Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 825
Gestir í dag: 199
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2371469
Samtals gestir: 530462
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 08:44:35

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

Færslur: 2008 Október

29.10.2008 11:12

Furðuleg Bátsnöfn

Furðuleg bátsnöfn.
.
Í gegnum tíðina þá hafa oft komið fram bátsnöfn sem er vægast sagt mjög furðuleg og skrýtin.  
´Líklegast eitt þekksta dæmið um nöfn sem fengu mikla athygli er þegar Clinton GK og Monika GK hófu róðra frá sama staðnum. Enn þetta var eftir að persónur með sömu nöfnum fengu heimsathygli útaf smá ævintýri hjá þeim báðum.  Núna í dag eru nokkuð kanski ekki beint furðuleg nöfn, enn nöfn engu að síður sem eru nokkuð öðruvísi.
Strax kemur upp í hugan Hróðgeir Hvíti NS.  Snjólfur ÍS er nokkuð tormelt nafn, og það er eins og það sé smá húmor í nafninu Pési Halti ÍS.

Öll þessi nöfn hafa líklegast einhverja merkingu fyrir eigandann.  Í aflaskýrslum sem ég er að faraí gegnum árið 1966 rakst ég á eitt nafn sem að mínu mati er eitt það allra furðulegasta sem ég hef séð.  Þarna er bátur sem réri frá Raufarhöfn og hét því skemmtilega nafni Goggur Glænefur ÞH. ég þurfi að lesa mig nokkuð vel í gegnum bunkann til að vera viss um að þarna væri ekki stafsetningarvilla.  Um þennan bát veit ég ekki neitt.  í bókinni Íslensk skip er ekkert um bátinn.  Ég efast um að sjálfur Emil Páll sem er manna fróðastur um sögu báta hérna á landinu viti eitthvað um þennan bát með þessu furðulega nafni.
Eru einhver önnur furðuleg bátsnöfn sem mönnum dettur í hug sem menn vita til ??

27.10.2008 21:15

Kristinn SH


Mynd Jobbi og Gummi, færi ég þeim bestu þakkir fyrir.

Eftir að útgerð Kristins SH ákvað að hætta í smábátaútgerð og fara yfir í aflamarkið þá má segja að smábátalistinn hafi misst stóran bát.  Smábáturinn Kristinn SH var iðulega á topp 5 svo til alla tíð þá lista sem ég í það minnsta reiknaði.  
Núverandi Kristinn SH byrjaði í sumar og var að mestu þá á lúðuveiðum, Í september þá réri bátuinn frá Ólafsvík enn færði sig yfir á Skagaströnd undir lok mánarðins, og fékk þar 63 tonn í 6 ferðum, stærsti róður tæp 19 tonn.  
Núna í október þá er Kristinn SH búinn að halda sig á skagaströnd og hefur gengið nokkuð vel.  Er báturinn kominn með 113 tonn í 11 ferðum , stærsti róður tæp 13 tonn.
Myndin af bátnum er einmitt tekinn þegar báturinn var að fara frá Skagaströnd í róður.  

22.10.2008 10:14

Mokveiði á ufsanum.


Mynd Gísli Reynisson

Það er búið að vera þvílíkt mok á ufsanum´hjá stóru netabátunum.  Einungis 3 bátar hafa eitthvað að ráði verið á ufsaveiðum, og var t.d Grímsnes GK með tæp 37 tonn í einni löndun, og Friðrik Sigurðsson ÁR kom með 71 tonn.
Erling KE hefur má segja slegið hvert metið, því báturinn er einungis búinn að landa fjórum sinnum í októbert enn er samt kominn með 294 tonna afla.  eða sem svarar 73 tonnum í róðri.
Róðralega þá voru landanir hjá Erling KE eftirfarandi:
6.okt:  landaði 80,1 tonni og af því var ufsi 72,1 tonn.
9.okt:  Landaði 51,9 tonni og af því var ufsi 46,8 tonn
16.okt  Landaði 87,7 tonnum og af því var ufsi 84,9 tonn
19.okt  Landaði 74,1 tonni og af því var ufsi 70,1 tonn.
semsé tæp 274 tonn af ufsa í 4 ferðum. 

21.10.2008 10:23

Sú Fyrsta.


