sem er úr plasti.  í raun eiga þeir ekkert sameiginlegt.
eða hvað. jú þeir eiga nefnilega eitt sameiginlegt.  báðir lentu í skakkaföllum í lok síðasta mánaðar og báðir komu síðan tvíelfdir til baka eftir lagfæringar.

Grímsnes GK strandaði og var frá veiðum síðustu daganna í nóvember, enn hóf veiðar aftur í des og gerði sér þá lítið fyrir og kom með 70 tonn að landi úr einni ferð.  enda er Grímsnes GK komið í annað sætið á netalistanum.

í Nóvember þá voru nokkrar kannanir í gangi og þar á meðal um það hvort að Úlla SH næði inná listann,  Úlla SH bilaði undir lok mánarðins enn náði þó í sæti númer 37 í nóvember.  fyrir nokkru þá voru settir nýjir spíssar í Úllu SH og eins og Davíð orðar það ansi skemmtilega hér á síðunni " og breiðarfjörðurinn ekki lengur í þoku af mínum völdum". 

Þessir nýju spíssar hafa ekki bara slökkt í þokunni heldur hefur báturinn mokfiskað núna í síðustu tveimur ferðum.  var báturinn með tæp 16 tonn í tveimur ferðum, fyrst rúm 8 tonn og síðan um 7.7 tonn.  núna á nýjasta listanum sem er númer 7 í röðinni þá er báturinn sá bátur sem stekkur lang mest upp listann fer upp um alls 35 sæti milli lista.  
Einn málsháttur kemur upp í huga mér gagnvart þessum tveimur bátum.  Fall er fararheill.

16.12.2008 01:36

Stóru línubátarnir

Það er ekki nóg af listum á síðunni..hehehe.

það hefur verið haft ansi mikið samband við mig útaf stóru línubátunum.  menn vilja greinilega fá þá inn hérna á síðuna.  Reyndar þá eru nokkrir bátar sem stunda balalínu. t.d Valur ÍS, Kristinn SH, og Gulltoppur GK.  þessa báta hef ég alla reiknað, og menn vita um Hafdísi GK sem hefur verið á línulistanum hjá smábátunum.

Ætla að setja inn könnun hérna og spyrja um það hvort það sé meirihluti fyrir því að hafa stóru línubátanna, og balabátanna saman á lista.

07.12.2008 21:52

Bátar Nóvembers.

Lítum yfir nóvember.

Dragnótabátur Nóvembers.
Geir ÞH. Eins og vanalega þá var mesta fjörið á þessum lista, ansi margir voru í efsta sætinu og enginn var þar fastur fyrir.  Geir ÞH var búinn að vera viðloðandi efstu sætin og náði svo efsta sætinu undir lokin, og þar með er Geir ÞH búinn að vera hæstur 5 mánuði á þessu ári.  Sem er mjög góður árangur.

Botnvörpungur Nóvembers:
Klakkur SH.  Att kappi við Ottó N Þorláksson RE og hafði betur á lokasprettinum.  Það eitt og sér er kanski ekki það merkilegasta því Klakkur SH mokveiddi af þorski og er eitt fárra skipa sem má einbeita sér að þorski.  tæp 600 tonna nóvembersafli er mjög góður árangur.

Netabátur Nóvembers:
Erling KE,  Það er ekki hægt að horfa frammhjá bátnum,  enn mokveiðinn hélt áfram hjá honum, og ekki ólíklegt að Erling KE hafi sett íslandsmet með haustafla sínum.

Smábátur nóvembers yfir 10 BT.
Ragnar SF.  átti efsta sætið og svo til enginn ógnaði honum.  var ekki langt frá því að slá aflamet Karólínu ÞH síðan í fyrra.

Smábátur nóvembers undir 10 BT.
Snjólfur ÍS,  Það er ekkert heilagt í þessu.  Einar Hálfdáns ÍS var búinn að einoka þennan lista frá því í maí þegar báturinn byrjaði að róa.  Snjólfi ÍS tókst að verða hæstur núna í nóvember og að auki varð báturinn 18 aflahæsti smábáturinn í nóvember.

03.12.2008 08:52

Botnvörpungar í Nóvember.

Listi númer 5.

Bjartur NK bætist í 500 tonna flokkinn, og Vestmannaey VE er orðinn aflahæsti trollbáturinn, enn Vestmannaey Ve landaði 99 tonnum undir lok nóvmber.  

Þorsteinn ÞH er ekki búinn að vera á síld eins og flest öll önnur skipin , heldur er Þorsteinn ÞH búinn að róa með troll og er því á þessum lista.


Skipin eru flokkuð í nokkra flokka, og eru þeir sundurgreindir með litum.
þeir flokkar sem eru í gangi eru eftirfarandi:
Ísfiskstogarar eru í þessum lit.

