> Aflafréttir og fleira - Blogg

 

Aflafréttir og fleira

Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir

Auglýsingapláss/styrkarlínur

auglýsingapláss
til
sölu,
og eða styrkarlínur.






 

Styrkja Síðuna

Styrktarreikningur síðunnar

kennitala.  2008753709

bankabók.0142-05-001072

Hvaða humarbátur verður hæstur árið 2010

 Ársæll ÁR

 Jón á Hofi ÁR

 Fróði II ÁR

 Kristbjörg VE

 Skinney SF

 Brynjólfur VE

 Þórir SF


Sýna niðurstöður

Hvað skoðar þú helst

 Smábátalista yfir 10 BT

 Smábátalista undir 10 BT

 NEtalista yfir 50 BT

 NEtalista undir 50 BT

 Dragnótalista

 Botnvörpunga

 Skoða alla lista jafnt

 Skoða helst Gömul tíð

 Línubátalista

 vill gerast styrkaraðili


Sýna niðurstöður

Sjá KVÓTASPJALL

 Já

 Nei


Sýna niðurstöður

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Kirkjuvegur 15

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-05-001072
Flettingar í dag: 1061
Gestir í dag: 301
Flettingar í gær: 2136
Gestir í gær: 426
Samtals flettingar: 1228338
Samtals gestir: 311029
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 16:36:16

Blogg

30.6.2008

Dragnótabátar.


Listi Númer 10.


ÞAð er nokkuð rólegt núna á þessum lista.  Hásteinn ÁR er kominn aftur í annað sætið. og Siggi Bjarna GK fer upp um 7 sæti.  Margrét HF kemur inná listann í fyrsta sinn, báturinn landaði í Vestmannaeyjum 41 tonni og af því voru sett í 2 gáma.  Er þessi löndun Margrétar HF einn af stærri dragnótaróðrum Margrétar HF.  
Tjálfi SU nær ennþá að halda sér inná listanum, enn báturinn hefur ekkert landað síðan 22.  

SætiNafnAfliRóðrarMest
1Geir ÞH164,349926,1
2Hásteinn ÁR144,907445,2
3Arnar ÁR136,128466,9
4Sæberg HF134,464553,1
5Valgerður BA114,9881418,1
6Ólafur Bjarnarsson SH110,0181118,5
7Sólborg RE104,427634,5
8Siggi Bjarna GK103,108921,4
9Gunnar Bjarnarsson SH97,4181012,1
10Örn KE 93,1581020,1
11Aðalbjörg RE 88,3291213,2
12Arnþór GK87,269913,8
13Egill ÍS 82,8131610,8
14Benni Sæm GK78,2441011,2
15Brimnes BA75,2231015,3
16Farsæll GK69,611110,9
17Margrét HF64,768541,1
18Sigurfari GK61,672330,1
19Egill SH59,565713,8
20         Tjálfi SU59,526137,5

Skrifað 30.6.2008 kl. 22:14 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.6.2008

Frystitogarar í MAÍ


Seint koma sumir enn kom þó.  málsháttur sem á ja hvað skal segja vel við núna.
Júní er að verða búinn og ég er að setja inn núna listann yfir frystitogaranna í Maí.

Frá því ég setti inn fyrst inn lista yfir afla frystitogaranna þá hef ég heldur betur fengið viðbrögð við því.  Æði mörg símtöl og pósta.  Fyrst var listinn bara með afla,  Síðan eftir nokkrar símhringinar þá bættust við úthaldsdagarnir.  Þeir eru reyndar nokkuð erfiðir þar sem þónokkrar útgerðir vildu ekki láta mig fá dagsetningu um það hvenær skipin fara út.  Varð ég því að reikna það. 
Á frystitogaralistinn rétt á sér???
Þónokkrir vilja meina að þetta útlit á listanum eigi ekki rétt á sér. og ástæðann jú, frystitogarar miða mest allt við aflaverðmæti.  Það skiptir mestu máli.  Væri hægt að hafa aflaverðmæti á listanum???
Ég geri mér alveg grein fyrir því að að raða skipunum eftir afla er kanski ekki rétt, langmarktækast væri að miða við aflaverðmætið.  
Við skulum sjá hvað setur.  Ég set allavega fram hérna maí listann í sama útliti og hina listanna.  

