Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
09.01.2012 19:38
Ottó N Þorláksson RE aflahæstur árið 2011
'Ahöfninn á Kaldbak EA veiddi ansi vel á haustmánuðum árið 2011 og jafnvel leit út fyrir að togarinn yrðu aflahæstur ísfiskstogaranna.

En Kaldbakur EA varð þriðji hæsti með 6733 tonn í 41 löndun eða 164 tonn í löndun
Annar var Ásbjörn RE með 6767 tonn í 49 löndunum eða 138 tonn í löndun
Aflahæstur var aflaskipið Ottó N Þorláksson RE með 7126 tonn í 55 löndunum sem gerir 129 tonn í löndun
Á eftir þeim kom svo Sturlaugur h Böðvarsson AK með 5960 tonn í 53 löndunum 112 tonn í löndun
Þórunn Sveinsdóttir VE var hæstur 4 mílna skipanna með 4980 tonn í 60 löndunum eða 83.tonní löndun
Bjartur NK var hæstur Austfirsku togaranna með 4460 tonn í 50 löndunum
Ottó N Þorláksson RE allavega hæstur ísfiskstogaranna og sá eini sem yfir 7000 tonnin komst
Mynd Guðmundur st Valdimarsson
Skrifað af Gísli.R


