Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 90
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 3476
Gestir í gær: 912
Samtals flettingar: 2407460
Samtals gestir: 538401
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 01:23:49
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Flokkur: FRÉTTIR
22.02.2012 07:49
Íslandsmet hjá Adda Afa GK
Febrúarmánuður er búinn að vera alvega hrikalega erfiður í það minnsta fyrir smábátasjómenn suðvestanlands. En eftir 18 daga brælutíð þá loksins gaf á sjóinn og fóru þá ansi margir bátar út. Fengu margir þeirra góðan afla og sumir fullfermi. Oft kemur það á daginn að sérstaklega minni smábátarnir þurfa að fara 2 ferðir til þess að ná aflanum. en 3 ferðir til að ná aflanum?, það er mjög sjaldséð og fáheyrt




Óskar Halldórsson skipstjóri og Torfi Torfason háseti fóru grunlausir á sjóinn og lögðu 36 bala.
Lögðu þeir ekki langt út frá Sandgerði og þegar byrjað var að draga var ljóst að ansi mikill afli var. Þorskurinn var gríðarlega stór allt uppí 10+ kíló. Þegar einungis var búið að draga 15 bala þá var Addi Afi GK orðin fullur og vel það. Því var ekkert annað en að fara til hafnar með aflann. Úr þessum 15 bölum þá fengust 9,8 tonn sem gerir 653 kíló á bala.
Óskar Halldórsson Skipstjóri.
Síðuhöfundur hitti Óskar þegar hann var að landa fyrstu lönduninni sinni og ljóst var að hugsanlega þyrfti hann að fara 3 ferðir til þess að draga alla 36 balanna. Fóru þeir út aftur og gátu einungis dregið 14 bala. þá var báturinn aftur orðinn kjaftfullur.
Þegar til hafnar kom þá voru í bátnum 9,3 tonn sem gerir 667 kíló á bala. En þetta ævíntýri var ekki búið því enn voru 7 balar í sjó. Strákanir á Mugg KE tóku að sér að draga þessa bala og náðu reyndar bara 6 og úr þessum 6 bölum fengust 4,5 tonn.
Addi Afi er ekki nema 9,63 Bt að stærð og fékk því í 35 bala samtals 23,695 kg sem er nýtt met í mestum afla sem smábátur undir 10 BT hefur fengið á einum degi og jafnvel má segja að þetta met sé mesti afli sem smábátur hafi náð í einum róðri þótt fara hefði þurft að fara 3 ferðir til þess að sækja aflann. og slær þar með met Dögg SU sem sett var í fyrra.
Þessi mokafli gerir því 677 kíló á bala sem er algert mok og aflaverðmætið var tæpar 8 milljónir króna.
Addi Afi GK rétt skriðin inn í hafnarmynni í Sandgerði
Beðið eftir Löndun.
Komið undir Kranann. Myndir Gísli Reynisson
Skrifað af Gísli.R
18.02.2012 11:05
Loksins Loksins!
Eftir um 18 daga samfellda brælutíð þar sem einungis hefur gefið 2 daga á sjó er nú loksins orðið sjóveður hjá bátum Suðvestanlands og það var eins og við mannin mælt. Það fara ansi margir bátar út.
Frá Sandgerði þá má segja að höfnin hafi tæmst enda mikill fjöldi báta sem er þar sem hefur verið landfastur mest allan febrúar mánuð.
Þeir bátar sem eru á sjó eru eftirfarandi:
Svala Dís KE
Birta Dís GK
Stella GK
Muggur KE
Ragnar Alfreðs GK
Dóri GK Í sínum fyrsta róðri eftir strandið fyrir austan'
Birgir GK
Bergur Vigfús GK
Addi Afi GK
Maggi Jóns KE
Petra SI
Abby GK
Óli Gísla GK
Fjóla GK
Hringur GK
Hafdís SU
Lilja BA
Daðey GK
Ofantaldir bátar eru allt smábátar nema HAfdís SU sem róa frá Sandgerði og eflaust eru fleiri á sjó . Og því má búast við að mikið fjör verður í Sandgerðishöfn þegar allur þessi floti kemur til hafnar. Vegna Bikarúrslitaleið ÍBK og Tindastóls þá verð ég að keyra í kringum þann leik og næ því ekki að fylgjast með lífinu í höfninni þegar líður á. Býst við að Valur BJörn Línberg verði þarna og myndi herlegheitin.
