> Aflafréttir og fleira - Blogg

 

Aflafréttir og fleira

Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir

Auglýsingapláss/styrkarlínur

auglýsingapláss
til
sölu,
og eða styrkarlínur.






 

Styrkja Síðuna

Styrktarreikningur síðunnar

kennitala.  2008753709

bankabók.0142-05-001072

Hvaða humarbátur verður hæstur árið 2010

 Ársæll ÁR

 Jón á Hofi ÁR

 Fróði II ÁR

 Kristbjörg VE

 Skinney SF

 Brynjólfur VE

 Þórir SF


Sýna niðurstöður

Hvað skoðar þú helst

 Smábátalista yfir 10 BT

 Smábátalista undir 10 BT

 NEtalista yfir 50 BT

 NEtalista undir 50 BT

 Dragnótalista

 Botnvörpunga

 Skoða alla lista jafnt

 Skoða helst Gömul tíð

 Línubátalista

 vill gerast styrkaraðili


Sýna niðurstöður

Sjá KVÓTASPJALL

 Já

 Nei


Sýna niðurstöður

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Kirkjuvegur 15

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-05-001072
Flettingar í dag: 176
Gestir í dag: 69
Flettingar í gær: 2875
Gestir í gær: 412
Samtals flettingar: 1234912
Samtals gestir: 312039
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 03:17:39

Blogg

29.2.2008

Erling KE fyrstur


Gísli Reynisson

Friðrik Sigurðsson ÁR sem hefur verið efstur á netalistannum og var ekki nema rúmum 600 kílóum frá 400 tonna markmiðinu sem ég hef gagnvart netalistanum.

Erling KE sem var í öðru sæti hefur gengið nokkuð vel uppá síðkastið og fékk 68 tonn í 2 ferðum og það dugði honum til þess að komast í efsta sætið og ásamt því að verða fyrsti báturinn til þess að komast yfir 400 tonna viðmiðið.
Til hamingju með það áhöfn Erlings KE.

Þá er bara spurning hver verður næstur.  eins og staðan er núna þá er Friðrik Sigurðsson ÁR ekki nema 600 kílóum frá því, enn Grímsnes GK er þar á eftir.

Skrifað 29.2.2008 kl. 13:49 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.2.2008

Línubátar í febrúar


Línubátar sem eru stærri enn 15 tonn, eru flest allir með beitningavél.  Einungis tveir aflamarksbátar róa með bala, sem er mikil breyting frá því sem var þegar svo til allir línubátar réru með bala.  Í heimabæ mínum Sandgerði voru hérna á árum áður mjög margir stórir línubátar sem réru með bala.  t.d Geir Goði GK, Jón Gunnlaugs GK. Freyja GK. Mummi GK, Víðir II GK.
Allavega í dag þá er afli línubátanna eftirfarandi, og sá sem efstur kemur nokkuð á óvart.
Gullhólmi SH búinn að landa einu sinni 48 tonni.
Tómas Þorvaldsson GK 81 tonn í 2 ferðum.
 Sighvatur GK 113 tonn í 2 ferðum. mest 79 tonn
Arnarberg ÁR 122 tonn í 3 ferðum, hann er búinn að landa 2 á Grundarfirði.
Rifsnes SH 140 tonn í 3 ferðum, mest 56 tonn.
Grundfirðingur SH 151 tonn í 3 ferðum.
Hrungnir GK 153 tonn í 3 ferðum.
Saxhamar SH 154 tonn í 5 ferðum.
Valdimar GK 158 tonn í 3 ferðum.
Þorlákur ÍS 164 tonn í 4 ferðum, mest 46 tonn.
Kópur BA 168 tonn í 5 ferðum.
Ágúst GK 187 tonn í 2 ferðum, mest 77 tonn.
Jóhanna Gísladóttir ÍS 188 tonn í 3 ferðum.
Kristrún RE 189 tonn í 4 ferðum, mest 68 tonn.  Hefur Kristrún RE komist 2 yfir 60 tonn í löndun.
Kristín GK 197 tonn í 3 ferðum.
Sturla GK 203 tonn í 3 ferðum.
TJaldur SH 205 tonn í 4 ferðum, mest 64 tonn.
Örvar SH 216 tonn í 5 ferðum, mest 62 tonn.
Páll Jónsson GK 235 tonn í 4 ferðum.
Núpur BA 246 tonn í 5 ferðum, mest 57 tonn. 
Að auki þá er Hafdís GK sem er systurskip Esjars SH og Valgerðar BA, enn Hafdís GK er með beitningavél og rær frá Sandgerði, var báturinn kominn með 58 tonn í 12 ferðum.
Og að lokum þeir tveir balabátar sem hafa róið.  Valur ÍS sem rær frá Súðavík var kominn með 27 tonn í 5 ferðum, mest 7,8 tonn og Hafrún HU 31 tonn í 7 ferðum mest 6,8 tonn.

