Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

Flokkur: FRÉTTIR

13.05.2012 17:46

Steinunn SH með 55 tonn

Eins og kemur fram í fréttinni að neðan um mokveiðina hjá dragnótabátnum Steinunni SH þá komu þeir með að landi 55 tonn og deginum eftir 65 tonn.  sá túr tók aðeins 10 tíma höfn í höfn.  og fengu þeir þann afla í 3 hölum.  fyrst 5 tonn, síðan 25 tonn og svo 35 tonn.  

Líka er forvitnilegt að heyra að á sínum tíma þegar Halldór Jónsson lét smíða 3 báta þá var einn þeirra með nafninu Steinunn SH.  Sá bátur var seldur til Hornafjarðar og hefur síðan þá haldið því nafni þar, reyndar á ansi mörgum bátum.  Því er kanksi forvitnilegt að velta því fyrir sér að hefði halldór selt einhvern annan bát til Hornafjarðar? hvað myndi þá Steinun SF heita í dag?  

Allvega hérna að neðan er mynd af Steinunni SH þar sem verið er að landa 55 tonnum úr bátnum.  Hvíta skammdekkslínan er kominn í kaf og því má kanski gera sér í hugarlund hversu mikinn signn báturinn hafi verið þegar þeir komu með 65 tonn að landi.


Mynd Árný Bára Friðriksdóttir

12.05.2012 08:22

Hver verður hæstur??

Lokadagur vetrarvertíðinnar árið 2012 var í gær 11. maí.  

og þótt að stemminginn sé ekki sú sama og var á árum áður þá mun ég samt sem áður gera henni góð skil.
er byrjaður að reikna saman bátanna  og jú það er smá slagur.  t.d hjá smábátunum yfir 10 BT hver verður hæstur þar sem og hjá smábátunum undir 10 BT um það hvaða bátur nær þar yfir 200 tonna lágmarkið.

enn þar sem að vetrarvertíðin hingað til hafa að mestu miðast við netabátanna þá er það líka svo hérna.  og það skal segja að sjaldan hefur verið jafn ólíklegt hvaða bátur nær því að vera aflahæstur netabátanna

ég get sagt það nú þegar að 3 netabátar hafa náð yfir 1000 tonnin , og einn af þeim hefur aldrei áður náð yfir 1000 tonnin, .

ég ætla að leyfa ykkur að velta þessu aðeins fyrir ykkur, enn hvaða netabátar haldið þið að séu komnir yfir 1000 tonnin  og stóra spurninginn er hvaða netabátur verður hæstur??

11.05.2012 11:13

Mokveiði hjá Steinunni SH

Hvað er málið með þetta nafn Steinunn??.  Við erum búinn að fylgjast með trollbátnum Steinunni SF sem setti íslandsmet í apríl og í Ólafsvík er önnur Steinunn og sá bátur er á dragnót og hefur heldur betur mokfiskað núna í maí.

þeir hafa einungis farið í 5 sjóferðir og eru búnir að landa um 230 tonnum og farnir í langt sumarfrí.  
230 tonn í 5 sjóferðum það gerir  46 tonn í róðri.  
í fyrsta róðri lönduðu þeir 40 tonnum, þar var þorskur 34 ton.

í róðri 2 voru þeir með 43 tonn sem þeir fengu í einungis 3 köstum eða 14 tonn í kasti.

í þriðja róðri komu þeir með 56 tonn að landi og var þorskur 48 tonn.

svo komu þeir með í róðri númer 4  65 tonn sem þeir fengu í 3 köstum eða 22 tonn  í róðri. Þess má geta að þennan risadag hífðu þeir alls 88 poka.

í róðri númer 5 voru þeir með  27 tonn.

vægast sagt rosalegur afli og hérna að neðan eru myndir sem eru teknar um borð þegar þeir fengu 23 tonn í einu kastinu .  


Flott hal hjá þeim á Steinuni SH. Myndir af Facebook síður Steinunnar SH.


Steinunn SH Mynd Alfons Finnson

08.05.2012 10:31

Ársgamalt Íslandsmet FALLIÐ!