Það er vel við hæfi núna rétt áður enn www.aflafrettir.com verður eins árs, að fyrsta fyrirtækið er komið inn með auglýsingu.  Efst í horninnu hægra meginn er kominn kassi með nafninu Heimahúsið., og jafnframt er það tengill inná síðuna.   Heimahúsið er samheiti fyrir fyrirtækin Heima, Mood og Öndvegi og eru þetta allt húsgagnafyrirtæki.   Saman eru þau staðsett á síðumúla 30 í Reykjavík.
Því er ekki að leyna að ég er mjög ánægður með að síðan er farin að skila smá af sér,. því bakvið síðuna liggur ansi mikil vinna, og hvet ég því lesendur síðunnar til þess að smella á linkinn og skoða hvað býr að baki.

19.10.2008 05:36

Dragnótakönnun

ÉG setti inn smá könnun í gærkveldi um krókabátanna.  Og það má ekki gleyma dragnótabátunu,,. enn sá listi hefur verð ansi líflegur hérna á síðunni.  t.d voru alls 6 bátar sem komust á toppinn í september.
Geir ÞH er búinn að vera hálfgerður einvaldur núna síðustu 4 mánuði,  honum hefur tekist það að vera aflahæstur síður 4 mánuði, og er það mjög sjaldgæft.
Núna er einmitt spurt um Geir ÞH, og spurt er " nær Geir ÞH að verða hæstur 5 mánuðinn í röð?.
Gefnir eru upp 10 svarmöguleikar.

18.10.2008 19:03

Könnun

Sverrir á Höppudís GK kom með þá hugmynd að henda inn annari könnun eða áskorun svipað og var gert í september, enn þar var einmitt spurt um Höppudís GK.
Núna er önnur svoleiðis kominn í gang og spurninginn er einföld. " Verður Ragnar SF aftur hæstur".  gefnir eru upp 10 svarmöguleikar. 

17.10.2008 18:15

Týndu Bátarnir??

ÉG hef verið að fá pósta hérna þar sem menn hafa verið að velta því fyrir sér, hvort t.d Auður Vésteins GK eða Hildur GK séu ekki með í krókabátalistanum. 
Jú því er til að svara að alls eru hátt í 100 bátar sem eru yfir 10 BT að stærð og sirka jafn margir bátar sem eru undir 10 BT að stærð á skrá hjá mér.  og alla þessa bátar þarf ég að reikna fyrir hvern einn og einasta lista
Málið er bara það að aflatölur fyrir þónokkuð marga báta eru mjög lengi að koma inná fiskistofuvefinn.  Á það sérstaklega við um t.d Hildi GK, Baddý GK, Vilborgu GK og núna Auði Vésteins GK.  Einnig er það með GK bátanna sem landa á Siglufirði og Skagaströnd,  þar kemur þorkurinn mjög seint inn eftir löndun.  Hjá t.d Muggi GK þar kemur talan strax inn.
Þessi seinkun á tölum inn gerir það að verkum að bátarnir koma seinna inn á listann, ef þeir yfir höfuð komast á listann. 

17.10.2008 17:19

Húsavík árið 1965

    Eins og sumir hafa tekið eftir þá er ég að vinna í söfnun aflatalna aftur í tímann.  Núna er ég í árinu 1965 og er að vera búinn með það.  Skjölin sem ég er vinn í eru mjög stór.  Eitt blað er 55 cm á lengd og 36 cm á hæð.  Ansi stórt.  hvert blað er með nafni fiskvinnslunar og alla þá bátar sem þaðan landa.  Á hverju blaði er annaðhvort miðað við einn mánuð í einu eða þá mánuðunim skipt í tvö tímabil og er þá miðað við 15 hvers mánaðar.
Einn bær eða réttara sagt eitt fyritæki hefur alltaf verið ansi stórt verkefni fyrir mig að fara í gegnum.  og er það Fiskiðjusamlag Húsavíkur sem þá var.  árið 1965 þá var verkefnið sem beið mín mjög stórt því þessi stóru blöð voru alls tæp 40 talsins, og það tók mig rúma 3 klukkutíma að fara í gegnum þennan mikla bunka.  Blöðin frá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur voru öll með þeim mestu og þykkustu af öllum fyrirtækjum á landinu.