Skrifað 26.2.2008 kl. 8:28 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.2.2008

Hressandi línuveiði suðvestanlands


Gísli.R
Það er búið að vera ansi döpur veiði hjá línubátum sem róa á svæðinu frá Reykjavík og suður um til Grindavíkur.  Núna síðstu 5 daga hefur heldur betur gengið vel hjá bátunum og hafa margir þeirra komið með mjög stóra landanir.
Lítum á nokkra.

Þórkatla GK var með 21 tonn í 4 ferðum, mest 7,5 tonn, báturinn landaði í Hafnarfirði og í Sandgerði.

Hópsnes GK var með 27 tonn í 4 ferðum, og eins og Þórkatla GK þá landaði báturinn fyrst í Hafnarfirði og síðan í Sandgerði.  Þar kom Hópsnesið GK með 11,6 tonn og af því var þorskur 8,2 tonn.

Óli Gísla GK var með 14 tonn í tveimur ferðum, mest 7,1 tonn.

Sama dag og Hópsnesið GK kom með tæpu 12 tonnin sín þá kom Daðey GK til Sandgerðis með 10,1 tonn, þar af var þorskur tæp 7 tonn. Reyndar þá gerði Daðey GK enn betur deginum eftir þegar hann kom til hafnar með 12,8 tonn.  tæp 23 tonn í tveimur ferðum. 

Hildur GK var með 12 tonn í tveimur ferðum mest 7,2 tonn.

Skoða má nánar stöðuna hjá krókabátnum í nýuppfærðum lista sem kemur hérna á síðuna í dag.

Skrifað 25.2.2008 kl. 23:34 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.2.2008

