Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Færslur: 2008 Apríl
28.04.2008 09:13
Steini GK
Mynd Gísli reynisson
Í flokki smábáta sem eru yfir 10BT, þá eru þar nokkrir bátar sem eru rétt yfir þessi stærarmörk, þeir bátar hafa oft á tíðum fiskað ansi vel og hafa svo til haldið ansi vel við þá sem stærri eru. Nægir þar að nefna bátinn Lilju SH sem í janúar fiskaði mjög vel og var um tíma inná topp 10. Lilja SH er 10,9 BT.
Steini GK er annar bátur sem mælist rétt ofan við 10BT, eða réttara sagt 10,3 BT. Og er báturinn einn minnsti báturinn sem mælist yfir 10 BT. Þrátt fyrir það hefur honum gengið nokkuð vel. Hafa róðrar komist uppí um 8 tonn.
Núna eftir stoppið þá tók heldur betur á krókanna hjá Steina GK, því báturinn landaði í Sandgerði 9,97 tonni. Skipaði þorskur þar meginhlutverki eða rúm 9 tonn.
Á myndinni að ofan er báturinn að koma til Keflavíkur með 4,4 tonn, og má því segja að báturinn með 10 tonn um borð hafi verið ansi vel siginn.
27.04.2008 02:02
Ísafjörður og 1965
25.04.2008 01:46
togari eða troll
23.04.2008 15:19
60 tonn í 5 sjóferðum
60 tonn í 5 sjóferðum. það myndi nú teljast ansi góður afli hjá hvaða báti sem er. hvort sem það er dragnótabátur, línu eða netabátur.
Birta BA sem rær á línu frá Patreksfirði hefur heldur betur fiskað vel undanfarið, báturinn rauk upp línulistann fór úr því sæti númer 29 og í það efsta. ástæðan?, jú afli uppá 61,8 tonn í 5 ferðum sem gerir um 12 tonn í róðri.
Er þessi afli algert met. reyndar er aflinn úr síðustu 7 ferðum Birtu BA komin í tæp 80 tonn sem gerir 11,3 tonn í róðri.
þessir 5 róðrar sem gerðu 61,5 tonna aflann voru eftirarandi
fyrst 12,8 tonn þann 15 apríl, reyndar deginum áður þá var báturinn með 10,8 tonn.
18. var báturinn með 11,7 tonn.
19. Birta BA með 12,1 tonn.
20.Stærsti róðurinn 13,7 tonn.
og 21 11,8 tonn.
meginuppistaðan í öllum þessu róðrum sem og þeim 2 róðrum sem fara með aflann hjá Birtu BA uppí 80 tonn, er allt steinbítur.
Þess má geta að Birta BA rær frá Patreksfirði og þar eru líka Hulda GK, Bíldsey SH og Baddý GK. Afli Birtu BA er þó langtum meiri heldur enn allra annara báta á vestfjörðum og reyndar yfir landið allt.
Sjá má nánar stöðuna hjá hinum línubátunum á nýuppfærðum línulista hérna fyrir neðan
23.04.2008 07:11
Fínasta Handfæraveiði
þeir 3 hæstu voru eftirfarandi.
Ísbjörn GK var kominn með 8.8 tonn í 5 ferðum, mest 2,6 tonn, enn þess má geta að einn maður rær á Ísbirni GK.
Brynjar KE var með 11,8 tonn í 5 ferðum eða um 2,4 tonn í róðri að meðaltali, og er það nokkuð góður meðalafli. stærsti róður 3,4 tonn.
Líf KE var me 12,3 tonn í 6 ferðum, eða 2,1 tonn í 6 ferðum. mest 3,7 tonn í einni ferð.
21.04.2008 17:20
Frystitogarar í Mars
Jæja þá lítur hérna dagsins ljós listi yfir afla Frystitogaranna í mars. hann kemur nokkuð seint, enn ég vona að það sé í lagi. Hann verður með nokkru öðruvísi sniði núna þar sem ég sundurliða landanir hjá þeim togurunum sem elanda oftar enn einu sinni. Eru þær skilgreindar sem löndun 1 og löndun2. Ef afli togaranna sem landa tvisvar er tekinn saman þá er Höfrungur III AK hæstu rmeð 1462,1 tonn. Gnúpur GK er annar með 1163,9 tonn.
