> Aflafréttir og fleira - Blogg

 

Aflafréttir og fleira

Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir

Auglýsingapláss/styrkarlínur

auglýsingapláss
til
sölu,
og eða styrkarlínur.






 

Styrkja Síðuna

Styrktarreikningur síðunnar

kennitala.  2008753709

bankabók.0142-05-001072

Hvaða humarbátur verður hæstur árið 2010

 Ársæll ÁR

 Jón á Hofi ÁR

 Fróði II ÁR

 Kristbjörg VE

 Skinney SF

 Brynjólfur VE

 Þórir SF


Sýna niðurstöður

Hvað skoðar þú helst

 Smábátalista yfir 10 BT

 Smábátalista undir 10 BT

 NEtalista yfir 50 BT

 NEtalista undir 50 BT

 Dragnótalista

 Botnvörpunga

 Skoða alla lista jafnt

 Skoða helst Gömul tíð

 Línubátalista

 vill gerast styrkaraðili


Sýna niðurstöður

Sjá KVÓTASPJALL

 Já

 Nei


Sýna niðurstöður

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Kirkjuvegur 15

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-05-001072
Flettingar í dag: 1185
Gestir í dag: 324
Flettingar í gær: 2136
Gestir í gær: 426
Samtals flettingar: 1228462
Samtals gestir: 311052
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 18:01:17

Blogg

30.11.2007

Sólborg RE


Mynd Gísli Reynisson

Myndin sem er af Sólborg RE þá sést að hann er í togi, því eins og kemur fram hérna neðar, þá var hann dreginn til Akraness þar sem gert var við gír bátsins,  það hefur tekist því báturinn er byrjaður á dragnótaveiðum, og hefur í nóvember lagt upp í Þorlákshöfn.  Hefur bátnum gengið nokkuð vel ,er  kominn með um 95 tonn í 8 ferðum. eða sem gerir 12 tonn að meðaltali í róðri.   Af þessum afla hefur verið sett í 6 gáma. 
Stærsti róður Sólbrgar RE er rúm 16 tonn, og af þessum 95 tonnum er tæp 91 tonn ýsa eða um 95% heildaraflans.

Skrifað 30.11.2007 kl. 10:46 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.11.2007

10. tonna múrinn loksins rofinn.

Síðan í September þá hefur enginn smábátur yfir 10 BT, komist yfir 10 tonn í einni löndun.  Auður Vésteins GK var þó ansi nálægt því í október, enn báturinn var með mestan afla í einum róðri þann mánuð  eða 9,5 tonn.
Heldur virðst hafa dafnað yfir veiðunum núna í nóvember. Núna við vinnslu nóvemberlistans, þá hafa tveir bátar komist yfir 10 tonnin.
Kristinn SH hefur mest komist í 10,5 tonn, af þeim afla var þorskur 7,2 tonn.  Hefur Kristni SH gengið nokkuð vel og hefur nokkrum sinnum verið í tæpum 9 tonnum, og 9,2 tonn er sá næststærsti róður bátsins. 
Hinn báturinn er Auður Vésteins GK.  hún hefur verið gerð út frá Stöðvarfirði, og Djúpavogi.  Báturinn hefur mest komist í 11,1 tonn, og af þeim var þorskur 10,1 tonn.  sem verður að segjast ansi athyglisvert þar sem flestir eru að reyna að forðast þorskinn. 
Þessi róður er samt sem áður nokkuð úr takti við veiðar bátsins.  Þar sem næsti róður á eftir þessum stóra er ekki nema 5,8 tonn. 

Skrifað 29.11.2007 kl. 20:10 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.11.2007

Duglegir að forðasti Þorskinn


mynd:Gísli Reynisson
Þegar það lá fyrir að þorskkvótinn myndi verða skertur eins mikið og var síðan, þá varð ansi þungt hljóðið í mörgun útgerðarmönnum.  Flestir töldu að núna þyrfti helst að reyna að forðast þorskinn og hafa hann bara sem meðafla.
    Nokkrir smábátar bæði á svæðinu frá Akranesi og yfir til Sandgerðis hafa einbeitt sér að ýsuveiðum og að hafa þorskinn sem minnstan í aflanum, og hefur þeim gengið nokkuð vel, þegar hefur gefið á sjó.
Ef litið er aðeins á smábátanna, og byrjað þá á þeim bátum sem eru stærri enn 10 brúttótonn(BT),  þá er Svalur BA (7474) sem gerir út frá Reykjavík komin með 26,5 tonn í 8 ferðum og af því er ýsa 23,9 tonn eða tæp 90% aflans.
Staðarvík GK ( sem myndin er af) er í eigu stakkavíkur í Grindavík, hefur báturinn verið gerður út frá Hafnarfirði, er báturinn kominn með 22,4 tonn og af því er ýsa 20,1 tonn eða tæp 90% af aflanum. 
af minni bátunum (þ.e.a.s bátum undir 10BT) þá er Katrín KE sem landar í Sandgerði og í Keflavík kominn með 9,4 tonna af ýsu af 12 tonna afla, eða rúm 78% af aflanum sem er ýsa.
Elín Kristín GK sem hefur landað einnig í Sandgerði og í Keflavík er komin með 6,4 tonn af ýsu af 7,7 tonn afla eða 83% af aflanum
og að lokum Margrét ÍS sem gerir út frá Akranesi, báturinn er kominn með 6,4 tonna afla og af því er ýsa tæp 5,7 tonn eða 88% af aflanum. 