Togarar í Febrúar

Eins og með trollbátanna þá hef ég ekkert litið á ísfiskstogaranna.  það sem af er Febrúar þá hafa eftirfarandi togarar landað afla.
Bylgja VE er búinn að landa 3 og er kominn með 76 tonn, af því er búið að setja í 8 gáma.
Sunna KE seldi erlendis og var með 84 tonn sem selt var þann 12.
Brynjólfur VE er kominn með tæp 90 tonn í 3 ferðum, og af því er búið að setja í 7 gáma.
Gunnbjörn ÍS sem landar á ísafirði er kominn með 137 tonn í 3 ferðum, mest tæp 60 tonn, og búið að setja í 2´gáma.
Jón Vídalín VE er kominn með tæp 140 tonn í 2 ferðum, mest 93 tonn og af því er búið að setja í 4 gáma.
Örvar HU var með 142 tonn í einni ferð þann 12.
Klakkur SH 148 tonn í 2 ferðum, mest 94 tonn. Landaði hann fyrst á sauðárkróki og síðan á Eskifirði, búið að setja í 2 gáma hjá Klakki SH.
Bergur VE 153 tonn í 4 ferðum, og af því er búið að setja í 10 gáma.
SKafti HF sem hefur einbeitt sér að karfaveiðum er búinn að landa 3 og kominn með 155 tonn, mest 61 tonn.
Gullberg VE 158 tonn í 3 ferðum, og af því er búið að setja í 11 gáma
Suðurey VE er búinn að landa 3 og kominn með 185 tonn, mest 96 tonn og af því er búið að setja í 5 gáma.
Berglín GK 189 tonn í 3 ferðum, mest 81 tonn.  Búið er að setja í 4 gáma
Árbakur EA 208 tonn í 3 ferðum, mest 98 tonn og af aflanum er búið að setja í 6 gáma.
Sóley Sigurjóns GK er kominn með 224 tonn í 3 ferðum, mest tæp 90 tonn, og af því er búið að setja í 4 gáma.
Kaldbakur EA 232 tonn í 2 ferðum, mest 146 tonn.  búið er að setja í 6 gáma.
Múlaberg SI 235 tonn í 3 ferðum, mest 104 tonn, búið er að setja í 3 gáma.
Bjartur NK 243 tonn í 3 ferðum, mest 104 tonn.
Páll Pálsson ÍS 246 tonn í 4 ferðum, og búið að setja í 5 gáma.
Björgúlfur EA 257 tonn í 3 ferðum mest 98 tonn.
Stefnir ÍS 282 tonn í 4 ferðum, mest 109 tonn og búið er að setja í 5 gáma.
Ásbjörn RE 284 tonn í 3 ferðum mest 158 tonn.
Sturlaugur H Böðvarsson AK 302 tonn í 3 ferðum, mest 143 tonn.
Björgvin EA 323 tonn í 3 ferðum , mest 133 tonn og búið að setja í einn gám.
Otto N Þorláksson RE 534 tonn í 4 ferðum, mest 180 tonn.

Eins og sést á þessu yfirliti þá er Ottó N.Þ.RE langaflahæsti togarinn enn sem komið er, og ólíklegt að einhver togarinn nái honum áður enn febrúar mánuður rennur sitt skeið.  Heildarfjöldi gáma er kominn í 83 gáma.

Skrifað 23.2.2008 kl. 12:58 af Gískli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.2.2008

Trollbátar í febrúar

mjög lítið hef ég fjallað um trollbáta núna í febrúar, skal hérna litið á bátanna víðsvegar um landið.
Byrjum í ísafjarðardúpi.  Núna er reyndar búið að banna trollveiðar þar vegna mikils aukaafla.  Bátarnir voru annars 3 sem voru á trolli, og var Sæbjörn ÍS frá bolungarvík með rún 12 tonn í 4 ferðum.  Halldór Sigurðsson ÍS tæp 18 tonn í 5 ferðum og ALdan ÍS 44 tonn í 8 ferðum.  Aldan ÍS er jafnframt eini báturinn af þessum þremur sem er kominn á dragnótaveiðar.
Vestri BA er gerður út frá Patreksfirði og var kominn með 145 tonn í 4 ferðum,  mest rúm 40 tonn í róðri. 
Hamar SH landar á Rifi og var kominn með tæp 53 tonn í 3 ferðum.
Grundarfjörður sem er ásamt Vestmannaeyjum aðaltrollútgerðarstaður landsins, þar landa þónokkrir trollbátar.  Farsæll SH var kominn með 82 tonn í 3 ferðum.  Eitt er nokkuð merkilegt við aflann af Farsæli enn engnir gámar fóru af Farsæli SH, enn allir aðrir trollbátar í Grundarfirði lönduðu í gáma.  
Þorvarður Lárusson SH er kominn með 112 tonn í 3 ferðum,  Sóley SH 119 tonn í 4 ferðum.  Helgi SH 129 tonn í 4 ferðum , mest 53 tonn.  Sigurborg SH 161 tonn í 3 ferðum og er tvisvar búinn að landa rétt yfir 60 tonnum.  Hringur SH er kominn með 163 tonn í 3 ferðum, mest 77 tonn í róðri. 
Í reykjavík er Steinunn SF gerð út og var báturinn búinn að fara í tvær sjóferðir og landa alls 127 tonni, mest 66 tonn.
Í Sandgerði er Óskar RE og hefur hann mestmegnis einbeitt sér að lýsuveiðum, og var kominn með tæp 19 tonn í 3 ferðum.
Í Grindavík er Oddgeir ÞH sem var búinn að fara í eina ferð og kom með tæp 46 tonn að landi.  Vörður EA er búinn að fara í 2 ferðir og er kominn með 106 tonn mest 72 tonn í löndun, sem er fullfermi hjá honum.
Í Vestmannaeyjum eru ansi margir bátar.
Stígandi VEr er kominn með tæp 60 tonn í 2 ferðum.  Nýi Dala Rafn VE 88 tonní 2 ferðum.  Drangavík  VE 125 tonn í 4 ferðum.  Vestmannaey VE 131 tonn í 4 ferðum,  Smáey VE 163 tonn í 4 ferðum og Bergey VE sem er langaflahæst enn sem komið er.  Bergey VE er kominn með 256 tonn í 4 ferðum, mest 83 tonn í róðri.  
Og að lokum Þinganes SF sem hefur landað á Höfn í Hornafirði og líka á Djúpavogi er kominn með 49 tonn í 2 ferðum. 

