> Aflafréttir og fleira - Blogg

 

Aflafréttir og fleira

Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir

Auglýsingapláss/styrkarlínur

auglýsingapláss
til
sölu,
og eða styrkarlínur.






 

Styrkja Síðuna

Styrktarreikningur síðunnar

kennitala.  2008753709

bankabók.0142-05-001072

Hvaða humarbátur verður hæstur árið 2010

 Ársæll ÁR

 Jón á Hofi ÁR

 Fróði II ÁR

 Kristbjörg VE

 Skinney SF

 Brynjólfur VE

 Þórir SF


Sýna niðurstöður

Hvað skoðar þú helst

 Smábátalista yfir 10 BT

 Smábátalista undir 10 BT

 NEtalista yfir 50 BT

 NEtalista undir 50 BT

 Dragnótalista

 Botnvörpunga

 Skoða alla lista jafnt

 Skoða helst Gömul tíð

 Línubátalista

 vill gerast styrkaraðili


Sýna niðurstöður

Sjá KVÓTASPJALL

 Já

 Nei


Sýna niðurstöður

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Kirkjuvegur 15

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-05-001072
Flettingar í dag: 205
Gestir í dag: 75
Flettingar í gær: 2875
Gestir í gær: 412
Samtals flettingar: 1234941
Samtals gestir: 312045
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 03:40:49

Blogg

30.11.2008

Síldarmyndir teknar af Reyni Sveinssyni


Mynd Reynir Sveinsson.

Þar sem ég var að vinna í dag þá náði ég ekki að fara og smella nokkrum myndum af síldarbátunum sem voru hérna að veiðum.  Pabbi fór og náði nokkrum ansi góðum myndum og var ég að setja inná myndaalbúmið myndirnar sem pabbi tók. 
Myndaalbúmið heitir Síldveiði við Keflavík.
Færi ég pabba bestu þakkir fyrir myndirnar.

Skrifað 30.11.2008 kl. 21:22 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.11.2008

Íslandsmet Smábáta

Það er kominn nokkur umræða hérna á síðunni í smábátaflokknum yfir 10 BT, um það hvort að Ragnar SF nái núgildandi meti.  Enn hvað er metið??
þetta er mjög stór spurning.  Enn samkvæmt listnum´þá á Karólína ÞH metið sem var sett í maí í fyrra, enn það var uppá rúm 180 tonn í einum mánuði.

Enn er það Íslandsmet??.  Ef þessi spurning er sett fram á annan hátt, þá má líta á að við séum að miða við t.d báta sem eru jafn stórir og t.d Ragnar SF og Karólína ÞH.  Báðir bátarnir eru tæp 15 BT.  Eigum við að miða íslandsmetið við báta svipaða og plastbátanna nýju, eða eigum við að miða þá við 11 til 15 BT eikarbátanna sem voru oft á tíðum á línu og netum á vertíð?.  þeir bátar gengu reyndar mun minna heldur enn bátarnir hérna og voru tæknilega mun verr útbúnir.  Hérna á árum áður þá voru vertíðarbátarnir oft í kringum þessa stærð.  Og þeir fengu t.d fyrir 1950 oft um og yfir 200 til 300 tonn á mánuði.

Til þess að geta fullsvarað því hvað er núgildandi íslandsmet þá þarf að fara í ansi mikla rannsóknarvinnu.  áður enn ég legst í það þá á Karólína ÞH metið. Enn þó get ég bætt við að báturinn Skógafoss RE sem var um 11 brl eikarbátur fékk í mars á vertíð 1964 tæp 240 tonn í 30 sjóferðum.  Ég skrifaði frétt um þennan bát í fiskifréttum fyrir nokkrum síðan.

Ég er í söfnun núna og er að fá kassa fyrir árin 1967 og 1968 og þar gætu leynst einhverju gullmolar varðandi þessar stærð báta.

í umræðunni um smbátanna þá hafa komið fram bendingar um báta sem fiskuðu vel og ef að menn vita um einhverja báta í þessum stærðarflokki þá væri vel þegið að koma með það, og ég gæti komist að því hver í raun á metið í þessum stærð báta.

