prufa

Þessi dálkur er laus til auglýsinga. hann er langstærstur allra dálkanna á síðunni og er jafn breiður og síðan sjálf er og hægt að ráða hæðinni.

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

             

   

 

 

 

Flokkur: Myndir frá Eyjólfi.

18.11.2012 03:57

Áskell EA

hérna kemur mynd af nýja Gjögur bátnum sem hefur fengið nafnið Áskell EA.  er þar með Gjögur kominn með yngsta meðalaldur flotans síns hérna á landi.  Oddgeir EA er reyndar ennþá í eigu þeirra enn verður tekin úr útgerð þegar að Áskell EA hefur veiðar.  

Reyndar er Áskell EA grænn á litin enn undanfarin ár þá hafa allir bátarnir sem hafa heitið Oddgeir EA og Vörður EA verið  gráir að lit.

 

 

Myncd Eyjólffur Vilbergsson

06.09.2012 07:37

Örn KE á Togi

Eyjólfur Vilbergsson hefur verið duglegur að sýna okkur flottar myndir og iðulega hafa þær verið teknar í eða við Grindavík.  þann 4 sept þá var Eyjólfur á ferðinni við Miðhúsasíki og þar var Örn KE að toga enda eru bugtarveiðarnar nú komnar í gang.  Og tók hann smellti mynd af bátnum. Þess má geta að Örn KE reyndi við makrílinn og var reyndar veiðin hjá honum arfaslök.

Örn KE Mynd Eyjólfur Vilbergsson

p.s svo í dag 6 sept þá munu slatti af listum koma því ég mun klára ágúst og jafnvel byrja á sept.  var að klá hringferð á rútu og því ekki mikill tími sem ég hafði til þess að reikna.  

27.08.2012 09:24

Vörður EA

Eyjólfur sendi mér mynd af Verði EA sem kom til hafnar til Grindavíkur.  Flott mynd og er þetta fyrsta myndin sem við sjáum frá honum þar sem að veðrið er nokkuð gott og ekkert brim.  


Vörður EA Mynd Eyjólfur Vilbergsson

16.03.2012 10:09

Meira af ..Tómas Þorvaldsson GK

Myndirnar sem eru í flokknum myndir frá Eyjólfi eru hver öðrum mikill gullmoli og hérna kemur ein sem fékk mig til þess að segja VÁ þegar ég sá hana.

Það er fátt hægt að segja um myndina nema hvað að ég þakka Eyjólfi kærlega fyrir að leyfa okkur að njóta mynda sem eru algert augnakonfekt 

lítið bara á...


Mynd Eyjólfur Vilbergsson

Eyjólfur tók ansi margar myndir af Tómasi Þ GK i leið í gegnum brimskaflananna við Grindavík og sendi mér tvær tið viðbótar.  ég bæti þeim hérna við.  Myndirnar eru teknar frá Hópsnesinu sem gefur öðruvísi og skemmtilega sýn á bátanna enn vanalega sjáum við þá tekna frá grjótgarðinum 


Hérna er fyrri auka myndin þarna er Tómas eins og loðnuskip.  


Og hérna er seinni aukamyndin.

11.03.2012 19:27

Valdimnar GK á útleið

Hérna koma tvær myndir sem Eyjólfur Vilbergsson tók af Valdimar GK á útleið í briminu í Grindavík.  
flottar myndir.  Færi ég Eyjólfi bestu þakkir fyrir myndirnar


Mynd 1.

Mynd 2.  Myndir Eyjólfur Vilbergsson

29.02.2012 21:26

Tveir á útleið frá Grindavík

Það koma alltaf flottar myndir frá Eyjólfi Vilbergssyni í Grindavík og hérna að neðan koma fjórar myndir.  þrjár þeirra sýna Tómas Þorvaldsson GK fara út og svo ein mynd af Fjölni SU.
Þakka ég Eyjólfi  kærlega fyrir myndirnar.

mynd 1.