Skrifað 27.11.2007 kl. 13:51 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.11.2007

Ein könnun

Hérna til hliðar er komin fyrsta könnuninn á síðunni, og er hún með nokkru öðruvísi sniði.  Lítum bara á hana sem léttur leikur.  Hún snýst um hvaða ísfiskstogari verður aflahæstur í Nóvember 2007.  síðustu 5 togarnir sem eru nefndir ( Suðurey VE, Bylgja VE, Sóley Sigurjóns GK , Berglín GK  og Bergur VE) eru það sem mætti kalla minni togarar. 

ég set þessa litlu könnun bara fram svona í léttum dúr,  kanski sumum finnist hún asnaleg, enn verið þá ófeiminn við að láta mig heyra það.  Niðurstaðan kemur í Listanum í Fiskifréttum fyrir Nóvember mánuð.  Og fyrir þá sem ekki hafa aðgang að því blaði þá mun ég láta vita hérna á siðunni hvernig fór. 

Skrifað 27.11.2007 kl. 13:51 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.11.2007

Skafti HF.


Mynd.  Þorgeir Baldursson.

Skafti HF er gamalgróið nafn í skuttogaraútgerð landsins.  Togarinn var lengi vel eða í 17 ár gerður út frá Sauðárkróki undir nafninu Skafti SK.  var reyndar Skafti SK gerður út frá Sauðárkróki nokkru lengur eða í alls 31 ár. 
allt árið 2007 hefur togarinn verið gerður út frá Hafnarfirði og landað öllum sínum afla sínum þar,  er togarinn einn af fáum togurum sem hefur verið að ansi mikið í djúpkarfaveiðum, og er togarinn stærsti kvótalausi bátur/togari landsins. 
þrátt fyrir það hefur honum gengið nokkuð vel. 
Til að mynda var Skafti HF með rúm 216 tonn í október, og var aflinn þar svo til helminga Ufsi og djúpkarfi. 
núna í Nóvember þá er t.d stærsta löndun Skafta HF tæp 83 tonn eftir 6 daga túr,  var aflinn í þeim túr ufsi 49 tonn og djúpkarfi 31 tonn.  Hefur togarnum gengið nokkuð vel að forðast þorskinn, því af 444 tonna heildarhaustafla er þorskur einungis 1,6 tonn.

Aflatölur í fortíð:
það eru oft ansi stórar og miklar tölur sem togarnir voru að koma með hérna á árum áður.  Skafti SK er einn af þeim, verður hérna litið á tvö dæmi.
í júlí árið 1978 gekk Skafta SK nokkuð vel og fékk 444,7 tonn í einungis 3 löndunum. mesta löndun var 157,8 tonn.  þessi afli er nokkru meiri heldur enn togarinn er búinn að fá á  haustmánuðum 2007.
árið 1977, þá landaði Skafti SK í apríl það ár 180,4 tonni eftir 8 daga túr,  ef það var ekki nóg þá bætti togarinn það enn betur með því að landa 192,3 tonni eftir 9 daga túr.  Fullfermi og vel það.

Skrifað 25.11.2007 kl. 1:00 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.11.2007

Ufsinn gefur sig. Annar hluti


Mynd Gísli Reynisson.

hérna rétt fyrir neðan er ufsafrétt sem heitir sama nafni.  þar kemur fram um bátanna sem hafa landað í grindavík, sem og í þorlákshöfn. 
síðan þá má segja að ufsinn hafi heldur betur gefið sig. 
Friðrik Sigurðsson ÁR sem er eini netabáturinn úr þorlákshöfn. gerði sér lítið fyrir og landaði 71 tonni þann 17.  var ufsi af þessm afla 65 tonn.
Erling KE sem hefur verið í Grindavík, fór í Þorlákshöfn, og hefur mokfiskað.  Komst í 61 tonn í löndun og var með 117 tonn í tveimur löndunum.  var ufsi 109 tonn af þessum afla.
Hinir netabátarnir sem minnst er á í fyrri ufsafréttinni hafa haldið sig í grindavík og hafa þeir ekki komist í eins mikla afla og þeir tveir sem nefndir eru hérna. 