Skrifað 30.11.2008 kl. 20:51 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.11.2008

Árið 1966

Hversu margir lesendur síðunnar voru fæddir fyrir árið 1966, eða þá voru á sjó það ár???.  gaman að velta því fyrir sér.
Allavega þá er ég búinn að skrá hjá mér allt í sambandi við árið 1966, og ætla ég að renna aðeins yfir það hérna í smá yfirliti.

Þær tölur sem ég er með núna ná yfir allan flotan nema síld og loðnu.

Helstu tölur eru eftirfarandi:

Dragnót:  Alls 14611 tonna afli og alls 125 bátar skráðir á dragnót, af þeim þá náðu 4 bátar að veiða yfir 400 tonnin.  Sigurfari SH var með 415 tonn,  Geysir SH með 439 tonn,  Glaður KE með 487 tonn, og Baldur KE 512 tonn.    Bæði Baldur KE og Sigurfari SH fóru yfir 150 tonna afla í ágúst það ár.

Rækja:  alls 1778 tonn.  allt innanfjarðarækja.  Örn ÍS var aflahæstur með 90 tonn í 114 ferðum.

Humar :  Alls skráður afli miðað við óslitið 3601 tonn, og fjöldi báta 123 talsins.  tveir bátar náðu yfir 30 tonna afla miðað við slitið.  Ver SF og Dagný SF.  einungis munaði 112 kílóum á milli þessara tveggja báta sem báðir fóru 28 sjóferðir.

Togarar:  Þeir voru alls 31 talsins og afli þeirra tæp 58 þúsund tonn samtals.  

Bátar:  Þarna eru samankomnir allir bátar sem lönduðu einhverjum afla árið 1966.  og er aflinn fyrir utan vertíð talin í þessum flokki.  heildarfjöldibáta var alls 1114 bátar og aflinn 60622 tonn.  Reynar voru þónokkrir fjöldi báta sem réru án nafns og var þá gefið upp nafn útgerðamannsins  voru þeir háttí 100 talsins sem réru þannig.

Vertíð:  Alltaf mesta fjörið að reikna vertíðina.  heildarfjöldi báta á vertíð var alls 500 og afli þeirra tæp 200 þúsund tonn.    af þeim þá náðu 15 bátar yfir 1000 tonnin.  241 bátur náði yfir 400 tonna afla sem er það viðmið sem ég nota um lista yfir vertíðarbátanna.  Skarðsvík SH varð aflahæsti báturinn á vertíð 1966 með tæp 1240 tonn.  

heildarafli fyrir utan síld og loðnu er því 338 þúsund tonn.  og eins og sést þá er langmestur hluti þess afla fenginn á vetrarvertíðinni.

Skrifað 27.11.2008 kl. 19:27 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.11.2008

smá af söfnun

NEi ekki beint söfnun til styrktar mér,  heheh
heldur annarsskonar talnasöfnun, því núna var ég að klára að skrifa árið 1966,( mun fjalla nánar um það ár seinna )og núna er ég byrjaður á árinu 1979.  fer ansi mörg ár fram í tímann.  Legg reyndar aðaláherlsunar á togaranna það ár enn tek með líka nokkra báta.
og hvernig byrjar árið 1979. 
jú bara nokkuð vel.  kem með nokkur dæmi

Bjarnarey VE silgdi einu sinni til þýskalands og var með 68 tonn.

Sigurbára VE var með 92.3 tonn í þremur ferðum í troll landað í Vestmanneyjum.

Jón Á Hofi ÁR réri á netum frá Þorlákshöfn og var með 150 tonn í 8 ferðum.

Reynir GK var á trolli frá Sandgerði og var með 82.2 tonn í 10 ferðum.

Frigg BA var á línu frá Tálknafirði og var með 144.3 tonn í 20 ferðum

og af togurnum þá má nefna að Kaldbakur EA ( sem núna heitir Sólbakur EA ) var með 432.9 tonn í 3 ferðum eða 144 tonn í löndun.

og Klakkur VE var með 239.1 tonn í tveimur ferðum landað í Vestmannaeyjum.