Mjög góður afli var hjá togurunum og sést það mjög vel á afla per úthaldsdag. nokkrir eru með um og yfir 30 tonn á dag.
| Sæti | Nafn | Afli | Landanir | Úthd | afli.per Úthd |
| 1 | Venus HF | 998,465 | 1 | 31 | 32,2 |
| 2 | Höfrungur III AK Löndun 1 | 923,463 | 1 | 35 | 26,4 |
| 3 | Brimnes RE | 877,711 | 1 | 36 | 24,4 |
| 4 | Þór HF | 838,905 | 1 | 35 | 24,0 |
| 5 | Baldvin Njálsson GK | 767,25 | 1 | 34 | 22,6 |
| 6 | Víðir EA | 729,751 | 1 | 25 | 29,2 |
| 7 | Arnar HU | 720,956 | 1 | 33 | 21,8 |
| 8 | Vigri RE | 705,623 | 1 | 32 | 22,1 |
| 9 | Gnúpur GK Löndun 1 | 694,858 | 1 | 31 | 22,4 |
| 10 | Þerney RE | 689,312 | 1 | 29 | 23,8 |
| 11 | Hrafn GK Löndun 1 | 644,47 | 1 | 31 | 20,8 |
| 12 | Málmey SK | 557,092 | 1 | 35 | 15,9 |
| 13 | Oddeyrin EA | 548,686 | 1 | 24 | 22,9 |
| 14 | Höfrungur III AK Löndun 2 | 538,726 | 1 | 18 | 29,9 |
| 15 | Freri RE | 522,948 | 1 | 29 | 18,0 |
| 16 | Guðmundur Í Nesi RE | 474,115 | 1 | 29 | 16,3 |
| 17 | Gnúpur GK Löndun 2 | 469,119 | 1 | 17 | 27,6 |
| 18 | Helga María AK | 463,793 | 1 | 13 | 35,7 |
| 19 | Júlíus Geirmundsson ÍS | 457,482 | 1 | 32 | 14,3 |
| 20 | Kleifaberg ÓF | 433,879 | 1 | 26 | 16,7 |
| 21 | Snorri Sturlusson VE | 396,647 | 1 | 28 | 14,2 |
| 22 | Hrafn Sveinbjarnarsson GK Löndun 1 | 374,861 | 1 | 16 | 23,4 |
| 23 | Sigurbjörg ÓF | 372,048 | 1 | 41 | 9,1 |
| 24 | Hrafn GK Löndun 2 | 350,941 | 1 | 18 | 19,5 |
| 25 | Barði NK Löndun 2 | 328,829 | 1 | 11 | 29,9 |
| 26 | Helga María AK | 319,999 | 1 | 14 | 22,9 |
| 27 | Hrafn Sveinbjarnarsson GK Löndun 2 | 264,238 | 1 | 12 | 22,0 |
| 28 | Barði NK Löndun 1 | 216,098 | 1 | 16 | 13,5 |
18.04.2008 01:32
Netabátar á vertíð 2001
það tók mig samtals 25 klukkustundir að reikna og færa bátanna inná vefinn.
Alls eru þeir 170 sem eru komnir á blað núna og miðast afli þeirra við 31 mars.
Listinn er núna staðsettur í Flokkum hérna við hliðina undir nafninu Net Vertíð 2001.
Ef klikkað er á þann tengil þá kemur taflann upp.
Enn svona smá yfirlit yfir tölfuna þá kemur t.d í ljós að Brynjólfur ÁR var hæstur báta í mars með 542 tonn í einungis 21 ferð.
Stafnes KE landaði í 9 skipti í mars enn var samt með 372 tonn og fór tvisvar yfir 70 tonn í róðri. Gríðarstórir róðrar eru hjá mörgum bátanna.
Af minni bátunum vekur kanski helsta athygli að Guðfinnur KE er aflahæsti bátur undir 100 BT, og jafnframt eini báturinn af þeirri stærð sem var komin yfir 300 tonn í lok mars.
Ársæll Sigurðsson HF ( 1373) er hæstur báta undir 50BT, enn hann er svo til sjónarmun á undan Bárði SH ( gamla Bárði SH). Ársæll Sigurðsson HF réri frá Þorlákshöfn í mars og komst meðal annar í tvö skipti yfir 20 tonn í róðri í þeim mánuði.
Hrólfur AK fær samt titilinn sjósækari mars mánaðarins, þar sem áhöfn bátsins gerði sér lítið fyrir og réri alla daga Mars. eða 31 sjóferð, Bendir það eindregið til þess að vel hafi viðrað til sjósóknar í þeim mánuði.
Annars fyrir þá sem hafa áhuga á að kíkja á tölfuna, hún er eins og ég segi ansi löng og stór þá klikkið á Net Vertíð 2001, og rennið yfir gripinn.
