> Aflafréttir og fleira - Blogg

 

Aflafréttir og fleira

Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir

Auglýsingapláss/styrkarlínur

auglýsingapláss
til
sölu,
og eða styrkarlínur.






 

Styrkja Síðuna

Styrktarreikningur síðunnar

kennitala.  2008753709

bankabók.0142-05-001072

Hvaða humarbátur verður hæstur árið 2010

 Ársæll ÁR

 Jón á Hofi ÁR

 Fróði II ÁR

 Kristbjörg VE

 Skinney SF

 Brynjólfur VE

 Þórir SF


Sýna niðurstöður

Hvað skoðar þú helst

 Smábátalista yfir 10 BT

 Smábátalista undir 10 BT

 NEtalista yfir 50 BT

 NEtalista undir 50 BT

 Dragnótalista

 Botnvörpunga

 Skoða alla lista jafnt

 Skoða helst Gömul tíð

 Línubátalista

 vill gerast styrkaraðili


Sýna niðurstöður

Sjá KVÓTASPJALL

 Já

 Nei


Sýna niðurstöður

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Kirkjuvegur 15

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-05-001072
Flettingar í dag: 205
Gestir í dag: 75
Flettingar í gær: 2875
Gestir í gær: 412
Samtals flettingar: 1234941
Samtals gestir: 312045
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 03:40:49

Blogg

27.3.2008

4 yfir 200 tonn.



Mars er og verður alltaf einn af þeim mánuðum sem allir mokfiska, og dragnótabátarnir eru þar engir undantekning.
Eftir að hafa reiknað alla bátanna saman, þá kemur í ljós að 4 dragnótabátar eru komnir yfir 200 tonnin, og er ég þá að miða við fram að páskum.
Bátarnir eru eftirfarandi.
Steinunn SH er kominn með 209 tonn í 13 ferðum.
Sæberg HF 216.1 tonn í 13 ferðum
Margrét HF 216.4 tonní 13 ferðum.
Þarna munar mjög litlu ekki nema 357 kílóum.
og Hásteinn ÁR sem er kominn í 258 tonn í 8 ferðum.
Mjög athyglisvert er að sjá aflan hjá Margréti HF ,  tvisvar hefur báturinn komið með yfir 30 tonn eftir daginn, og mest tæp 37 eftir eins dags ferð.  verður það að teljast ansi góður afli.  
Þess má svo að lokum geta að alls 21 dragnótabátur eru komnir yfir 100 tonnin.

Skrifað 27.3.2008 kl. 2:27 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.3.2008

Hópsnes GK . 2.Hluti.


Mynd Hafþór Hreiðarsson. færi ég honum bestu þkkir fyrir


Mynd Gísli Reynisson.


Hérna undir þessum pistli þá er mynd af Hópsnesi GK með góðan afla í Sandgerði núna á döginum.  Enn hvað eiga Maron GK og Hópsnes GK sameinlegt??
Jú Maron hét einu sinni Hópsnes GK.
Nafnið Hópsnes GK er Grindvíkingum mjög má kanski segja nafnkunnugt.  Hópsnes er nafnið á nesinu sem meðal annars markar hluta af innsiglunni til Grindavíkur.  Þar hafa reyndar orðið ansi mörg skipströnd í gegnum tíðina.  Ég hef keyrt nokkrum sinnum þá leið og er ansi magnað að sjá skipsflökin liggja svo til í vegsporðinum.
Segja má að kanski þessi tenging Grindvíkinga við Hópsnes sé ekki góð í minnunginni.
Hinn hluti nafnsins er að bátar með þessu nafni hafa verið gerðir út frá Grindavík í yfir 40 ár.  Hópsnes GK kemur fyrst til Grindavíkur árið 1965. Sá bátur er í dag Maron GK.
Sá bátur var gerður út til loka árs 1969, þegar nýtt Hópsnes GK kom í byrjun árs 1970.
Ætla ég að kíkja hérna á 3 vertíðir bátanna tveggja.