Skrifað 22.11.2007 kl. 16:23 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.11.2007

Trollbátar á Hornafirði


Mynd Hafþór Hreiðarsson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Á trolllistnum það sem af er haustmánuðum hafa bæði nýju trollbátarnir, ( Bergey VE, Vestmannaey VE og Vörður EA) ásamt þeim sem fyrir eru verið nokkuð atkvæðamiklir í afla.  er svo komið í dag að flestir trollbátar landsins eru taka trollið inn að aftan.  mjög lítið er orðið um trollbáta sem taka trollið inn á síðunni. 
Á Hornafirði hafa eftir að humarvertíð lauk 3 bátar verið á trolli.  Sigurður Ólafsson SF, Erlingur SF og Þórir SF. 
Sigurður Ólafsson SF byrjaði í byrjun október og er stærsti róður hans 13,5 tonn.  í þeim róðri voru 16 fisktegundir í aflanum.
Erlingur SF réri allan október og gekk nokkuð vel.  var með um 57 tonna afla.  stærsti róður hans tæp 18 tonn. 
Þórir SF var með 89 tonn í október og stærsti róður hans 33 tonn, sem verður að teljast ansi góður afli. 
sammerkt með öllum þessum bátum er hversu fjölbreyttur aflinn er hjá bátunum.  Hjá öllum bátunum voru allt uppí 16 fisktegundir í aflanum, af þeim voru t.d Lýsa, blálanga, lúða og stórkjafta utan kvóta.

Skrifað 20.11.2007 kl. 11:20 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.11.2007

Geir ÞH


Mynd. Þorgeir Baldursson.

Eins og kemur fram hérna neðar á síðunni, þá hafa dragnótaveiðar við vestanvert landið ekkert verið neitt sérstakar.  hinum megin á landinu eða nánar tiltekið á Vopnafirði hefur báturinn Geir ÞH verið að gera út á dragnót.  Báturinn er eini dragnótabáturinn á ansi stóru svæði þarna.  eða á svæði sem nær frá Húsavík og yfir um til Hornafjarðar.  Reyndar er Tjálfi SU smábátur á dragnót sem hefur gert út frá Djúpavogi.  
  Afli Geirs ÞH hefur verið nokkuð góður og hafa róðranir oft verið ansi stórir á haustmánuðum.  til að mynda í september var stærsta löndun bátsins tæp 31 tonn, og í október rúm 25 tonn.  Það sem af er nóvember þá er afli bátsins kominn í 71 tonn, og stærsti róður 24 tonn.  

Skrifað 19.11.2007 kl. 13:51 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.11.2007

Björgmundarnir ÍS

í fiskifréttum þann 16 nóvember var frétt þess efnis að Vignir Arnarsson  hefði keypt beitningavéla bátinn Karólínu ÞH.  mun sá bátur fá nafnið Björgmundur ÍS .  Það er nú ansi margt merkilegt við þessa báta og nöfnin.  
Nýji Björgmundur ÍS verður fyrsti beitningavélabáturinn í bolungarvík, og verður athyglisvert að sjá árangur bátsins samnborðið við aflaskipin Guðmund Einarsson ÍS og Sirrý ÍS, enn þeir eru svo til jafn stórir og Björgmundur ÍS enn eru balabátar.
báturinn Karólína ÞH aftur á móti hefur róið á norðausturhorni landsins.  ( húsavík og kópaskeri mestmegnis).  og hefur bátnum gengið mjög vel.  fór yfir 1000 tonn á síðasta fiskveiðiári, og á aflamet í flokki smábáta yfir 10 brúttotonn,  þegar báturinn fékk 185 tonn í einum mánuði.
Gamli Björgmundur ÍS er ekki síður merkilegur.  þar sem upprunalega hét báturinn Narfi SU,  afli bátsins undir nafninu Narfi SU var oft á tíðum ævintýralegur.  fyrsti róður bátsins var 15.mars árið 2001.  það ár var stærsti róður bátsins 8.5 tonn.  árið eftir fór báturinn í 8.8 tonn og 9.3 tonn.  
2002 eða í mars það ár gerði báturinn sér lítið fyrir og landaði 14.3 tonnum, 
fiskveiðiárið 2003 til 2004 verður að segjast vera langbesta ár bátsins.  það ár komst báturinn í 7 skipti yfir 10 tonn í löndun,  og mesti afli bátsins var 18.3 tonn, líklegast hefur báturinn þurft að fara tvær ferðir til þess að ná þeim afla.  15.8 tonn var næststærsti róðurinn.  aflinn þetta fiskveiðiár fór yfir 500 tonn.  Útgerð Narfa SU keypti sér 15 BT bát árið 2004 og verður það að segjast að sú ákvörðun hafi nú legið í loftinu, því litli báturinn var oft á tíðum sem kafbátur á landleið með fullfermi af fiski.  Eftir það hét gamli Narfi SU  Auður Þórunn ÞH og gerði út frá Húsavík.  Björgmundarnafnið kom á bátinn núna á þessu ári, og hefur bátnum gengið mjög vel á línu,  var aflahæstur bæði í október og september báta undir 10 BT.  