Þetta er bara smá brot af því sem ég er búinn að skrifa.  Allavega veit ég það að nokkrir netabátar komust yfir 500 tonn á mánuði vertíðina 1979.

Skrifað 19.11.2008 kl. 20:51 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.11.2008

Strand Grímsnes GK



Mynf Hafþór Hreiðarsson.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir

Á www.mbl.is, þá er ég ´buinn að vera fylgjast með því sem skeð hefur fyrir Grímsnes GK núna í dag.
Báturinn strandaði á Sandrifi 3,2 sjómílur norðaustur af Skarðsfjöruvita.  Sjókælir skaddaðist í skipinu og brugið var á það ráð að kæla vélina með ferskvatni, en það er búið og er því búið að drepa á aðalvélinni.  Verður Grímsnes GK dregið núna til Vestmannaeyja þar sem verður hugað að skemmdum á Grímsnesi GK.

SEm betur fer þá hafa enginn slys orðið á áhöfn skipsins enn hún telur 9 manns, enn hérna á síðunni þá hefur Grímsnes GK gengið ansi vel á netalistanum og var´búinn að fá rum 150 tonn núna á nýjasta listanum sem kom á síðuna í gær. 

 

Skrifað 19.11.2008 kl. 13:45 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.11.2008

Kafbáturinn Friðrik Sigurðsson ÁR


Mynd Gísli Reynisson

Eins og menn gátu fylgst með hérna á síðuni þá var ansi góð ufsaveiði hjá bæði Erling KE og Friðriki Sigurðssyni ÁR.  Friðrik Sigurðsson ÁR var ekki búinn að koma með neina löndun inná listann, enn það breyttist nú.
Báturinn gerði sér lítið fyrir og kom með tæp 101 tonn að landi og af því var ufsi rúm 97 tonn. 
Að netabátur nái yfir 100 tonn í löndun er mjög sjaldgjæft, enn það eru til dæmi um 100 tonna róðra á einum degi á vetrarvertíð, enn þessi róður er eftir útilegu, enn engu að síður svakalegur afli.
Þetta toppar alla róðranna sem Erling KE gerði í október.  .
Myndin hérna að ofan sýnir bátinn tómann við bryggju, enn ég á ekki mynd af bátnum með þennan mikla afla enn það er spurning hversu mikið báturinn hefur sigið, hvort að hvíta línan hafi náð niður í sjó??. 

Skrifað 14.11.2008 kl. 9:09 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.11.2008

Nokkrar Kannarnir

Menn hafa nokkuð gaman af þessu könnunum sem eru hérna á síðunni,  er búinn aðhenda inn þremur núna, og kanski munu einhverjnar bætast við gagnvart netabátunum og dragnótabátunum.
Allavega spurt er núna um þrjá hluti.
Fyrst er það um Úllu SH, enn Davíð sem er á Úllu SH hefur sýnt það að hann vill vera á listanum og það hefur gengið oftast hjá honum,  núna er báturinn búinn að fara tvær ferðir og er kominn með tæp 9 tonn , enn er í sæti númer 76, þannig að hans bíður hrikalegt verkefni að ná inná listann.
Næst er það um Ragnar SF,  um hvort hann verður efstur eða ekki. 
Og loks um Snjólf ÍS eða Einar Hálfdáns ÍS, enn núna er Snjólfur ÍS heldur betur að stríða Einari Hálfdáns ÍS , því Einar Hálfdáns ÍS hefur hingað til svo til drottnað yfir smábátalistanum undir 10BT, enn verður breyting á því núna í nóvember???

Skrifað 13.11.2008 kl. 9:03 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.11.2008

Síðan í rugli

ja það er aldeilis,  síðan nýbúinn að eiga eins árs afmæli og nokkru síðar fer hún í eitthvað algert rugl, enn allt önnur síða kom upp þegar skrifað var www.aflafrettir.com
enn það ætti að vera komið í lag núna,  hún var svo til lokuð frá því sunnudaginn þegar fyrst varð vart við þetta.