Skrifað 21.2.2008 kl. 17:09 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.2.2008

10+ tonna landanir hjá smábátum


Mynd Hermundur Svansson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Það var eins og við mannin mælt um leið og skrepp frá í nokkra daga þá skeður ýmislegt.  Og eitt af því er mikill fjölda landana hjá smábátum sem eru stærri enn 10 brúttótonn af 10 tonnum og meira í löndum. 
Það sem af er febrúar hafa þónokkrir farið yfir 10tonnin
Benni SF hefur komist í 10.9 tonn.
Dögg SF 10.7 tonn og svo aftur 11,7 tonn.
Jonni SI 12,1 tonn,  og vekur þessi afli þónokkra athygli þar sem hann er langtum meiri heldur enn afli hjá báti sem gerður er út norðanlands er.  Háey II ÞH er þar á eftir með ekki nema 8,7 tonn miðað við stóra róður Jonna SI.
Særif SH hefur komist í 12,7 tonn,
Kristinn SH sem á hingað til stærsta róðurinn 13,9 tonn. 
Tryggvi Eðvars SH er sá sem er næstur við 10 tonnin, enn hann hefur mest komist í 9,7 tonn. 

Skrifað 18.2.2008 kl. 21:40 af gísli r

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.2.2008

Bárður SH


Mynd Alfons Finnson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Þeir sem hafa verið að fylgjast með vertíðarlistanum hérna á síðunni, hafa örugglega tekið eftir því að smábáturinn Bárður SH er gjörsamlega búinn að stinga hina bátanna af í sínum flokki. 
Núna um daginn kom Bárður SH með tæp 14 tonn í róðri, og þótt Bárður SH sé smábátur þá er þessi 14 tonna róður næst stærsti netaróður allra netabáta við snæfellsnes.  Einungis Þórsnes II á stærri róður 14,7 tonn.  Er svo komið að Bárður SH er orðinn 4 aflahæsti netabátur landsins. 
áhöfninn á bátnum þarf reyndar að halda vel á spöðunum því á vertíðinni 2007 þá fiskuðu þeir rétt rúm 600 tonn, og því er spurning hvort þeir nái að slá það met. 

