Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
27.05.2011 07:52
Bátar á bryggju.
Eini slippurinn sem eftir er í reykjavík er einungis fyrir stóru skipin og því hafa menn brugðið á það ráð að frá öflugan krana til þess að hífa minni bátanna á land til þess að vinna í þeim.


Hérna koma myndir af tveim bátum sem báðir eru uppi á bryggju, ekki langt frá Vélaverkstæðinu Gjörva.
Fyrri báturinn heitir Siggi Þórðar GK, sá bátur er svo til hættu að stunda reglubundnar fiskveiðar heldur var búið að breyta honum til farþega flutninga og þá aðalega með sjóstangarfólk. í fyrra þá var báturinn í Bolungarvík og var þar með sjóstangamenn
Þar á undan var ansi langt síðan báturinn réri enn hann réri þá síðast árið 2003 og þá á vertíð. og hét þá Pétur Jakop SH. og fékk þá 76 tonní 41 róðrum , mest 4,7 tonn.
Hefur þessi bátur þá ekkert komið kjaftfullur síðustu 10 árin???.
jú og það ekkert smá. því í mars árið 2001 eða fyrir 10 árum síðan þá landaði báturinn 26,4 tonnum á einum degi. Samkvæmt fiskistofu vefnum þá er þetta 14,5 tonn og tæp 12 tonn. spurning hvort báturinn hafi farið tvær ferðir til að ná í aflann. engu að síður mokafli.
þess má geta að lokum að Siggi Þórðar GK er smíðaður á Akureyri.
Siggi Þórðar GK
Hinn báturinn heitir Lundi RE 20, en reyndar samkvæmt fiskistofu vefnum þá heitir báturinn Snorri EA. myndin af bátnum er tekin 20.maí og er nafnið Lundi RE á honum. Þessi bátur er eins og Siggi Þórðar GK notaður í farþegaflutninga eins og hvalaskoðun. það er nokkuið síðan báturinn var gerður út á fiskveiðar. Síðast landaði báturinn í apríl árið 2002, enn báturinn réri þá um 20 róðra á vertiðinni og fiskaði eitthvað um 20 tonn. Þá hét báturinn Gísli Gunnarsson II SH. Báturinn er eins og Siggi Þórðar GK smíðaður á Akureyri, reydnar árið 1964 og því nokkuð eldri enn Siggi Þórðar GK.
Lundi RE. Myndir Páll Jóns. ( páll á ´ástu GK) færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Skrifað af Gísli.R