Fyrsta vertíð Hópsnes GK árið 1966 var ansi góð.  Báturinn byrjaði á línu og fékk 83 tonn, fór svo á netin í febrúar lok og fékk þegar vertíðinni lauk 745 tonn í 78 róðrum.  eða um 9,5 tonn í róðri að meðaltali.
10árum síðar þegar nýja Hópsnesið GK var komið þá var vertíðarafli þess báts 621 tonn í 67 ferðum, og fékk báturinn t.d tæp 200 tonn í 13 ferðum í febrúar.
10 árum síðar eða á vertíðinni 1988 þá var báturinn með 609,2 tonna vertíðarafla.

Skrifað 24.3.2008 kl. 15:20 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.3.2008

Hópsnes GK. 1.Hluti.


Mynd Andri Páll Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Skelli hérna inn mynd sem Andri Páll háseti á Hópsnesi GK tók þegar báturinn kom til hafnar í Sandgerði núna í mars með 12.5 tonn.  í dag þegar hálfeikur er á krókalistanum þá er báturinn núna í 4 sætinu. 

Skrifað 24.3.2008 kl. 15:03 af Gísli R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.3.2008

Árni í Teigi GK


Mynd Villi Ara.  færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Eins og flestir hafa tekið eftir þá er kominn hálfleikur á vetrarvertíðinni.  Eða réttara sagt frí, sem líklegast flestir sjómenn á bátunum eru mjög fegnir að komast í.  Því það er búið að vera mokveiði t.d núna í mars og bæði línubátar, dragnótabátar, trollbátar og ekki síst netabátarnir hafa verið að koma með fullfermi að landi.
Ég hef nú reyndar tekið svo stórt uppí mig að kalla þessa báta sem koma með fullfermi að landi, kafbáta. 
Allavega þá fékk ég senda mynd sem Villi Ara á Árna í Teigi GK tók á vertíðinni 2007.
Eins og sést á myndinni þá er báturinn allsvakalega siginn, og voru þetta um 18.5 tonn.  sem fengust í einungis 5 trossur eða um 4 tonn í trossu.
Enn er afli Árna á Teigi GK meiri á vertíðinni 2007 miðað við nú.?
Ég fór í smá rannsóknarleiðangur og niðurstaðan er þessi.
núna á vertíðinni 2008 þá er báturinn búinn að fara í 39 sjóferðir og kominn með 126,7 tonn, 3,3 tonn að meðaltali í róðri
í fyrra þá var aflinn 78,9 tonn í 35 ferðum eða 2,2 tonn í róðri,  og það skal tekið fram að þarna miðað ég við 18 mars sem er sá tími sem er kominn á netalistann núna árið 2008.

Hérna neðar á síðunni er lítil frétt sem heitir "Er meiri afli núna heldur enn 2002", og svarið var Já. og svo furðulega virðst vera að allavega varðandi Árna á Teigi GK þá er meiri afli núna heldur enn í fyrra.  skýtur mjög skökku við þar sem kvótinn var skorinn svona mikið niður.
Þess má svo að lokum geta að mesti afli Árna í Teigi GK núna á vertíðinni er tæp 10 tonn.



78,946/35

Skrifað 22.3.2008 kl. 16:12 af Gísli R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.3.2008

Gleðilega Páska

Mynd Gísli Reynisson.

 

Langaði að óska öllum lesendum síðunnar gleðilegra páska, og miklar þakkir fyrir jákvæð viðbrögð við efni síðunnar.

og langaði svona í framhaldi skella inn mynd sem ég hef nokkuð dálæti af, og bara ein spurning, hvaða bátur er þetta sem myndin er tekinn úr??

þetta var ansi auðvelt.  jú þetta er Bergur vigfús GK ég var á með Grétari Mar.  Þarna eru við á leið til Fáskrúðsfjarðar með um 500 tonn af loðnu .  vorum mjög langt úti það tók um 30 klukkutíma að siglja til hafnar.  