Svo má bæta við bátum frá Keflavík og Grindavík:
Hrappur GK frá Grindavík
Rafn KE frá keflavík
Byr GK grindavík
Hamar GK grindavík
Þórkatla GK
Dúddi Gísla GK
Óli á Stað GK
Garri GK
Sæunn GK
svo útvið strandakirkju eru bátarnir frá Þorlákshöfn
Sæunn Sæmundsdóttir ÁR
Sleipnir ÁR
Máni II ÁR
Bjössi RE
Verður fróðlegt að fylgjast með aflanum hjá þessum bátum.
Skrifað af Gísli.R
16.02.2012 21:56
9 tonn á 28 bala!
Í fréttinni um bátanna sem fór á sjóinn 9.febrúar þá var þar minnst á 3 báta. sem allir fengumokafla.

Mér var send mynd af Steina GK sem fékk 9,1 tonn á einungis 28 bala. Það gerir um 324 kíló á bala. 2 menn eru á bátnum. reyndar vigtaði aflinn 9,1 tonn á vigt en við endurvigtun þá var hann 8,5 tonn sem er talan sem er á Fiskistofuvefnum,.
Þess má geta að Muggur KE fékk 12,2 tonn á einungis 34 bala sem gerir um 360 kíló á bala.
Steini GK með 9 tonn,. Mynd Sigurður Þorkell Jóhannsson
Skrifað af Gísli.R
14.02.2012 23:58
Mokveiði þegar gaf á sjó
Já það þarf að fara ansi mörg ár aftur í tímann til þess að finna jafn hörmulegan mánuð til sjósóknar allavega gagnvart smábátunum. því svo til endalausar brælur hafa verið allan febrúar mánuð. Bátar frá Suðurnesjunum hafa heldur betur fundið fyrir þessu þar sem einungis hefur gefið á sjó 2 daga 5 og 9 febrúar. 


ansi mikill fjöldi báta fór á sjó 9 febrúar frá Sandgerði og í það minnsta þrír bátar komu með fullfermi og vel það. Skal hérna minnst á þessa 3 báta. tveir þeirra hafa komið áður við sögu hérna enn sá þriðji hefur aldrei verð fjallað um hérna áður.
Muggur KE Mynd Gísli Reynisson.
Fyrst ber að nefna Mugg KE, en þessi bátur sem margir telja að sé eini báturin sem hugsanlega getur slegið íslandsmetið í mestum afla í einum róðri kom með 12,2 tonn að landi og var þorskur þar af 11,6 tonn.
Steini GK mynd Gísli Reynisson.
Steini GK hefur ansi oft verð til umfjöllunnar á síðunni því báturinn er með minnstu bátunum sem eru á smábátalistanum yfir 10 BT enn hefur samt komið með drekkhlaðin bát og vel það. Og þann 9 þá var einn af þessum risaróðrum því Steini GK kom með 8,5 tonn að landi og var þorskur 8 tonn.
STella GK mynd Valur BJörn Línberg.
þriðij báturinn í þessu stutta yfirliti hefur aldrei áður birst í frétt hérna á síðunni en þar er verið að tala um bátinn Stellu GK 23. Það er nú ekki oft sem við sjáum bátinn á listum á síðunni enn það er aldrei að vita nema að hún detti inn því báturinn er núna í 46 sætinu og STeini GK í 47 sætinu. Stella GK kom nefnilega með 9,1 tonn að landi 9.febrúar og eins og hjá hinum tveim þá var þorskur uppistaða eða 8,7 tonn.
Skrifað af Gísli.R
13.02.2012 21:32
38 ára gamall eikarbátur í góðri netaveiði
Þó svo að vertíðarstemminginn sé með öllu horfin á braut, vegna kvótastöðu bátanna. Þá er nú samt alltaf einhverjr sem hafa gaman af vertíðinni og sumir kanski fá smá vetíðarstemmingu í æð eins og var áður. Síðuhöfundur hefur ætíð haft gaman af vetrarvertíðum og hefur fylgst vel með þeim.
Núna í febrúar þá hefur viðrað hrikalega illa til netaveiða og suðvestanlands hafa verð sífelldar andskotans brælur og margir orðnir langþreyttir á þessu.
