Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Færslur: 2008 Janúar
31.01.2008 17:43
Lagt til hinstu hvílu.

Mynd Gísli Reynisson
Titill á þessum pistli vísar eiginlega í eitthvað sem er dáið og er verið að jarðsetja. Enn það má segja að Una SU sé kominn í þannig ástand núna. Báturinn sökk í Sandgerðishöfn, enn Sigurður Stefánsson kafari ásamt fleirum kom og náði honum uppá land og núna liggur báturinn bara makindalega við grjótgarðinn við endann á norðurgarðinum.
Var að setja 15 myndir í myndaalbúmið af þessum endalokum Unu SU.
Þess má svo geta að ég á sjálfur dóttir sem heitir Una.
Ég spurður útí sögu bátsins og hún kemur hérna
Una SU var smíðuð af Bátasmiðjur Gunnlaugs og Trausta á Akureyti árið 1972, og er báturinn með skipasmíðanúmeri 0007.
Fyrsta nafn bátsins var Sunna SK 14 eða frá 19 júní til 16 janúar 1973. Þá var báturinn seldur til Þórshafnar og hét þá Litlanes ÞH 52. Báturinn var seldur 9.6.1976 á seyðisfjörð og hét þá Litlanes NS 51. Þar var báturinn næstu 11 ár. 1984 þá settu eigendur Litlanes NS 51´Scanía vabis 118 hestafla vél í bátinn.
6.3.1987 var báturinn seldur til hornafjarðar og hét þá Litlanes SF 5
Hann stoppaði ekki lengi þar því 11.10.1989 var báturinn seldur til Hvammstanga og fékk þá nafnið Jón Kjartan HU 27.
Árið 1994 var báturinn seldur tvisvar fyrra skiptið í apríl og fékk þá nafnið Bragi SU 274, og seinna skiptið til garðs og fékk þá nafnið Bragi GK 274. Síðan hefst smá flökkubil. báturinn fékk nafnið Leynir GK 8 frá garði þann 12.9.1995.
12.6.1996 fékk báturinn nafnið Leynir SU 89, og ári seinna Una SU 89. og því nafni hélt báturinn allt til dagsins í dag
árið 2003 þá var Grétar Mar Jónsson skipstjóri á bátnum og þá varð Una SU aflahæsti skötuselsnetaveiðibátur ársins.
30.01.2008 11:50
Dagrún ÍS 9

Mynd Þorgeir Baldursson færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Við listasmíðar mínar varðandi íslenska bátaflotann þá þegar ég renni í gegnum skipaskrárnúmerinn þá rekst ég stundum í nöfn á bátum í dag sem voru nokkuð þekkt hérna á árum áður. Einn af þeim er smábáturinn Dagrún ÍS 9. Smábáturinn var smíðaður árið 1991 af Dalaplasti á ´Skagaströnd. og ber báturinn skipasmíðanúmerð 14. Sá bátur hefur verð mjög lítið gerður út síðastliðinn 7 ár, fór t.d einn róður allt árið 2007 og er búinn að fara í einn róður núna í janúar. mesti afli í róðri er tæp 4 tonn fengin á handfæri þegar báturinn hét Hólmaröst BA frá patreksfirði.
Nafnið Dagrún ÍS ætti flestum vestfirðingum og þá sértaklega Bolvíkingum að vera þekkt. Því árið 1975 í janúar þá kom Dagrún ÍS til Bolungarvíkur nýsmíðaður skuttogari. Sá togari var smíðaður í S.I.C.C.N.A skipasmíðastöðinni í Saint Malo í Frakklandi. Byrjaði togari veiðar í febrúar árið 1975 og var afli togarans 304,1 tonn í 3 ferðum, stærsta löndun 151,1 tonn, og sá afli varð jafnframt stærsti róður togarans árið 1975. Dagrúnu ÍS gekk oft ansi vel og t.d árið 1980 þá varð Dagrún ÍS aflahæsti togari landsins með 6977 tonn. Sem er gríðargóður afli. Þá var aflaskipið Guðbjörg ÍS í öðru sæti með 6890 tonna afla.