Skrifað 11.11.2008 kl. 8:15 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.11.2008

Bátar októbersmánarðins

Botnvörpungur Októbers:
    Vestmannaey VE.  Þó svo að báturinn flokkist sem trollbátur þá mokfiskaði Vestmannaey VE af ufsanum og náði hæst í 3ja sætið innan um ísfiskstogaranna.  Kom mest með tæp 92 tonn að landi.

Netabátur Októbers:
     Erling KE, Eins og Vestmannaey VE þá mokfiskaði Erling KE af ufsanum og er leitun að öðrum eins afla og báturinn fékk í október. 

Dragnótabátur októbers:

    Páll Helgi ÍS,  Þetta er einn af minnstu dragnótabátum sem gerðir eru út hérna við land.  og einn af fjórum eikarbáturm.  Páll Helgi ÍS lét lítið fyrir sér fara framan af október, enn byrjaði svo undir lokin að koma með hvern fullfermistúrinn af öðrum af þorski og komst mest í tæp 15 tonn að landi í einni ferðinni.  Og náði báturinn því að komast inná listann.  Fékk tæp 50 tonn í einungis 5 ferðum. 

Smábátur októbers yfir 10BT:
    Dögg SF,  Byrjaði í efsta sætinu og hélt því út mánuðinn,  reyndar þá náði Sirrý ÍS að komst í eitt sinn á toppinn, enn Dögg SF var þá ekki búinn að róa í nokkra daga samfleytt,  Að auki þá náði Dögg SF því að verða með mestan meðalafla allra smábátanna, 6,2 tonn.  Hafdís GK sem er aflamarksbátur enn er reiknaður með smábátunum var með 6,6 tonn að meðaltali. 

Smábátur októbers undir 10BT.
    
Einar Hálfdáns ÍS,  Þessi bátur er svo til búinn að drottna yfir  litlu smábátunum frá því að Einar Hálfdáns ÍS byrjaði að róa.  Átti í nokkuri samkeppni við Kára SH sem náði að komst frammúr Einar Hálfdáns ÍS um tíma í október.

hvað finnst mönnum svo um þetta val.

Skrifað 7.11.2008 kl. 8:15 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.11.2008

Dragnót í Október

Listi númer 10.
Lokalistnn,  og Jón á Hofi ÁR stelst í efsta sætið,  sem þýðir að Geir ÞH náði ekki að verða hæstur fimmta mánuðinn í röð, enn þeir náðu þó 9 sætinu. 
Arney HF fer upp um 14 sæti og endar í 11 sætinu. 
Það fer vel á því að tvö neðstu sætin skipi eikarbátarnir Páll Helgi ÍS og STefán Rögnvaldsson HU


Sæti Sæti áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 4 Jón Á Hofi ÁR  155,921 5 64,8
2 1 Steinunn SH 152,982 11 53,5
3 2 Margrét HF  139,234 16 24,6
4 3 Hásteinn ÁR  128,255 5 55,1
5 5 Vestri BA 104,552 5 24,5
6 9 Arnar ÁR 103,754 6 23,8
7 6 Aldan ÍS 97,695 17 9,7
8 12 Jóhanna ÁR  94,989 12 17,4
9 8 Geir ÞH 89,264 5 23,2
10 7 Valgerður BA  88,41 10 15,4
11 25 Arney HF  77,972 5 25,4
12 10 Grímsey ST 77,889 16 6,2
13 11 Egill ÍS 77,598 11 12,4
14 13 Sigurfari GK  73,474 5 23,2
15 16 Esjar SH 70,519 13 13,9
16 14 Sæberg HF 69,742 5 23,6
17 15 Egill SH 64,849 13 8,9
18 24 Örn KE 62,029 12 7,4
19 17 Reginn HF 61,979 18 10,2
20 18 Ólafur Bjarnarsson SH  61,319 13 14,7
21 19 Sólborg RE   59,727 7 17,8
22 20 Þorsteinn BA 58,994 15 8,8
23 21 Guðmundur Jensson SH 57,743 4 15,1
24 22 Páll Helgi ÍS 57,404 10 14,5
25 23 Stefán Rögnvaldsson HU  57,336 17 7,1

Skrifað 5.11.2008 kl. 9:24 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.11.2008

Línubátar í Október


Listi númer 13.