Annar svona aukahluti í sambandi við þessa báta er aflabátar í flokknum undir 10 BT, hafa margir hverjir stækkað báta sína yfir í flokkinn yfir 10BT,  ber þar að nefna.  Björgmund ÍS.  Óla Gísla GK,  Dögg SF, Benna SF.  Narfa SU og Sæli BA svo einhvejrir sé nefndir.  því er bara spurninginn hver verður næstur.  ?

Skrifað 17.11.2007 kl. 15:11 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.11.2007

Ufsinn gefur sig

Við suðvesturhorn landsins hafa nokkrir stórir netabátar verið að róa og gert nokkuð út á ufsann.  verður að segjast að afli þeirra hefur verið nokkuð góður.  eins og málum er komið núna þá eru 4 stórir netabátar að róa frá Grindavík og Þorlákshöfn.  
Friðrik sigurðsson ÁR hefur landað í þorlákshöfn, og var t.d með 45.5 tonn í einni löndun og af því var ufsi 40 tonn.
Erling KE hefur mest komist í tæp 19 tonn, og er báturinn kominn í 49 tonn í nóvember. mest allt ufsi.
Tjaldanes GK hefur mest komist í 25 tonn og er kominn með svipaðan afla og Erling KE
Sá bátur sem hvað mesta athygli síðuhöfundar fær,  er Marta Ágústdóttir GK. báturinn telst vera kvótalaus bátur, enn landar í grindavík og leggur upp hjá Þrótti.  bátnum hefur gengið mjög vel er kominn með hátt í 75 tonn í einungis 5 ferðum, stærsta löndun 23 tonn.  Allir þessir bátar eru með ufsa sem meginafla.

Skrifað 15.11.2007 kl. 8:44 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.11.2007

Dragnótaveiðar Snæfellsnesbáta

Afli dragnótabáta sem hafa verið að róa frá Snæfellsnesi hefur undanfarið ekki verið beint beisin.  frekar lítill afli hefur verið hjá þeim bátum sem hafa haldið sig við snæfellsnesið, og því hafa nokkrir bátanna fært sig vestur um til vestfjarða þar sem þeir hafa komist í nokkru betri afla.  ef skoðaðir eru bátarnir núna í nóvember þá  líta þeir þannig út.
Esjar SH sem varð annar aflahæsti dragnótabáturinn frá snæfellsnesi í október, hefur haldið sig á Patreksfirði mest allt haust og líka það sem af er nóvember, er stærsti róður hans 8.5 tonn.
Matthías SH er kominn líka á patreksfjörð og er stærsti róður hans 12 tonn, sem verður að teljast nokkuð gott.
Steinunn SH er búinn að vera á nokkru flakki. hefur landað á Ólafsvík, Patreksfjörð og Bolungarvík.  þrátt fyrir flakkið er stærsti róður Steinunnar SH ekki nema 8.1 tonn.
Egill SH hefur haldið sig á heimamiðum og landað í ólafsvík stærsti róður 2.7 tonn.
Gunnar Bjarnarsson SH hefur einnig haldið sig á heimamiðum og landað einnig í ólafsvík og er stærsti róður hans 3.3 tonn.
Ólafur Bjarnarsson SH er líka í ólafsvík og stærsti róður hans er ekki nema 2.1 tonn.
svo að lokum má nefna nýju Báru SH (2102),  enn hún hét áður Arney HU og þar á undan Þórir SK.  hann hefur landað á Rifi og mesti afli er 1.1 tonn.  
þess má svo bæta við að gamla Bára SH sem er systurskip Esjar SH(2330) og Hafdísar GK (2400) , og heitir núna Valgerður BA (2340)hefur mokveidd frá patreksfirði.  var t.d aflahæst í september og varð í 3 sæti í október