Okkur fannst helvíti súrt að sjá þegar t.d Dagfari ÞH tók frammúr okkur á leið til hafnar.  enn Bergur Vigfús GK fyrrum Keflvíkingur KE og núna Marta Ágúsdóttir GK var og er kanski enn í dag, ansi hægeng.  

Skrifað 21.3.2008 kl. 13:12 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.3.2008

Meiri veiði núna heldur enn 2002???

Í lok síðsta vertíðarslista númer 28 þá endaði ég á að tala um Magga Jóns KE varðandi góðan afla hjá bátnum.  Eftir það þá fór ég að velta fyrir hvernig staðan hafi verið hjá sama báti árið 2002.  Niðurstaðann var nokkuð sláandi.  Ákvað ég þá að taka til samaburðar 5 báta til viðbótar og taka fyrir fyrstu 12 róðranna í mars 2008 og mars 2002.  Bátarnir voru eftirfarandi:
Maggi Jóns KE, sem árið 2002 hét Linni SH.
Ísak AK, sem hét sama nafni árið 2002.
Reynir Þór SH sem hét Pegron SH árið 2002.
Níels Jónsson EA sem hét sama nafni árið 2002.
Sunna Líf KE sem hét sama nafni árið 2002.
Máni ÁR sem hét sama nafni árið 2002.
Ef við byrjum á Mána ÁR þá var afli bátsins árið 2002 12,1 tonn í 12 ferðum, árið 2008 var aflinn 67,8 tonn eða hátt í 56 tonnum meiri.
Sunna Líf KE var með 23,4 tonn árið 2002, árið 2008 var aflinn 64,6 tonn eða 41 tonni meiri.
Níels Jónsson EA var með 27,2 tonn árið 2002, árið 2008 var aflinn 42,7 tonn eða tæp 16 tonna meiri afli.
Pegron SH var með árið 2002 23,2 tonna afla, árið 2008 var aflinn 44,6 tonn eða um 21 tonni meira.
Ísak AK var með árið 2002 15,6 tonna afla, árið 2008 var aflinn 49,1 tonn eða tum 33 tonna meiri afla.
og svo að lokum báturinn sem allt snerist um í byrjun Maggi Jóns KE.
Árið 2002 þá var aflinn 22,7 tonn, árið 2008, 92,8 tonn, munurinn 70 tonn.  
Þarna er munurinn allsvakalega mikill,  reyndar verður að hafa í huga að Maggi Jóns KE og Linni SH voru að veiðum á sitthvorum staðnum, enn efast reyndar um að það hafi teljandi áhrif á afla bátsins.   
Að lokum þá læt ég hérna töflu fylgja með þannig að menn geta séð samanburð á milli róðra árið 2008 og 2002.
Maggi Jóns KE Linni SH Ísak AK Ísak AK Reynir Þór SH Pegron SH
2008 2002 2008 2002 2008 2002
2,761 0,801 5,209 0,98 5,482 1,022
5,335 1,811 3,3 0,735 3,925 1,308
2,711 0,879 4,142 0,632 2,728 1,723
4,718 2,8 2,815 0,944 2,313 1,949
4,663 1,204 3,001 1,881 4,459 3,55
9,73 0,858 5,224 1,043 6,794 5,347
7,092 1,401 3,91 0,62 3,426 2,238
14,411 4,114 2,166 3,906 3,22 0,842
12,191 1,334 4,99 1,388 2,026 0,601
8,04 1,416 5,643 1,293 6,429 2,555
13,493 2,165 4,103 0,807 2,078 1,214
7,716 3,963 4,551 1,436 1,77 0,896
Níels Jónsson EA Níels Jónsson EA Sunna Líf KE Sunna Líf KE Máni ÁR Máni ÁR
2008 2002 2008 2002 2008 2002
1,862 0,94 3,884 1,242 1,445 0,543
5,248 1,261 5,238 1,071 6,173 0,248
2,376 3,951 5,296 1,417 3,214 1,095
2,027 3,23 2,711 0,893 6,679 0,922
4,039 0,97 3,79 2,372 4,043 2,277
2,526 4,011 8,455 5,595 5,707 1,323
2,115 0,883 5,865 2,999 8,053 1,177
4,307 2,236 5,96 1,527 8,161 1,924
6,287 1,53 5,741 1,544 7,337 0,464
2,479 1,556 6,003 0,357 8,022 1,376
7,792 3 6,008 2,667 3,958 0,426
1,645 3,6 5,72 1,85 5,059 0,373