Listinn tekur á öllum löndunm skipanna og eru þær skilgreindar sem Löndun 1, sem er fyrri löndun togarans og löndun 2 sem er sú seinni.

Sæti Nafn Afli........ Dagar.... afli.per Úthd
1 Arnar HU  869.5         39 22.3
2 Þerney RE . Löndun 1 825.1        29 28.4
3 Venus HF 701.7        33 21.2
4 Snorri Sturlusson VE 685.3        28 24.5
5 Víðir EA löndun 1 678.1        30 22.6
6 Helga María AK 660.9        26 25.4
7 Þór HF 644.9        35 18.4
8 Örfirsey RE 607.8        32 18.9
9 Brimnes RE 586.7        25 23.5
10 Helga María AK löndun 2 572.9        18 31.8
11 Þerney RE löndun 2 543.6        21 25.9
12 Málmey SK  löndun 1 530.0        19 27.9
13 Gnúpur GK löndun 2 514.2        22 23.3
14 Víðir EA löndun 2 513.9        21 24.4
15 Freri RE 513.2        40 12.9
16 Gnúpur GK  Löndun 1 499.1        22 22.7
17 Guðmundur.Í.Nesi.RE.Löndun.1 494.6        28 17.6
18 Mánaberg ÓF löndun 2 482.8        25 17.8
19 Málmey SK  löndun 2 459.8        19 24.2
20 Kleifaberg ÓF 447.1        25 17.9
21 Baldvin Njálsson GK 442.9        33 13.4
22 Vigri RE 391.3        38 10.3
23 Guðmundur í Nesi RE löndun 2 389.6        27 14.4
24 Höfrungur III AK Löndun 1 382.6        34 11.2
25 Sigurbjörg ÓF  löndun 1 361.3        25 14.4
26 Mánaberg ÓF  Löndun 1 351.7        28 12.5
27 Hrafn GK löndun 1 349.7        29 12.1
28 Júlíus.Geirmundsson.ÍS.Löndun.2 345.4        29 11.9
29 Oddeyrin EA 339.6        29 11.7
30 Frosti ÞH löndun 1 316.2        18 17.6
31 Frosti ÞH Löndun 2 272.1        20 13.6
32 Sigurbjörg ÓF Löndun 2 262.1        21 12.5
33 Hrafn.Sveinbjarnarsson.ÍS.Löndun.2 205.7        27 7.6
34 Hrafn GK löndun 2 175.7         20 8.7

Skrifað 29.6.2008 kl. 3:07 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.6.2008

Ein gömul.


Mynd Gísli Reynisson

Það er löngu kominn tími á að skella inn mynd hérna.  menn geta ekki endalaust legið yfir aflalistum, fínt að taka smá listapásu núna áður enn lokahnykkurinn hefst.

Myndin hérna að ofan er tekin seint að kveldi þegar ég var á Loðnuveiðunum lengst útí "rassgati" eins og margir áhafnameðlimir sögðu, því það tók upp undir 30 klst að sigla til hafnar.
Þarna sést Súlan EA áður enn hún fékk nýja brú.  Ég er ekki alveg klár á hvaða skip er þarna lengra í burtu , enn mig minnir að þetta sé Sighvatur Bjarnarsson VE.

Svo ég gorti mig aðeins þá hef ég alltaf verið nokkuð hrifin af þessari mynd.

Skrifað 28.6.2008 kl. 15:36 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.6.2008

Rækjuveiðar í Júní

Í júní fyrir ári síðan þá var ansi mikið fjör á rækjuveiðunum.  Sigurborg SH og Gunnbjörn ÍS (1327) voru báðir með um og yfir 70 tonna afla, að auki þá voru t.d Röst SK og Guðbjörg Steinunn GK að veiðum.