Skrifað 13.2.2008 kl. 14:15 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.2.2008

Dögg SF og Benni SF

Línubátunum Benna SF og Dögg SF virðist ganga ansi vel í þau skipti sem bátarnir hafa komist út.  í janúar þá komst Dögg SF ekki á sjó í 8 daga samfleytt, svo loks þegar Dögg SF komst út þá kom hún með að landi rúm 13 tonn. 
Núna í febrúar þá hafa báðir bátarnir komið með yfir 10 tonn að landi.  Benni SF hefur mest komist í 10,9 tonn og Dögg SF 11,8 tonn.
Þess má geta að þessir bátar eru einu smábátarnir sem hafa komist yfir 10 tonn það sem af er febrúar.

Skrifað 12.2.2008 kl. 9:38 af Gísli.r

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.2.2008

Stærsti grásleppubátur..........í heimi????!!!!!!!


Mynd Jón Páll Ásgeirsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Uppsjávarskipin okkar eru kominn flest hver úr síldarveiðum í grundarfirðinum,  og hafa þau dreifst á loðnu, kolmuna og síld sem nokkur skip eru við veiðar á.
Við síldveiðar í Grundarfirði þá var meðafli oft ansi mikill og reiknast til að aukaafli á síldveiðunum í haust 2007 hafi numið tæpum 120 tonnum.
Ingunn AK hefur verið á loðnuveiðum það sem af er þessu ári, og var t.d með 2464 tonna afla í 3 ferðum í janúar. 
hvað tengist það grásleppuveiðum?.
grásleppuveiðar eru mestmegnis stundaðar af litlum smábátum flestum undir 10 BT, og því vekur það nokkra athygli að aukaafli hjá Ingunni AK þar er grálseppa 83 kíló.
og því á titillinn á pistlinum vel við...Stærsti grásleppubátur í ....heimi...... ???. 
Reyndar þá var Börkur NK einnig með grálsleppu , enn Börkur NK var með 4489 tonn í 4 ferðum og af því var grásleppa 20 kíló. og að lokum var Lundey NS með 54 kíló af grásleppu af 1828 tonna afla í 3 ferðum. 
Eins og sést þá er grásleppuaflinn ekki stór hluti af heildarafla skipanna, enn vekur athygli engu að síður.

Skrifað 11.2.2008 kl. 15:08 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.2.2008

Frystitogarar í Janúar.


Mynd Þorgeir Baldursson Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Fyrsti frystitogaralisti ársins lítur hérna dagsins ljós.  Eins og ég skrifaði í litlum pistli fyrr í mánuðinum þá er þessi listi nokkuð öðruvísi heldur enn þeir listar sem einnig eru í "Frystitogarar.Listar" flokknum.  Breytinginn er sú að núna eru allir togarar á lista og er þeim raðað eftir afla.  Einnig eru hérna úthaldsdagar og reiknaður afli per úthaldsdag.  í töflu eru úthaldsdagar skammastafaðir ÚTD.  Segja má að um smá tilrauna starfsemi sé að ræða þar sem úthaldsdagar hafa ekki verið með í aflaskýrslum undanfarin ár.  Ég veit til þess að þegar síðurtogarnir voru gerðir út og alveg fram til sirka 1980 þá voru úthaldsdagar gefnir upp ásamt t.d fjölda toga.
Enn annars að listanum.  Það voru ekki margir togarar sem lönduðu í janúar, og vekur athygli að Barði NK er hæstur togaranna að auki þá var Barði NK með næst mestan afla á ÚTD.  Oddeyrin EA varð hæst og jafnframt eini togarinn sem yfir 20 tonn fór á ÚTD. 
Annars lítur listinn svona út. og þar sem um nokkuð öðruvísi uppsetningu er að ræða þá væri gaman að fá að vita hvernig mönnum líst á þessa gerð af frystitogaralista.
 Sæti  Nafn     Afli      Landanir  ÚTD  afli.per.ÚTD   