Skrifað 20.3.2008 kl. 8:59 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.3.2008

Njáll RE með fullfermi

Mynd Reynir Sveinsson.

fyrir nokkrum dögum síðan þá skrifaði ég smá frétt um afla dragnótabáta.  inní þeirri upptalningum var báturinn Njáll RE.  sá bátur er einn minnsti báturinn sem stundar dragnótaveiðar hérna suðvestanlands.  Þrátt fyrir litla stærð hefur Njáli RE gengið nokkuð vel.  miðað við aflatölur til 13 mars þá var báturinn búinn að fara 3 yfir 10 tonn í róðri.  Í gærkveldi þá kom báturinn til hafnar í sandgerði með rúmlega 17 tonna afla.  Vegna þess að ég var í vinnu þetta kvöld þá fór pabbi minn Reynir Sveinsson og náði mynd af bátnum, og eins og sést þá er hann nokkuð vel siginn. 

 

Skrifað 18.3.2008 kl. 7:19 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.3.2008

Líka góður afli hjá Dragnótabátum

Hérna á síðunni þá er fylgst mjög vel með krókabátunum og netabátunum,.
Dagnótabátar hafa líka verið í mokfiski, og þá aðalega frá Sandgerði og snæfellsnesi.  Ætla ég mér að renna hérna yfir nokkra báta frá 10. mars og til 14. mars.
Byrja fyrir norðan á Blönduósi, Skagaströnd enn þar hefur Stefán Rögnvaldsson EA landað 8,7 tonni í 4 ferðum, mest tæp 6 tonn.

Ansi langt er í næsta stað.  Alla leið til Þorlákshafnar.  þar eru nokkuð margir bátar og þá aðlega útilegubátar.

Aðalbjörg II RE 22,5 tonn í 3 ferðum, mest 10,4 tonn.
Jóhanna ÁR 51,8 tonn í 2 ferðum, mest 29 tonn.
Fróði ÁR 37,1 tonn í einni ferð
Aðalbjörg RE 21,8 tonn í 3 ferðum.  báturinn er reyndar núna komin til Grindavíkur
Sólborg RE 46,6 tonn í 3 ferðum, mest tæp 20 tonn
Hásteinn ÁR 76,1 tonn í 2 ferðum, mest 40,9 tonn.
Arnar ÁR 70,1 tonn í einni ferð
Jón á Hofi ÁR 65,6 tonn í einni ferð.

Grindavík:
Farsæll GK 46,9 tonn í 3 ferðum, mest rún 18 tonn.

Sandgerði:
Örn KE 64,7 tonn í 3 ferðum mest 22,7 tonn.
Geir KE 52,8 tonn í 4 ferðum, mest 18,3 tonn.
Siggi Bjarna GK 59,1 tonn í 4 ferðum, mest 18,8 tonn.
Sigurfari GK 51,3 tonn í 4 ferðum, mest 15,1 tonn.
Benni Sæm GK 35,9 tonn í 4 ferðum, mest 12,9 tonn.
Ásdís GK 14,4 tonn í 2 ferðum.
Arney HF 39,6 tonn í 3 ferðum, mest 18,7 tonn.
Njáll RE 38,5 tonn í 4 ferðum, mest 12,8 tonn,
og að lokum Margrét HF 87,8 tonn í einungis 3 ferðum, mest 32,7 tonn.  gríðarlega góður afli hjá Margréti HF.