Stóru stálbátarnir t.d Erling KE, Kristbjörg VE og Brynjólfur VE sem allir hafa verið að veiðum í Faxaflóa hafa þó róið
Á meðan að netasjómenn suðvestanlands hanga heima þá hefur viðrað mun betur til netaveiða á norðurlandinu og það hefur áhöfninn á Níels Jónssyni EA nýtt sér. Níels Jónsson EA er 38 ára gamall 28 brl eikarbátur sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldu alla sína tíð og er í hópi með snyrtilegustu bátum landsins.
Núna í febrúar þá hefur báturinn fiskað ansi vel það sem af er mánuðinum og mest komist í 9,1 tonn í róðri og er báturinn að róa frá Dalvík. og merkielgt nokk að báturinn er núna þegar þessi pistill er skrifaði í 10 sætinu yfir aflahæstu netabátanna á landinu og er ásamt tveim öðrum bátum Sæþóri EA og Erling KE búinn að róa mest alla báta eða í 11 róðra.,
báturinn er núna kominn með tæp 50 tonn í 11 róðrum
Níles Jónsson EA mynd Hafþór Hreiðarsson,
Skrifað af Gísli.R
11.02.2012 11:52
Þorskurinn og Loðnuveiðar
Núna er loðnuvertíð í hæstum hæðum og skipin keppast við að ná kvóta sínum. Hjá skipunum þá slæðist alltaf smá fiskur með aflanum. t.d Ufsi, grásleppa og Þorskur. yfirleitt er um frekar lítið magn að ræða nokkur hundruð kíló.
Strákarnir á Lundey NS komu til hafnar á Vopnafirði núna í lok janúar með frekar lítinn afla eða 619 tonn af loðnu. En auk loðnunnar þá kom skipið með 7,4 tonn af þorski . Vægast sagt óvenjulega mikill þorskafli sem þeir á Lundey NS komu með að landi, og þessi 7,4 tonn þættu fínasti afli hjá t.d smábátunum eða þá minni netabátunum, Allur þorskaflinn var landaður sem hafróafli.
Lundey NS mynd Guðmundur st Valdimarsson,
Skrifað af Gísli.R
04.02.2012 10:35
Afli smábátanna frá 1.september
Ég fékk sendan lista sem einn lesandi síðunnar sem reyndar lét ekki nafn fylgja með sendi mér. Og á listanum sést afli smábátanna frá því 1.september.
ég ætla að leyfa ykkur að sjá þennan lista sem þessi aðili bjó til og færi ég honum eða henni bestu þakkir fyrir. alltaf gaman að svona og ef þið búið til lista um eitthvað svipað þá getið þið sent mér og ég hendi því á síðuna ef mér finnst það þess vert.
enn hérna er afli bátanna frá 1.sept.
og það kemur ekki á óvart að Bolungarvíkurbátarnir hrúgi sér á listann og því vekur athyli að sjá Hópsnes GK þarna. Hafdís SU er líka með þarna enn ég birti listann eins og ég fékk hann sendan.
| Sæti | Nafn | Afli |
| 1 | Dögg SU 118 | 711,5 |
| 2 | Hafdís SU | 657,6 |
| 3 | Hrólfur Einarsson ÍS | 611,6 |
| 4 | Vilborg ÍS | 599,5 |
| 5 | Sirrý ÍS | 599,3 |
| 6 | Tryggvi Eðvars SH | 581,5 |
| 7 | Kristinn II SH | 575,1 |
| 8 | Einar Hálfdáns ÍS | 541,1 |
| 9 | Guðmundur Einarsson ÍS | 528,4 |
| 10 | Hópsnes GK | 464,7 |
Væri flott að fá svona lista frá þessum nafnlausa aðila. kanski hafa hann topp 15 eða 20
Skrifað af Gísli.R
31.01.2012 05:46
Norska Senja
Hérna á norska listanum á síðuni þá höfum við fylgst með mokveiðini hjá báti sem heitir Senja. um þennan bát vitum við ansi lítið. Þessi bátur er Smíðaður árið 2002 og er úr áli. báturinn er 14,96 metrar á lengd um 5,56 á breidd, eða svipaður og Saga K. í honum er 410 hestafla vél.