Núna í júní er algjör andstæða.  Sigurborg SH hefur ekkert róið í júní,  Röst SK hefur ekkert farið af stað á rækjuna,  og eftir eru Gunnbjörn IS (bæði 1327 og 1686), og Jakop Einar SH.  

Gunnbjörn ÍS (1327) er kominn með 58 tonn af rækju og að auki hefur togarinn landað þónokkru af fiski og mest af grálúðu.  líklegast er hann með tvö troll um borð því skylt er að hafa skilju á rækjutrollinu.

Hinn Gunnbjörn IS (1686) er rétt kominn með um 12 tonn í tveimur ferðum.

Jakop Einar SH er kanski sá bátur sem mesta athygli vekur því hann hefur róið langmest allra þessa fáu rækjubáta, hefur hann farið í 4 ferðir og er kominn með tæp 23 tonn að landi.  
Ýmsar spurningar vakna þegar ég sé svona fá rækjubáta að veiðum, hvað veldur??.  er veiði svona léleg.  Ja ef skoðaðar eru aflatölur að rækjubátar eru að koma með um og yfir 40 tonn í róðri þá er kanski ekki hægt að segja það.

Er verðið svona lágt?.  það getur verið enn allavega er kvótaleigan á rækjunni mjög lág.
enn liður í þessu getur verið að olíuverð er orðið alveg svimandi hátt og það kanski fælir menn frá því að leggja útí rækjuveiðar.

Skrifað 24.6.2008 kl. 2:58 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.6.2008

Stór róður Kristbjargar HF


Mynd Hafþór Hreiðarsson.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Dragnótabáturinn Kristbjörg HF er víst eins og staðan er núna eini stóri dragnótabáturinn ásam Heru ÞH sem gerir út frá norðurlandi.  Stóru bátarnir voru ansi margir um tíma og má þá nefna t.d Margréti SK,  Sindra ÞH og Grímsnes HU.

Kristbjörg HF er núna gerð út frá Skagaströnd og fyrsti róður bátsins þar var uppá tæp 16 tonn. 
Þann 19 þá kom Kristbjörgin HF að landi með metafla.  alls 37,9 tonn.  var ufsi af þeim afla 21 tonn og þorskur tæp 16 tonn.  Þessi róður Kristbjargar HF er einn af stærstu löndunum dragnótabáts frá norðurlandinu.  Arney HU kom með 31 tonn í maí í fyrra.
Verður forvitnilegt að sjá næsta róður Kristbjargar HF.

Skrifað 23.6.2008 kl. 15:33 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.6.2008

Loðnulöndun


Mynd Gísli Reynisson

Gömlu góðu tímarnir.  Í sandgerði var bræðsla alveg aftur til sirka 1940 eða þar um bil.  nokkrir bátar áttu þar alltaf heimangengt á loðnuvertíð.  þeirra fastastur var að sjálfsögðu Dagfari ÞH.  hérna sést hann landa loðnu.
Hinum meginn við á bryggjunni er verið að landa loðnu úr öðrum báti.
Þekkir einhver hvaða bát er verið að landa úr hinum meginn á bryggjunni þar sem kraninn er??

Skrifað 21.6.2008 kl. 21:31 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.6.2008

Stór löndun hjá Kaldbaki EA

Hérna á síðunni skrifaði ég ekki alls fyrir löngu pistil um togaranna Kaldbak EA. Afli togarans í maí var fantagóður og meðalaflinn um 170 tonn allan mánuðinn.
Þessi pistill minn rataði óbreyttur inná síðuna hjá Þorgeiri Baldurssyni, enn hann er á Kaldbaki EA.
Á dögunum fékk ég símtal frá honum og tjáði hann mér að þeir hefðu verið að landa metafla á Eskifirði.  alls 565 körum.
Vorum við þess vissir um að aflinn væri eitthvað í kringumm 170 tonn.

Kom svo á daginn að aflinn var hvorki meira né minna heldur enn 200.3 tonn.  Af þessum stóra afla var sett í 6 gáma og var það að mestu ýsa og 70 tonn voru tekinn í land.  Miðað við karafjölda þá voru 359 kg í kari.  og miðað við hina gríðarstóru lest í Kaldbaki EA þá ef hann hefði verið með fulla lest enn hún tekur um 720 kör þá væri hægt að koma í hann tæpum 260 tonnum.  