Rif:
Bára SH 15,1 tonn í 3 ferðum, mest 6,4 tonn.
Matthías SH 82,9 tonn í 4 ferðum, mest 24,9 tonn.
Esjar SH 63,7 tonn í 5 ferðum, mest 21,9 tonn.
Rifsari SH 113,4 tonn í 5 ferðum,  mest 29,5 tonn.  svakalega mikill afli hjá Rifsara SH og af þeim bátum sem hérna í þessu létta yfirliti eru teknir þá er Rifsari SH langhæstur.

Ólafsvík:
Sæberg HF 68,5 tonn í 4 ferðum, mest 22,3 tonn.
Gunnar Bjarnarsson SH 53,5 tonn í 3 ferðum, mest 18,7 tonn.
Valgerður BA 46,9 tonn í 4 ferðum, mest 17,8 tonn.
Steinunn SH 91,3 tonn í 5 ferðum, mest 24,4 tonn.
Sveinbjörn Jakopsson SH 17,5 tonn í einni ferð.
Jakop Einar SH 9,2 tonn í 3 ferðum.
Sandvík SH 18,8 tonn í 4 ferðum, mest 8,3 tonn.

Patreksfjörður:
Brimnes BA 25,2 tonn í 3 ferðum, mest 12,1 tonn.

Bolungarvík :
Páll Helgi ÍS 4,1 tonn í 3 ferðum.

Eins og sést á þessu stutta yfirliti þá er mjög góður aflí hjá mörgum bátanna, yfir 20 tonn á dag, og 30 tonn eins og hjá Margréti HF. 
Svo varðandi könnunina þá virðsti vera samkvæmt þessari viku að Esjar SH sé að taka Valgerði BA.  sem er þvert á móti því sem lesendur síðunnar hafa spáð, enn þar er Valgerður BA með meiri atkvæði heldur enn Esjar. 




Skrifað 16.3.2008 kl. 21:43 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.3.2008

MOK í netin

Það fer ekkert á milli mála að núna er vertíðinn í hámarki, bátar eru farnir að koma með fullfermi að hálfa væri nóg.  ég ætla að líta á nokkra báta daganna 6 til 12 mars. og byrja á Höfn í hornafirði.
Erlingur SF 48,1 tonn í 4 ferðum.
Þórir SF 45,8 tonn í 6 ferðum
Sigurður Ólafsson SF 42,2 tonní 6 ferðum
Hvanney SF 125,5 tonn í 5 ferðum,  ótrúlega góður afli hjá bátnum.

Vestmannaeyjar:
Portland VE 28,7 tonn í 4 ferðum
Gandí VE 63,6 tonn í 3 ferðum

Þorlákshöfn:
Máni ÁR 33,3 tonn í 5 ferðum enn hann er í 50- flokknum.

Grindavík:
Tryllir GK 24,5 tonn í 5 ferðum
Gullfari II HF 25,1 tonn í 5 ferðum
Hraunsvík GK 31,7 tonn í 4 ferðum, komst mest í rúm 16 tonn.
Reynir GK 37,5 tonní 4 ferðum, fór mest í rúm 11 tonn
Askur GK 41,6 tonn í 5 ferðum, mest rúm 11 tonn
Árni á Teigi GK 41,7 tonn í 6 ferðum, mest tæp 10 tonn
Grímsnes GK 46,8 tonn í 4 ferðum.
Þorsteinn Gíslasson GK 60,5 tonn í 6 ferðum,mest rúm 17 tonn.
Marta Ágústdóttir GK 73,9 tonn í 6 ferðum.