Já við höfum verið að fylgjast með á síðunni vægast sagt rosalegum afla hjá bæði Drangavík VE og Steinunni SF sem öttu má segja ansi mikla keppni í mars þar sem að Drangavík VE hafði betur.  
Núna í apríl þá hafa strákarnir á Steinunni SF heldur betur mokveitt.  

Báturinn er hefur ekki þurft að vera lengi úti enn samt komið með fullfermi og meira enn það.  

til að mynd var róður númer 3 einungis 1 dagur á veiðum enn kom samt með 81 tonn að landi,

róður númer 7 var 64 tonn eftir einn dag á veiðum

róður 8  var 76 tonn eftir tæpa 2 daga á veiðum

og róður 9 sem var stærsti róðurinn hjá Steinunni SF var 85 tonn etir tæpa 2 daga á veiðum.

Allt þetta er nokkuð merkilegt þar sem að Steinunn SF tekur ekki nema um tæp 65 tonn í lest.  afli er t.d  settur í þvottakörin sem hvort um sig taka um 5 tonn 

og íslandsmetið sem Steinunn SF setti í fyrra er þar með fallið enn báturinn fiskaði núna 723 tonn í 10 róðrum.   og fer þessi afli að minna á hvað sumir netabátarnir náðu hérna á árum áður.


Steinunn SF mynd Jón Páll Ásgeirsson.


29.04.2012 13:17

Góð Handfæraveiði

Mikill fjöldi handfærabáta hefur farið að stað eftir að hrygningarstoppinu lauk.  Veiði bátanna hefur verð mjög góð hvort sem þeir eru að róa frá Akranesi, arnarstapa, Rif Ólafsvík eða þá Sandgerði þar sem langflestir bátanna hafa róið. enn þegar þessi orð eru skrifuð þá hafa 19 smábátar landað á akranesi og þar af 6 handfærabátar .  Þar er t.d Stapavík AK sem er kominn með 14,5 tonn í 7 róðrum og mest 2,8 tonn í róðri.  Eftir stoppið þá landaði báturinn 11 tonnum í 5 róðrum

Rún AK er búinn að landa 13 tonn í 6 róðrum sem er allt fengið eftir stoppið

Á Arnarstapa hafa 14 bátar landað og þar af 12 handfærabátar. og er Huld SH hæst þar með tæp 16 tonn í 7 róðrum þar af 14 tonn sem fengust eftir stoppið í 6 róðrum

Brimsvala SH er kominn með 13 tonn í 6 róðrum sem allt fékkst eftir stoppið

aðrir bátar þar sem náður yfir 10 tonn eftir stoppið er Teista SH sem var með 11,1 tonn i´7 róðrum og Eva Sóley ÍS sem var með 11,1 ttonn í 6 róðrum.  Þess má geta að það munar einungis 1 kílói á milli Teistu SH og Evu Sóley ÍS 

Í ólafsvík hafa 12 báta landað afla og þar af 6 handfærabátar.  Þar er Friðrik Bergmann SH hæstur með 11,3 tonn í 5 róðrum og Geysir SH 10,3 tonn í 5 róðrum

eins og segir þá eru langflestir bátanna í Sandgerði enn þar afa landað 30 bátar og af þeim eru 25 bátar á handfærum,
Þar er Fagravík GK hæst  með 17,3 ton í 8 róðrum og þar af 15 tonn sem fengust eftir stoppið

Fjöður GK er kominn með 15,6 tonn í 5 róðrum og þar sem merkilegt við bátinn er að mestur hluti aflans fékkst áður enn að stoppið kom og Fjöður GK á stærstu handfæralöndunina í apríl 5,6 tonn.

Garri BA er komin með 15,6 tonn í 8 róðrum

Faxi GK 14,4 ton í 5 róðrum sem allt fékkst eftir stoppið

Líf GK er komin með 13,6 tonn í 6 róðrum
Jói á Seli GK 12,2 tonn í 4 mest 3,7 tonn í róðri og allt fékkst eftir stoppip

Hafdís GK 202 er kominn með 11,1 tonn í 6

Magnús GK 10,5 tonn í 5
Kristján SH 10,5 tonn í 9
Ísbjörn  GK 10,4 tonn í 6
Sveinbjörg HU 10,1 tonní 6

Svo má ekki gleyma Kára II SH sem vægast sagt mokveiddi eftir stoppið og fékk 19,3 tonn í 6 róðrum sem gerir 3,2 ton í róðri.  báturinn komst mes tí 4,6 tonn í einum róðri og landar á rifi.