Ef menn hafa eitthvað um þetta brjálæði í mér að segja þá bara látið vaða.
ég mun svo halda áfram að uppfæra vertíðina 2001, enn tek næst fyrir apríl mánuð.
17.04.2008 19:37
Metafli hjá Eini SU
Myndir Guðmundur Gylfasson
Nýverið þá var Muggur SF keyptur til Eskifjarðar og fékk þar nafnið Einir SU.
Byrjaði báturinn að róa núna í byrjun febrúar, og var í nokkru kroppi fram til núna í miðjan apríl.
Þann 13 apríl núna síðastliðin þá er skráður afli á bátinn 10,3 tonn. Guðmundur Gylfasson sagði í samtali við Aflafréttir.com að hann hafði þurft að fara tvær ferðir út til þess að ná aflanum. Lagði hann 17 bjóð og þegar hann var búinn að draga 8 bjóð þá kom hann í land með 6 tonn, það reiknast með 750 kíló á bjóð. Má segja að það sé íslandsmet, fór báturinn svo aftur út og náði í restina af bjóðunum 9 bjóð og var með 4,3 tonn eða 480 kíló á bjóð. Þessi afli fékkst á Brjótnum svokallaða sem er í um 2 tíma stími frá Eskifirði, og var allt 4 til 5 kílóa steinbítur. Þess má geta að Guðmundur rær einn á Eini SU, og sendi hann mér myndir af bátnum koma til hafnar á Eskifirði, og er hann þarna að með rúm 6 tonn um borð.
Þessi góði afli hélst svo deginum eftir þá landaði Einir SU 6,1 tonni á einungis 13 bjóð eða um 470 kíló á bjóð. Er báturinn búinn að fá 23 tonn núna á skömmum tíma í einungis 4 ferðum.
Þess má geta að nafnið Einir SU er Eskfirðingum mjög þekkt, þar sem nokkrir bátar með þessu nafnið hafa verið gerðir út, og er elsti báturinn með Einisnafnininu bátur sem kom til Eskifjarðar árið 1934. Er Einisnafnið því líklegast eitt elsta nafn í bátasögu Eskfirðinga.
17.04.2008 18:35
400 tonn og yfir árið 1965
Mynd Gísli Reynisson
Núna er ég byrjaður að fara yfir árið 1960 og til 1970 í aflaskýrslum.
og eins og vanalega þegar farið er svona langt aftur í tímann þá eru þarna oft á tíðum gríðarstórar aflatölur. Og ætla ég að nefna hérna smá dæmi.
Eins og kanski flestir hafa tekið eftir varðandi netalistann þá er ég með 400 tonna viðmið gagnvart netabátunum, og reynar öllum vertíðarbátum. Núna í mars árið 2008 þá voru það 5 bátar sem komust yfir 400 tonnin. Einnig er hægt að skoða vertíðina 2001 einnig til samanburðar.
Ég er núna í árinu 1965, og var að klára hluta af Vestmannaeyjaflotanum, og nú þegar eru 4 bátar komnir yfir 400 tonnin. Þessir 4 bátar náðu yfir 400 tonnin í apríl árið 1965.
Ver VE 200 sem var 70 brl eikarbátur var með 409,3 tonn í 25 ferðum eða rúm 16 tonn í róðri. Annar mælikvarði er t.d að reikna þennan meðalafla uppí 6 sjóferðir, enn oft var mjög algengt að róa 6 sjóferðir á viku, og þá reiknast afli Vers VE sem 98 tonn í 6 ferðum, sem er mjög góður afli.
Lundi VE sem er 52 brl bátur var með 456,8 tonn í 26 ferðum eða rúm 17 tonn í róðri, og ef það er reiknað uppí 6 ferðir þá eru það 105 tonn í 6 ferðum.
Stígandi VE sem í dag heitir Drífa SH og er 73 brl stálbátur var með 496 tonn í 25 ferðum, eða tæp 20 tonn í róðri, uppreiknað í 6 ferðir þá er það 119 tonn í 6 ferðum.
Og sá bátur var næsthæstur í þessu yfirliti er jafnframt sá bátur sem vakti mesta athygli mína. Er það báturinn Björg SU 9. Þessi bátur var einungis 55 brl eikarbátur, enn fiskaði 474 tonn í einungis 15 sjóferðum sem gerir tæp 32 tonn í róðri.