Sandgerði:
Maggi Jóns KE 28,9 tonn í 5 ferðum
Sunna Líf KE 26,7 tonn í 5 ferðum.

Keflavík:
Erling KE 37,1 tonn í 2 ferðum
Ósk KE 82,9 tonn í 5 ferðum,  mest rúm 29 tonn.  svakalega góður afli á ekki stærri báti.

Arnarstapi:
Keilir II AK 27,3 tonn í 3 ferðum, mest rúm 16 tonn.
Bárður SH 59,8 tonn í 7 ferðum.

Rif:
Magnús SH 27,6 tonn í 2 ferðum.

Ólafsvík:
Egill SH 33,3 tonn í 4 ferðum.
Sjöfn EA sem er í 50- flokknum 35,1 tonn í 5 ferðum.
Arnar SH 65,3 tonn í 3 ferðum.
Geir ÞH 92,1 tonn í 5 ferðum, mest tæp 27 tonn.

Grundarfjörður:
Sæþór EA 42,2 tonn í 5 ferðum, mest rún 12 tonn,  báturinn  er í 50- flokknum
Haukaberg SH 62,9 tonn í 5 ferðum.

og svo að lokum norður í land.
Ólafsfjörður:
Níels Jónsson 18,3 tonn í 6 ferðum
Eiður EA 22,6 tonn í 6 ferðum

Grímsey:
Sæbjörg EA 23,1 tonn í 5 ferðum.
Hafborg EA 23,6 tonn í 3 ferðum
Þorleifur EA 52,6 tonn í 5 ferðum.

Skrifað 13.3.2008 kl. 13:28 af gísli r

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.3.2008

Afli frystitogara í febrúar


Mynd Guðmundur St. Valdimarsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Febrúar listinn lítur hérna dagsins ljós.  Þónokkrar meiri landanir voru í febrúar heldur enn í janúar.  Smuguskipinn lönduðu t.d öll í febrúar.  og voru þau eftirfarandi.  Brimnes RE, Víðir EA, Sigurbjörg ÓF og Þór HF.  Reyndar var afli hjá Þór HF 340 tonn í barnetshafinu, restin var á heimamiðum.  Reyndar er rétt að taka fram að það er tæplega 4 daga sigling á miðin í úthafinu og skekkir það nokkuð varðandi afla per úthaldsdag. 
Helga María AK varð aflahæst í febrúar,  reyndar ekki nema sjónarmun á undan Örfirsey RE.  Helga María AK landaði reyndar tvisvar sinnum og eru úthaldsdagatölurnar samanlagðar fyrir báða túranna.  sá fyrri var 30 dagar, enn sá seinni ekki nema 18 dagar.  í þeim túr var afli per dag 21,4 tonn. 
Örifirsey RE var hæst miðað við afla per úthaldsdag, enn ef t.d smuguskipin eru reiknuð þannig að sigling til og frá miðum dettur út þá breytast tölurnar nokkuð.
Þá myndi afli hjá Brimnesi RE og Þór HF fara úr rúmum 21 tonni í 27 tonn á dag. og hjá Sigurbjörgu ÓF úr tæpum 15 tonnum og í rúm 18 tonn á dag.  Engu að síður þá væri Örfirsey RE hæst.
Málmey SK var með hátt í 534 tonn af ufsa í afla sínum og var með langmesta ufsaafla allra frystitogara.