Ansi margir bátar lönduðu hjá Fiskiðjusamlaginu þetta ár, og voru þeir eftirfarandi:
Þeir bátar sem lönduðu afla á bilinu 0 til 50 tonn voru eftirfarandi:
Anna ÞH
Ársæll ÞH
Baldvin ÞH
Bára ÞH
Brandur ÞH
Drífa ÞH
Dvergur ÞH
Farsæll ÞH
Fram ÞH
Gosi ÞH
Guðrún ÞH
Helgi ÞH
Hafliði ÞH
Júlli ÞH
Kópur ÞH
Óli ÞH
Kristján ÞH
Mari ÞH
Mökkur ÞH
Öngull RE.  Landaði á húsavík allt sumarið á færum
Óskar ÞH
Otur ÞH
Sæunn ÞH
Sigurpáll ÞH
Sindri ÞH
Sporður ÞH
Þráinn ÞH
Tjaldur ÞH
Ver AK .  Réri allt árið frá húsavík, bæði á línu og færi.  
Þengill ÞH
Héðinn ÞH
Veiðibjalla ÞH
Björn ÞH
Björg GK
Jón Hannson ÓF.  landaði einu sinni 0.5 tonni á færum
Gustur ÞH
Hrönn EA.  landaði einu sinni 2.5 tonni á færum

Bátar sem voru með 50 til 100 tonn voru eftirfarandi:
Hrói ÞH, var með 75 tonn í 104 sjóferðum
Kristján ÞH var með 56 tonn í 103 ferðum
Sæfari ÞH var með 69 tonn í 100 ferðum
Vilborg ÞH var með 61 tonn í 124 ferðum

Bátar sem voru með 100 tonn til 200 tonn voru eftirfarandi:
Andvari ÞH 
Svanur ÞH.  báðir þessir bátar lönduðu öllum afla sínum hjá Fiskiðjusamlaginu nema þorski sem  var landað hjá öðru fyrirtæki.
Bátar yfir 200 tonn voru eftirfarandi.
Fanney ÞH.  Báturinn var jafnframt aflahæsti húsavíkurbáturinn sem landaði hjá Fiskiðjusamlaginu.  var báturinn með 455 tonn í 127 ferðum.  mest tæp 18 tonn í róðri.  Stundaði báturinn línu, neta, dragnót og nótaveiðar.  Náði báturinn t.d því að fiska 105 tonn í 10 ferðum í júlí það ár.

Freyja ÞH var með 363 tonn í 90 ferðum mest tæp 16 tonn í roðri

Grímur ÞH var með 274 tonn í 122 ferðum.  Nokkuð merkilegt með Grím ÞH.  Enn hann var eini báturinn sem réri með línu allt árið.

Kristbjörg ÞH var með 299 tonn í 87 ferðum.

Sæborg ÞH var með 275 tonn í 97 ferðum.

.Fanney ÞH, Sæborg ÞH, Freyja ÞH, Kristbjörg ÞH, Andvari ÞH og Svanur ÞH stunduðu allir dragnótaveiðar og er sá afli ekki meðtalinn í aflayfirlitinu að ofan.

Eins og sést á þessu yfirliti þá er þarna um ansi mikinn fjölda báta og alls eru þetta ansi margir bátar, eða alls 47 bátar,  Heildarafli sem var landaður hjá Fiskiðjusamlaginu árið 1965 var því 3134 tonn af bolfiski.

Þetta er ansi mikil lesning,  og kanski ekki allir sem hafa áhuga á þessu ári 1965, enn þetta er ágætis tilbreyting frá listunum sem eru á fullu hérna á síðunni.


14.10.2008 08:47

Humarveiðar 2008



Humarlisti númer.18.

Það er að verða hátt í mánuður síðan ég uppfærði humarlistann.  Núna þótt í október sé komið þá eru enn nokkrir bátar að humarveiðum.  Jón á Hofi ÁR réri allan september, enn er kominn á dragnótina núna.  Þórir SF, Erlingur SF og Sigurður Ólafsson SF róa frá hornafirði, enn þess má geta að Sigurður Ólafsson SF hafði þá ekkert róið síðan í enda maí.
Í vestmannaeyjum er það Narfi VE, og svo er Fróði II ÁR að róa.

