Aflafréttir og fleira
Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Auglýsingapláss/styrkarlínur
auglýsingaplásstil
sölu,
og eða styrkarlínur.
Styrkja Síðuna
Styrktarreikningur síðunnarkennitala. 2008753709
bankabók.0142-05-001072
Eldra efni
Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Kirkjuvegur 15Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-05-001072Blogg
31.5.2008
Systurskip
31.5.2008
Hörku dragnótaveiði fyrir austan.
30.5.2008
Góð netaveiði hjá Sæþóri EA
30.5.2008
Stærðarinnar skepna í netin
Myndir Villi Ara.
Áhöfninn á Árna í Teigi GK fékk heldur betur stórt kvikindi í netum ekki alls fyrir skömmu. Villi Ara á bátnum sendi mér nokkrar myndir af baráttu þeirra við dýrið.
Taldi hann að það hefði verið á milli 6 og 7 metrar að lengd og um og yfir 1 tonn af þyngd. Spurning hvaða tegund þetta er.
29.5.2008
Minnsti útgerðarstaður á íslandi?!!
28.5.2008
Lúðuveiðar
27.5.2008
Stór róður hjá Grími AK
26.5.2008
Sumarvertíðinn hafinn.
26.5.2008
Kominn aftur nýgiftur
Mynd Sigríður Reynisdóttir
Eins og ég setti fram fyrir helgi, þá skrifaði ég voðalega lítið inná síðuna núna um helgina, reyndar bara ekki neitt. Enn ég er allavega kominn aftur. og búinn að gifta mig.
Þarna er ég og konan mín Helena María Árnadóttir að dansa drúðardansinn.
23.5.2008
smá tilkynning!!
Hérna neðar á síðunni er mynd af mér í ansi asnalegum búningi, ástæðan jú það var verið að steggja mig. Málið er að á morgun þann 24 maí þá ætla ég að gifta mig í Sandgerði. Sú heppna ef ég má orða það þannig heitir Helena María Árnadóttir. Ef einhver hérna sem skoðar síðuna er á frystitogaranum Þór HF þá er faðir hennar vélstjóri á Þór HF.
Ég á ekki eftir að geta sinnt síðunni eins og ég hefði viljað líklegast næstu daga framyfir helgi. Enn þó get ég hugsanlega reynt að skjóta inn einni frétt eða uppfæringu á lista.
Þó get ég sagt tvennt..
Hið fyrra er að samkvæmt niðurstöður könnunnarnir hérna um Kristinn SH þá verður hann ekki tekinn með í krókalistann. 70% svarenda sögðu nei.
Hið seinna er að frá og með 1 júní næstkomandi þá verður sú nýbreytini tekinn upp hérna á síðunni að dragnótalistinn hefur göngu sína. Ég hef fengið ansi margar fyrirspurnir og óskir um að ég setji fram þannig lista. Ég hef reyndar ekki ákveðið hversu stór hann verður. t.d efstu 10, 15 eða 20 bátarnir.
kveð að sinni.
23.5.2008
Fall er fararheill
Myndir Gísli Reynisson
Fall er fararheill er anso góður málsháttur. Hann hefur átt ansi vel við mig. Von GK sem var búinn að vera allan apríl mánuð frá vegna þess að verið var að setja beitningavél í bátinn, lenti á öðrum hafnargarðinu í Sandgerðishöfn þegar báturinn að að koma úr róðri. Mjög stór rifa koma á skrokk bátsins, eins og sést á myndunum.
Má segja að það sem hafi bjargað bátnum frá því að hann sykki var að Köfunarþjónusta Sigurðar Stefánssonar var mjög fljót á svæðið með dælur. Þess má geta Von GK er þriðji báturinn á þessu ári sem Sigurður Stefánsson nær upp. Hinir voru Sunna Líf KE og Una SU.
Í júlí í fyrra þá strandaði Hópsnes GK þegar hann var á leið til hafnar á Skagaströnd. Báturinn var í viðgerð svo til út árið 2007. Á vertíðinni 2008 þá var Hópsnesið GK aflahæsti krókasmábáturinn. Má segja að málshátturinn eigi vel við um Hópsnesið GK og því má spyrja mun hann eiga einnig við Von GK??.