  1 

 Barði NK         464,2  

 1

 26  17,8   

 2

 Þerney RE  449,4

1

 28 16,1  

 3

 Oddeyrin EA   446,9

 1 

 20  22,3   

 4

 Mánaberg ÓF  438,8

 1 

 28  15,6  

 5

 Kleifaberg ÓF   397,6

 1 

 26  15,3  

 6

 Snorri.Sturlusson.VE  378,3 

 1 

 28  13,5  

 7

 Hrafn.Sveinbjarnarsson.GK    362,9

 1 

 21  17,3   

 8

 Hrafn GK  347,2

 1 

 29  11,9  

 9

 Örfirsey RE  318,7

 1

 22  14,5   

 10

 Freri RE  265,7

 1

 30  9,5  

 11

 Frosti ÞH  227,1

 1 

 25  9,1   

 12 

 Brimnes RE  31,1

 1

 3  10,3  
             
             
             
             
             
             
             

Skrifað 9.2.2008 kl. 14:39 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.2.2008

Er þetta ein ástæða???!!!


Mynd Gísli Reynisson.

Fyrir nokkru þá fór ég ásamt Frosta mínum ( hundurinn minn) í göngutúr um Reykjanesbæinn minn, og hluti af göngunni var að rölta niður á bryggju.
Í Njarðvík hefur undanfarin legið þar stálbátur að nafni Jóhanna Margrét SI.  hefur hún legið þar undanfarin 2 ár eða svo. 
Það sem vakti athygli mína voru spottarnir sem ganga aftur úr bátnum, því eins og sést á myndinni þá er annar þeirra orðin ansi laslegur. 
Var þetta kanski ástæðann fyrir því að Tjaldanes GK sem lá hinum meginn við bryggjuna þar sem Jóhanna Margrét SI lá, að hann slitnaði upp??.  allavega sargast þessir spottar þó sverir séu.
Saga bátsins:
Jóhanna Margrét SI var upprunalega smíðaður í austur-þýskalandi árið 1960 og hét fyrst Vinur ÍS 102 frá hnífsdal. fékk síðan 2 árum seinna nafnið Páll Pálsson ÍS.
Í stuttu máli má segja að nafnasaga bátsins sé eftirfarandi:
1960:Vinur ÍS 102
1962:Páll Pálsson ÍS 101
1967:Hamraberg VE 379
1974:Valdimar Sveinsson VE 22
1978:Eldhamar GK 72
1979:Eldhamar GK 13
1982:Klængur ÁR 2
1988:Tindfell SH 21
1991:Skarphéðinn RE 317
1995:Sæberg ÁR 20
1997:Háhyrningur BA 233
2000 (28.6):Helganes ST 11
2000:(20.11):Eyjaberg ST 60
2001:Eyjaberg GK 130
2002:Eyjaberg SK 130
2004:Jóhanna Margrét HU og síðan SI 11
Nokkar aflatölur:
Fyrstu vertíð bátsins árið 1961 þá réri Vinur ÍS á línu frá Ísafirði og fékk alls 275 tonn í 60 ferðum, var það mjög lítill afli ef miðað er við aðra línubáta á svæðinu þessa vertíð.
Eins og margir bátar á árunum 1960 til 1966 þá fór Vinur ÍS á síld og t.d árið 1962 þá landaði báturinn samtals 937 tonnum af síld í 25 ferðum eða tæp 38 tonn í löndun.
1964 þá gekk bátnum ansi vel á vertíð og fékk alls þá 713 tonn í 64 ferðum eða rúm 11 tonn í róðri.
árið 1972 þá var Hamraberg VE nafnið komið á bátinn og var t.d heilarársafli bátins það ár 895 tonn, og mesti afli í róðri ræp 33 tonn.
og svo í lokinn þá var síðsta löndun bátsins á siglufirði 27. apríl árið 2005 397 kíló.

