Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 649
Gestir í dag: 195
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2371293
Samtals gestir: 530458
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 08:33:14

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

Færslur: 2007 Desember

31.12.2007 23:11

Ósk KE. .....2008

mynd Gísli Reynisson
Það er vel við hæfi að síðasti pistill minn hérna á síðunni verði um bátinn Ósk KE. 
Báturinn sem er fyrrum Hafnarberg RE, er eins og staðan er núna eini netabáturinn ásamt Erling KE sem er gerður út frá Keflavík.  og þá á ég við í aflamarkskerfinu.  Reyndar er Maron GK sem er svipaður að stærð og Ósk KE gerður út á net einnig.
Maron GK og Ósk KE eiga eitt sameiginlegt, .það er að báðir bátarnir hafa borið nafnið Ósk.  því Einar gerði út Maron GK í þónokkur ár undir nafninu Ósk KE. 
Eina vertíðina eftir 1990, þá var mikill aflaslagur milli Ósk KE( sem nú er Maron GK) og Hafnarbergs RE ( sem nú er Dúa SH).  voru báðir bátarnir í mokveiði í mars, og komust t.d uppí 120 tonna vikuafla í 5 sjóferðum.  Vakti afli þeirra ansi mikla athygli á sínum tíma.
Ósk KE mun hafa úr ansi miklum kvóta að veiða þar  sem hann veiðir af heimildum sínum sem og af heimildum Happasæls KE, plastbátnum.  Skipstjórinn á Ósk KE með Happasæl KE áður enn honum var lagt.
Reyndar sagði Einar Magnússon útgerðarmaður Ósk KE að honum hugnaðist það að fara á sjóinn sem skipstjóri á vertíð. 
Verður forvitnilegt að fylgjast með bátnum og hvort að Einar skelli sér nokkra túra á honum. 
Ósk KE hefur verð gerð út núna á netin allt haustið og gegnið nokkuð vel
t.d í desember þá var afli bátsins 64 tonn í 16 ferðum.  Réri báturinn líka milli jóla og nýárs.


Talandi um nýtt ár.
Þá vil ég færa öllum lesendum síðunnar gleðilegs nýs árs, og með þökk fyrir innlitin.
vonandi verður komandi ár gjöfult fyrir alla. 

28.12.2007 23:11

Ásþór RE



Myndir Gísli Reynisson

Háey II ÞH. Óli Gísla GK, Vestmannaey VE, Bergey VE, Karólína ÞH, Vörður EA ásamt fleirum eiga eitt sameiginlegt.  Allir þessi bátar eru nýsmíði sem komu á árinu 2007.  ég nefni þessa báta hérna að ofan bara til að nefna einhverja. 
Allir þessi bátar og fleir fengu umfjöllun bæði í Morgunblaðinu, Fiskifréttum og öðrum fjölmiðlum.  Á sama tíma þá læddist á sjó einn bátur sem enginn frétt hefur verið um,  og má segja að þessi bátur hafi róið "hljóðlaust" á miðin hérna sunnanlands.

Er ég að tala þarna um bátinn Ásþór RE.  bátur þessi sem myndin er af var smíðaður hjá Bátasmiðju guðmundar og mér telst svo til að þessi bátur sem einn af fáum sem komu á flot á árinu 2007 sem hafði verið smíðaður þar.  Er báturinn 6,02bt og með skipasmíðanúmer 420.   Kom nýi Ásþór RE í stað annars sómabáts með skipaskrárnúmeri 7183 sem var 5 BT að stærð, var sá bátur smíðaður ári 1989 og með skipasmíðanúmerið 231.  Sá bátur heitir í dag María RE. 
Nýi Ásþór RE hefur róið síðan í febrúar þegar báturinn byrjaði á línu allt árið.  reyndar var hann á færum apríl, maí og júlí.  Afli bátsins það sem af er árinu er kominn í 111 tonn í 81 ferð. mesti afli í róðri 3.2 tonn.  Á listanum mínum þá er hann í flokki smábáta undir 10brúttótonnum.