Þarna eru við að tala um tölur sem voru mjög svo algengar hérna á árum áður.  

Eitt er allavega víst.  pyngjann hjá Þorgeiri hefur þyngst nokkuð við þennan góða túr enn var í 7 daga eða 28 tonn á dag.

Skrifað 20.6.2008 kl. 3:16 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.6.2008

Mok hjá Bjarti NK

Mynd Þorgeir Baldursson.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Það hefur heldur betur fiskast vel hjá togaranum Bjarti NK.  núna þegar júní er umþað bil hálfnaður þá er togarinn kominn yfir 400 tonn í heildarafla.

landanir hjá Bjarti NK hafa verið eftirfarandi og úthaldsdagarnir eru áætlaðir á milli landananna. þeir ættu að vera nokkuð réttir.

fyrsta löndun var tæp 116 tonn eftir 6 daga á veiðum eða 19.3 tonn á dag.  Þarna var þorskur uppistaðan eða um 67 tonn, ufsi 22 tonn.

næsta löndun var 121 tonn eftir 5 daga á veiðum eða 24.2 tonn á dag.  Þorskur var þar aftur uppistaðan eða 75 tonn ásamt ufsa 24 tonn.

Bjartur NK var ekki búinn að vera úti í nema 3 daga þegar hann kom til hafnar með tæp 70 tonn eða 23 tonn á dag.  núna var uppistaðan í afla hans örlítið öðruvísi eða karfi 36 tonn og ufsi 31 tonn.

Síðasta löndun Bjarts NK sem er kominn núna í júní var metafli því togarinn var einungis úti í 3 daga og kom með 103 tonn eða 34 tonn á dag.  þarna var þorskur uppistaðan eða 75 tonn.

ÞEss má að lokum geta að á árunum 1980 til 1990 og frameftir þá tíðkaðist ekki að róa svona stutta túra, oftast var miðað við 5 til 7 daga útí í einu.  miðað við 6 daga úti þá hefði Bjartur NK landað 204 tonnum.  Ég hef séð tölur um Bjart NK sem eru yfir 200 tonn þannig að afli togarans núna það sem af er Júní er allsvakalega góður.

Skrifað 20.6.2008 kl. 3:03 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.6.2008

Ein gömul og góð


Mynd Gísli Reynisson

Ég luma á nokkrum gömlum myndum sem ég hef tekið í gegnum tíðina.  set hérna inn eina.
Myndin hérna er tekinn árið 1995 .þá var ég á þessum öðling Bergi Vigfúsi GK sem lengst af var Skógey SF frá Hornafirði.

Þarna var Grétar Mar skipstjóri og eins og sjá má var ekkert verið að spara netin.  Mest vorum við með 17 trossur og hver var 10 neta.  Að meðaltali voru við með 10 til 12 trossur útí í einu.   

Helvíti vel gekk að fiska og mér telst svo til að við höfum sett íslandsmet því í ágúst það ár fengum við tæp 300 tonn í netin í 26 sjóferðum. 

og að lokum þar sem þessi færsla er skrifuð þann 17 júní þá óska ég öllum landsmönnum til hamingju með daginn.

Skrifað 17.6.2008 kl. 7:09 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

13 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.6.2008

Ýmsar myndir



Allar myndir teknar af Gísla Reynissyni


´ákvað að skella nokkrum myndum hérna inn,  það er búið að vera ansi lítið um myndir hérna á síðunni.


Efsta myndin er tekinn á Akureyri og var Gullver NS þarna í smá vélavirðgerðum.

Næsta er smá kappsigling inn til hafnar í Sandgerði.  Kiddi Lár GK og Bergvík GK

og tvær neðstu eru frá ferð sem ég fór á snæfellsnes. og ók ég meðal uppað snæfellsjökli þaðan sem farið er á snjósleða, var ég þá á 45 sæta bíl.
Notaði tækifærið og myndaði duglega í Ólafsvík. 