Skrifað 7.2.2008 kl. 0:54 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.2.2008

Gunnar Leós ÍS


Mynd Tryggvi Sigurðsson.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir

Bolvíkingar hafa verið ansi duglegir að bæta við bátaflotann sinn.  Nokkuð margir bátar komu þangað í fyrra.  Ný Ásdís ÍS kom í staðinn fyrir minni bát.  Björgmundur ÍS sem reyndar urðu tveir, því fyrst kom fyrrum Narfi SU og síðan kom fyrrum Karólína ÞH. 
Útgerðarfélagið Fiskihóll í bolungarvík gerði út Gunnar Leós ÍS 112 frá árinu 2004 og til ársins 2007.  Sá bátur er nú ansi merkilegur því hans fyrsta nafn var Guðmundur Einarsson ÍS og undir því nafni þá setti hann aflamet.  Guðmundur Einarsson ÍS varð fyrsti smábátur undir 10Bt til að komast í 800 tonn í ársafla. Eftir að Fiskihóll fékk nýjan Gunnar Leós ÍS þá var gamli báturinn seldur til Færeyja í október 2007.
Nýi Gunnar Leós ÍS er þónokkru stærri heldur enn sá gamli mældist 8,9 BT, enn sá nýi 11,7BT.  Tók útgerðin við honum í október 2007.
Hefur bátnum verið róið til línuveiða og gekk bátnum ansi vel í janúar.  Fékk tæp 53 tonn í 13 ferðum, mest 7,2 tonn í róðri.
Við þessa viðbót í flota bolvíkinga þá eru þar orðnir 6 bátar yfir 10bt sem róa á línu.  Guðmundur Einarsson ÍS. Sirrý ÍS. Björgmundur ÍS, Gunnar Leós ÍS, Sædís ÍS og Hrólfur Einarsson ÍS sem var lagt núna þetta fiskveiðiár.

Skrifað 6.2.2008 kl. 14:17 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.2.2008

Indriði Kristins BA. Nýr bátur


Mynd Gísli Reynisson

Það bætist sífellt við bátaflotann og núna er búið að sjósetja þann nýjasta.  Indriði Kristins BA 751.  Þessi bátur kemur í stað báts sem hefur haft sama nafn síðustu 10 árin.  Gamli Indriði Kristins BA var smíðaður í Trefjum árið 1997, og ber skipasmíðanúmerið 170, á meðan nýji báturinn er með skipasmíðanúmerið 316.
Sá bátur heitir núna Vinur BA.  Báðir bátarnir eru í eigu Miðvíkur efh á Tálknafirði.

það má segja að það séu tvö nokkuð stórmerkilegt atriði varðandi þennan bát.  Hið fyrra er að útgerð bátsins hefur haldið gamla Indriða Kristins BA einungis á handfæraveiðar svo til frá því að sá bátur kom árið 1997, og hefur einungis verið gerður út sirka 3 til 6 mánuði á hverju ári. Og því er þetta nokkuð stökk að fara úr handfæraveiðum yfir í línuveiðar.
Vélin í bátnum er af gerðinni Doosan L126 og er hún 400 hestöfl við 2100 snúnínga á mínutu.Vélin er byggð á MAN vél, og er þetta í fyrsta sinn á íslandi sem þesskonar vél er sett í bát hér á landi.
Verður þessi vélarstærð að segjast ansi merkilegt þar sem flest allir nýsmíðaðir bátar hafa verð með mjög svo stórar vélar, allt uppí 800 hestafla.  Í Indriða Kristins BA þá er ganghraða fórnað, gírhlutfalli breytt og skrúfa stækkuð með þessu þá fæst betri olíueyðsla.
Seinna atriðið er að þessi bátur er fyrsti smábáturinn sem smíðaður er fyrir vestfirðinga sem er með beitningavél um borð.  Og telst það nokkuð merkilegt því línubátar frá vestfjörðum hafa flestir róið með balalínu til þess að geta notið línuívilnundar.   Reyndar var Björgmundur ÍS ( fyrrum Karólína ÞH) fyrsti beitningavélasmábáturinn, enn hann var keyptur notaður.