þess má geta að á tímabilinu 1 til 15 apríl þá landaði Björg SU 258 tonni í einungis 6 sjóferðum, eða 43 tonn í róðri. Ég nota oft orðið kafbátur yfir báta sem koma drekkhlaðnir að landi og það orð á pottþétt við Björg SU í apríl árið 1965
15.04.2008 16:24
Nokkrar kvöldmyndir
Myndir Gísli Reynisson
Ég skellti mér á lokadeginum 11 apríl í smá bíltúr með Frosta mínum, og fór til Grindavíkur og reykjanesvita ásamt fleira. Smellti nokkrum myndum af og set hérna inn tvær
sú neðri er tekinn útaf Stafnesi. Enn þangað labbaði ég alveg útá klettarönd, í frábæru veðri. Margrét HF sem var aflahæsti dragnótabáturinn í mars er þarna að sigla framhjá á leið til hafnar.
Sú efri sýnir Örn KE koma inní hafnarmynnið og í bakgrunni er Margrét HF. Ekki var nú neitt svakalegt mok á þessum tveimur bátum, Margrét HF var með 6.7 tonn og Örn KE 10,2 tonn.
15.04.2008 02:15
Arnarfjörður
14.04.2008 08:03
Bárður SH yfir 500 tonn
Mynd Alfons Finnsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Nöfn áhafnameðlima talið frá vinstri, Magnús Gunnlaugsson, Ingi Pálsson og Pétur Pétursson skipstjóri
Frá því vertíðinn hófst þá hefur Bárður SH verið óhaggaður í efsta sætið 50- listans. Og var spurning hvort báturinn væri í vitlausum flokki. Því afli bátsins er vægast sagt búinn að vera hálfgert ævintýri. þeir hafa líka róið mjög stíft.
Núna fyrir hrygningastoppið þá var báturinn kominn í 509,9 tonn miðað við 10 apríl, í 88 sjóferðum. Þeir sögðust vera í nokkurn skonar keppni við bátinn Magnús SH sem er ansi mikið stærri heldur enn Bárður SH . Bárður SH er 23 BT á meðan Magnús SH er 231 BT. Að smábátur sé í keppni við stóran aflamarksbátar lýsir kanski vel hversu miklir yfirburðir Bárður SH er með gagnvart bátum í sínum stærðarflokki.
Magnús SH er reyndar einu sæti ofar enn Bárður SH með 525 tonn í 64 ferðum.
Á vertíðinni í fyrra þá náði Bárður SH rétt yfir 600 tonn, og því er spurning núna hvort báturinn nái að fiska meira núna heldur enn í fyrra.
13.04.2008 03:12
Netabátar á Vertíð 2001
Svona lítur netalistinn út á vertíðinni 2001. Þessi listi reiknaðist til 30.Apríl
Þar sem þessi listi er mjög stór, hann telur samtals 170 báta. þá er ég búinn að flokka þá þannig að
Bátar sem eru nafngreindir með svörtum stöfum eru yfir 100BT
Bátar með grænum stöfum er á stærðinni 50BT og að 100 BT
og Bátar með appelsínugulum lit eru bátar undir 50 BT.
inní þeim flokki eru þá líka smábátarnir.
fleiri upplýsingar um tölfuna.
Sknr stendur fyrir skipaskrárnúmer, enn þannig er hægt t.d að bera bátanna saman við árið í ár
og Apríl stendur fyrir landaðan afla í Apríl.