Nokkrar aflatölur á ég um Dagrúnu ÍS og ætla ég að fara 30 ár aftur í tímann til ársins 1978.
Frysta löndun var þann 6 janúar 68 tonn. Afli í janúar var rúm 361 tonn í 4 ferðum, mest 130 tonn í löndun.
Afli í febrúar var ekkert til að hrópa húrra fyrir enda brælur framan febrúar og afli 249 tonn í 3 ferðum, mest 129 tonn.
Heldur rættist í mars og komst togarinn uppí 141 tonn og varð afli í mars 362 tonn í 4 ferðum.
Í apríl þá fer nú að færast fjör í leikinn því togarinn landaði þann 7 apríl eftir 8 daga túr 188 tonnum eða rúm 23 tonn á úthaldsdag. næsta löndun var einnig yfir 180 tonn. afli í apríl 470,3 tonn í einungis 3 ferðum, eða 157 tonn í löndun
Í maí þá landaði Dagrún ÍS 4 sinnum og var með 490,9 tonn, mest 143,9 tonn í löndun
júní, stærsta löndun 175 tonn eftir 9 daga túr, og afli 411 tonn í 3 ferðum
Júlí byrjaði rólega fyrsta löndun 78 tonn. þann 12 þá kom Dagrún ÍS með 165,8 tonn. Eftir 7 daga túr þá kom hann aftur til hafnar með fullfermi uppá 223 tonn eða tæp 32 tonn á dag. Ekki létur þeir nægja einn 200 tonna túr því eftir 6 daga túr kom Dagrún ÍS aftur til hafnar enn nú með 219,2 tonn eða tæp 37 tonn ádag. Afli í júlí 685,2 tonn í 4 ferðum.
þann 1 ágúst þá kom togarinn með 111 tonn eftir einungis 2 daga á veiðum, mokveiði um 56 tonn á dag. Aftur fór togarinn yfir 200 tonn þegar hann kom með 221 tonn þann 16 ágúst. heildarafli í ágúst 523,5 tonn í 3 ferðum.
Fyrsta löndun í september var tæp 199 tonn, enn afli eftir það var mun minni, og afli í september 335 tonní 3 ferðum
Afli í október var mjög tregur og allt niðrí 27 tonna löndun. afi í október einungis 168 tonn í 3 feðrum
nokkuð betur gekk í nóvember þar sem afli varð 304 tonn í 4 ferðum, mest rúm 95 tonn
og að lokum Desember afli 281 tonn í 4 ferðum mest 119 tonn.
Dagrún ÍS endaði árið í 14 sæti með heildarafla uppá 4641 tonn
29.01.2008 18:00
Frystitogarar.
mjög margir höfðu samband við við bæði hérna á síðunni, í pósti eða þá símleiðis og óskuðu eftir því hvort væri hægt að hafa úthaldsdaga með tölunum.
Það reyndist ansi mikill höfuðverkur að finna það út, þar sem hætt er að halda utan um úthaldsdaga. Allavega í obinberum gögnum. Og því var ég að leita á náðir útgerðafyrirtækjanna sjálfra.
mér er það mikið gleðiefni að eftirtalinn fyrirtæki hafa ákveðið að vera mér til handa við að láta mig vita hvenær frystitogararnir fara út.
Jafnframt verður listinn breyttur þannig að í staðinn fyrir að nefna bara 10 efstu togaranna, þá verða allir frystitogarnar í einum lista. Verða þá upplýsingar um Afla. fjölda landana. mesta afla í löndun( ef landað er oftar enn einu sinni). úthaldsdagar og afli á úthaldsdag. þetta mun nánar koma í ljós þegar janúar verður gerður upp. Nú er svo komið að allir frystitogarnir eru komnir og því verður hægt að hafa úthaldsdaganna með í yfirliti um frystitogaranna.
