Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
30.10.2011 20:25
Hvar á Hafdís SU að vera ?
Það hefur verð nokkur sátt um alla listanna sem á síðuni eru nema einn. Smábátalistann yfir 10 BT, og sérstaklega einn bát sem þar er á listanum, Hafdísi SU. Hafdís SU er nefnilega ekki smábátur heldur aflamarksbátur.

Fyrst hafði ég hann með línubátunum enn þá var mér bent á það að Hafdís SU ætti bara ekkert heima í þeim flokki vegna þess að báturinn væri með mun færri króka heldur enn bátarnir sem þar eru, og auk þess mun langminnstur allra bátanna þar. Hafdís SU væri með svipað magn af krókum og smábátarnir sem eru með beitningavélum borð. skilst að þeir séu með 18000 króka, eða 37 bala miðað við 480 króka á bala.
Var hún þá sett með smábátunum og þá kom upp umræða um að báturinn ætti ekki heima þar. og var hann því settur aftur á línulistann, þá kom aftur að hann ætti ekki heima þar og hefur hann síðan þá verið á smábátalistanum yfir 10 BT.
Hafdís SU er jú nokkru stærri bátur enn hinir. hann er 29,9 brl á meðan hinir eru um 12 brl nema Óli Gísla GK sem er 18 brl. hann er 15,6 metrar á lengd á meðan að hinir eru um 12 til 13 metrar. hann er 4,99 á breidd á meðan hinir eru frá 3,7 og uppí 4,6 (Óli Gísla GK).
En á móti kemur þá er hann mun gangminni heldur enn hinir bátarnir.
Ætli ganghraði Hafdísar SU sé ekki eitthvað í kringum 10 mílur á meðan að hinir geta náð allt að 18 mílna hraða og jafnvel meira.
Á línulistanum sjálfum eru skipin gríðarlega stór miðað við Hafdísi SU. t´d er Jóhanna Gísladóttir ÍS 480 brl, 57 metrar á lengd breidd 8 metrar og með 1350 hestafla vél, og er að mig minnir 45000 króka.
Þar aftur á móti er Hafdís SU þá frekar í hópi með Balabátunm sem eru orðnir nokkuð margir t.,d Gulltoppur GK og Hamar SH.
Hafdís SU hefur nokkuð oft verið í toppslagnum en hefur oft þurft að láta í minni pokann og t.d núna í okt þá er Dögg SU langefst þó svo að Hafdís SU sé það nálægt.
Núna eru ansi heitar umræður um að Hafdís SU eigi bara ekkert að vera í þessum flokki heldur á línulistanum sjálfum.
Þannig að ég ætla setja í gang könnun um þennan blessaða bát og það er einfaldlega spurt.
á Hafdís SU að vera á
Smábátalistanum yfir 10 BT
eða Línulistanum
Og til að þessi könnun geti talist vera marktæk þá þurfa að vera lágmark 400 manns sem kjósa í henni. Miðað við hversu margir eru að koma á síðuna þá ætti lítið mál að ná þessari 400 manna tölu
Valur SU. Mynd Valur Björn Línberg.
Skrifað af Gísli.R