| Sæti | Nafn báta 2001 | Sknr | Heildarafli | Apríl | róðrar | Mest |
| 1 | Brynjólfur ÁR | 93 | 896,395 | 34 | 57,8 | |
| 2 | Stafnes KE | 980 | 838,487 | 32 | 85,5 | |
| 3 | Óli á Stað GK | 233 | 788,879 | 35 | 69,2 | |
| 4 | Guðjón VE | 84 | 725,226 | 25 | 48,9 | |
| 5 | Byr VE | 1258 | 658,147 | 122,744 | 28 | 41,6 |
| 6 | Gaukur GK | 124 | 652,906 | 38 | 70,4 | |
| 7 | Arney KE | 1416 | 633,241 | 92,499 | 33 | 92,9 |
| 8 | Happasæll KE | 89 | 630,177 | 40 | 61,5 | |
| 9 | Sæþór EA | 1291 | 564,032 | 34 | 39,1 | |
| 10 | Magnús SH | 1264 | 498,494 | 122,732 | 80 | 17,6 |
| 11 | Saxhamar SH | 1074 | 494,71 | 65 | 21,2 | |
| 12 | Hafberg GK | 67 | 473,678 | 38 | 28,7 | |
| 13 | Erling KE | 120 | 457,436 | 44 | 31,3 | |
| 14 | Örvar SH | 239 | 429,285 | 53,422 | 36 | 24,9 |
| 15 | Skinney SF | 250 | 421,231 | 42 | 40,8 | |
| 16 | Skálafell ÁR | 100 | 414,217 | 13,894 | 39 | 36,4 |
| 17 | Sjöfn EA | 1028 | 403,544 | 50 | 26,1 | |
| 18 | Þorsteinn GK | 1159 | 399,537 | 24 | 60,4 | |
| 19 | Steinunn SF | 1014 | 371,797 | 34 | 32,8 | |
| 20 | Egill SH | 1246 | 366,763 | 89,905 | 79 | 16,8 |
| 21 | Eldhamar GK | 1000 | 359,507 | 45 | 36,4 | |
| 22 | Sæfaxi VE | 244 | 359,458 | 102,656 | 36 | .32.3 |
| 23 | Sæfari ÁR | 1964 | 355,873 | 41 | 40,8 | |
| 24 | Þórsnes SH | 245 | 341,993 | 53 | 12,6 | |
| 25 | Þórir SF | 91 | 334,742 | 37 | 44,1 | |
| 26 | Guðfinnur KE | 1371 | 328,881 | 57 | 17,1 | |
| 27 | Guðmundur Jensson SH | 582 | 321,965 | 84,061 | 74 | 11,4 |
| 28 | Jóhanna ÁR | 137 | 321,854 | 91,618 | 63 | 12,1 |
| 29 | Sæberg ÁR | 1143 | 320,714 | 94,614 | 44 | 21,1 |
| 30 | Arnar SH | 162 | 308,012 | 20,575 | 53 | 17,5 |
| 31 | Haukaberg SH | 1399 | 299,779 | 57 | 16,1 | |
| 32 | Askur GK | 1873 | 290,83 | 124,592 | 80 | 15,9 |
| 33 | Hraunsvík GK | 1640 | 289,609 | 24 | 35,1 | |
| 34 | Álaborg ÁR | 1359 | 285,608 | 10,938 | 54 | 14,5 |
| 35 | Ágúst Gðmundsson GK | 262 | 282,878 | 27,229 | 32 | 27,2 |
| 36 | Bárður SH | 1954 | 280,743 | 87,775 | 70 | 7,8 |
| 37 | Sigurður Ólafsson SF | 173 | 279,792 | 61,265 | 33 | 35,1 |
| 38 | Stokksey ÁR | 1037 | 276,82 | 16,198 | 21 | 26,7 |
| 39 | Hafdís SF | 1415 | 275,749 | 45 | 34,5 | |
| 40 | Klettsvík SH | 1170 | 272,002 | 78,36 | 50 | 20,9 |
| 41 | Bervík SH | 259 | 271,46 | 137,331 | 23 | 46,9 |
| 42 | Hafnarberg RE | 617 | 270,333 | 62 | 22,5 | |
| 43 | Erlingur SF | 1379 | 269,142 | 34 | 29,6 | |
| 44 | Mýrafell ÁR | 1811 | 267,447 | 118,639 | 63 | 12,6 |
| 45 | Ólafur Bjarnarsson SH | 1304 | 266,851 | 33 | 18,1 | |
| 46 | Maron Gk | 2093 | 255,881 | 98,662 | 78 | 14,5 |
| 47 | Sólrún EA | 1013 | 247,425 | 18 | 31,5 | |
| 48 | Aðalbjörg II RE | 1269 | 237,011 | 62 | 14,5 | |
| 49 | Ósk KE | 363 | 230,356 | 5,294 | 56 | 10,4 |