Þrátt fyrir allan þennan góða afla bátanna þá er það nú samt þannig að aflahæsti handfærabáturinn er Víkurröst VE sem rær frá Vestmannaeyjum  báturinn er kominn með 21,2 tonn í 7 róðrum og þar af 5,5 tonn sem fékkst eftir stoppið .  allt hitt fékkst áður enn stoppið kom.

og þessi frétt er skrifuð nokkuð öðruvísi þar sem að þið getið klikkað á öll bátanöfnin og þá séð myndir af viðkomandi bátum.




27.04.2012 01:09

Vetrarvertíð 2012

Þó svo að hin svo kallað vertíðarstemming sé með öllu horfin og slagurinn um að vera aflahæstur er þá farin líka.  Engu að síður þá mun ég gera vertíðinni vel skil í sjómannadagsblaði Fiskifrétta sem kemur næst út.  enn eins og þið ættuð að vita þá miðast allar vertíðarumfjallarnir mínar við báta sem ná yfir 400 tonn  á vertíð og smábátarnir eru með 200 tonna viðmiðið.

undanfarin ár þá hafa þetta verið í kringum 80 báta sem hafa náð yfir 400 tonnin um um 50 smábátar sem hafa náð yfir 200 tonnin. 

ég hef ekki heildartöluna um hversu margir bátar eru komnir yfir þessi tvö viðmið enn það er í excel skjali sem ég nota til útreikinga á vertíðini.

samt má velta fyrir.

verður Steinunn SF aflahæst eða nær Drangavík VE að velta Steinunni SF úr sætinu.  Eða verður það einhver stóru línubátanna,

Og varðandi netabátanna þá eru það t.d Hvanney SF, Erling KE og Þórsnes II SH sem og kanksi Magnús SH sem eiga möguleika á að vera aflahæstu netabátarnir.

og varðandi smábátanna þá er Tryggvi Eðvars SH á góðri leið með að verða aflahæstur smábátanna

enn sem komið er þá er enginn smábátur undir 10 bt kominn yfir 200 tonnin . enn þeir sem  eiga möguleika á því eru Glaður SH, Sverrir SH og Addi Afi GK.



25.04.2012 00:03

Gangið í bæinn

Hver kannast ekki við það að hafa verið um borð í báti sem er tekinn í slipp.  Bátur sem er tekin í slipp t.d 200 eða 300 tonna bátur er gríðarlega hár þegar á land er komið.  og iðulega þá eru gríðarlangir stigar settir til þess að menn geti gengið um borð í viðkomandi bát.

Enn núna í njarðvíkurslipp þá er þar 1416 Hafursey VE sem Vísir í Grindavík er búinn að kaupa.  og sá bátur er mjög hár.  Og eins og gefur að skilja þá er það hundleiðinlegt að labba upp kanski 40 til 50 tröppur til þess að komast um borð í bátinn,.

Enn slipparnir í Njarðvík og þá með samþykkis vísismanna fundu ansi góða lausn á þessu stiga vandamáli.  Þeir gerðu einfaldlega gat á skrokkin þar sem gengið er inní lestina  og settu lítin nettan stiga og þessa fínu hurð.  

ansi sniðugt og núna vantar bara blómapott og flott útiljós þá er þetta fullkomið.

Hurðin fína og stiginn stutti. 

Og hérna að neðan er mynd af bátnum í slippnum og eins og sést þá er hann ansi hát til samanburðar við lyftarann sem er á myndinni.  


Mynd Markús Karl Valsson

19.04.2012 00:14

Gleðilegt sumar

Ansi erfirður vetur að baki og einn sá snjóþyngsti suðvestanlands í mörg ár.  Og vonandi fáum við bara gott sumar.  Reyndar er vertíðin mín að byrja þar sem ég er að vinna við rútuakstur

enn takk fyrir veturinn lesendur góðir og gleðilegt sumar,

Set með hérna smá mynd sem ég tók í febrúar 2009

Sólsetur mynd Gísli Reynisson

15.04.2012 07:59

Góðvinur síðunnar fallin frá.