Þess má geta að allur humarafli sem hérna er á listanum er óslitinn humar.
Sæti Nafn Humarafli Róðrar Fiskur % humars af heildarafla
1 Jón á hofi ÁR 280,1 34 311,1 47,4
2 Þórir SF 257,3 45 271,3 48,7
3 Erlingur SF  221,6 43 205,7 51,8
4 Ársæll ÁR  180,1 31 229,1 44
5 Gandí VE 176,1 30 216,3 44,9
6 Fróði ÁR 138,1 20 123,2 52,8
7 Skálafell ÁR 101,5 25 93,7 52
8 Fróði II ÁR 91,8 17 116,9 44
9 Hvanney SF 85,9 14 67,9 55,9
10 Friðrik Sigurðsson ÁR 85,1 18 99,6 46,1
11 Narfi VE  80,1 34 179,1 30,9
12 Sigurður Ólafsson SF  67,3 18 110,6 37,8
13 Jóhanna ÁR 59,5 16 83,3 41,7
14 Brynjólfur VE 52,9 7 48,8 52
15 Glófaxi VE  50,3 14 93,3 35
16 Gæfa VE 38,5 14 105,5 26,8
17 Þorsteinn Gíslasson GK 36,9 12 82,5 30,9
18 Reynir GK 17,3 11 15,1 53,3
19 Reginn HF  10,5 8 2,5 80,5
20 Dröfn RE  10,4 8 25,4 29,1
21 Mundi Sæm SF 5,2 16 12,6 29

 

10.10.2008 07:47

Markús á Júpiter RE árið 1965.

Hérna neðst í þessum pistli mínum þá endaði ég á því að koma með þá spunringu um hvaða togari hefði verið þriðji aflahæsti togari landsins árið 1965.
Það voru nú ekki margar giskanir, enda kanski ekki margir notendur síðunnar sem þekkja eitthvað til togaranna árið 1965.
Enn það var t.d giskað á Mars RE og Þormóð Goða RE.  Enn hvorugt er rétt, og reyndar var togarinn sem lenti í þriðja sætinu ekki einu sinni gerður út frá höfnum sunnanlands.
´Þá eru nú ekki margir togarastaðir eftir.  þeir stærstu fyrir utan sunnanhafnirnar voru t.d Siglufjörður og Akureyri.  Á Siglufirði var mikið aflaskip sem hét Hafliði SI.  Enn á Akureyri þar voru líka mikil aflaskip og eitt af þeim varð einmitt þriðji aflahæsti togari landsins árið 1965. og var það togarinn Harðbakur EA.         Þetta kemur kanski mönnum á óvart sérstaklega þar sem enginn giskaði á togara að norðan.

Ég Mun fjalla nánar um Harðbak EA síðar.

Hérna í stikunni til hliðar er flokkur sem heitir "Gömul Tíð".  inní honum er nokkrir pistlar sem allir tengjast afla nokkuð langt aftur í tímann.  Ég fjallaði um Sigurð ÍS og Maí GK í tveimur sitthvorum pistlunum og fór þá yfir aflann á þeim báðum mánuð fyrir mánuð.

Í gestabókinni hérna á síðunni þá skrifaði Óskar M Ólafsson, og bar fram eftirfarandi spurningu.  " Hvað skyldi Markús á Júpiter haft í þessa þróttmiklu dalla árið 1965?".
Mjög flott orðuð spurning.  og mér er það sjálfsagt verkefni að svara þessu.

Júpiter RE var einn af 6 togurum sem yfir 3000 tonn fóru árið 1965.  og varð Júpiter RE reyndar 4 aflahæsti togarinn það ár. 
Mánuð fyrir mánuð leit árið svona út hjá Júpiter RE.

Janúar.  Enginn afli er skráður á togarann

Febrúar: Ein löndun 233 tonn, 

Mars:  Landaði einu sinni 165 tonni, 

Apríl:  Landaði í ´þýskalandi 203 tonni í einni ferð

Maí :  Landaði einu sinni 262 tonni, fullfermi.

Júní:  Mokveiði, landaði þrisvar alls 692 tonni eða um 231 tonn í löndun.  Þessi mánuður hjá Júpiter RE var ansi góður,  Togarinn var næstaflahæsti togarinn í þessum mánuði, Kaldbakur EA varð hæstur með yfir 700 tonn.

Júlí: Landaði tvisvar alls 431 tonni eða 215,5 tonn í löndun

Ágúst: Mjög góður mánuður, landaði tvisvar alls 518 tonnum eða 259 tonn í löndun.