Nafnið á bátnum Ásþór RE, ætti að vera sjómönnum ansi vel kunnugt þar sem nafnið hefur verið á tveim skipum úr Reykjavík .  Hið fyrra var á stálbáti ( skipaskrárnúmerið 235) sem hét Ásþór RE 395, kom sá bátur til landsins 24. apríl 1964, var sá bátur gerður út alveg til ársins 1982 er hann var seldur til Keflavíkur og fékk þar nafnið Stafnes KE 130.  í lok árs 1988 þá var báturinn seldur utan til Noregs til að rýma fyrir nýju Stafnesi KE. 
Seinni Ásþór RE 10 var skuttogari ( 1566) sem var systurskip t.d Sveins Jónssonar KE og Haralds Böðvarssonar AK.  kom hann til landsins 21. mars 1983.  var hann svo seldur til Grindavíkur og fékk þar nafnið Gnúpur GK .  undir nafninu Gnúpur þá vakti hann ansi mikla athygli vegna þess að um borð þá var mestur afli togarans saltaður um borð.

Nokkrar aflatölur á ég um bæði togarann og bátinn.  tek ég til hérna nokkrar tölur. 
Ásþór RE. til að mynd árið 1970 þá stundaði báturinn netaveiðar á vertíð og útilegu á línu´, varð heildarafli bátsins 1610 tonn.  komst báturinn í meðalafla mest í 266 tonn í einungis 5 ferðum sem gerir um 53 tonn í róðri.  mesti afli í róðri það ár var tæp 82 tonn. 
fyrsta heila vetrarvertíð bátsins árið 1964 varð 803 tonn í 44 ferðum eða sem gerir rúm 18 tonn í róðri sem er mjög gott.  og svo að lokum smá síldartölur, til að mynd árið 1966 þá fékk báturinn 5600  tonn af síld bæði af íslandsmiðum sem og í úthafinu.

togarinn aftur á móti var með að meðaltali um 3100 tonn á ári þann tíma sem hann var hérna á landinu.  Ég á heildartölur yfir skipið enn ekki tölur t.d um mestan afla í róðri.

þannig að báturinn sem " læddist" á sjóinn á nafnlega séð ansi merkilega sögu bakvið sig og ef skoðað er nánar ´þá má sjá að RE 395 er bæði á fyrsta Ásþór RE sem og þeim nýjasta sem myndin er af.

27.12.2007 11:48

Ný könnun...

Jæja svona undir lokin á árinu 2007 þykir mér rétt að skella inn annari könnun, svona í léttum dúr auðvitað.
núna ætla ég að kanna álit manna á frystitogurunum.  reyndar er þessi könnun aðeins öðruvísi þar sem menn mega kjósa eins marga og þeir vilja.  og þess vegna er spurninginn ekki hver verður aflahæstur, heldur hverjir verða hæstir.
ég miða nefnilega lista við 10 efstu.  15 í sumum tilfellum.
þessi létta könnun nær eitthvað fram í janúar því núna milli jóla og nýárs þá er verið að landa úr flestum skipanna og því koma aflatölur fyrir þau skip til mín einhvertímann í janúar.  
hérna fyrir neðan er tengill inná niðurstöður úr fyrri könnunni ef menn hafa áhuga á að lesa það.

http://www.aflafrettir.com/default.aspx?page=home&sa=GetRecord&id=181571

25.12.2007 11:48

Trollað frá Ísafirði.


Efri myndin er frá Gísla Reynssyni . enn sú neðri útgerð 2003.

Aldan ÍS og Halldór Sigurðsson ÍS hafa núna á haustmánuðum verið á trollveiðum í ísafjarðardjúpi.  hefur þeim gengið nokkuð vel.  í nóvember þá fór Halldór Sigurðsson ÍS í 15 ferðir og var með tæp 38 tonn eða um 2.5 tonn í róðri.  stærsti róður var 3,8 tonn.  Aldan ÍS í desember var með tæp 41 tonn í 13 ferðum eða 3.1 tonn í róðri.  þar var stærsti róður 4,1 tonn.

Núna í desember þá hafa bátarnir róið mjög stíft og það er greinilegt á sjósókn bátanna að veðrið hefur ekki verið eins slæmt þar og hérna fyrir sunnan þar sem bátar hafa ekki komist á sjó í allt að viku og jafnvel ekkert í 10 daga.
Halldór Sigurðsson ÍS er búinn að fara í 15 sjóferðir og kominn með rúm 49 tonn sem gerir meðalafla uppá  3,3 tonn , þar er stærsti róður 7.3 tonn. 
Aldan ÍS er búinn að fara í 17 ferðir og er kominn með tæp 62 tonn sem gerir 3.6 tonn í róðri.  stærsti róður 5.6 tonn, reyndar eru nokkrir róðrar yfir 5 tonnin hjá Öldunni ÍS.
Annað sem er merkilegt við sjósókn Öldunnar ÍS er að hann er sá bátur sem líklegast hefur farið flestar sjóferðir allra báta á landinu.  svona til samanburðar þá er Sirrý ÍS búinn að fara í 15 ferðir. 
Stærstur hluti afla Halldórs. S.ÍS og Öldunnar ÍS er ýsa og samtals á 2 mánuðum er afli bátanna orðin tæp 190 tonn.