28.01.2008 17:23
Fullfermistúrar
Mynd Gísli Reynisson
Ég skrifaði litla frétt hérna um Fullfermi hjá Gullfara HF. reyndar var það um fullan bát af snjó eins og myndin sem ég setti inn með fréttinni bar með sér. Þó nokkrir bátar hafa komið með fullfermi að fiski og skulu hér nefndir 4 bátar.
Birta Dís ÍS sem rær frá sandgerði og er ekki nema 5,8 brúttótonn kom með 6,3 tonn og var ýsa um 4.2 tonn af aflanum.
Happadís GK sem byrjaði vertíðína í neskaupststað. færði sig svo suður til sandgerðis og þaðan á snæfellsnes. í Ólafsvík kom báturinn með 11,5 tonn í einni ferðinni og var þorskur um 9,2 tonn af aflanum
Stjáni Ebba ÍS ( fyrrum Arnar KE). gerði mjög góðan túr þann 20 janúar. þegar hann kom með til Flateyrar 13,3 tonn og þar af var þorskur rúm 11 tonn.
Og svo að lokum Friðrik Sigurðsson ÁR, hann var fyrsti netabáturinn til að fara yfir 100 tonn og er líka sá fyrsti til að fara yfir 200 tonn. því hann landaði 58,8 tonni í þorlákshöfn og var ufsi langstærstur hluti aflans eða tæp 57 tonn.
Sjá má stöðuna á vertíðinni nánar með því að smella á Vertíð 2008 hérna til hliðar
27.01.2008 15:42
Furðulegar Fisktegundir
Mynd Gísli Reynisson
Þegar ár er liðið þá koma allskonar listar af ýmsu tagi, bókalistar, plötulistar og svo náttúrulega allskonar sjávarútvegstengdir listar. Hver var aflahæstur, hver var með mesta aflaverðmætið og svo framvegis. Aflalega séð er líka hægt að skoða hvað var minnst veitt af. Ansi margar fisktegundir komu í ljós á síðasta ári og oft var einungis um einn bát sem veiddi eina fisktegund. Lítum á nokkur dæmi.
Hákarl:
5 skip komu með hákarl að landi. Muggur GK 163 kíló, Júlíus Geirmundsson ÍS 574 kíló, Magnús SH 243 kíló, Skafti HF 753 kíló og Kristín GK 619 kíló. Eins og sést á þessari upptalningu þá er þarna ansi fjölbreytt flóra fiskiskipa, frá smábáti og yfir í frystitogara. Magnús SH kom að auki með 73 kíló af hámeri. Magnús SH hélt áfram að koma með fágætar fisktengundir því hann kom með 44 kíló af höfrungi.
Annað:
Hamar SH kom með 24 kíló af tröllakrappa og 154 kíló af trjónukrappa. Sigurður Ólafsson SF kom með 1 kíló af urrara. Smábátarnir Gísli Súrsson GK (8 kíló) og Muggur GK (2 kíló ) komu með Mjóra. Hrungnir GK kom með 1292 kíló af litla bromsa. Gullberg VE kom með 120 kíló af búrfiski. Sú fisktegund var þónokkuð veitt hér við land fyrir um 10 árum síðan eða svo. og var Togarinn Klakkur VE langatkvæðamestur við þær veiðar. Hrafn Sveinbjarnarsson GK kom einnig með búrfisk 53 kíló.
Nótaskipið Beitir NK kom með 4 kíló af laxi. Dísa GK kom með 130 kíló af bláskel sem báturinn veiddi í Hvalfirði. Fossá ÞH sem var eina skipið sem veiddi Kúfisk kom með 4620 tonn.
Og að lokum Margrét HF, hún kom líklegast með verðmætasta fiskinn enn hún kom með 18 kíló af túnfiski. Fyrst ég búin að minnast á Margréti HF þá má geta þess að hún varð aflahæsti kvótalausi bátur landsins árið 2007 með 1327 tonna afla.
