Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

22.02.2012 07:49

Íslandsmet hjá Adda Afa GK

Febrúarmánuður er búinn að vera alvega hrikalega erfiður í það minnsta fyrir smábátasjómenn suðvestanlands.  En eftir 18 daga brælutíð þá loksins gaf á sjóinn og fóru þá ansi margir bátar út.  Fengu margir þeirra góðan afla og sumir fullfermi. Oft kemur það á daginn að sérstaklega minni smábátarnir þurfa að fara 2 ferðir til þess að ná aflanum. en 3 ferðir til að ná aflanum?, það er mjög sjaldséð og fáheyrt

Óskar Halldórsson skipstjóri og Torfi Torfason háseti fóru grunlausir á sjóinn og lögðu 36 bala.
Lögðu þeir ekki langt út frá Sandgerði og þegar byrjað var að draga var ljóst að ansi mikill afli var.  Þorskurinn var gríðarlega stór allt uppí 10+ kíló.  Þegar einungis var búið að draga 15 bala þá var Addi Afi GK orðin fullur og vel það.  Því var ekkert annað en að fara til hafnar með aflann.  Úr þessum 15 bölum þá fengust 9,8 tonn sem gerir 653 kíló á bala.

Óskar Halldórsson Skipstjóri.

Síðuhöfundur hitti Óskar þegar hann var að landa fyrstu lönduninni sinni og ljóst var að hugsanlega þyrfti hann að fara 3 ferðir til þess að draga alla 36 balanna.  Fóru þeir út aftur og gátu einungis dregið 14 bala. þá var báturinn aftur orðinn kjaftfullur.  
Þegar til hafnar kom þá voru í bátnum 9,3 tonn sem gerir 667 kíló á bala.  En þetta ævíntýri var ekki búið því enn voru 7 balar í sjó.  Strákanir á Mugg KE tóku að sér að draga þessa bala og náðu reyndar bara 6 og úr þessum 6 bölum fengust 4,5 tonn.

Addi Afi er ekki  nema 9,63 Bt að stærð  og fékk því í 35 bala samtals 23,695 kg sem er nýtt met í mestum afla sem smábátur undir 10 BT hefur fengið á einum degi og jafnvel má segja að þetta met sé mesti afli sem smábátur hafi náð í einum róðri þótt fara hefði þurft að fara 3 ferðir til þess að sækja aflann.  og slær þar með met Dögg SU sem sett var í fyrra.  

Þessi mokafli gerir því 677 kíló á bala sem er algert mok og aflaverðmætið var tæpar 8 milljónir króna.

Addi Afi GK rétt skriðin inn í hafnarmynni í Sandgerði


Beðið eftir Löndun.

Komið undir Kranann.   Myndir Gísli Reynisson



Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1053
Gestir í dag: 287
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611725
Samtals gestir: 580966
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 19:26:30

Tenglar