 

24.12.2007 18:25

Gleðileg Jól

Langar til þess að óska öllum þeim sem hafa litið inná síðuna mín. gleðilegra jólahátíðrar.  Óska öllum velfarnaðar á næsta ári.

Kveðja
Gísli Reynisson

22.12.2007 21:44

Þorleifur EA


Efri myndin er frá Þorgeiri Baldurssyni, og sú neðri frá Hafþóri Hreiðarssyni.

Enn eftir að ég skrifaði fréttina sem er hérna að neðan um kukkan 21:30 22 des. þá sendu bæði Hafþór og Þorgeir mér myndir af Þorleifi EA.  Enn með fréttinni þá hafði ég sett inn mynd af Hring GK sem í dag er Þorleifur EA.  Ég gat ómögulega valið á milli myndanna þar sem mér finnst þær báðar mjög flottar.  Þótt að myndirnar sýni sama bátin, þá er munur á bátnum á milli mynda.  ég hafði nú ekki hugsað mér að vera með getraun hérna á síðunni, enn ákvað að skella einni hérna inn. lítum bara á hana sem jólagetraun.  Hún er nú bara ósköp einföld, hver er munurinn á myndunum ? og geta menn kosið á milli hvor er betri?. 

hafiði bestu þakkir fyrir Hafþór og Þorgeir.

Fréttinn aftur á móti er hérna fyrir neðan.
 

Eins og greint var frá hérna á síðunni þá var í nóvember mikil mokufsaveiði hjá nokkrum netabátum suðvestanlands. og þá aðalega hjá Friðrik sigurðssyni ÁR og Erling KE.  Á sama tíma fyrir norðan þá var Þorleifur EA að byrja netaveiðar.  
núna í desember þá hefur bátnum gengið mjög vel.  Er þorleifur EA búinn að fara 10 sjóferðir og komin með tæp 44 tonn.  Stærsti róður er 9.3 tonn sem er ansi góður afli.  af þeim róðri var 8.4 tonn af ufsa.  reyndar þá er Þorleifur EA búinn að landa allt í 4 skipti yfir 6 tonn í róðri, og næststræsti róður bátsins var tæp 7 tonn.  í þessum 4 róðrum þá er heildaraflinn 29 tonn og af því er ufsi 26.4 tonn.

21.12.2007 05:53

Kristinn SH


Desember 2007 er búinn að vera mörgum sjómanninum ansi erfiður, sífelldar brælur  hafa gert það að verkum að bátar hafa ekki komist út svo dögum skipti.  Margir smábátar hafa t.d ekkert róið í hátt í viku eða svo.  
Kristinn SH sem er mjög þekkt nafn í smábátaútgerð íslendinga hefur ekki farið varhluta af því.  báturinn hefur ekkert róið síðan 12 desember.  Fram að því þá var báturinn búinn að fara í 8 ferðir og var kominn með rúm 51 tonn, meðalafli nokkuð góður eða um 6.5 tonn. Meðalafli Kristins SH t.d í nóvember varð hæstur allra smábáta á landinu (6.8 tonn) og jafnframt varð hann eini báturinn ásamt Auði Vésteins GK sem yfir 10 tonn komst.
Núverandi bátur sem byrjaði að róa 31 desember 2006 ásamt gamla Kristni SH sem núna heitir Júlíus Pálsson SH, víkja nú báðir fyrir nýjum báti. 
Mynd Gísli Reynisson
Útgerðin hefur keypt fyrrum Grindavík GK sem myndin er af koma til grindavíkur, og mun hann fá nafnið Kristinn SH.  þykir þetta nokkrun tíðindum sæta þar sem ansi margir hafa undanfarin ár farið úr aflamarkskerfinu og yfir í smábátakerfið.  Þarna er því öfugt farið. Við það að þessi bátur kemur á snæfellsnesið þá verður þriðji Kínabáturinn kominn vestur, enn fyrir voru Matthías SH og Gunnar Bjarnarsson SH.