Mynd 2.

Mynd 3 af Tómasi Þorvaldssyni GK á útleið.

Fjölnir SU

12.02.2012 14:38

Askur GK og ReginnÁR

Ég ætla aðeins að slaka á í dag og því kemur það sér vel að Eyjólfur Vilbergsson í Grindavík sendi mér tvær myndir af Aski GK og Reginn ÁR á útleið frá Grindavík.  
báðir eru á netaveiðum og hafa fiskað vel þegar þeir hafa komist út. Flottar myndir eins og alltaf frá Eyjólfi


Askur GK á útleið.


Reginn ÁR á útleið. Myndir Eyjólfur Vilbergsson 

20.10.2011 20:41

Sighvatur GK í þungum sjó

Af og til þá fáum við að sjá snilldar myndir frá Eyjólfi í Grindavík
og hérna er ein þrusuflott af Sighvati GK fara í gegnum brimskaflanna í Grindavík




Mynd Eyjólfur Vilbergsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir

07.07.2011 21:04

Júpiter ÞH


Núna standa makrílveiðar sem hæst og til Grindavíkur kom nýverið uppsjávarskipið Júpiter ÞH.  En það er nú ekki algengt að uppsjávarskip komi til grindavíkur sérstaklega eftir að Loðnuverksmiðjan brann þar í bæ
Eyjólfur var mættur með myndavélina og hérna kemur mynd af skipinu.


Júpiter ÞH.  Mynd Eyjólfur Vilbergsson

30.04.2011 18:40

Hafsvala HF í Ölduróti

Hérna kemur ein mjög flott mynd frá Eyjólfi sem er tekin af bátnum Hafsvalan HF sem er á útleið frá Grindavík.

Ansi mögnuð mynd verð ég nú að segja


Hafsvalan HF mynd Eyjólfur Vilbergsson

09.04.2011 19:36

Smá myndasyrpa

Hérna koma 3 myndir sem Eyjólfur tók af þrem mismundandi bátum.
Örninn GK en hann er komin á grásleppu
Steini GK að koma til Grindavíkur með góðan afla.
Sólborg RE á leið til Grindavíkur
Myndir Eyjólfur Vilbergsson.


07.04.2011 22:42

Eyjólfur og hans þáttur

Þessi mjög svo sérstaka síða sem ég er að halda úti og bara ansi gaman af, hefur þá sérstöðu að það er ekki mikið um myndir inná henni.  ég sjálfur var nú mikið í því að taka myndir enn hef lítið gert það undanfarið.
Það hafa borist af og til myndir sem þið hafið tekið og hef ég birt þær svo til jafnóðum og þær koma.
Einn af þeim sem hefur verið ansi duglegur í að senda mér myndir er Eyjólfur Vilbergsson í Grindavík.  myndirnrar frá honum eru vægast sagt glæsilegar. 
Núna er ég búinn að stofna sérstakan flokk þar sem allar þær myndir sem hann hefur sent hafa birst hérna og líka þær myndir sem eiga eftir að koma hingað munu fara.  þannig er hægt að halda betur um listaverkin hans. 
Ég er mjög ánægður með að Eyjólfur skuli leyfa okkur að njóta myndanna hans og því er ég nokkuð stoltur af geta opnað þennan flokk. 
Hann er í flokkakerfinu sem er vinstra meginn á síðunni og svo er hægt að fara beint í flokkinn
HÉRNA


06.04.2011 10:23

Daðey GK og Auður Vésteins GK

Áður enn ég fer í myndinrar þá langar mér að láta vita að ég er búinn að reikna alla bátanna í lista og þeir eru klárir listarnri koma seinna í dag á síðuna.  og inn í því eru síðasti róður Örns KE og Sólborgar RE.

En það er búið að vera mikið líf í Grindavík og Eyjólfur var þar með myndavélina og náði mynd af Daðey GK með koma með fullfermi og Auði Vésteins GK draga Mána GK að landi.