Þessi bátur hefur svo sannalega mokað upp þorskinum núna í janúar og eins og sést þá er hann ansi ofarlega ef við miðum við íslenska netabátalistann. þrátt fyrir að vera ekki stærri enn hann er. enda hefur báturinn róið hrikalega stíft 28 róðra og mest komið með 23 tonn að landi eftir eina löndun
Í norskum miðli .þar er viðtal við skipstjórann á Senju þar sem hann segir frá algjöru ævintýri núna í janúar. þið getið lesið á norsku í tenglinum enn ég tók mér bessaleyfi og þýddi það yfir á ensku, notaði bara google translate, lét það þýða á íslensku enn það kom bara tómt bull útúr því.
SVona lítur svo Senja út. Mynd af Marinetraffic.com
fyrirsögnin er aldrei upplifað annað eins fiskerí
- I have never heard of anything similar here in the area, says skipper VidarTøllefsen on Husøy boat "Senja".
very easy
The sensational with this year's winter fishing on the island of Senja, at least so far,is that enormous amounts of cod has followed the herring into the fjords.
- We are many boats on Øyfjorden and Mefjorden, and probably several other fjords on Senja, says Vidar Tøllefsen.
But since torskemagene is stiff with herring, the user session two times a day, thatthe quality of the fish will not deteriorate.
- We rowed at three o'clock at night and on land in eight to nine o'clock in the morning. So we go out again at two o'clock in the afternoon and are back up around eight in the evening. It is very easy to lie here on the fjord, compare with having tolose Stordjupta in all weather conditions, according Tøllefsen.
Was not prepared
Four or five tons of great, great cod is the result of five nets each sjøvær - that 1:08 to 9:00 tonnes a day.
- Usually we fish between five and ten tons in the first week in January. This year wecaught 55 tons, smiling Tøllefsen.
So far 80 tonnes of a quota of 310 tonnes (with a gutted cod) delivered by Brødr.Karlsen.
Although they have been in Fjordgård and handed catch there, while fishconsumption on Husøya'd stop in the reception to take away all the fish.
- Gutting The line here has not quite gotten to yet. But none were well prepared for it to be so many fish in the beginning of January, says T
very easy
The sensational with this year's winter fishing on the island of Senja, at least so far,is that enormous amounts of cod has followed the herring into the fjords.
- We are many boats on Øyfjorden and Mefjorden, and probably several other fjords on Senja, says Vidar Tøllefsen.
But since torskemagene is stiff with herring, the user session two times a day, thatthe quality of the fish will not deteriorate.
- We rowed at three o'clock at night and on land in eight to nine o'clock in the morning. So we go out again at two o'clock in the afternoon and are back up around eight in the evening. It is very easy to lie here on the fjord, compare with having tolose Stordjupta in all weather conditions, according Tøllefsen.
Was not prepared
Four or five tons of great, great cod is the result of five nets each sjøvær - that 1:08 to 9:00 tonnes a day.
- Usually we fish between five and ten tons in the first week in January. This year wecaught 55 tons, smiling Tøllefsen.
So far 80 tonnes of a quota of 310 tonnes (with a gutted cod) delivered by Brødr.Karlsen.
Although they have been in Fjordgård and handed catch there, while fishconsumption on Husøya'd stop in the reception to take away all the fish.
- Gutting The line here has not quite gotten to yet. But none were well prepared for it to be so many fish in the beginning of January, says T
Skrifað af Gísli.R
11.01.2012 08:21
Oliver SH
Inná smábátalistanum báta undir 10 BT þá er ekki mikil að við sjáum Skel báta þar í toppsætunum. Þangað til núna á haustmánuðum 2011 og núna í janúar. Því skelbáturinn Oliver SH sem Fannar Baldursson gerir út hefur verið að gera það ansi gott á línuna.


Reyndar er það nú þannig að ég komst ekki að þessum báti fyrr enn í nóvember því það er nokkuð flókið mál að fylgjast með öllum bátunum. Núna í janúar þá byrjar báturinn nokkuð vel er kominn með um 9 tonn í 5 róðrum.
Oliver SH er ansi mikið breyttur Skel bátur. Hann er upprunalega Skel 26 en var breikkaður í samskonar og Skel 80 báturinn er. Voru breytingarnar gerðar í fyrra í Bátahöllinni á Hellissandi. Báturinn var skorinn í tvennt aftur við brú og nýtt afturstykki smíðað. við þetta þá lengdist báturinn um 2 metra og stækkaði um 3 BT, var um 5 BT en er orðin 8 BT. Báturinn er opinn en smá lest er í bátnum. Fannar segir að báturinn sé eins og " Risastór vörubílspallur".