Myndin er af bátnum nýmáluðum og fínum í Sandgerðishöfn
26.01.2008 18:14
Stykkishólmur
Mynd Alfons Finnsson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Það má segja að það sé orðið ansi rólegt í stykkishólmi núna. Enginn skelveiði hefur verið leyfð það undanfarin ár, og margir bátanna sem þá voru þá á skelveiðum eru seldir burtu. nokkur fjöldi smábáta rær frá Stykkishólmi, og nefni ég hérna 3 báta. Akraberg AK, Bíldsey SH og Kára SH. Akraberg AK og Bíldsey SH eru báðir yfir 10bt að stærð enn Kári SH er undir 10BT. Akraberg AK er búinn að fara í 16 sjóferðir og kominn með 54 tonn, mest 6,5 tonn. Bíldsey SH er kominn með tæp 67 tonn í 13 ferðum og er búinn að fara tvisvar yfir 6 tonn í róðri mest 6,9 tonn. Áhöfnin á Kára SH lætur ekki stóru smábátanna stinga sig af því hann er einungis búinn að fara í 9 sjóferðir enn er samt kominn með rúm 44 tonn. stærsti róður bátsins er 6,6 tonn og er Kári SH búinn að fara fjórum sinnum yfir 6 tonn í róðri. Verður það að teljast nokkuð gott ef miðað er við Bíldsey SH og Akraberg AK
25.01.2008 23:04
Útgerðarfélag Sandgerðis
Mynd Gísli Reynisson
Svo virðist vera sem nóg sé að gerast í útgerðarmálum hérna sunnanlands. Útgerðarfélag Sandgerðis, ( mjög gott nafn ). keypti í desember Von GK frá Garði og heldur báturinn sínu nafni og umdæmisnúmeri. Er báturinn byrjaður að róa frá Sandgerði. Konni Júl GK sem var í garðinum er búið að selja og heitir hann núna Kiddi Lár GK 501. Það nafn er vel þekkt í Sandgerði þar sem frá því í apríl árið 2001 þá var stálbátur gerður út í Sandgerði undir nafninu Kristinn Lárusson GK 500.
Sá bátur ætti norðanmönnum að vera vel kunnugt um þar sem frá 1984 og til ársins 1991 þá hét sá bátur Heiðrún EA og var gerð út frá Árskógsströnd. Núna liggur hann í hafnarfirði og ólíktlegt má telja að hann verðir gerður út aftur.
Kristinn Lárusson var í daglegu tali kallaður Kiddi Lár, og var hann meðal annars faðir eigenda Ný-Fisks í Sandgerði, enn Útgerðarfélag Sandgerðis er að mestum hluta í eigu Ný-Fisks í Sandgerði og lagði t.d Kristinn lárusson GK 500 upp þar. Afla af Von GK er unnin þar. Addi Afi GK var skráður eign útgerðarfélagsins enn svo virðst vera sem búið sé að selja hann. Má bæta við að einnig bættist Bergvík KE í hópinn og heitir hann í dag Bergvík GK. er hann byrjaður róðra. Segja má að sá bátur sé þá kominn aftur í Sandgerði þar sem hann hét Óli Gísla GK áður enn hann fékk Bergvíkurnafnið. Hinn báturinn sem bættist í hópinn er Hamravík KE. hún er núna orðin Hamravík GK. Eitt er nokkuð merkilegt við þann bát, báturinn er smíðáður árið 2005 og hét þá Sóla HF, árið 2006 þá fékk hann nafnið Hamravík KE, og árið 2007 Hamravík GK. 3 nöfn á þremur árum.
24.01.2008 07:41
Bobby ÍS
Mynd Gísli Reynisson.
