Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1940
Gestir í dag: 409
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364090
Samtals gestir: 529029
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 20:50:27

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

Færslur: 2007 Október

31.10.2007 11:29

Sæbjörn ÍS (1862)

ÞEgar talað er um trollbáta þá verður manni oft hugsað til nýju pólverjanna eða þá kínabátanna.  Á Neskaupstað var lengi vel bátur gerður út sem hét Inga NK, hún var gerð úr á dragnót.  Nýverið var báturinn seldur til Bolungarvíkur, til Glaðs. ehf.  það fyrirtæki átti (1922) Glað ÍS, og birtist meðal annars viðtal við skipstjóra bátsins í fiskifréttum.  Núna er útgerðin farin að gera út (1862) Sæbjörn ÍS, og það á TROLL.  sem verður að segjast vera ansi athyglisvert.  bátnum hefur verið róið 6 sinnum í október og fengið rúm 8 tonn í það heila.  mesti afli 2,4 tonn. 
Sæbjörn ÍS (1862) er einn af stálbátalónsbátunum og er smíðaður árið 1987.

31.10.2007 11:29

Þórshöfn, miðstöð haustfæraveiða

það fer nú oftast þannig að þegar líður á haustið þá fækkar til muna handfærabátunum,  og jafnframt að aflinn hjá þeim sem eftir er, verður oft ansi rýr.  frá Þórshöfn hafa verið gerðir út. Litlanes ÞH (1906) og Manni ÞH (2328).  báðir hafa róið með handfæri í október.  stærstu róðrarnir þeirra eru hjá Manna ÞH 3,1 tonn, og Litlanesi ÞH 2,6 tonn.  Svana ÞH (6649) gerði einnig þaðan út, hefur ekki farið nema eina ferð og fengið samt 1,7 tonn

31.10.2007 11:29

Farsæll GK

á haustin eins og vanalega þá flykkjast bátar til keflavíkur og fara á bugtarveiðar í faxaflóa.  Farsæll GK (1636).  er einn af þeim.  byrjaði báturinn með látum.  þar sem fyrsti róður hans var 23 tonn.  núna í okt. þá hefur heldur róast og nú er svo komið að Farsæll GK er kominn til grindavíkur aftur,  síðasta löndun hans í keflavík var nokkuð góð eða tæp 13 tonn þar af voru 10 tonn af skarkola.  semsé góð byrjun og góður endir

31.10.2007 11:29

Sólborg RE í togi



mynd sem ég tók 9. september. síðastliðinn.  Þarna er Siglunes SH að koma með Sólborg RE til hafnar á akranesi í togi.  merkilegt að sá gamli góði sé að draga bát sem er 30 árum yngri.  Gírinn í Sólborginni RE var ónýtur, og var þessvegna farið með bátinn á akranes. 

31.10.2007 11:29

Hafdís GK

Stálbáturinn Hafdís GK ( 2400), sem hét áður Ósk KE, og þar á undan Valur HF, er byrjaður að róa með línu.  bátnum var breytt í hafnarfirði, byggt yfir hann og sett í hann 22000 króka mustad beitningavél.  fyrsti róður bátsins var þann 28. okt. og aflinn 2,6 tonn.  hvar var landað?.  Sandgerði....

31.10.2007 11:29

Friðrik Sigurðsson ÁR

þetta er víst 7 færslan mín í dag.  ætlaði að láta 6 færslur duga í dag, enn það er ekki hægt að sleppa þessu.  Friðrik Sigurðsson ÁR, sem hefur stundað skötuselsveiðar á netum.  skipti yfir í net, snemma í okt.  oft á haustin þá er ufsinn að gefa sig mjög vel, og áhöfninn á bátnum virðist svo heldur betur hafa fundið hann, vegna þess að báturinn landaði þann 24. tæpum 43 tonnum, og þar af var ufsi 40. tonn!!!. 

31.10.2007 03:25

Sú fyrsta. ... Hrönn ÍS (2049)

Smá púsluspil að láta þetta fitta allt saman.  enn vonandi gengur það upp. 
Ber vel á að láta Hrönn ÍS opna síðuna.  Hrönn ÍS er gerð út frá Suðureyri á línu, er 9,4BT.  það sem af er október þá er báturinn búinn að fara 2 yfir 7 tonn í róðri.  það verður að teljast mjög gott. stærsti róðurinn 7,7 tonn og sá næsti 7,5 tonn. 

    Tenglar