20.5.2008
Frystitogarar í Apríl
| Sæti | Nafn | Afli | Landanir | afli.per Úthd |
| 1 | Brimnes RE | 949,804 | 23 | 41,2 |
| 2 | Vigri RE | 869,15 | 33 | 26,3 |
| 3 | Venus HF | 793,03 | 32 | 24,8 |
| 4 | Freri RE | 784,109 | 37 | 21,1 |
| 5 | Málmey SK | 766,891 | 32 | 23,9 |
| 6 | Arnar HU | 758,093 | 34 | 22,2 |
| 7 | Þór HF | 751,92 | 35 | 21,4 |
| 8 | Þerney RE | 700,82 | 31 | 25,9 |
| 9 | Baldvin Njálsson GK | 699,446 | 35 | 19,9 |
| 10 | Mánaberg ÓF Löndun 1 | 595,426 | 29 | 20,5 |
| 11 | Víðir EA | 593,275 | 19 | 31,2 |
| 12 | Snorri Sturlusson VE | 557,539 | 32 | 17,4 |
| 13 | Mánaberg ÓF löndun 2 | 454,062 | 26 | 17,5 |
| 14 | Kleifaberg ÓF 1 | 446,467 | 25 | 17,8 |
| 15 | Helga María AK | 427,203 | 18 | 23,7 |
| 16 | Barði NK Löndun 2 | 427,067 | 15 | 28,4 |
| 17 | Oddeyrin EA. Löndun 2 | 414,715 | 20 | 20,7 |
| 18 | Oddeyrin EA Löndun 1 | 413,455 | 19 | 21,8 |
| 19 | Júlíus Geirmundsson ÍS löndun 1 | 403,022 | 25 | 16,1 |
| 20 | Sigurbjörg ÓF | 397,802 | 23 | 17,3 |
| 21 | Barði NK Löndun 1 | 390,168 | 15 | 26,1 |
| 22 | Guðmundur Í Nesi RE | 368,525 | 28 | 13,1 |
| 23 | Gnúpur GK | 332,249 | 13 | 25,6 |
| 24 | Frosti ÞH | 331,637 | 37 | 8,9 |
| 25 | Hrafn GK | 331,518 | 11 | 30,1 |
| 26 | Hrafn Sveinbjarnarsson GK Löndun 1 | 303,953 | 20 | 15,2 |
| 27 | Höfrungur III AK 1902 | 281,406 | 19 | 14,8 |
| 28 | Júlíus Geirmundsson ÍS Löndun 2 | 250,991 | 21 | 11,9 |
| 29 | Hrafn Sveinbjarnarsson GK Löndun 2 | 139,267 | 11 | 12,6 |
15.5.2008
Hvað tekur við eftir vertíð???
Vetrarvertíðinn er búinn. og nú sit ég sveittur að skrifa vertíðaruppgjörið fyrir Fiskifréttir.
Og við það vertíðinn er búinn þá hættir vertíðarnetalistinn sem er búinn að vera í gangi í allan vetur.
Eftir stendur þá krókalistinn, og humarlistinn sem kom nýr núna inn.
Spurninginn sem eftir stendur, er hvernig lista vilja lesendur síðunnar fá í staðinn fyrir netalistann, eða kanski ekki neinn lista í staðinn. ??
í boði er
Dragnót
Lína ( aflamarksbátar)
troll
togarar
hægt er að hafa handfærabáta, enn það er nokkur mikil vinna í þannig lista.
net
og jú , menn velta kanski fyrir sér þessari fallegu mynd...., enn málið er að síðuhöfundur, er að fara að gifta sig þann 24 maí næstkomandi, og ég var tekinn í steggjun 10 maí. og var við þann atburð settur í þennan búning.
14.5.2008
Mokveiði í Arnarfirði
11.5.2008
Lítil humargetraun....
Eins og kanski menn hafa tekið eftir þá er ég að skrifa núna tölur frá árinu 1965 og reikna það saman.
ÉG ætla ekkert að lengja þetta. Enn á skrá hjá mér og gildir það á svæðinu frá Vestmannaeyjum um suðurnesin og til Hafnarfjarðar eru alls 95 bátar.
Það er ótrúlegur fjöldi báta, og bátarnir lönduðu á eftirförum stöðum.
Vestmannaeyjum
Þorlákshöfn
Eyrarbakki
Stokkseyri
Grindavík
Sandgerði
Keflavík
Njarðvík
Vogar
Hafnarfjörður.
Humarinn af þessum bátum var unnin hjá fyrirtækjum í ofangreindum þorpum auk eftirfarandi
Garður
Kópavogur