Vestfirðir eru fallegir heim að sækja. Því fékk ég meðal annars að kynnast í ferð minni um vestfirði með miðstöð í flókalundi þar sem ég var í búðstað í viku. Einn liður í því var að fara til Flateyrar, og þar er myndin tekinn af einum Bobby ÍS að koma í land . Bobby ÍS sem reyndar er ekki einn bátur heldur 22 talsins, eru liður í ansi merkilegri ferðamennsku á vestfjörðum. Bátarnir voru leigðir viku í senn til ferðamanna og langmestur hluti þeirra voru þjóðverjar. Fengu þeir svo bát og máttu róa á honum eins og veður leyfði, veiðarfærið var sjóstöng. Ferðamannavertíðinn byrjaði í maí byrjun og var alveg til 10 september. reyndar þá voru aðeins 4 bátar þá á veiðum. Hérna sunnanlands þá sá rútufyrirtækið Teitur um alla keyrslu fyrir þá og var það ansi mikil keyrsla, höfðu ferðalangar mikinn farangur og fisk með sér út og þurfti yfirleitt Teitur að hafa mun stærri bíla heldur enn fjöldi fólks sem þeir voru að sækja. var með því verið að fá meira lestarrými. Afli bátanna komsr mest uppí tæp 800 kíló og heildarafli allra bátanna var 151,1 tonn. 5 aflahæstu bátarnir voru. Bobby 13 ÍS 7,6 tonn. Bobby 15 ÍS 8,6 tonn. Bobby 22 ÍS 8,7 tonn. Bobby 14 ÍS 9,6 tonn og Bobby 17 ÍS sem varð hæstur með 10,1 tonn.
22.01.2008 18:37
Sunna Líf KE


Myndir Gísli reynisson
Sunna Líf KE var hífð á land í dag 23. janúar,,og ég var á bryggjuni í 2 og hálfa klukkustund, sjá má myndir af því í myndaalbúminu. setti inn mynd af gatinu sem er á bátnum.
útgerðaraðilar Sunnu Líf KE keyptu núverandi Sunnu Líf í september síðastliðnum. Lengi vel þá hét sá bátur Hrólfur AK. í óveðrinu sem gekk yfir suðvestanvert landið nóttina 21/22 janúar þá sökk báturinn við bryggju í keflavík. Talið er að hann hafi slegist í bryggjuna og gat komið á bátinn. enn mjög hásjávað var og flæddi yfir bryggjuarnar í keflavík.
Sunna Líf KE var kominn í 9 sætið á vertíðarlistanum hérna á síðunni og var 3 aflahæsti netabátur suðvestanlands undir 50Bt. til viðbótar aflahæsti KE báturinn.
fleiri myndir eru komnar í ´myndaalbúm
22.01.2008 07:41
Óskar RE
Mynd Gísli Reynisson
Þegar Hauki EA var lagt í ágúst lok 2007 vegna bilunar í gír þá var áhöfn Hauks færð yfir á Óskar RE, sem var í eigu sömu útgerðar. Óskar RE hafði þá legið í Sandgerði í um 3 mánuði. Sævar Ólafsson trollari með meiru var skipstjóri á Hauki EA undir það síðasta og fór hann því yfir á Óskar RE.
Bátnum gekk ansi vel á haustmánuðum og aðaláhersla Sævars var að veiða lýsu sem er ekki kvótategund. Og gekk það eftir, því báturinn fékk 233 tonn af lýsu um haustið og komst mest uppí um 110 tonn af lýsu í einum mánuði.
Óskar RE og Haukur EA eru báðir kvótalausir bátar, enn höfðu verið í viðskiptum við nesfisk í garði, og allur lýsuafli Óskars RE er unnin þar.
Núna í janúar þá er báturinn búinn að fara 3 mjög stutta róðra, hver róður ekki nema um 3 dagar. aflinn er kominn í tæp 85 tonn og af því er lýsa 69,3 tonn eða um 81% aflans.
Þessi miklu utankvótaafli Óskars RE kemur kanski ekki á óvart, enda er Sævar mjög svo vanur trollari. Árið 1995 í desember það ár þá var Sævar skipstjóri á Þór Péturssyni GK. Lenti hann þá í því að fá 60 tonn af háfi á 3 nóttum. stærsta holið var ein 20 tonn. Í viðtali við Fiskifréttir í desember 1995 segir Sævar: "Við vorum að enda veiðiferð þegar við fengum 20 tonn af háfi síðustu nóttina...., fóru svo aftur næstu nótt og fengum þá 35 tonn. Loks enduðum við á því að fá um 7 tonn 3 nóttina enn eftir það varð ekki vart við háf á svæðinu". Eins og gefur að skilja þá fylgir háfnum gríðarmikil vinna eins og Sævar segir sjálfur frá " við urðum að tína fleiri tonn af háfi úr trollinu með höndunum. Skrápurinn á háfnum er eins og sandpappír og það þurfti að ýta honum í rennunum niður í móttökuna".