Það er orðið útséð að Dögg SF er orðinn aflahæsti smábáturinn í október.  Það er ekki hægt að skrifa þennan listan sem lokalista vegna þess að ennþá eiga eftir að koma tölur yfir nokkra báta sem eru á þessum lista,  t.d Happadís GK og Auði Vésteins GK.  Og talandi um tölur sem koma seint.  Hafdís GK og Hildur GK voru aðkoma með tölur inn og fór t.d Hildur GK í 7,1 tonn.  Báðir bátarnir eru í sætum númer 26 og 27.  Gísli KÓ kemur aftur inná listann.
Í neðri listanum þá minnkaði Kári SH aðeins bilið í Einar Hálfdáns ÍS enn ekki nóg til þess að ná honum.

Og annað.  Það er kveðja frá Kanada hérna í ummælum á listanum og mig grunað að það tengist Daðey GK sem er að róa frá Kanada.  Gaman væri ef einhver þaðan gæti sett sig í samband við mig þannig að hægt væri að skoða aflan hjá Daðey GK.  ( skella bátnum á listann)

Sæti Sæti Áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 1 Dögg SF  93,725 15 9,4
2 2 Sirrý ÍS  85,144 22 6,1
3 3 Guðmundur Einarsson ÍS 83,932 23 8,2
4 9 Happadís GK  79,891 16 10,3
5 4 Bíldsey SH 74,654 16 6,9
6 6 Benni SF  73,386 17 7,9
7 7 Tryggvi Eðvars SH  71,564 17 6,2
8 Narfi SU  70,882 14 7,3
9 5 Háey II ÞH  70,734 18 10,7
10 8 Ragnar SF  69,087 13 9,1
11 16 Auður Vésteins GK  68,826 17 8,3
12 11 Landey SH  65,664 19 6,5
13 14 Hópsnes GK  63,538 18 6,6
14 10 Björgmundur ÍS 58,836 20 6,7
15 19 Guðmundur Sigurðsson SF 58,589 14 7,1
16 17 Brynja SH 57,228 15 6,1
17 21 Siggi Bessa SF 56,507 15 5,8
18 20 Flugaldan ST 55,339 16 7,1
19 12 Þórkatla GK 55,051 13 7,2
20 13 Gestur Kristinsson ÍS 54,473 16 5,6
21 15 Óli á Stað GK   53,968 13 6,6
22 25 Von GK 52,93 18 4,9
23 27 Gísli KÓ   52,583 15 4,6
24 18 Jonni SI 52,55 10 7,6
25 26 Beta VE  51,621 15 5,6
Sæti Sæti Áður Smábátar undir 10 BT Afli Róðrar Mest
1 1 Einar Hálfdáns ÍS 54,247 15 5,4
2 2 Kári SH  52,853 14 7,2
3 3 Snjólfur ÍS  35,229 12 3,5
4 4 Berti G ÍS  33,748 12 4,1
5 5 Petra SK  33,55 8 5,3
6 9 Eydís EA    32,328 11 4,7
7 8 Glaður SH  31,921 11 3,6
8 6 Ásdís ÍS 30,723 12 4,1
9 7 Milla GK 30,618 15 2,3
10 10 Birta Dís ÍS  25,955 10 4,6
11 11 Toni EA   25,275 14 2,2
12 16 Birta SH  25,548 11 3,2
13 12 Hrönn ÍS 23,131 10 3,8
14 13 Blossi ÍS  22,71 9 3,8
15 15 Hólmi NS  22,227 9 4,4

Skrifað 4.11.2008 kl. 12:52 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

27 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.11.2008

Bátar mánaðarins


Mynd Gísli Reynisson

Ég er að hugsa um að velja einn bát í hverjum listaflokki fyrir sig, og kalla hann bát mánarðins.  Myndi þá vera valin Netabátur mánaðarins,  Krókabátur mánarðins og sá flokkur yrði tvískiptur, annars vegar bátar yfir 10BT og bátar undir 10BT.  Botnvörpungur mánaðarins og Dragnótabátur mánaðarins. 
Eins og staðan er núna þá mun ég einn velja þessi skip, enn ykkur er að sjálfsögðu frjálst að koma með hugmyndir( og jafnvel ef menn vilja þá væri hægt að gera eitthvað meira úr því.). Það er reyndar eitt, ef menn vilja koma með hugmyndir um báta þá væri sniðugast að rökstyðja það líka.  