September: Byrjaði að sigla, og allar landanir á haustinu árið 1965 voru silgt, mestmegnis til þýskalands.  Landaði einu sinni alls 256 tonnum.

Október: Landaði einu sinni 153 tonnum.

Nóvember:  Landaði einu sinni 92 tonnum.

Desember : landaði einu sinni 181 tonnum

Heildaraflinn hjá Júpiter RE var því 3183,6 tonn í einungis 15 sjóferðum eða sem svarar 212,2 tonn í löndun.

SVo bendi ég á að í flokknum "Gömul tíð" þá er hægt þar að bera saman þessa þrjá togara. mánuð fyrir mánuð, fyrir þá sem hafa gaman af því.

Eins og sést á þessu stutta yfirliti og það kemur jafnframt fram að ofan, þá varð Júpiter RE 4 aflahæsti togarinn árið 1965. og ætla að koma með smá spurningu í lokinn.
Maí GK varð hæstur, Sigurður ÍS annar, Júpiter RE fjórði, enn hvaða togari varð þriðji aflahæsti togarinn árið 1965?. 

05.10.2008 10:10

Krókabátar í September

Septemberlisti númer 12.

Lokalistinn??.  Jú það má líta á það.  Það gæti reyndar verið að eitthvað ætti eftir að bætast við enn það er þá sáralítið.  Allavega Ragnar SF er og var efstur allan mánuðinn.  Enn ég býst við því að næsti mánuður verði ekki eins auðveldur og þessi.  Nú er t.d Happadís GK kominn á flug, og SH bátarnir hafa verið að fiska ansi vel.  Sömuleiðis hefur Hópsnes GK verið að fiska vel enn hann gerir út frá Grindavík. 
Og Happadís GK.  Hann náði í sæti númer 6,  Narfi SU sem við endurreikning þá fór hann í sæti númer 5.  Er árangur Höppudísar GK mjög athyglisverður því hafa verður í huga að það vantar rúma viku inní róðranna.   
Landey SH endar mánuðinn vel þar sem hann fer upp um 9 sæti og fer beint í sæti númer 24. 
Hjá smábátunum undir 10BT, þá voru Einar Hálfdáns ÍS og Snjólfur að skiptast á sætum svo til allan mánuðinn, og enda þeir báðir í kringum 48 tonnin.  Kári SH fer upp um 6 sæti og í það 4.  4 bátar eru í 22 tonnunum og munar t.d ekki nema 9 kílóum á milli Björg Hauks ÍS og Berta G. ÍS og á milli Petru SK og Millu GK munar ekki nema 4 kíóum, enn Milla GK fór inná listann svona undir lokin.

Kem aftur með listann þar sem tölur voru að koma um Karólínu ÞH, enn í umsögn hérna að neðan þá var bent á að það vantaði inn róðra.  Og það var rétt. Ástæða þess var sú að þegar ég gerði "lokalistann" þá var ég marbúinn að renna yfir bátanna, enn alltaf kom upp að enginn afli væri á Karólínu ÞH eftir 25 septm.  
Sæti Sæti Áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 1 Ragnar SF  140,098 28 11,1
2 2 Dögg SF  119,757 22 9,1
3 3 Guðmundur Sigurðsson SF 104,094 25 7,9
4 4 Bíldsey SH 85,964 19 10,1
5 11 Narfi SU  85,908 14 9,1
6 10 Happadís GK  80,177 17 9,7
7 6 Þórkatla GK  79,334 18 8,5
8 5 Sirrý ÍS  76,981 27 7,6
9 8 Háey II ÞH  75,104 15 12,1
10 7 Hafdís GK  74,274 19 7,1
11 12 Karólína ÞH  74,181 18 5,7
12 9 Guðmundur Einarsson ÍS  64,83 27 3,2
13 14 Gísli Súrsson GK  64,385 17 6,6
14 15 Hópsnes GK  63,416 15 7,3
15 16 Óli á Stað GK   62,938 14 9,6
16 19 Hildur GK  56,215 20 4,1
17 13 Björgmundur ÍS  54,588 25 4,2
18 17 Oddur á Nesi SI  53,156 12 10,8
19 18 Óli Gísla GK  52,752 15 6,1
20 22 Stakkhamar SH   52,708 14 6,8
21 20 Sigrún Hrönn ÞH 50,731 14 4,5
22 26 Dóri GK  49,899 14 7,3
23 23 Benni SF  49,765 13 5,9
24 33 Landey SH  49,172 16 5,9
25 21 Særif SH  48,353 14 4,5
Sæti Sæti Áður Smábátar undir 10 BT Afli Róðrar Mest
1 1 Einar Hálfdáns ÍS   48,889 20 3,3
2 2 Snjólfur ÍS  47,126 19 3,1
3 3 Ásdís ÍS  28,848 15 2,8
4 10 Kári SH 26,777 8 4,7
5 7 Eydís EA    22,804 10 4,9
6 4 Hrönn ÍS 22,455 13 1,8
7 5 Björg Hauks ÍS  22,101 13 2,1
8 6 Berti G ÍS   22,092 10 2,7
9 11 Jói Brands GK   21,156 10 3,3
10 8 Einir SU  20,583 15 2,3
11 9 Petra SK  20,532 5 4,7
12 18 Milla GK  20,525 8 4,7
13 13 Sverrir SH  19,814 7 4,1
14 14 Magni á Búðum SH  17,526 9 2,7
15 12 Njörður BA  15,878 6 4,1