3 Mílna skipin eru í þessum lit

4 Mílna skipin eru í þessum lit
.. 

   

Sæti Nafn Afli Landanir Mest Fjöldi Gáma
1 Klakkur SH  596,799 4 153,2
2 Ottó N Þorláksson RE  587,57 4 197,2
3 Páll Pálsson ÍS  547,973 5 130,3 1
4 Bjaftur NK535,7895117,4
5 Björgúlfur EA491,9944126,9
6 Ásbjörn RE482,3984166,4
7 Ljósafell SU416,5184123,4
8 Sólbakur EA  355,403 4 115,6 10
9 Múlaberg SI302,896485,34
10 Þorsteinn ÞH299,6243112,43
11 Suðurey VE261,7343104,14
12 Sóley Sigurjóns GK260,88680,2 5
13 Bergur VE251,662476,2 13
14 Vestmannaey VE250,836499,28
15 Stefnir ÍS 236,018479,7
16 Gullver NS 232,145394,43
17 Skafti HF229,082472,7
18 Sturlaugur H Böðvarsson AK226,0813101,9
19 Hringur SH221,074473,23
20 Helgi SH220,753552,15
21 Bergey VE217,885469,89
22 Steinunn SF197,192454,44
23 Jón Vídalín ÁR192,285464,59
24 Berglín GK190,846372,44
25 Gullberg VE190,737586,1 15
26 Dala Rafn VE183,127458,810
27 Smáey VE  175,394461,68
28 Sigurborg SH164,512444,27
29 Þinganes SF151,289537,8
30 Frár VE126,052440,2 6
31 Sóley SH117,548438,46
32 Brynjólfur VE115,98447,74
33 Bylgja VE114,638452,69
34 Vörður EA110,869435,5 6
35 Þorvarður Lárusson SH110,013435,93

03.12.2008 06:55

hvar er Daðey GK???


Mynd Gísli reynisson

Það hefur lítið farið fyrir Daðey GK núna í ár.  Daðey GK réri alla vertíðina síðast og gekk ansi vel. 
Bátnum var síðan sett í skip sem flutti það til Kanada.  Þar var verið að prufa hvort það væri hægt að gera út línubeintingabáta til veiða þar.  Daðey GK réri frá Fortune.  Enn þar er fiskvinnslufyrirtæki sem Vísir HF í Grindavík í á hlut í, og lögðu þeir til Daðey GK í þessar tilraunaveiðar.  Daðey GK fékk reyndar ekki veiðileyfið fyrr enn 30 ágúst og byrjaði þá róðra.  Báturinn sótti mjög langt út enn þeir voru að róa allt uppí 70 sjómílur frá landi, og voru veður þar mun verr heldur enn hérna heima.  Aflinn var alls 90 tonn í 15 sjóferðum sem gerir 6 tonn í róðri.  er það alveg þokkalegur afli. 
Daðey GK er allavega núna kominn heim og eins og Júlli á Daðey GK skrifaði í bréfi til mín þá sagði hann "Við verðum í baráttunni á næsta lista".  Vel orðað.

03.12.2008 06:31

Ný Harpa HU


Mynd Ragnar Pálsson . færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Þeim hefur fjölgað nokkuð bátunum sem hafa stundað bryggjulegu í nokkuð langan tíma sem hafa hafið róðra að nýju. 
má nefna í þeim hópi Gulltopp GK sem er kominn á línu núna enn var þar á undan á dragnót.  Var þá Gulltoppur GK búinn að liggja síðan 17.nóvember árið 2006.
Sæljós GK er hafið netaveiðar aftur, enn báturinn lá í Njarðvíkurhöfn frá því í lok febrúar árið 2007.

Harpa HU var selt til grindavíkur núna í haust og fékk þar nafnið Sigurpáll GK.  útgerðaraðilar Hörpu HU voru ekkert á því að hætta, því þeir keyptu Álftafell SU og skírðu hann Harpa HU.  Hefur báturinn hafið dragnótaveiðar og róa þeir frá Hvammstanga.  Álftafell SU var búið að liggja ansi lengi við bryggju á Hornafirði. Álftafell HU var síðast þar á humri og var búinn að liggja síðan í lok júlí árið 2005.

Báturinn er smíðaður árið 1970 á seyðisfirði og hét lengi vel Þorsteinn SH og síðan Egill Halldórsson SH,

03.12.2008 06:23

Mokveiði hjá Sighvati GK


Stóru línubátarnir hafa ekki verið á lista hérna á síðunni þótt ég reikni þá útaf listanum í Fiskifréttum. 
Sighvatur GK er búinn að fiska ansi vel núna í nóvember.  Reyndar svo til ævintýralega vel.

Þetta byrjaði þann 5. 11 þegar báturinn kom til hafnar á Þingeyri með alls tæp 112 tonn, og var þorskur 86 tonn og ýsa 23 tonn.