| 50 | Hrólfur AK | 1959 | 229,319 | 122,889 | 60 | 10,9 |
| 51 | Glófaxi VE | 968 | 227,475 | 22 | 24,4 | |
| 52 | Gulltoppur ÁR | 2101 | 226,772 | 48 | 18,1 | |
| 53 | Reginn HF | 647 | 225,519 | 113,613 | 73 | 15,6 |
| 54 | Aðalbjörg RE | 1755 | 224,277 | 60 | 16,2 | |
| 55 | Gunnar Hámundarsson GK | 500 | 222,615 | 55 | 10,6 | |
| 56 | Arnar RE | 1254 | 217,637 | 91,551 | 72 | 10,8 |
| 57 | Öðlingur SF | 1206 | 208,613 | 37 | 19,1 | |
| 58 | Bjarni Gíslasson SF | 1324 | 207,113 | 34 | 17,6 | |
| 59 | Sigurbjörg Þorsteins BA | 1100 | 200,483 | 74,35 | 25 | 23,3 |
| 60 | Gullfaxi GK | 297 | 195,526 | 80,424 | 54 | 17,3 |
| 61 | Ársæll Sigurðsson ÁR | 1373 | 195,286 | 58 | 22,1 | |
| 62 | Dritvík SH | 1173 | 193,072 | 68,797 | 31 | 17,9 |
| 63 | Íslandsbersi HF | 2099 | 191,875 | 75,291 | 71 | 9,8 |
| 64 | Máni ÁR | 1829 | 191,786 | 117,755 | 78 | 18,1 |
| 65 | Mundi Sæm SF | 1631 | 191,138 | 102,06 | 36 | 15,3 |
| 66 | Særós RE | 1546 | 187,485 | 102,885 | 63 | 16,7 |
| 67 | Hringur GK | 1434 | 187,061 | 59 | 14,4 | |
| 68 | Helga RE | 1417 | 186,233 | 60 | 17,3 | |
| 69 | Egill Halldórsson SH | 1126 | 186,218 | 28 | 17,2 | |
| 70 | Gullfari HF | 2068 | 185,811 | 74,352 | 82 | 12,6 |
| 71 | Sæmundur HF | 1068 | 181,084 | 48 | 17,1 | |
| 72 | Sæljós ÁR | 467 | 179,383 | 44 | 15,1 | |
| 73 | Ger ÞH | 2408 | 178,023 | 35 | 11,1 | |
| 74 | Þorsteinn Gísasson GK | 288 | 174,015 | 29 | 13,5 | |
| 75 | Stapavík Ak | 2323 | 173,108 | 40 | 12,4 | |
| 76 | Röstin | 923 | 170,361 | 59 | 10,1 | |
| 77 | Hera Sigurgeirs BA | 51 | 169,956 | 27 | 34,5 | |
| 78 | Sindri GK | 1213 | 166,458 | 34 | 17,6 | |
| 79 | Bjarmi VE | 1103 | 164,824 | 66,387 | 26 | 12,5 |
| 80 | Bresi AK | 1887 | 162,496 | 44,066 | 89 | 4,9 |
| 81 | Ívar SH | 1930 | 162,179 | 30,462 | 80 | 6,1 |
| 82 | Björn Kristjánsson SH | 1985 | 161,585 | 26,74 | 82 | 4,8 |
| 83 | Eyrún ÁR | 1315 | 161,363 | 87,848 | 65 | 10,2 |
| 84 | Árni í Teigi GK | 2390 | 160,494 | 39,968 | 69 | 9,8 |
| 85 | Ársæll SH | 1458 | 155,246 | 21 | 15,5 | |
| 86 | Sunna Líf KE | 1523 | 150,98 | 45,963 | 74 | 8,4 |
| 87 | Þórsnes II SH | 1424 | 148,764 | 26 | 10,1 | |
| 88 | Þorleifur EA | 1921 | 143,926 | 39,906 | 52 | 8,9 |
| 89 | Sigrún AK | 1780 | 142,657 | 39,094 | 87 | 8,1 |
| 90 | Siggi Magg GK | 733 | 142,043 | 30 | 13,1 | |
| 91 | Þorkell Árnasson GK | 1231 | 142,031 | 50 | 18,4 | |
| 92 | Pegron SH | 7243 | 140,154 | 50,607 | 63 | 7,4 |
| 93 | Bliki BA | 530 | 140,027 | 42 | 8,5 | |
| 94 | Brynhildur KE | 1516 | 138,859 | 38,016 | 69 | 7,9 |
| 95 | Máni Hf | 2047 | 136,543 | 57 | 10,1 | |
| 96 | Sigurvin GK | 1943 | 136,285 | 39,415 | 68 | 8,1 |
| 97 | Þorsteinn BA | 1979 | 134,964 | 30,106 | 29 | 11,2 |
| 98 | Hafnartindur SH | 1957 | 132,327 | 47,849 | 65 | 5,4 |