 

 

03.10.2008 10:24

Netabátar í september

Netalisti númer 10.

Friðrik Sigurðsson 'AR endaði í efsta sætinu,  Kristrún RE nær í 3ja sætið eftir um 130 tonna löndun.  Líklegast má búast við fjörugum netalista í okt.  Margir stórir netabátar eru hafnir veiðum. t.d Grímsnes GK, Marta Ágústdóttir GK og Hvanney SF.

Sæti Sæti áður Nafn afli Róðrar mest
1 2 Friðrik Sigurðsson ÁR 217,222 6 51,6
2 1 Erling KE  190,085 7 65,3
3 42 Kristrún RE 129,564 1 129,5
4 3 Magnús SH  96,233 15 10,2
5 6 Maron GK  67,89 17 7,4
6 4 Glófaxi VE  55,811 5 15,6
7 5 Happasæll KE  52,06 16 7,1
8 8 Grímsnes GK  45,293 7 10,6
9 10 Hvanney SF  38,133 8 7,8
10 7 Hafnartindur SH  37,244 17 3,2
11 9 Sæþór EA  31,8 13 5,2
12 11 Ísak AK  30,003 12 3,6
13 12 Keilir II AK  27,06 11 4,1
14 13 Katrín SH 25,869 11 6,1
15 14 Pétur Afi SH  25,214 13 3,5
16 17 Portland VE 20,775 4 6,3
17 15 Magnús ÞH 18,279 17 1,5
18 16 Ársæll Sigurðsson GK 16,489 14 4,8
19 18 Reynir Þór SH  15,97 10 2,7
20 20 Sunna líf KE  15,525 11 2,5
21 19 Dagrún ST  15,384 5 4,2
22 21 Máni ÁR  9,964 8 3,6
23 22 Gullfari HF  8,993 4 3,5
24 23 Maggi Jóns KE    8,969 9 1,9
25 24 Hafsvala HF  8,435 10 1,3







03.10.2008 09:04

Grálúðufullfermistúr hjá Kristrúnu RE

Mynd Jón Páll Ásgeirsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Í ágúst þá fiskaði Kristrún RE ansi vel af grálúðunni, kom t.d mest með tæp 90 tonn að landi í einni ferðinni.

Núna í september þá er báturinn búinn að toppa þann túr, sem og alla túranna sem Tjaldur SH gerði á grálúðunetunum. 

Báturinn kom með að landi 129,5 tonn og af því þá var grálúða tæp 121 tonn.  má áætla að aflaverðmætið hafi verið í kringum 40 milljónir. 

Þessi róður mun koma Kristrúnu RE ansi hátt á netalistanum

03.10.2008 08:56

Dragnót í September

 Listi númer 13.