Ég fékk ansi slæmar fréttir núna fyrir nokkru síðan.  Páll Þorgrímur Jónsson sem hafði verið að senda mér myndir í all mörg ár  lést í byrjun apríl  einungis 55 ára að aldri.  Hérna á síðunni þá voru myndirnar hans oftast með undirskriftinni Páll á Ástu GK enn hann var á henni og tók mikið af myndum um borð sem við fengum að sjá.  Inná þessari síðu þá er sérflokkur sem heitir "myndir frá páli jón (páll á ástu GK).  Reyndar á ég eftir að fara betur í gegnum síðuna og færa til fleiri myndir í þann flokk.

Fjölskyldu, vinum og vinnufélugum Páls sendi ég samúðarkveðjur og þakka fyrir hans þátt í síðunni.

Gísli R

14.04.2012 06:56

Nýr bátur frá trefjum

Nýveri frá fékk Trefjar útflutningsverlaun forseta íslands.  Er það vel við þar sem þeir hafa verið af afgreiða báta eins og á færibandi.  Hérna að neðan eru upplýsingar um nýjsta bátin frá þeim og það vekur athygli mína nafnið á bátnum.  Bátarnir frá Trefjum heita Cleopatra og nýjasti báturinn heitir einfaldlega Cleopatra.  Þarna er útgerðarmaðurinn ekkert að flækja málin.

Síðuhöfundur óskar Trefjum til hamingju með verðlaunin.

Ný Cleopatra 31 afgreidd til Frakklands

Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Lorient á
vesterströnd Frakklands.
Að útgerðinni stendur Erwan Babin sjómaður frá Lorient sem jafnframt er skipstjóri á
bátnum.


Nýji báturinn hefur hlotið nafnið "Cleopatra".  Báturinn er 9brúttótonn. 
"Cleopatra" er af gerðinni Cleopatra 31.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT(Iveco)N67 280 tengd ZF280IV gír.
Siglingatæki eru frá Furuno.
Báturinn er útbúinn til línu og handfæraveiða.
Línubúnaður er frá Able.  Handfærarúllur eru frá DNG.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í einangraðri lest.  Í vistarverum er svefnpláss
fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Lorient allt árið, reiknað er
með að báturinn hefji veiðar núna í lok mánaðrins.  1-2 menn verða í áhöfn.
Mynd Trefjar

08.04.2012 03:52

Lilli Lár GK seldur

Núna nýverið var gengið frá sölu á bátnum Lilla Lár GK í Sandgerði.  Kaupandinn er Hjörtur Jóhannesson sem er skipstjóri á Njáli RE.  En útlit er fyrir að Njáll RE fari í ansi langt stopp útaf kvótaleysi eða þangað til að veiðar í bugtinni hefjast. Hjörtur hefur hug á að vera með bátinn á strandveiðum í sumar.
Er þetta annar báturinn sem Hjörtur eignast enn hann átti í nokkur ár eikarbát sem hét Grétar GK en það eru nokkuð mörg ár síðan að Hjörtur var með Grétar GK.



Lilli Lár GK mynd Arnbjörn Eiríksson.


06.04.2012 10:57

ja hvur fjandinn, Drangavík VE hafði betur

Undanfarin ár í mars þá höfum við orðið vitni af algjörri mokveiði hjá Steinunni SF þar sem að báturinn hefur verið langhæstur trollbátanna og slagað hátt í ísfiskstogaranna.  Til að mynda í fyrra ´þegar að Steinunn SF fékk 683 tonn og varð aflahæstur allra báta og skipa þann mánuð.

Enn núna í mars í ár þá fengu strákarnir á Steinunni SF heldur betur keppni frá Drangavík VE enn báðir bátarnir hafa róið stíft í mars og komið drekkhlaðnir til hafnar báðir eftir stutta veiðiferðir.

Reyndar er rétt að hafa í huga að burðargeta Steinunnar SF er nokkuð meiri enn Drangavíkur  VE.  Steinunn SF hefur verið að koma með um 78 tonn á meðan að Drangavík hefur verið að ná 64 tonnum.