Og eins og í janúar þá eru núna öll skip á listanum


Sæti Nafn Afli Landanir Úthaldsdagar Afli.per.dag
1 Helga María AK 951,7 2 48 19,8
2 Örfirsey RE 942,7 1 33 28,5
3 Málmey SK 851,5 1 35 24,3
4 Brimnes RE 764,8 1 36 21,2
5 Höfrungur III AK 756,2 1 35 21,6
6 Þór HF 747,9 1 35 21,3
7 Víðir EA 681,4 1 25 27,2
8 Gnúpur GK 631,6 1 31 20,3
9 Sigurbjörg ÓF 603,1 1 41 14,7
10 Arnar HU 601,1 1 33 18,2
11 Venus HF 576,2 1 31 18,6
12 Baldvin Njálsson GK 573,1 1 34 16,8
13 Mánaberg ÓF 570,4 1 26 21,9
14 Oddeyrin EA 564,4 1 24 23,5
15 Vigri RE 537,8 1 32 16,8
16 Barði NK 529,6 1 24 22,1
17 Júlíus Geirmundsson ÍS 507,1 1 32 15,8
18 Hrafn Sveinbjarnarsson GK 485,6 1 31 15,6
19 Kleifaberg ÓF 432,3 1 26 16,6
20 Guðmundur Í Nesi RE 292,1 1 29 10,1
21 Frosti ÞH 237,7 1 28 8,5

Skrifað 12.3.2008 kl. 9:31 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.3.2008

Lítil getraun númer 2


Mynd Gísli Reynisson


Eitt af því allra flottasta sem ég sé er að sjá báta vel hlaðna koma til hafnar. 
Ég rak augin í Magga Jóns KE í Sandgerðishöfn núna nýverið og eins og sést á myndinni þá er hann ansi vel siginn.

Ég ætla að prufa aftur með pælinguna um hversu mikinn afla halda menn að báturinn sé með þarna á myndinni. 
+eg reyndar fór til bátsverja og þeir sögðu...

enn hvað haldið þið, miðað við myndina. 
smá vísbending
6 trossur 10 neta


jæja þá eru niðurstöðurm komnar.
aflinn í þessum róðri var 9,7 tonn.
báturinn tekur sig mjög vel út með þennan afla

Skrifað 12.3.2008 kl. 9:11 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.3.2008

Lítil könnun

Var að skella inn smá könnun um systurbátanna Valgerði BA og Esjar SH.
Frétt mín um bátanna tvo sem er hérna að neðan vakti nokkra athygli og fannst mörgun athyglisvert hversu vel þessum tveimur litlu bátum gengi. 
og því datt mér í hug, að henda þeim inní smá könnun.
hún er bara hvor verður hærri í mars.
Þess má geta að í febrúar þá munaði ekki nema rúmum 600 kílóum á milli bátanna, enn báðir voru með 147 tonn.  Valgerður BA var hærri þann mánuð.

Langar að bæta hérna við þar sem nokkrir hafa komið með þau mæli tíl mín hvort bátarnir séu systurskip. ætla að setja hérna tölur um bátanna 
                   Esjar SH                                Valgerður BA
BR                51,9                                            60,7
BT                 55,3                                            63,7
Mesta lengd 19,8                                            19,38
Breidd           4,99                                           4,99
Nettótonn      16,6                                            19,1
Skráð lengd  18,39                                          17,81
Dýpt               2,32                                            2,57

Esjar SH var fyrst skráður 15 apríl árið 1999
Valgerður BA 14 desember 1999
 

Skrifað 11.3.2008 kl. 20:57 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.3.2008

Maggi Jóns KE með fullfermi.

Myndir Gísli Reynisson

 

Í gær þá setti ég inn smá getraun um hversu mikinn afla menn héldu að Maggi Jóns KE hafi komið með.  Niðurstöður úr því eru ekki komnar enn hérna eru fleiri myndir af aflanum á bátum þennan dag.  Enn þeir áætluðu að aflinn væri eitthvað í kringum 10 tonn.  og eins og sést þá voru þarna innan um stórir boltar eins og einn áhafnarmeðlimur heldur á.

Netaveiði hérna sunnanlands hefur verið mjög góð uppá síðkastið og má alveg búast við því að svona stórir róðrar og jafnframt stærri fari að líta dagsins ljós.