SVona lítur þá lokalistinn út.  Geir ÞH tókst það ótrúlega að verða aflahæstur 4 mánuðinn í röð.  Þetta er líklegast met.  Allavega þau tæplega 5 ár sem ég hef séð um að gera dragnótalistanna, þá hefur ekki áður dragnótabátur náð því að verða aflahæstur 4 mánuði í röð.  Enn Listinn varð ansi fjölbreyttur, og alls náðu 6 bátar að fara á toppinn núna í september.  Það segir ansi mikið um lífið á listanum.
Lokalistinn Jóhanna ÁR og Aðalbjörg RE fara báðir yfir 110 tonnin, og var Aðalbjörg RE ásamt Örn KE einu bugtarbátarnir sem yfir 100 tonnin náðu.  Sólborg RE fer upp um 13 sæti, og Margrét HF upp um 16 sæti og kemst inná lokalistann.  Grímsey ST fer upp um 7 sæti, og er því báturin búinn að fá tæp 200 tonn núna í dragnótina á tveimur mánuðum.  Það verður að teljast mjög gott.

ÉG setti inn könnun um dragnótabátanna, og hún var í gangi í ansi stuttan tíma, og tæplega 40 manns tóku þátt og af þeum þá voru 42 % sem sögðu að Geir ÞH yrði hæstur, enn 29 % að Hásteinn ÁR yrði hæstur,  Síðan kom röðiin VAlgerður BA, Steinunn SH og Vestri BA

Sæti Sæti Áður Nafn Afli Róðrar Mest
1 2 Geir ÞH  205,527 11 30,2
2 1 Hásteinn ÁR  196,992 6 37,1
3 3 Vestri BA 165,123 10 28,9
4 4 Valgerður BA ( 146,978 17 15,8
5 5 Steinunn SH 126,419 11 27,3
6 6 Örn KE 119,231 17 17,9
7 14 Jóhanna ÁR 114,054 12 18,8
8 11 Aðalbjörg RE  111,794 17 12,5
9 7 Egill SH 107,398 17 11,1
10 9 Egill ÍS  106,25 17 9,3
11 8 Þorsteinn BA  102,352 21 9,4
12 10 Sveinbjörn Jakopsson SH 100,252 19 12,4
13 12 Þorleifur EA 93,704 20 8,7
14 15 Arnþór GK 91,462 14 18,5
15 28 Sólborg RE   90,337 7 26,3
16 13 Esjar SH 88,325 15 11,1
17 19 Njáll RE  84,405 16 10,2
18 26 Grímsey ST  84,049 16 6,6
19 35 Margrét HF  82,878 6 31,7
20 23 Benni Sæm GK 82,788 16 10,1
21 17 Arnar ÁR  81,581 4 34,5
22 21 Farsæll GK 1 81,31 15 10,6
23 18 Matthías SH   80,606 13 6,1
24 20 Gunnar Bjarnarsson SH  80,497 18 10,9
25 16 Eiður ÓF  79,754 22 6,1


02.10.2008 14:41

Könnun um Happadís GK


Mynd Gísli Reynisson

Eins og hægt var að lesa um í lokalistanum hjá krókabátunum þá náði Happadís GK því marki að komast inná topp 10.  og gott betur því báturinn náði að komast í 6 sæti listans.  Enn þótt báturinn hafi náð því á endasprettinum þá er ekki þar með sagt að það hafi verð eitthvað auðvelt verk.  þónokkurt bras var að komast inná efstu 10 , Því þar voru t.d Háey II ÞH, Sirrý ÍS, Bíldsey SH, Þórkatla GK, Hafdís GK og fleiri.  Af þessum bátum þá voru það einungis Bíldsey SH sem hafði betur enn Happadís GK, og Narfi SU.

ÉG setti inn könnun  um Höppudís GK  þar sem spurt var hvort báturinn kæmist inná topp 10?.

svörun var nokkuð góð, alls svöruðu 127 manns, og niðurstöður úr þeirri könnun var eftirfarandi.

11 sögðu að könnuninn væri heimskuleg, eða 8,66%

13 sögðu Nei ekki séns eða 10,24%

10 sögðu nær topp 15 eða 7,87%

12 sögðu nei eða 9,45%

21 sögðu já á topp 5 eða 16,54 %

60 manns sögðu já eða 47,24%

Ef jáin eru borin saman við Nei þá er niðuststaðan þannig að tæp 64% kjósenda sögðu já , enn tæp 28% sögðu nei.

Og því má ljóst vera að þeir sem kusu höfðu mikla trú á að Sverri og áhöfn Höppudísar GK myndi takast markmiðið sitt.  Og er ástæða til þess að óska þeim til hamingju með það

  • 1

Tenglar