Nokkuð ljóst er að áhöfn Óskars RE þarf ekki að ýta lýsunni niður eins og þarna árið 1995, því hún er nokkuð sleipari fiskur heldur enn háfurinn.
19.01.2008 12:42
Handfæraveiðar í Janúar

Mynd Þorgeir Baldursson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir
Það er alvenja að eftir áramótin þá bara bátar á fullt á flest öll veiðarfærin. Troll, línu, net, dragnót og jafnvel togarnir líka. Bátar sem stunda handfæraveiðar eru ekki inní þessum flokki. Mjög fáir færabátar voru t.d að veiðum á haustmánuðum og t.d í desember voru einungis 4 færabátar sem voru að veiðum.
Tveir bátar hafa farið í róðra á handfæri það sem af er janúar. Dúan SI, sem var einn 4 báta sem réru í desember er búinn að fara einn róður og kom með 222 kíló að landi. Dúan SI hefur síðustu 2 ár róið fáeina róðra í janúar, og það hefur Sporður VE líka gert. Sporður VE er ágætt dæmi um breytta tíma hjá nokkrum handfæraútgerðarmönnum. Fram til ársins 2006 þá var báturinn einungis gerður út um vor og sumarmánuðina. árið 2006 og fram til dagsins í dag þá hefur báturinn verður gerður út árið um kring. Allavega hefur báturinn róið einhverja róðra í hverjum mánuði. Núna í janúar þá er Sporður VE búinn að fara í 2 róðra á færi og kominn með 1012 kg. fyrsti róður bátsins var tæp 800 kíló.
17.01.2008 20:04
Gullfari HF með fullfermi.....
Mynd Gísli Reynisson
..... Af snjó...
Gullfari HF er ytri báturinn á myndinni, Gamla Hraunsvík GK er fyrir innan. Myndin er tekinn í Grindavík 15.janúar. deginum áður þá gerði mikið hret þar og allt var gjörsamlega kolófært.
Á vertíðinni 2007 þá kom Gullfari HF með tvisvar yfir 10 tonn í róðri og sá stærsti var uppá tæp 14 tonn. Efast nokkuð um að hann hafi verið jafn fullfermdur með 14 tonn af fiski og fullur bátur af snjó. 14 tonna róðruinn var stærsti róður Gullfara HF síðan 23 apríl árið 2001, þegar báturinn kom þá með 12,5 tonn að landi.
Telja má víst að áhöfn bátsins gleðist mun meira með 14 tonn af fiski heldur enn fullur bátur af snjó...
15.01.2008 21:19
Arney HU

Mynd Guðmundur.St.Valdimarsson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Um mitt ár 2007 þá var Þorsteinn SH seldur til Blönduós. Eigendur þar áttu fyrir bát sem hét Arney HU ( fyrrum Þórir SK). og fékk Þorsteinn SH nafnið Arney HU. Gekk bátnum nokkuð vel og var til að mynda einn af fyrstu róðrum bátsins 32 tonn sem báturinn kom með. Gekk bátnum nokkuð vel á dragnótinni og komst til að mynda inná 6 lista og var sá bátur ásamt Geir ÞH sem komst hvað oftast norðurlandsbáta inná dragnótalistann.
þann 8., janúar 2008 þá var báturinn færður til gagnvart umdæmisskráningu. Er báturinn núna orðinn Arney HF 361.
Þá er spurning hvort hann fari á "heimahaganna" Sandgerði.
Afhverju segi ég "Heimahaganna" jú Arney HF hét fyrst Víðir II GK og var einn af þekktari síldarbátum á síldarárunum undir stjórn Eggert Gíslassonar. Víðir II GK var í 30 ár gerður í frá Sandgerði og meðal annars var byggt yfir hann í sandgerðishöfn árið 1983.