Þess má geta að myndin á akureyri og í ólafsvík eru allar teknar útaf vinnu minni hjá Hópbílum.  kostur að geta farið út á land og kíkt á hafnir til að taka myndir. 

Skrifað 15.6.2008 kl. 16:39 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.6.2008

Ólögmæt aflameðferð!!!

Fiskistofa svipti 4 báta veiðileyfi núna í Maí.
Kópur BA var sviptur vegna afla  umfram heimildir

Stefán Rögnvaldsson HU var sviptur vegna franhjálöndunar og afladagbókarbrots, og gilti sú svipting í 2 vikur.

það sem vakti mesta athygli hjá mér var að 2 skip voru svipt vegna ólögmætrar aflameðferðar.  Vekur  þessi svipting athygli fyrir tvo hluti.  annarsvegar fyrir skipin sem eiga að máli, enn þau voru Grímsnes GK og Suðurey VE.  Bæði skipin hafa þónokkurn kvóta .  Grímsnes GK er reyndar á leigumarkaði enn á þó 400 tonn eftir af þeim himildum sem á bátinn eru skráð.

Suðurey VE sem er fyrrum Þórunn Sveinsdóttir VE hefur t.d undanfarin 2 ár verið með mesta aflaverðmæti hjá ísfiskstogurunum og kvótastaðan er mjög sterk,  eftir eru núna rúm 1000 tonn.

hinn hluturinn sem vekur athygli mína er ástæða sviptingar, ólögmæt aflameðferð.  og ég velti fyrir mér hvað fellst í þessu orði??. 
mér dettur ýmislegt í hug, spurning hvort einhver lesandi geti upplýst betur??

Skrifað 15.6.2008 kl. 13:48 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.6.2008

Niðurstöður hjá Trollbátum

Fiskifréttir komu út í dag og þar mátti sjá lista yfir meðal annars trollbátanna í Maí.

Ég setti inn könnun um hvaða bát menn héldu að hefði orðið hæstur í maí.  niðurstöður þeirrar könnunnar voru.
Smáey VE lenti í 3ja sætinu.
Vörður EA í öðru sætinu
Steinunn SF í því fyrsta.

Alls tóku 73 manns þátt í trollkönnunni

Í raun þá var niðurstaðan þannig gagnvart afla að 
Hringur SH varð númer 3 með um 350 tonna afla
Steinunn SF varð númer 2 með rúm 370 tonn
og Vörður EA varð hæstur með 372 tonn.

Þess má geta að mjög lítill munur varð á Steinunni SF og Verði EA eða rúmt eitt tonn.

Allavega er þetta í fyrsta sinn sem Vörður EA er aflahæstur og óska ég áhöfninni til hamingju með það.

Skrifað 13.6.2008 kl. 2:02 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.6.2008

Handfæraveiðar

Það kom smá áskorun á mig um að hafa handfæralista á síðunni.

sú áskorun á ansi vel rétt á sér þar sem handfæraveiðar eru langmest stundaðar yfir sumarmánuðina.  Ég er ekki búinn að taka ákvörðun um hvort ég hafi þannig lista hérna, því það er ansi erfitt verkefni.

t.d í maí þá reiknaði ég samtals 157 handfærabáta um allt landið og til þess að finna þessa 157 báta þá fór í í gegnum öll skipaskrárnúmer á landinu, enn ég er búin að prenta þau út og samtals eru þetta 1870 númer sem ég fer í gegnum.

útfrá þessu er hægt að sjá hversu mikill tími fer í útreikinga á bátunum.  reyndar eru nokkuð mörg þessara skipaskrárnúmera ekki gerð út.