Skrifað 13.11.2007 kl. 15:44 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.11.2007

Um mig og ýmislegt fleira

Skrifað 12.11.2007 kl. 21:59 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.11.2007

Páll Helgi ÍS

    Eftir að rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi voru bannaðar árið 2004. þá liggja nokkrir bátar í Ísafirði og Bolungarvík sem stunduðu rækjuveiðar.  Einn af  þeim bátum  hefur stundað dragnótaveiðar árið um kring.  Það er Páll Helgi ÍS.  Er báturinn eikarbátur og 29 brl að stærð.  Síðast landaði báturinn rækju 25. febrúar árið 2003.  síðan þá er báturinn eingöngu búinn að vera á dragnótaveiðum og hefur í nokkur skipti verið ansi nálægt því að komast inná dragnótalistann.       
       Báturinn hefur ekki oft borið á góma þegar rætt er um dragnótaveiðar frá vestfjörðum, enn nú er svo komið að báturinn er komin með lengstu samfeldu veiðireynsluna af öllum dragnótabátum frá vestfjörðum.  Finnst síðuhöfundi það ansi athyglisvert.  hefur báturinn komist í og yfir 10 tonn í róðri eftir daginn.  
afli á haustmánuðum 2007 var. 18.6 tonn í september í 11 ferðum. mest 4.3 tonn í róðri.
25.2 tonn í 11 ferðum í október fór tvisvar yfir 5 tonn í róðri, og það sem af er nóvember er báturinn kominn með 6.5 tonn í 4 ferðum.  Páll Helgi ÍS hefur landað svo til öllum róðrum sínum í Bolungarvík, nokkrum á Ísafirði.

Skrifað 11.11.2007 kl. 21:00 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.11.2007

Frystitogarar í Október

Einn er sá flokkur skipa sem ég hef ekki gert skil í Listanum mínuim í Fiskifréttum,  það er flokkur Frystitogara.  Ætlaði ég mér einu sinni að útbúa lista með að nota aflaverðmæti, enn það reyndist nokkuð þungt í vöfum.
framvegis mun ég gera grein hérna á síðunni fyrir þeim 10 aflahæstu frystitogurnum í hverjum mánuði fyrir sig.  reyndar er rétt að hafa í huga að aflatölur um þá segir ekki alla söguna.  því skipting afla ræður öllu varðandi aflaverðmætið.
Annars lítur listinn fyrir október svona út.
Sæti.               Nafn.                                                 Afli.                   Landanir.
1.                    Mánaberg ÓF                             1097,4                         2
2.                    Júlíus Geirmundsson ÍS            968,5                           2
3.                    Kleifaberg ÓF                              921,8                          2
4.                    Þór HF                                          868,1                          1
5.                    Brimnes RE                                  787,6                          1
6.                    Þerney RE                                   736,3                           1
7.                    Örfirsey RE                                  682,1                           1
8.                    Arnar HU                                      600,8                           1
9.                    Vigri RE                                        550,046                      1
10.                  Höfrungur III AK                           550,028                      1

Þegar um svona háar tölur er að ræða, þá er athyglisvert að einungis munar 18 kílóum á milli Vigra RE og Höfrungs III AK.  er það mjög svo lítill munur .

Skrifað 9.11.2007 kl. 18:32 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.11.2007

Hafrún HU (530)

þeir eru ekki margir aflamarksbátarnir í dag sem gera út á balalínu.  Það finnst þó tveir bátar sem eru á þannig veiðiskap.   Valur ÍS (1324) fyrrum Bjarni Gíslasson SF, hefur róið frá Ísafirði. og Hafrún HU sem hefur róið frá Skagaströnd.
    Á Síðustu vetrarvertíð þá réri Hafrún HU á balalínu og fékk 140 tonn í 26 ferðum. stærstí róður 7,9 tonn.  Báturinn byrjaði á línu nú í október og gekk nokkuð vel. var með yfir 40 tonn.  Er báturinn enn að og stærsti róður sem af er komið var núna í byrjun nóvember þegar báturinn landaði 8,9 tonnum þar af var ýsa 6,7 tonn.

Skrifað 7.11.2007 kl. 13:42 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.11.2007

fyrsta myndaalbúmið

Skoða nánar

5.11.2007

Jakop Einar SH

Skoða nánar

4.11.2007

Oddur í Nesi SI

Skoða nánar

3.11.2007

Netabátum fjölgar

Skoða nánar

1.11.2007

Krossey SF 2618

Skoða nánar

1.11.2007

Páll Pálsson ÍS og Örvar HU

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Tenglar

/body>