Arney HF er nafn sem er fengið af Arney KE sem voru bátar ( 3 réttara sagt). sem voru gerðir út af Óskar Þórhallssyni og Degi Ingimundarssyni frá árunum 1973 og fram til ársins 2001. Lengst eða frá 1978 til 1992 gerðu þeir út (1014) sem núna í dag er Ársæll ÁR. eina vertíðina þegar páskastoppið kom þá var Arney KE orðin aflahæst yfir landið með hátt í 930 tonn. hætti þá báturinn veiðum, enn fór reynar nokkra ýsunetatúra í maí og þegar yfir lauk þá endaði báturinn í 4 sætinu, á Vertíðinni.
Því verður forvitnlegt að sjá hvort Arney HF komi "aftur" til heimahaganna.
13.01.2008 11:19
Fyrstu landanir árin 2008 og 1978
Mynd Gísli Reynisson
Þeir fáu ísfiskstogarar sem eftir eru í dag eru flestir búnir að landa úr sinni fyrstu veiðiferð á árinu. Nokkrir togaranna lönduðu einungis í gáma. Suðurey VE var með 64,6 tonn í 4 gáma landað í Grundarfirði. Bylgja VE var með 33,9 tonn í 3 gáma. Kaldbakur EA 58,1 tonn í 2 gáma og Bergur VE 42,3 tonn í 3 gáma. Berglín GK landaði fyrst skipa eða þann 5.1 afli var nokkuð lítill 17,4 tonn. Einungis einn togari fór yfir 100 tonn í fyrstu löndun. Ottó N Þorláksson RE kom með 178,4 tonn og af því var ufsi 148,9 tonn.
Þeir eru nú ekki margir enn þó eru nokkrir togaranna sem eru gerðir út í dag sem voru í sömu aðstæðum árið 1978 eða fyrir 30 árum síðan.
Byrjum á Páli Pálssyni ÍS 2008 þá var hann með 66,6 tonn þar af 1 gámur, 1978 kom hann með 105,4 tonn í sinni fyrstu löndun.
Bjartur NK kom með 60,1 tonn 2008, 1978 104,1 tonn sem reyndar var landað 11 janúar það ár.
Áður var minnst á Kaldbak EA (58,1 tonn 2008), árið 1978 þá kom Kaldbakur með heldur betur fullfermi 287,1 tonn, sem er tæplega 5 faldur meiri afli heldur enn 2008.
Múlaberg ÓF var með 73,5 tonn árið 2008. 1978 hét togarinn Ólafur Bekkur ÓF og kom með 139,6 tonn. Reyndar er nokkuð áberandi hversu mjög svo góðan afla norðantogarar fengu í sínum fyrsta róðri árið 1978.
Hinn ÓF togarinn Sólberg ÓF var með 186,4 tonn, enn Stálvík SI sló þeim öllum við þegar Stálvík SI kom með 194,2 tonn þann 8.janúar.
Björgúlfur EA var líka með góðan afla árið 1978, 178,3 tonn, árið 2008 79,2 tonn sem var landað á Eskifirði.
Stefnir ÍS var með árið 2008 69,2 tonn þar af 1 gám, 1978 hét togarinn Gyllir ÍS og kom með 160,3 tonn sem landað var þann 8 janúar.
Jón Vídalín ÁR var með 44,3 tonn þar af 1 gám árið 2008. 1978 hét togarinn Hoffell SU og var með 69,9 tonn.
Gunnbjörn ÍS var með 51,5 tonn þar af í 2 gáma árið 2008. 1978 hét togarinn Framnes ÍS og var með 60,1 tonn.
Klakkur SH árið 2008 64,9 tonn, árið 1978 Klakkur VE og með svipaðan afla 64,1 tonn.
og að lokum Skafti HF sem árið 2008 var með 28,9 tonn. árið 1978 kom togarinn sem þá hét Skafti SK með 87,6 tonn.