5 dögum síðan landaði báturinn á Hólmavík, sem er mjög svo óvenulegur staður fyrir stóru línubátanna enn þeir hafa ekki lagt leið sína þangað til löndunar, þar var Sighvatur GK með 95 tonn og var þorskur þar af 73 tonn.

15. nóv var aftur landað á Þingeyri og núna var landað þar 111 tonnum og var þorskur 97 tonn af því, 

á Þingeyri var landað þann 21 og var aflinn núna 102 tonn og var þorskur  79 tonn og karfi 13 tonn.

og síðasta löndunin var á Þingeyri og var aflinn þá 97 tonn og var þorskur 77 tonn.

Aflinn alls núna í nóvember er því kominn í 517 tonn, sem er ansi gott, enn það er ekki mikið um það að ´stóru línubátarnir fari yfir 500 tonn á mánuði, það  kemur þó fyrir af og til.

02.12.2008 12:10

10BT og yfir í Nóvember

Listi númer 13.

Ekki náði Ragnar SF metinu sem Karólína ÞH á, enn er þó ekki langt frá því.  og Dögg SF tókst að halda öðru sætinu þrátt fyrir önnur ummæli, 
Það má svo sem skrifa þennan lista sem lokalista, enn þó eru nokkrar tölur eftir aðkoma. t.d fra´Gísla Súrsyni GK sem landaði á drangsnesi undir lok nóvember.
Sirrý ÍS bættist í 100 tonna hópinn, og er Happadís GK þar rétt undir, enn hún er enga skráða löndun með á sig núna síðustu daganna í nóvember.
Mjög góður afli var hjá SH bátunum undir lokin og var t.d Tryggvi Eðvars SH með tæp 15 tonn í 3 ferðum, Kvika SH 13 tonn í  3ferðuim og Landey SH 12 tonn í 2 ferðum.

Sæti Sæti Áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 1 Ragnar SF  169,471 22 13,3
2 2 Dögg SF  137,753 22 8,1
3 3 Guðmundur Sigurðsson SF 135,082 23 7,6
11 6 Sirrý ÍS 102,478 23 7,9
5 4 Bíldsey SH 100,125 16 10,6
4 5 Happadís GK  94,449 20 8,6
10 7 Auður Vésteins GK  87,829 17 8,1
6 10 Benni SF  84,611 17 8,1
7 8 Narfi SU  84,33 16 7,8
8 12 Guðmundur Einarsson ÍS  80,218 23 6,2
9 9 Særif SH  80,155 12 9,6
13 11 Beta VE  77,928 18 10,4
14 13 Björgmundur ÍS  72,944 18 7,1
12 21 Selma Dröfn BA  69,16 18 5,4
15 26 Tryggvi Eðvars SH  65,597 15 6,9
16 17 Hrefna ÍS  64,128 14 6,9
17 14 Hlökk ST   63,068 13 6,1
18 15 Siggi Bessa SF  60,833 14 5,5
19 16 Háey II ÞH  60,795 15 7,7
20 22 Flugaldan ST  60,636 15 5,9
21 20 Óli Gísla GK  59,406 13 7,2
22 23 Þórkatla GK  59,036 15 8,2
23 18 Hafdís GK 58,798 12 6,9
24 19 Gísli Súrsson GK 58,547 12 8,4
25 30 Gunnar Leós ÍS  58,008 17 5,9

02.12.2008 12:02

Netabátar í nóvember

Listi númer 8.

1000 tonn kominn hjá Erling KE og Friðrik Sigurðsson ÁR með hátt í 800 tonn á haustmánuðum.  bæði þessir aflar eru líklegast met..
Ársæll ÁR byrjaði á ufsaveiðunum og gekk ansi vel, og náði í 6 sætið.
Magnús SH er kominn á netin og var með tæp 12 tonn í síðustu löndun sinni núna í nóv
Sunna Líf KE endar ansi vel. var með 13 tonn í 3 feðrum og mest tæp 6 tonn í einni ferðinni.  báturinn var með þorsk og ufsa sem uppistaða afla.  Annars var góður afli undir lokinn í nóvember.