19.12.2007 08:36

Már ÓF

Mynd Þorgeir Baldursson færi ég honum bestu þakkir fyrir
Það er mjög mikil stærðarmunur á bátnum í þessari frétt og fréttinni um frystitogaranna sem er hérna að neðan. Þar er t.d Höfrungur III AK sem varð aflahæstur 1521 brúttótonn og 55 metra langur, enn Már ÓF er 5.91 brúttotonn og 8.4 metrar á lengd.

Í dag á tímum kvótaskerðingar þá eru ekki margir bátar sem hafa róið alla mánuði ársins.  vanalega þá stoppa flestir einhvern hluta yfir sumarið.  Þau veiðarfæri sem bátar hafa stundað svo til allt árið, eruð svo til flest öll.  Enn Már ÓF hefur nokkra sérstöðu þar sem hann er einn af fáum bátum á landinu sem hefur stundað handfæraveiðar allt árið.  Vekur það nokkra athygli þar sem jú báturinn er ekki beint stærsta skip flotans  Það sem af er árinu 2007 þá er báturinn búin að fara í 84 sjóferðir á öllum mánuðum ársins og er afli bátins kominn í tæp 22 tonn.  stærsti róður er tæp tonn.  Þetta eru ekki stórar tölur, enn báturin hefur veitt sinn eigin kvóta, og leigði t.d mjög lítið til sín á síðasta fiskveiðiári. og því má segja að Már ÓF sem er einn af minnstu bátunum sem eru gerðir út árið um kring.  Sé að skila nokkuð góðu af sér.

16.12.2007 11:43

Frystitogarar í Nóvember


Mynd Þorgeir Baldursson . Færi ég honum bestu þakkir fyrir
Nóvember frystitogara listinn er nú tilbúinn  Sigurbjörg ÓF var eini togarinn sem landaði tvisvar, og það skilaði sér í annað sætið hjá henni. Höfrungur III varð langaflahæstur og af afla skipsins voru 338 tonn af ufsa og 314 tonn af gullkarfa.  þar á undan landaði togarinn síðast 1. október. og þvi má segja að túrinn hafi verið tæpir 40 dagar.  Margir togararnir styttu úthald sitt til að ná tveim túrum fyrir jól.  Gott dæmi um það er Þór HF sem var úti í 30 daga enn vanalega er hann í um 40 daga úti.
enn annars er listinn hérna og hann skýrir sig nú að nokkru sjálfur
Sæti         Nafn                                      Heildarafli                  Landanir.
1.          Höfrungur III AK                            985.2                           1
2.          Sigurbjörg ÓF                               686.1                           2
3.          Þór HF                                           601.8                            1
4.          Örfirsey RE                                   589.8                            1
5.          Freri RE                                         584.6                            1
6.          Brimnes RE                                   571.4                            1
7.          Guðmundur í Nesi RE                  535.2                            1
8.          Víðir EA                                          527.8                             1
9.          Baldvin Njálsson GK                    518.7                             1
10.        Arnar HU                                        515.8                             1

Athyglisvert er að Kleifaberg ÓF, Mánaberg ÓF og Júlíus Gerimundsson ÍS sem voru í fyrstu 3 sætunum í október eru ekki hérna inná.  afli ÓF togaranna var mjög lítill, báðir voru með undir 400 tonna afla. 