Rétt er að geta að nokkrir togarar voru að veiðum á milli jóla og nýárs, enn ekki var landað úr þeim fyrr enn eftir ármót. Sá afli er ekki tilgreindur hérna.
12.01.2008 17:35
Frystitogarar í Desember. 2007

Mynd Hafþór Hreiðarsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir
Könnuninn:
Könnun síðustu vikur var um frystitogaranna. alls tóku 55 manns þátt í henni sem er nokkru færra heldur enn í síðustu könnun þar á undan. Þar voru niðustöður ekki langt frá því hvernig raðaðist á sjálfann aflalistann. Í þessari könnun má segja að niðurstöður hennar sé mjög svo langt frá því hvernig staða frystitogaranna var þegar upp var staðið. Reyndar þá var Oddeyrin EA ekki með í könnunni. Voru menn mjög langt frá því að giska á hver yrði hæstur. Venus HF sem var aflahæstur fékk ekki eitt einasta atkvæði. Reyndar þá sendi mér GHS póst og hann giskaði á að Venus HF yrði í 4 sætinu, og var það eins tilnefning togarans. Er ansi forvitnilegt að bera saman listanna tvo því einungis 4 nöfn af 10 eru á báðum listunum.
Afli:
Venus HF var langaflahæstur, var togarinn að veiðum í Barnehtshafinu og var langmestur hluti afla Venus HF þorskur eða 940 tonn. Reyndar verður að geta þess að Venus HF er ekki með neina skráða löndun síðan miðjum september. Ef miðað er við meðalverð síðasta árs hjá Venusi má reikna með að aflaverðmætið úr þessum stóra túr hafi verðið 216 milljónir. Ef svo er þá er það nýtt íslandsmet. Merkilegt að hvergi var minnst á það þegar togarinn kom til hafnar.
Þerney RE var önnur og fór líka yfir 1000 tonn og þar var ufsi langmestur hluti afla eða 743 tonn. Aflaverðmæti áætlað miðað við meðalverð 2007 127 milljónir. Brimnes RE var einnig eins og Venus HF að veiðum í úthafinu og var þorskur uppistaðan hjá honum. áætlað aflaverðmæti miðað við meðalverð 2007 109 milljónir. Tveir frystitogarar lönduðu tvisvar Barði NK og Oddeyrin EA og var afli þeirra mjög svipaður því ekki munar nema rúmum 4 tonnum á þeim. Víðir EA landaði í noregi og var það einnig með hann eins og Brimnes RE og Venus HF að Víðir var á veiðum í barnethshafi.
Hérna að neðan eru svo listarnir. listinn til vinstri er afllistinn og sá til hægri er könnuninn. Rétt er að minna á að hægt er að skoða nóvember og októberaflalistanna í "frystitogarar Listar" sem er hérna í Vafraðu um og líka í Flokkum.
| Sæti | Nafn | Afli | Landanir | Stærsti Róður |
Könnun Nafn |
% |
| 1 | Venus HF |
1214,1 |
1 |
1214,1 | Brimnes RE |
14,55 |
| 2 | Þerney RE |
1043,9 |
1 |
1043,9 | Arnar HU |
10,91 |
| 3 | Brimnes RE |
845,8 |
2 |
784,1 | Þerney RE |
10,91 |
| 4 | Víðir EA |
742,1 |
1 |
742,1 | Þór HF |
10,91 |
| 5 | Oddeyrin EA |
728,4 |
2 |
520,9 | Baldvin.Njálsson GK |
7,27 |
| 6 | Barði NK |
724,9 |
2 |
397,8 | Höfrungur III AK |
7,27 |
| 7 | Höfrungur III AK |
496,7 |
1 |
496,7 | Júlíus.Geirmundsson.ÍS |
7,27 |
| 8 | Gnúpur GK |
495,6 |
1 |
495,6 | Mánaberg ÓF |
7,27 |
| 9 | Freri RE |
445,7 |
1 |
445,7 | Hrafn GK |
5,45 |
| 10 | Mánaberg.ÓF |
445,1 |
1 |
445,1 | Víðir EA |
5,45 |
- 1