Því má segja að Indriði Kristins BA sé byltingarkenndur bátur og mjög svo merkilegur sérstaklega gagnvart vestfirskum bátum.
Svona að lokum þegar myndin var tekinn í Hafnarfirði þá var höfninn ísilögð með ansi þykkum ís, og setur það ansi skrýtna umgjörð um bátinn.
Bestu þakki fær Högni Bergþórsson hjá Trefjum fyrir góðar upplýsingar við vinnslu þessa pistils

Skrifað 5.2.2008 kl. 23:22 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.2.2008

Góður endir á janúar

Aflabrögð dragnótabáta við snæfellsnes í janúar voru nú ekkert til að hrópa húrra yfir.  undir lok janúar þá kom ansi gott skot ef þannig má að orði komast og þónokkrir bátar komu með fullfermi að landi.
þeir helstu sem komu með stóra róðra undir lok janúar voru:
Esjar SH kom með 11,8 tonn þann 28 janúar og í síðustu 3 róðrum janúar þá landaði Esjar SH samtals tæp 23 tonnum eða 7,7 tonni í róðri
Steinunn SH. komst mest í tæp 13 tonn og í síðustu 2 róðrum í janúar landaði Steinunn SH 19,3 tonnum eða tæp 9,7 tonn í róðri
Matthías SH  átti næstastærsta róðurinn þegar hann landaði 16,9 tonni.  í 3 ferðum kom báturinn með 27,8 tonn eða um 9,3 tonn í róðri
Rifsari SH fór tvisvar yfir 10 tonn í róðri og mest í 11,8 tonn,  í síðustu 3 ferðum sínum í janúar landaði báturinn 28,9 tonn eða 9,6 tonni í róðri.
Gunnar Bjarnarsson SH átti stærstu löndunina 17,1 tonn þann 30 janúar, báturinn varð jafnframt aflahæstur þessa 3 daga með 30,3 tonn í 3 ferðum eða 10,1 tonn í róðri. 
Gunnar Bjarnarsson SH gerði þótt gott betra þar sem báturinn varð aflahæsti dragnótabátur við snæfellsnes með tæp 96 tonn, og skipar það honum ansi ofarlega á dragnótalistann yfir alla báta landsins. 

Skrifað 4.2.2008 kl. 10:20 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.2.2008

Stuttu Bátsnöfnin

Eitt allra stysta bátsnafn sem um getur í íslenskri skipaskrá er bátsnafnið Á.
Norður á Vopnafirði hefur síðan í apríl árið 2005 verið gerður út bátur þaðan sem heitir Á NS 191.  Sá bátur er smíðaður í Trefjum í hafnarfirði árið 1989, og hét fyrst Diddó BA 38.
1990: Felix SH 122
1991:Blakkur BA 86
1996:Birta Dís VE 35
1999: Birta Dís VE 135
1999( í maí):Sæljón NS 205
2002:Sæljón NS 19

Í fyrra þá afla Á NS alls 33,6 tonn
Í fyrra þá stækkaði útgerðarfélagið Jökulheimar við sig og keypti Ásrúnu RE sem er þó nokkuð stærri bátur,  Sá gamli var 8,27 metrar á lengd og 5,29 BT. Nýi báturinn er 10,5 metrar á lengd og 9,61 BT. 
Sá bátur fékk reyndar aðeins lengra nafn þar sem hann heitir Ás NS 78.  Lengst af eða frá 1987 og til 1999 þá var báturinn gerður út á Akranesi og hét þar Ásrún AK 3.
Árið 2007 þá aflaði báturinn alls rúmum 42 tonnum.
Það sem af er janúar þá er Ás NS búinn að fara í 3 ferðir og er kominn með 8,4 tonn mest 3,8 tonn í róðri.

Skrifað 4.2.2008 kl. 8:16 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Tenglar

/body>