14.12.2007 12:01

Skoðankönnun Lokið

Jæja spenna í hámarki, hmm nei varla.  Um miðjan nóvember þá setti ég fram svona í léttum dúr könnun um hvaða ísfiskstogari myndi verða aflahæstur í nóvember.  nefndir voru allir þeir togarar sem eru að veiðum hérna við landið.  Þeim hefur því miður fækkað ansi mikið  og eru núna rétt rúmlega 20.  Allavega í dag er Listadagur Fiskifrétta og því er hægt að bera saman þá niðurstöðu sem og niðurstöður könnurnar.
Alls voru það 98 manns sem tóku þátt í henni, og er ég nokkuð ánægður með þá þátttöku.  
Slagurinn í könnunni var fyrst milli Björgvin EA og Örvars HU.  síðan kom Ottó N Þorláksson RE og slóst við Björgvin EA.  Þegar upp var staðið þá urðu 10 hæstu togarnir í könnunni.  Þegar niðurröðunin er í könnunni ef að tveir togarar eru með sama atkvæðafjölda þá ræður nafn togarans.  
Af listanum í fiskifréttum þá Fór þar strax á Toppinn togari sem ansi margir hérna á síðunni.  og hélt hann toppsætinu allan mánuðirnn.  og jú netverjar giskuðu á rétt.  Björgvin EA varð hæstur í könnunni og líka á Listanum.  Asni forvitnilegt er samt að bera saman sá sem neðar eru og þá sem á Listanum lentu.
Hérna koma listarnir.  Sá til vinstri er könnuninn, enn sá til Hægri er Listinn. 
Könnun                                                         Listinn.
1.Björgvin EA                                            1.Björgvin EA
2.Ottó N Þorláksson RE                           2.Ottó N Þorláksson RE
3.Ásbjörn RE                                              3.Kaldbakur EA
4.Páll Pálsson ÍS                                      4.Örvar HU
5.Örvar HU                                                 5.Ásbjörn RE
6.Björgúlfur EA                                          6.Björgúlfur EA
7.Sóley Sigurjóns GK                               7.Gullver NS
8.Suðurey VE                                            8. Páll Pálsson ÍS
9.Kaldbakur EA                                         9.Jón Vídalín ÁR
10.Bergur VE                                             10.Suðurey VE

Svona líta listarnir út.  Helst vekur athygli hversu neðarlega Kaldbakur EA lendir í könnunni miðað við hversu ofarlega hann lenti á sjálfum Listanum.
Þess má geta að Björgvin EA fékk 15 atkvæði af 98, 

Þakka öllum fyrir sem tóku þátt í könnunni.

12.12.2007 10:33

Hvanney SF


Mynd Ragnar Pálsson.  færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Hvanney SF sem varð aflahæsti netabátur vetrarvertíðarinnar árið 2007 með 1253 tonna afla, er byrjuð aftur á netunum.  Hvanney SF stundaði dragnótaveiðar frá því í júníbyrjun og fram í miðjan nóvember þegar skipt var um veiðarfæri. 
Ekki lenti Hvanney SF í ufsmokinu sem Erling KE, Friðrik Sigurðsson ÁR og Marta Ágústsdóttir GK lentu í. Hvanney SF hefur farið í 6 sjóferðir það sem af er desember og er komin með tæp 53 tonn.  mest tæp 18 tonn í róðri.  Er þorskur mesti hluti afla bátsins. 
Er Hvanney SF eini báturinn frá Höfn sem er kominn á net,  Hinir ( Sigurður Ólafsson SF, Þórir SF og Erlingur SF ) eru ennþá á trollveiðum.

10.12.2007 00:42

Esjar SH


Mynd Ragnar Pálsson færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Í gegnum mínar aflalistagerðir undanfarin ár, þá er alltaf einn bátur sem hef haft ansi gaman að því að fylgjast með.  Því þessi bátur er kannski ekki beint stærsti dragnótabátur landsins enn hann hefur ekkert gefið eftir þeim stóru ef má orða það svo.  Er ég að sjálfsögðu að tala um bátinn Esjar SH.    
    Í febrúar á þessu ári þá vísaði ég Fiskifréttum á smá frétt  um ansi stóran og mikinn róður bátsins.  kom báturinn með að landi 24,5 tonn í einni ferð.  Því miður þá virðst vera sem engar myndir séu til af bátnum með þennan afla, enn gera má að því skónna að hann hafi verið það vel hlaðin að hvíta línan á bátnum hafi numið við sjávarborðið.

á haustmánuðum 2007 þá er Esjar SH búinn að vera að mestu á Patreksfirði og hefur verið þar í ansi góðri veiði, og til að mynda í október þá varð báturinn aflahæstur allra dragnótabáta með umdæmisstafina SH.  Og að auki þá varð báturinn af SH bátunum sá eini ásamt Steinunni SH ( sem er 4 sinnum stærri bátur) sem yfir 10 tonn fór í einum róðri.  í September núna þá komst Esjar SH í 19,5 tonn í einni ferð og var með afla tæp 135 tonn í einungis 14 ferðum eða 10 tonn í róðri að meðaltali.

08.12.2007 18:04

Ritur ÍS (612)


Mynd Gísli Reynisson

Lengi vel og ennþá þá hefur þessi myndarlegi eikarbátur legið í Sandgerðishöfn.  Bátur sem hefur allavega fengið nýja brú miðað við myndina. 

Ritur ÍS var smíðuð í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1962. er báturinn úr eik og Furu.  Mældist báturinn 10 brúttólestir eða 14,09 brúttotonn. Vél var 54 hestafala Lister vél.