Annars að færaveiðunum þá voru 2 bátar sem yfir 30 tonn náðu núna í maí og voru það Sæstjarnan SH og Birta SH.  Ragnari Alfreðs HU sem gerir út frá sandgerði var með 24 tonn í einungis 5 ferðum komst mest í tæp 7 tonn, mest allt ufsi.
Ef skoðaðir eru þeir bátar sem voru með stærstu landanir í maí þá líta 15 efstu bátarnir svona út.
1      Ragnar Alfreðs HU       6,6 tonn.
2.     Víkurröst VE                   6,6 tonn
3.     Eyjólfur Ólafsson GK     5,5 tonn.
4.     Grímur AK                       5,1 tonn.
5.     Skarpur BA                     4,3 tonn
6.     Hlöddi VE                        4,3 tonn
7.     Gugga ÍS                         4,3 tonn
8.     Lilja BA                            4,2 tonn
9.     Sæstjarnan SH               3,5 tonn
10.   Birgir GK                          3,5 tonn áður Birgir ÁR
11.   Rakel SH                         3,4 tonn
12.   Stakkhamar SH               3,3 tonn
13.   Heiðrún SH                      3,3 tonn
14.   Assa BA                           3,1 tonn
15.   Rán SH                            3,1 tonn

Varðandi listann þá mun ég reyna að koma einhverjum tölum hérna inn á síðuna, þó svo að ég geti kanski ekki komið með heilstæðan lista.  

Skrifað 9.6.2008 kl. 1:10 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.6.2008

1000 tonn á mánuði!!!

Mynd Þorgeir Baldursson.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

kanski ekki 1000 tonn hver mánuð. Allavega eitt allasérstæðasta fiskiskip íslenska flotans hlýtur að teljast vera kúfiskskipið Fossá ÞH sem gerir út frá Þórshöfn.  
Þó svo að skipið hafi ekki verið gert út á fullum afköstum undanfarin misseri þá má segja að skipið sé komið fullt.  Fossá ÞH er búinn að róa síðan í byrjun mars og í maí þá landaði Fossá ÞH tæpum 1000 tonnum í 9 ferðum, mest 117 tonn.  búið er að landa einu sinni úr Fossá ÞH núna í júní, tæpum 120 tonnum. 

Mjög erfitt er að flokka Fossá ÞH.  Í vertíðaruppgjörinu sem birtist í sjómannadagsblaði Fiskifrétta þá flokka ég þar Fossá ÞH með bátunum.  Og í útreikngum mínum þá er Fossá ÞH flokkuð með rækju, sæbjúgu og ígulkerjabátum.  

Skrifað 8.6.2008 kl. 2:34 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.6.2008

Nýbreytni hjá Línuskipunum

Mynd Alfons Finnson færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Að setja fisk í gáma er nokkuð algengt meðal togara og trollbáta.  Einstaka dragnótabátar setja stóran hluta af afla sínum í gáma.  
Hingað til þá hafa línubátarnir nokkurn veginn verið lausir við að setja fiska í gáma.  Nú reyndar ber svo við að tveir línubátar settu smá hluta af afla sínum í gáma.  Eru það bátarnir Sturla GK og Tómas Þorvaldsson GK.
Vekur þetta nokkra athygli þar sem mjög sjaldgjæft er að línubátarnir setji fisk í gáma.  Hef ég t.d aldrei séð það áður fyrr í gegnum útreikninga mína hjá línubátnunum.
Annars setti Sturla GK 3 gáma frá sér og var þar að mestu Blálanga eða tæp 46 tonn alls.
Tómas Þorvaldsson GK setti í 2 gáma og var þar eins og hjá Sturlu GK blálanga uppistaðan eða rúm 30 tonn.  
Ef þessi fiskur hefði farið á markað og miðað við meðalverð síðustu viku þá má áætla að hérna innanlands hefði aflaverðmæti þessa afla verið um 5.7 milljónir.  Ekki hef ég tölur yfir aflaverðmætið eftir söluna erlendis, enn það væri fróðlegt að sjá muninn.

Skrifað 5.6.2008 kl. 21:40 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.6.2008

Línubátar í Maí ( krókabátar)

Skoða nánar

3.6.2008

"Bull" tölur

Skoða nánar

2.6.2008

Kaldbakur EA

Skoða nánar

1.6.2008

Til hamingju með daginn.

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Tenglar

/body>