Oliver SH hefur ekki áður róið svona stíft á línuna en báturinn er búinn að fá um 60 tonn frá því 1.september, en einn maður rær á bátnum og er það skipstjórinn Magnús Emanúelsson. Magnús gerir út bátinn Manga á Búðum SH og er sonur Magnúsar skipstjóri á Manga á Búðum. Þess má geta að Oliver SH heitir eftir afa Fannars.
Oliver SH fyrir breytingar. Mynd Alfons Finnson
Oliver SH eftir breytringar. Mynd Aflons Finnson.
Skrifað af Gísli.R
09.01.2012 19:38
Ottó N Þorláksson RE aflahæstur árið 2011
'Ahöfninn á Kaldbak EA veiddi ansi vel á haustmánuðum árið 2011 og jafnvel leit út fyrir að togarinn yrðu aflahæstur ísfiskstogaranna.

En Kaldbakur EA varð þriðji hæsti með 6733 tonn í 41 löndun eða 164 tonn í löndun
Annar var Ásbjörn RE með 6767 tonn í 49 löndunum eða 138 tonn í löndun
Aflahæstur var aflaskipið Ottó N Þorláksson RE með 7126 tonn í 55 löndunum sem gerir 129 tonn í löndun
Á eftir þeim kom svo Sturlaugur h Böðvarsson AK með 5960 tonn í 53 löndunum 112 tonn í löndun
Þórunn Sveinsdóttir VE var hæstur 4 mílna skipanna með 4980 tonn í 60 löndunum eða 83.tonní löndun
Bjartur NK var hæstur Austfirsku togaranna með 4460 tonn í 50 löndunum
Ottó N Þorláksson RE allavega hæstur ísfiskstogaranna og sá eini sem yfir 7000 tonnin komst
Mynd Guðmundur st Valdimarsson
Skrifað af Gísli.R
22.12.2011 11:22
Aflaskipið Árni á Teigi GK.
Það eru ekki margir netabátar gerðir út í Grindavík, en þó er þar einn bátur sem hefur róið á netunum undanfarin ár. Er það plastbáturinn Árni á Teigi GK.


Árni á Teigi GK Mynd Alli Ara.
Hérna að ofan er mynd af bátnum með Fullfermi
Strákarnir á Árna í Teigi GK eru einungis 2 og hjá þeim kemur ekkert annað til greina enn að kalla bátinn "aflaskipið Árna í Teigi GK". Og núna í desember þá má segja að þeir standi svo sannarlega undir nafni.
því þeir fengu um 22 tonní 4 róðrum og þar af var einn róðurinn 10,1 tonn. þar af var ufsi 7,8 tonn og þroskur rest.
Mynd Villi Ara.
Sævar Þór Ásgeirsson velti því reyndar fyrir sér á Facebook hvort að ég hafi fengið s..... við myndina að neðan. heheh .
Lestin svo til full. Mynd Villi Ara
Skrifað af Gísli.R
22.12.2011 11:11
1787 báturinn kominn hring.
Það hafa verð miklar hreyfingar í bátasölu í desember og hérna sunnanlands eru breytingar á útgerð Magga Jóns KE. Búið er að selja bátinn vestur á Ísafjörð og mun báturinn fá nafið Stundvís ÍS 883. 
Maggi Jóns KE Mynd Gísli Reynisson
Þar með er báturinn kominn smá hring í nöfnun. Því þegar báturin var keyptur til Keflavíkur þá hét hann Linni SH. þar á undan hét hann Stundvís ÍS 883.
Í staðin kemur suður plastbáturinn Lúkas ÍS 2711
Skrifað af Gísli.R
20.12.2011 16:00
Vilborg ÍS
Í Bolungarvík þá er kominn ansi sterk smábátaútgerð og án efa þá er frægasti smábátur landsins gerður út þaðan. Guðmundur Einarsson ÍS. 