Daðey GK með fullfermi,

Auður Vesteins GK með Mána GK í togi

Auður V. GK þurfti að draga Mána GK í gegnum smá öldurót
Myndir Eyjólfur Vilbergsson.  færi ég honum bestu þakkir fyrir flottar myndir

31.03.2011 20:29

Hamar SH á landleið

Það er búið að vera hörkuveiði báta sem hafa verið að róa t.d frá Grindavík, og nokkrir aðkomubátar hafa verið að landa þar.  kanski þeirra stærstur er Hamar SH.  Sá mikli ljósmyndasnillingur Eyjólfur Vilbergsson náði myndum af Hamri SH koma til hafnar í Grindavík. 
Flottar myndir og þakka ég honum kærlega fyrir myndirnar. 


Myndir Eyjólfur Vilbergsson.

26.03.2011 12:29

Farsæll GK og Sæunn GK. myndir

Þar kom að því að veðrið fór að batna og þá var eins og við mannin mælt.  bátarnir fóru út enda mjög góð veiði.  nokkrir Handfærabátar eru komnir af stað víða um landið.
Eyjólfur tók myndir af tveim bátum Sæunni GK sem er handfærabátur og Farsæli GK báðir að koma inn til Grindavíkur.  Heldur er nú betra í sjóinn þarna enn þegar Farsæll GK fékk á sig brotið fyrr í vetur.
Þakka ég Eyjólfi kæarlega fyrir flottar myndir


Farsæll GK

Sæunn GK.  Myndir Eyjólfur Vilbergsson.

08.03.2011 03:32

Jóhanna Gísladóttir ÍS á útleið

Deginum eftir að ´Páll Jónsson GK fór út þá fór Jóhanna Gísladóttir ÍS út.  og Eyjólfur var mættur að mynda. 
Þakka ég honum kærlega fyrir myndina sem og hinar 3 sem áður höfðu birst

Mynd Eyjólfur Vilbergsson

06.03.2011 23:23

Páll Jónsson GK á útleið í brimi

Af og til þá berast mér myndir til birtingar frá ykkur lesendur góðir.  Og einn af þeim sem hefur verið að senda mér  myndir er Eyjólfur Vilbergsson í Grindavík.  myndirnar frá honum hafa mér ætíð þótt hrikalega flottar.
Núna í daga þá fékk ég sendingu frá honum þar sem að hann myndaði slatta af Páli Jónssyni GK á leið á miðin.
Myndirnar eru teknar í miklu roki og ljósmyndarinn fannst þær ekki vera nægilega vel heppnaðar, þó mér finnist þær mjög flottar., enn hvað finnst ykkur?

Fyrsta myndin sem hann tók í seríunni.


Myndir Eyjólfur Vilbergsson

02.06.2010 09:27

Fróði II ÁR . Flott mynd

Eyjólfur í Grindavík sendi mér mynd sem hann tók af Fróða II ÁR koma til hafnar í Grindavík. 

Mynd Eyjólfur Vilbergsson.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

13.05.2010 03:08

Flot tmynd af Farsæli GK

Fékk senda ansi góða mynd af Farsæli GK sem Eyjólfur Vilbergsson sendi mér

Mynd Eyjólfur vilbergsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

16.04.2010 02:16

Hrafn GK á útleið frá Grindavík í ölduróti

Það fer vel á því eftir að hafa sett inn 5 lista yfir afla frystitogaranna að fá 4 mjög svo flottar myndir af frystitogaranum Hrafni GK fara út á miðin.  Myndirnar tók Éyjólfur Vilbergsson og færi ég honum bestu þakkir fyrir flottar myndir.

Mynd 1.

Mynd 2.

Mynd 3.

Mynd 4.

Frábærar myndir og væri gaman að heyra hvað mynd ykkur finnst flottust.
  • 1

Tenglar