  Við mat á valinu er ekki endilega horft á þann sem er efstur, þó svo að það spili ansi stórt hlutverk inní.  Annað sem hefur líka áhrif er t.d fiskaði báturinn eitthvað óvænt meira heldur enn aðrir yfir eitthvað ákveðið tímabil og svo framvegis.  Ég hef nú þegar myndað mér skoðun á því varðandi krókabátanna sem og dragnótabátanna. 
Þessi liður er hugsaður sem fastur liður í lok hvers mánaðar. 

Skrifað 3.11.2008 kl. 20:20 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.11.2008

Auður Vésteins GK


Mynd Rafn á Óla á Stað GK.

Núna í október þá hefur Tobbi skrifað um hvar Auður Vésteins GK sé á listanum.  og núna í nýjasta kommenti hans víkur hann að því hvort sé verið að sniðganga bátinn.
Mér þykir rétt að svara þessu.  Ég skrifaði pistil sem heitir Týndu Bátarnir. ( má lesa hana hérna. http://www.aflafrettir.com/blog/record/306086/). 
Aflatölur um Auði Vésteins GK birtast má segja í tveimur hlutum.  fyrst kemur afli sem líklega fer á markað fyrir austan, svo nokkrum dögum seinna kemur restinn af aflanum.  Þetta sama gildir fyrir nokkra aðra báta. eins og t.d Hafdísi GK ( siglufirði), Happadís GK og Hildur GK. 
Ég skil vel að Tobbi velti því fyrir sér hvort ég sé að sniðganga bátinn, enn það er nú aldeilis ekki.  þegar ég reikna krókabátanna þá fer ég í gegnum alls sirka 150 báta( bæði yfir og undir 10BT að stærð).  eins og núna í október þá er ég búinn að uppfæra listann 12 sinnum, og alltaf fór ég í gegnum Auði.  Marga þessa báta þarf ég að endureikna æði oft útaf þessum ruglingi með aflatölurnar hjá þeim.  Mér þykir þetta helvíti leiðinlegt því þetta eykur mjög svo vinnu mína við síðuna að þurfa að endurreikna bátanna.
Enn allavega ég er búinn að endureikna Auði Véststeins GK og hún er kominn inná listan,  Og ég sniðgeng enga báta,  Tek fram að það er enginn reiði í mér útaf þessum skrifum hans Tobba, eins og Óðinn Arnberg á Odd í Nesi SI sagði " Rétt skal vera Rétt".

Skrifað 3.11.2008 kl. 19:17 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.11.2008

Netabátar í október.

Listi númer 8.

Það eru fleiri heldur enn togarnir sem eru komnir yfir 400 tonn, því Erling KE er kominn yfir 400 tonnin.  Núna landaði Erling KE á Hornafirði, enn þar er Hvanney SF að róa á netum,, Hvanney SF rær á þorskanet og var t.d með 45 tonn í 4 ferðum. 
Grímsnes GK landaði á Þorlákshöfn og er búinn að vera á ufsaveiðum.  Annars er smá hreyfing á bátunum neðar á listanum, og var t.d Ársæll Sigurðsson HF með 3,7 tonn sem báturinn landaði í Sandgerði.