Fyrsta nafnið á bátnum var Jóhann Skúlasson SK 61 og var þá báturinn gerður út frá Sauðárkróki.  Var báturinn þar til ársins 1968 að hann var seldur til Kópavogs, hélt báturinn nafninu sínu enn fékk umdæmisstafina KÓ 25.

Báturinn var seldur 3svar sinnum á meðan hann hét fram til ársins 1976.  öll þau skipti þá hélt báturinn sama nafni og umdæmisnúmeri.  Árið 1976 eða í ágúst það ár þá var báturinn seldur á Akranes og ennþá hélt báturinn nafni sínu enn fékk umdæmisstafina AK 35.  Þeir eigendur létu skipta um vél í bátnum og settu í bátinn 88 ha lister vél.
Báturinn var ekki lengi uppá skaga þar sem í apríl 1977 þá var báturinn seldur til Hnífsdals þar sem hann fékk síðan nafnið sitt Ritur ÍS 22.

Þrátt fyrir að báturinn hafi borið umdæmisstafina KÓ þá var hann ekki beint gerður út frá Kópavogi þar sem báturinn varði mestum tíma sínum í Sandgerðishöfn, Grindavík og Keflavík. 

Aflatölur:
Nokkrar aflatölur á ég um þennan bát.  mun ég nefna nokkur dæmi um afla bátsins.  Til að mynda er afli bátsins árið 1965 75 tonn í 60 ferðum,  og árið 1968 þegar var hann með 97 tonn í 39 ferðum, eða um 2,5 tonn í róðri, sem verður að teljast nokkuð góður meðalafli.  Þess má reyndar geta að þessar tvær tölur eru ekki eiginlega heildartölur þar sem ég er ekki búinn að fara nægilega vel í gegnum þessi ár. 
1973 þá sótti báturinn nokkuð stíft fór í 100 sjóferðir og var með 105 tonna heildarfafla.  mesti afli í róðri var 5,1 tonn.
og að lokum árið sem báturinn fær nafnið Ritur ÍS það ár var báturinn með 40 tonn af rækju í 41 ferð,  á milli rækjuveiða þá var báturinn eins og flest allir rækjubátar í ísafjarðardjúpi á handfæraveiðum og var t.d mesti afli í róðri það sumar 4,8 tonn.

05.12.2007 23:16

Páll Helgi ÍS .


*Mynd.Hallgrímur Óli Helgasson, bolungarvík

http://www.aflafrettir.com/default.aspx?page=home&sa=GetRecord&id=168789
.

linkurinn hérna að ofan vísar á aðra frétt um Pál Helga ÍS.
Allir dragnótabátarnir í nóvember voru í nokkuð slöku fiskeríi.  það var Páll Helgi ÍS líka nema að hann var sá eini sem fékk fullfermi.  Fullfermi ef miðað er við stærð bátsins enn nokkrir aðrir bátar voru með mun stærri róðra.
Báturinn var búinn að vera í ansi rólegu fiskerí, með afla upp að 3 tonnum.  Þann 13. þá brá svo við að báturinn kom með 10,5 tonn að landi í einni ferð og var það allt saman þorskur.  Nokkrum dögum seinna þá lenti hann aftur í góðri þorskveiði þegar hann kom með tæp 8 tonn að landi. og var mestallt þorskur í aflanum. 
Af þeim bátum sem gerðu út á vestfjörðunum, ( Valgerður BA. Jakop Einar SH og Esjar SH) þá var Páll Helgi ÍS með stærstu löndunina og verður það að teljast nokkuð merkilegt.

05.12.2007 09:25

Handfæraveiðar Keilis SI


mynd. Hafþór Hreiðarsson. bestu þakkir fyrir.

Núna í nóvember þá voru ansi fáir handfærabátar á veiðum.  Þeir bátar sem réru á færin fóru ansi fár ferðir eða 4 til 5 flestir.  Sá bátur sem réri oftast handfærabáta í nóvember kemur ansi mikið á óvart.  Því sá bátur er enginn smábátur, enn hefur stundað handfæraveiðar um sumartímann bæði núna í sumar sem og í fyrra.
Keilir SI sem er 52 BT eikarbátur frá Siglufirði fór nefnilega í 8 ferðir á handfærin og fékk tæp 4,5 tonn.  Var hann búinn að vera á dragnót allan september og október.
  • 1

Tenglar