Sæti Sæti áður Nafn afli Róðrar mest
1 1 Erling KE  469,362 11 82,5
2 2 Friðrik Sigurðsson ÁR  330,975 5 100,3
3 3 Hvanney SF  209,423 21 16,8
5 4 Kristrún RE  170,19 1 170,1
4 5 Grímsnes GK  161,003 6 36,6
6 6 Ársæll ÁR 152,102 5 38,6
7 7 Glófaxi VE  99,178 6 30,1
8 9 Magnús SH  77,044 13 11,2
9 8 Ósk KE  75,955 19 7,7
10 11 Marta Ágústdóttir GK   66,571 10 17,8
11 10 Þorleifur EA 62,58 15 9,4
12 12 Ísak AK  40,025 15 7,4
13 13 Maron GK  39,035 17 8,1
15 20 Sunna líf KE  30,816 13 5,5
14 18 Katrín SH  28,953 17 3,3
18 14 Haukaberg SH 28,912 11 5,5
17 15 Keilir II AK  28,437 14 4,4
16 16 Sæþór EA  25,995 11 6,2
19 22 Askur GK  25,012 12 6,5
20 19 Happasæll KE  24,88 18 3,4
21 21 Sæljós GK 23,591 8 6,1
22 17 Níels Jónsson EA 23,073 18 3,5
23 40 Reynir GK  18,362 6 5,2
24 25 Egill SH 14,821 6 2,9
25 26 Hraunsvík GK  14,421 13 2,9

02.12.2008 11:54

Dragnót í Nóvember

Listi númer 9

Það lítur út fyrir að einungis 2 bátar komist yfir 100 tonnin núna í nóve og Geir ÞH verði hæstu, og er þetta því 5 mánuðurinn hjá Geir ÞH sem hann er hæstur dragnótabáta í ár.  Reyndar hef ég heimildi fyrir því að Geir ÞH verði ekki með í desember. 
Sólborg RE nær að negla niður þriðja sætið, og ´Hásteinn ÁR nær í það 4.
Sæti Sæti áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 1 Geir ÞH  121,197 9 22,7
2 2 Valgerður BA  103,161 14 12,6
3 4 Sólborg RE   92,204 8 23,1
4 9 Hásteinn ÁR  88,231 4 25,1
5 3 Matthías SH   80,663 16 7,1
6 7 Egill ÍS  79,298 15 11,4
7 19 Arnar ÁR 77,759 4 37,4
8 5 Steinunn SH 75,242 10 31,3
9 12 Brimnes BA  74,864 17 11,5
10 10 Sæberg HF 72,289 4 31,5
11 6 Esjar SH 72,276 18 7,9
12 8 Jón Á Hofi ÁR  63,307 3 46,3
13 11 Þorsteinn BA  58,946 20 6,4
14 17 Margrét HF  57,77 10 8,6
15 15 Gunnar Bjarnarsson SH  55,223 16 6,8
16 14 Siggi Bjarna GK  53,665 13 7,6
17 16 Páll Helgi ÍS 51,576 10 9,6
18 13 Stefán Rögnvaldsson HU 48,785 11 7,7
19 36 Arney HF  45,29 5 16,2
20 18 Eiður ÓF 1 42,663 16 5,2
21 26 Jóhanna ÁR  41,849 8 13,4
22 35 Sigurfari GK  41,034 4 15,5
23 21 Aðalbjörg II RE  40,529 11 12,3
24 25 Benni Sæm GK 39,763 10 9,1
25 20 Ólafur Bjarnarsson SH  38,404 13 5,1

02.12.2008 08:46

Oddur Kaupir Narfa VE

Færi fréttina um Odd og Narfa VE undir könnunina sem er hérna á síðunni til þess að menn geti betur tengt umræðuna sem er hérna undir fréttinni, við spurninguna í könnunni.

Myndin af Narfa VE. Gísli Hjartarsson. færi ég honum bestu þakkir fyrir. 

 

Þá er það komið í gegn.  Oddur Sæmundsson netakóngur með meiru hefur keypt Narfa VE.  Narfi VE hét fyrst Bára SU og var þá smíðaður fyrir útgerðamannin Árna Stefánsson.  Árni lést þann 21.október árið 1980.  Árni átti þar á undan bát sem hét Stefán Árnasson SU.  Réri Árni bæði á Stefáni Árnasyni SU sem og á Báru SU alltaf á vertíð frá Vestmannaeyjum. 

Oddur hefur nokkuð látið til sín taka núna í ár þótt að hann hafi ekki átt neinn bát til að róa á.  Ufsaveiðimokið sem hefur verið hjá Erling KE hefur að hluta verið Oddi að þakka. enda var hann með bátinn um tíma.  Myndin af Magga Jóns KE er þegar hann kom að landi með 20 tonn á vertíðnni núna í vetur.  Oddur var einmitt með bátinn í þessum túr, enn Oddur var með Magga Jóns KE að hluta á vertíðinni 2008.

Það verður mikill fengur að fá Odd aftur í slaginn með netabátunum og nú er bara spurning hvort sé ekki hægt að kalla fram hinn netakónginn sem var á sínum tíma oft í harðri keppni við Odd um aflasætið.  að sjálfsögðu er ég að tala þarna um Grétar Mar Jónsson sem lengst af var með Sæborgu RE  og seinna  meir með Berg Vigfús GK.

  • 1

Tenglar