 

Skrifað 11.3.2008 kl. 8:26 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.3.2008

Aflahæstu krókabátar í Febrúar

 

Ég fékk nokkra skömm í hattinn þegar ég tók út febrúar listann og kom ekki með endanlegan lista.  Eins og Lognið stormsson kom með. 
Allavega þá lítur febrúar listinn svona út.  ansi góður árangur hjá bæði Bíldsey SH og Óla Gísla GK.  Þess má geta að þessi listi nær einungis til báta yfir 10BT.  Netabátarnir eru ekki inní þessum pakka.  Ef þeir væru með þá hefði Bárður SH verið í öðru sæti með 130 tonn. 
Held samt að sá bátur sem var að standa sig hvað best hafi verið Lilja SH. Lilja SH er minnsti báturinn yfir 10BT, enn komst nokkrum sinnum inná topp 10 í febrúar enn endaði í 17 sætinu.
Ef velja ætti bát mánaðrins þá kæmi Lilja SH þar ansi sterklega til greina.
Gaman væri ef menn hefðu einhverja skoðun á þessum lista.

 

Sæti Nafn Afli Róðrar Mest
1 Kristinn SH 140,9 17 17,3
2 Tryggvi Eðvars SH 129,7 17 9,7
3 Sirrý ÍS 115,7 22 7,8
4 Bíldsey SH 110,1 20 7,8
5 Hópsnes GK 109,5 19 11,8
6 Guðmundur Einarsson ÍS 105,7 22 8,1
7 Þórkatla GK 96,1 18 8,8
8 Björgmundur ÍS 95,1 20 8,1
9 Óli Gísla GK 93,5 16 10,8
10 Happadís GK 84,5 18 11,6
11 Guðbjartur SH 84,2 16 11,1
12 Stakkhamar SH 81,5 15 9,9
13 Háey II ÞH 76,7 11 10,9
14 Dögg SF 75,8 10 11,7
15 Óli á Stað GK 74,6 18 8,3
16 Flugaldan ST 74,3 20 4,7
17 Lilja SH 73,4 15 7,8
18 Daðey GK 71,9 14 12,5
19 Gísli Súrsson GK 71,3 13 10,1
20 Dúddi Gísla GK 70,7 15 8,4
21 Gestur Kristinsson ÍS 70,2 17 6,1
22 Særif SH 67,9 10 12,7
23 Sæhamar SH 67,5 12 8,7
24 Kvika SH 64,5 16 5,5
25 Auður Vésteins GK 63,1 14 9,4
26 Hrefna ÍS 64,5 10 8,9
27 Kristján ÍS 60,4 14 5,4
28 Akraberg AK 59,7 14 6,7
29 Jonni SI 57,3 9 12,1
30 Hildur GK 56,7 14 7,2

Skrifað 10.3.2008 kl. 19:09 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.3.2008

Höfrungur BA byrjaður


Mynd Grétar Þór Sæþórsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Innanfjarðarrækjuveiðar eru hafnar að nýju eftir nokkurt hlé.  Að þessu sinni eru veiðar í Arnarfirði leyfðar, og eins og staðan er núna þá er Höfrungur BA sá eini sem er byrjaður.  Báturinn byrjaði í enda febrúar og fór þá í einn róður og kom með 3069 kg. 
núna í mars er báturinn búinn að landa einu sinni, og má segja að báturinn hafi komið með fullfermi því landað var úr bátnum 6925 kíló. 

Skrifað 10.3.2008 kl. 15:10 af Gísli,.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.3.2008

Mikill munur á 7 árum

Skoða nánar

6.3.2008

smá getraun...

Skoða nánar

6.3.2008

Bræður munu berjast!!

Skoða nánar

5.3.2008

Birta BA

Skoða nánar

2.3.2008

Mok í dragnót

Skoða nánar

2.3.2008

Góður endir á netaveiði í febrúar

Skoða nánar

2.3.2008

Víðir II GK kominn heim !

Skoða nánar

1.3.2008

Kristinn SH og Bárður SH

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Tenglar

/body>