Hérna á síðunni höfum við fylgst með bátunum þaðan og ansi oft þá voru allt uppí 4 bátar í efstu 4 sætunum á smábátalistanum yfir 10 BT. Þarna voru Hrólfur Einarsson ÍS, Sirrý ÍS, Guðmundur Einarsson ÍS og Einar Hálfdáns ÍS. gekk þessi bátahrúga undir nafninu Bolungarvíkurmúrinn, þvi ansi erfitt var fyrir aðra báta að komast í gegnum þennan múr.
Núna á haustmánuðum þá hefur fimmti báturinn bæst í þennan hóp og er það Vilborg ÍS.
og á desember listanum þá hafa strákarnir á Vilborgu ÍS heldur betur sýnt það að þeir eiga alveg heima í þessum bolungarvíkurmúr.
Báturinn er kominn í annað sætið á milli Tryggva Eðvars SH og Kristins II SH og núna fyrir nokkrum dögum síðan þá kom báturinn með ansi góðan róður því landað var úr bátnum 12,9 tonni. og var þorskur uppistaða aflans eða 11,4 tonn og ýsa 1,5 tonn.
Þessi róður er þar með stærsti einstaki róður smábáts í desember.
Vilborg ÍS mynd Ingólfur Þorleifsson
Skrifað af Gísli.R
19.12.2011 11:31
1000 tonna múrinn rofinn!
Það er búið að vera ansi fín rækjuveiði núna í ár og þónokkur fjöldi báta stundað þessar veiðar.

Einn af þessum bátum er Sigurborg SH. Sigurborg SH er eini báturinn sem hefur stundað rækjuveiðar að staðaldri undanfarin ár og árið í ár var enginn undantekning.
Ansi vel hefur gengið hjá Sigurborgu SH og var stærsti róður bátsins 55,5 tonn sem var bæði fiskur og rækja, enn stærsta rækjulönduninn var 48,6 tonn.
Við höfum hérna á síðunni fylgst með gengi Sigurborgar SH á rækjulistanum en frystitogarinn Brimnes RE sem er margfalt öflugura skip enn Sigurborg SH var efst lengi vel og fylgdust við með þegar Sigurborg SH nálgaðist Brimnes RE. og núna í desember þá loks tókst strákunum á Sigurborgu SH að ná Brimnesi RE og stuttu seinna rjúfa 1000 tonna múrinn á rækjunni, með 16,2 tonna löndun.
Þar með er Sigurborg SH eini rækjubáturinn á íslandi árið 2011 sem fer yfir 1000 tonna rækjuársafla. Auk þess er báturinn búinn að koma með 304 tonn af fiski í land
Ef miðað er við sama meðalverð á aflaverðmæti og var árið 2010, þá er aflaverðmætið Siguborgar SH í ár um 280 milljónir króna
Aflafrettir óskar áhöfn og útgerð Sigurborgar SH til hamingju með árangurinn
Siguborg SH. Mynd Guðmundur st Valdimarsson
Skrifað af Gísli.R
18.12.2011 21:15
mikið um bátasölur
Það er búið að vera nokkuð líflegt í bátasölu núna í desember.
1.Vísir í Grindavík er búið að kaupa Hafursey VE (1416)og mun báturinn koma til Njarðvíkur þar sem báturin verður tekin í slipp.
2.Útgerð Bíldseyjar SH(2650) er búin að kaupa Kidda Lár GK sem er systurbátur Óla Gísla GK(2714). Og planið er að lengja hann um 2 metra. Mun Sólplast gera þær breytingar á bátnum. Mun þá nýi báturinn verða um 15 metrar að lengd. Vitað er að t.d útgerð Óla Gísla GK mun fylgjast með þessum breytingum með þá skoðun á að lengja Óla Gísla GK,
3.Fyrrum útgerðaraðilar Sæbjargar ST sem núna heitir Sveinbjörn Jakopsson SH(1054) hafa keypt Arnfríði Sigurðardóttir RE (177) og mun báturin væntanlega fá nafnið Sæbjörg ST og mun þá bætast við rækjubátaflotann,
4.Og svo er búið að selja Blika EA (2710) til Suðureyrar.
5. Maggi Jóns KE (1787) sem er búinn að vera gerður út á net undanfarin ár frá Sandgerði er farinn vestur á Ísafjörð og Lúkas ÍS (2711) kemur í stað hans og verður Lúkas ÍS gerður út frá Sandgerði á línu. Planið er að setja Magga Jóns KE á rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi.
Semsé nóg um að vera
Skrifað af Gísli.R