| 99 | Grettir SH | 182 | 126,228 | 21 | 11,8 | |
| 100 | Brík BA | 2395 | 124,785 | 62,962 | 22 | 14,6 |
| 101 | Eldey GK | 450 | 123,884 | 42 | 8,1 | |
| 102 | Níels Jónsson EA | 1357 | 122,549 | 44,017 | 44 | 7,2 |
| 103 | Pétur Jakop BA | 1445 | 121,575 | 26,019 | 57 | 14,1 |
| 104 | Fylkir KE | 1914 | 119,675 | 23,266 | 68 | 11,4 |
| 105 | Pjétursey VE | 1511 | 119,412 | 54,026 | 47 | 13,9 |
| 106 | Eydís ÁR | 2476 | 114,368 | 26 | 10,9 | |
| 107 | Esjar SH | 2330 | 112,802 | 26 | 7,2 | |
| 108 | Eyjaberg VE | 1343 | 112,211 | 20 | 14,6 | |
| 109 | Geir Goði GK | 1115 | 112,149 | 30,277 | 54 | 12,3 |
| 110 | Freyja GK | 1927 | 110,453 | 32 | 8,8 | |
| 111 | Óli Færeyingur SH | 1913 | 109138 | 41,286 | 59 | 5,5 |
| 112 | Hólmsteinn GK | 573 | 109,131 | 51 | 8,6 | |
| 113 | Anna H GK | 1666 | 105,615 | 53,949 | 37 | 6,5 |
| 114 | Reynir AK | 1105 | 105,004 | 49 | 4,6 | |
| 115 | Regína SH | 2055 | 103,998 | 48,768 | 68 | 5,2 |
| 116 | Gunnþór GK | 1067 | 102,986 | 16 | 15,5 | |
| 117 | Svanur KE | 929 | 100,947 | 45 | 8,4 | |
| 118 | Narfi VE | 795 | 100,351 | 22 | 11,3 | |
| 119 | Ísak AK | 1986 | 97,272 | 48,436 | 55 | 7,1 |
| 120 | Sveinn Sveinsson BA | 1547 | 94,149 | 18,759 | 46 | 10,3 |
| 121 | Bára SH | 1767 | 92,841 | 50,725 | 40 | 6,1 |
| 122 | Sigurbjörg ST | 1175 | 90,253 | 41,863 | 36 | 11,9 |
| 123 | Árvík RE | 1735 | 87,165 | 23,005 | 57 | 5,9 |
| 124 | Far GK | 1294 | 81,333 | 17,764 | 47 | 6,7 |
| 125 | Arnar KE | 1968 | 80,652 | 30 | 6,7 | |
| 126 | Snæbjörg BA | 1436 | 79,218 | 36 | 4,4 | |
| 127 | Grunnvíkingur RE | 2012 | 78,917 | 20,917 | 62 | 4,1 |
| 128 | Þorsteinn GK 15 | 926 | 77,328 | 20 | 8,1 | |
| 129 | Guðrún Björg ÞH | 462 | 75,834 | 26 | 9,6 | |
| 130 | Ingibjörg SH | 1611 | 74,324 | 21 | 16,4 | |
| 131 | Atlavík BA | 1263 | 72,215 | 34,951 | 45 | 4,4 |
| 132 | Röst SH | 1317 | 68,087 | 24 | 7,7 | |
| 133 | Atli HF | 7111 | 66,293 | 27,297 | 38 | 5,8 |
| 134 | Haförn ÞH | 1414 | 62,998 | 4,146 | 47 | 6,9 |
| 135 | Brimrún ÞH | 1776 | 62,769 | 47,02 | 38 | 4,1 |
| 136 | Nanna Ósk ÞH | 2379 | 61,853 | 10,756 | 65 | 2,9 |
| 137 | Svanborg VE | 1320 | 61,56 | 32,193 | 53 | 3,1 |
| 138 | Tjálfi SU | 1915 | 59,143 | 40,001 | 52 | 5,4 |
| 139 | Haftindur HF | 472 | 56,181 | 27 | 10,6 | |
| 140 | Þorri VE | 464 | 56,001 | 18 | 9,1 | |
| 141 | Síldin AK | 1774 | 52,248 | 24,075 | 60 | 2,7 |
| 142 | Guðmundur Þór SU | 2045 | 51,631 | 14,048 | 80 | 1,7 |
| 143 | Dagrún ST | 1184 | 49,707 | 18,429 | 32 | 6,8 |
| 144 | Bjarni Sveins SH | 1252 | 49,559 | 16 | 9,6 | |
| 145 | Hafborg EA | 1922 | 48,97 | 48,08 | 24 | 5,1 |
| 146 | Víkurberg SK | 1866 | 48,8 | 31,585 | 30 | 6,3 |
| 147 | Steini Randvers SH | 2122 | 47,264 | 17,943 | 25 | 3,8 |
| 148 | Harpa HU | 1081 | 47,063 | 29 | 5,1 | |