Og þegar upp var staðið þá endaði þessi slagur þannig að Steinunn SF var með 662 tonn í 10 löndunm 

enn Drangavík VE var með 678 tonn í 13 löndunum og er þetta því í fyrsta skipti í ansi langan tíma þar sem að einhver trollbátur nær að toppa strákanna á Steinunni SF 

Engu að síður er þetta rosalegur afli hjá báðum skipunum .


Drangavík VE mynd Tryggvi Sigurðsson

04.04.2012 20:57

Vel gengur hjá Stafnesi KE

Bátsnafnið Stafnes KE er suðurnesjamönnum mjög þekkt og Oddur Sæmundsson sem var iðulega kallin í brúnni var mikill netakóngur og margar vertíðir þá var hann í toppslagnum um aflahæstu netabátanna á vertíðum, og var þá að etja kappi við t.d Óskar á Arney KE og Grétar Mar á Sæborgu RE og síðar Bergi Vigfúsi.  
Fyrir nokkrum árum þá keypti Oddur Narfa VE og heitir hann núna Stafnes KE.  Allt árið í fyrra þá stundaði báturinn lúðuveiðar og var Oddur skipstjóri á bátnum á móti Grétari Mar.  Um áramótin þá var sett stopp á lúðuveiðarnar þegar að þær voru bannaðar með öllu og þá var spurninginn hvað myndu þeir bátar gera sem voru á þessum lúðuveiðum.
Oddur ákvað að setja bátinn sinn á netaveiðar og reyna við blálönguna, hefur Stafnes KE verð að veiðum djúpt úti af Vestmannaeyjum og merkilegt nokk að honum hefur bara gengið nokkuð vel.  því í mars þá fiskaði báturinn 63 tonn í 7 róðrum og fyrsti róðurinn var tæp 18 tonn.  Auk blálöngunar hefur báturinn með háf, djúpkarfa og keilu.  
Fyrsti róðruinn í apríl var ansi góður því báturinn landaði 20 tonnum og því má segja að þessi tilraun Odds að setja Stafnes KE á blálöngunetaveiðar hafi heppnast ansi vel.
ég gerði tilraun til þess að reyna að finna út aflaverðmætið hjá Stafnesi KE og miðaði þá við tölur á www.rsf.is,  áætlað aflaverðmæti sem komið er núna eru um 14 milljónir króna.

Stafnes KE Mynd Markús Karl Valsson

04.04.2012 20:45

Metafli hjá Bárði SH

Það er alveg magnað hvað Pétur á Bárði SH er duglegur að róa og núna í mars þá má segja að Bárður SH hafi róið alla daganna í mars.  því báturinn fór í 30 róðra í mars og þar af landaði báturinn fjórum sinnum tvisvar á sama deginum.  Þessi litli bátur sem er ekki nema um 30 BT og hefur 4 menn um borð fiskaði það vel í mars að hann náði að hanga inn á topp 10 í mars og var þar í kringum báta sem voru allt að tíu sinnum stærri enn Bárður SH er.
aflinn 305 tonn í 30 löndunum.  Þessi afli er mesti afli sem smábátur hefur fengið á íslandi á einum mánuði.  

Bárður SH Mynd Alfons Finnson

01.04.2012 12:42

Nýr bátur frá Trefjum

Ný Cleopatra 36 til Vallersund

Bátsmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til
Vallersund í syðri Þrændalögum í Noregi.
Kaupandi bátsins er Geir Jonny Ingolfsen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.


Báturinn hefur hlotið nafnið Vasøyfisk.  Báturinn mælist 15brúttótonn.  Vasøyfisk er
af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM11 610hp tengd ZF V-gír.  Báturinn er
útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar ehf.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu
bátsins.  Báturinn er útbúinn til neta og línuveiða.
Netabúnaður er frá Rapp og Net-op.  Línuspil er frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla og
sturtuklefi.  Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. 
Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og
ísskáp.
Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í byrjun apríl.

Mynd Trefjar



Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1045
Gestir í dag: 286
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611717
Samtals gestir: 580965
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 19:05:01

Tenglar