Sæti Sæti áður Nafn afli Róðrar mest
1 1 Erling KE  427,328 6 87,9
2 2 Friðrik Sigurðsson ÁR  258,26 6 71,5
3 4 Hvanney SF  142,706 16 14,5
4 3 Kristrún RE  115,059 1 115,1
5 6 Grímsnes GK  106,667 7 36,8
6 5 Ósk KE  91,117 17 23,5
7 7 Magnús SH  71,954 15 8,2
8 8 Maron GK  60,047 19 4,4
9 10 Glófaxi VE  55,501 6 23,6
10 9 Marta Ágústdóttir GK  44,699 9 14,4
11 11 Hafnartindur SH 29,708 16 3,1
12 12 Happasæll KE  27,726 14 3,8
13 13 Ísak AK  23,681 11 4,1
14 15 Portland VE 22,783 6 6,7
15 17 Ársæll Sigurðsson GK  20,845 12 3,7
16 20 Sæþór EA  19,872 12 2,9
17 14 Keilir II AK  19,576 11 3,1
18 18 Reynir Þór SH 17,959 11 2,6
19 19 Svala Dís KE  17,544 12 3,1
20 16 Katrín SH 17,486 14 2,4
21 24 Sproti SH 13,947 4 4,8
22 23 Gullfari HF  13,471 8 2,6
23 21 Níels Jónsson EA  13,022 16 2,2
24 22 Pétur Afi SH  10,608 10 2,8
25 25 Maggi Jóns KE    8,796 11 1,6

Skrifað 3.11.2008 kl. 16:55 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

12 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.11.2008

Botnvörpungar í Október.

Listi númer 8 .
Það er orðinn ansi stór hópru skipa sem er kominn yfir 400 tonnin alls 7 skip.  Múlaberg SI er eitt þeirra og er þetta einn besti árangur skipsins frá því ég hóf listasmíðina.  Vestmannaey VE er kominn yfir 400 tonnin.
Dala Rafn VE er á ansi miklli ferð upp listann, og var skipið núna með 95 tonn í tveimur ferðum. 

Skipin eru flokkuð í nokkra flokka, og eru þeir sundurgreindir með litum.
þeir flokkar sem eru í gangi eru eftirfarandi:
Ísfiskstogarar eru í þessum lit.

3 Mílna skipin eru í þessum lit

4 Mílna skipin eru í þessum lit

 

Sæti Nafn Afli Landanir Mest Fjöldi Gáma
1 Ásbjörn RE  477,755 4 138,8
2 Björgúlfur EA  454,393 5 107,5
3 Ottó N Þorláksson RE  446,905 4 138,3
4 Páll Pálsson ÍS  442,844 5 144,9
5 Múlaberg SI 433,635 5 97,8 3
6 Vestmannaey VE  410,371 5 92,4 9
7 Kaldbakur EA  405,196 3 188,5 8
8 Bjartur NK  399,422 5 105,3
9 Sturlaugur H Böðvarsson AK  379,494 4 130,3
10 Gullver NS  378,526 4 129,1 4
11 Klakkur SH  333,792 3 142,1
12 Gullberg VE  329,65 7 58,6 23
13 Dala Rafn VE  319,235 6 97,1 3
14 Hringur SH 318,771 5 80,3
15 Stefnir ÍS  317,132 5 98,5
16 Ljósafell SU  303,279 4 81,1
17 Jón Vídalín VE 295,469 5 71,5 14
18 Bergey VE  262,885 4 79,3 7
19 Sóley Sigurjóns GK  252,3 5 54,1 6
20 Suðurey VE 248,146 4 87,2 8
21 Bylgja VE 243,538 6 56,5 18
22 Smáey VE  239,723 5 67,8 7
23 Bergur VE  230,505 4 75,3 11
24 Steinunn SF 225,223 5 56,2 6
25 Berglín GK  208,583 5 64,1 4
26 Brynjólfur VE   202,8 6 75,1 16
27 Skafti HF   199,325 4 67,5
28 Helgi SH 198,006 5 54,9 2
29 Vörður EA  173,017 4 46,1 9
30 Sóley SH 159,597 5 40,1 7
31 Farsæll SH  157,379 5 42,2
32 Óskar RE  155,186 8 48,3
33 Frár VE  126,173 4 41,7 7
34 Þinganes SF 109,76 4 34,6
35 Sigurborg SH  92,51 2 47,1 5

Skrifað 3.11.2008 kl. 15:04 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.11.2008

Mokveiði hjá Pál Helga ÍS, smá viðbót

Skoða nánar

2.11.2008

Aflafrettir.com eins árs.

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Tenglar

/body>