| 149 | Halldór NS | 1928 | 44,585 | 0,862 | 31 | 4,7 |
| 150 | Grundfirðingur SH | 1202 | 40,566 | 5 | 14,3 | |
| 151 | Margrét AK | 2405 | 39,695 | 19 | 4,4 | |
| 152 | Litlitindur SU | 6662 | 39,626 | 16,266 | 71 | 1,5 |
| 153 | Skíði EA | 6726 | 38,774 | 21,651 | 37 | 2,6 |
| 154 | Benjamín Guðmundsson SH | 1318 | 38,574 | 8,074 | 16 | 10,7 |
| 155 | Sæþór AK | 1779 | 37,739 | 4,554 | 54 | 3,1 |
| 156 | Sæbjörg EA | 1848 | 37,4 | 23,867 | 24 | 3,3 |
| 157 | Lárberg SH | 2366 | 35,605 | 5,8 | 17 | 5,1 |
| 158 | Þytur EA | 2178 | 31,462 | 6,686 | 34 | 2,5 |
| 159 | Nípa NK | 1867 | 30,497 | 15,722 | 51 | 1,5 |
| 160 | Njáll SU | 6639 | 29,612 | 3,883 | 41 | 2,2 |
| 161 | Neisti HU | 1834 | 25,736 | 15,487 | 31 | 2,4 |
| 162 | Haförn NS | 1906 | 25,037 | 3,143 | 25 | 3,7 |
| 163 | Ísborg EA | 6711 | 24,495 | 14,882 | 43 | 1,5 |
| 164 | Marta Ágústdóttir GK | 967 | 24,412 | 3 | ||
| 165 | Mónes NK | 6902 | 23,842 | 9,009 | 32 | 1,3 |
| 166 | Garpur SH | 1926 | 20,34 | 4,28 | 29 | 3,3 |
| 167 | Hjördís NS | 1831 | 16,936 | 14 | 2,6 | |
| 168 | Ósk SF | 7048 | 16,315 | 1,689 | 14 | |
| 169 | Ás SU | 6620 | 16,282 | 8,277 | 40 | 1,5 |
| 170 | Nökkvi NK | 1842 | 13,756 | 0,373 | 18 | 1,3 |
10.04.2008 21:09
Gott hjá Steinunni SF
07.04.2008 10:23
Esjar SH og Valgerður BA
Báðir bátarnir lönduðu síðast þann 17 mars. Ef staðan er skoðuð róður fyrir róður þá lítur hún svona út;
Eftir fyrsta róður beggja báta þá var Valgerður BA ofar með tæp 22 tonn á meðan Esjar SH var með tæp 12 tonn.
róður 2:. Valgerður BA kominn í 35,5 tonn, Esjar 26,8 tonn.
Róður 3: Valgerður BA kominn í 37,1 tonn, Esjar SH 29,6 tonn.
Róður 4: Valgerður BA kominn í 46,2 tonn, Esjar SH í 32,4 tonn. Þarna er Valgerður BA kominn með ansi gott forskot á Esjar SH.
Róður 5: Valgerður BA kominn í 60,2 tonn, Esjar SH saxar mjög á þar sem báturinn landar 21 tonni, og er kominn í 53,7 tonn.
Róður 6. Esjar SH fer framúr og er kominn í 70,2 tonn, Valgerður BA 66,7 tonn.
Róður 7:. Valgerður BA fer aftur framúr og er kominn í 84,1 tonn, Esjar SH 81,2 tonn.
Róður 8: Valgerður BA kominn í 95,9 tonn, Esjar SH 91,9 tonn.
Róður 9:Valgerður BA í 106,1 tonn, Esjar SH 99,8 tonn.
Róður 10:. Valgerður BA 122,1 tonn, Esjar SH fer aftur yfir 21 tonn í löndun og fer í 121,7 tonn.
Esjar SH heldur svo áfram og er búinn að landa 2 róðrum meira heldur enn Valgerður BA, og því er niðurstaðan þann 17 mars þannig að Esjar SH er kominn í 148,3 tonn, Valgerður BA 122,1 tonn.
Nú er kominn lokastaða í þessa könnun mína. Niðurstaðann er sú að Esjar SH var með 182,7 tonn í 15 ferðum, enn Valgerður BA 122,1 tonn , Valgerður BA stoppaði 17 mars útaf vélarbilum og því má segja að könnuninn hafi verið ómarktæk eftir það. mjög jafnt var annars á bátunum fyrir stoppið hjá Valgerði BA
- 1
