Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Flokkur: MYNDIR.
14.02.2010 16:03
Brynja SH með 13 tonn.
Í janúar þá kom Brynja SH með í einuim róðri sínuim 13 tonn sem fengust á 40 bala eða 325 kíló á bala. mestmegnis var þar um ýsu að ræða. Arnór var með myndavélina og náði fínum myndum af bátnum. Færi ég Arnóri bestu þakkir fyrir myndirnar.
Kjartan Hallgrímsson ánægður með góðan afla.
Myndir Arnór Isfjörð Guðmundsson.
13.02.2010 15:54
Kafbáturinn Tryggvi Eðvars SH.
Hann náði myndum af Tryggvað Eðvars SH koma gjörsamlega drekkhlaðinn til hafnar. enn aflinn var samtals 17 tonn og 540kg á hafnarvoginni sem er eingin smáræðis afli.
Arnór skrifar: ég þekki strákana um borð og þegar ég talaði við þá eftir hádegi voru
þeir komnir með rúm 7 tonn á 32 bala og áttu eftir að draga 16 og að
sögn Arnars skipstjóra brast á algert mok á síðustu 16 balana eða
einhvað um 10 tonn á þessa 16 bala þannig róðurinn endaði yfir 17 tonnum."
Þess má þá að lokum geta að aflinn á þessa síðustu 16 bala er því eitthvað um 625 kíló.
Færi ég Arnóri miklar þakkir fyrir myndirnar og vona ég að meira svona muni koma því það er mokveiði um allt land og bátar um allt land eru að koma drekkhlaðnir til hafnar.
Myndir Arnór Ísfjörð Guðmundsson
10.02.2010 19:53
EKKI mok heldur MET afli hjá Muggi KE
Jahérna. á tímum þar kvótinn er skorinn við nögl og bátar og skip víða um land eru svo til við að stöðva vegna skorts á kvóta þá er samt sem áður gríðarlega mikil veiði eins og sjá hefur mátt hérna á síðunni.
Þó svo að Tryggvi Eðvars SH og Sirrý ÍS hafi tvibætt aflametið hjá Ragnari SF, þá held ég að aflinn hjá Muggi KE toppi allt sem hægt er að toppa þessa daganna.
Báturinn hefur verið að róa á línu frá Sandgerði og er einn af fáum smábátum yfir 10 BT hérna suðvestanlands sem rær með bala. Getið var um það á nýjsta smábátalistanum yfir 10BT að Muggur KE hafi komið með tæp 12 tonn að landi eftir einn róður, enn hann fékk þennan afla á einungis 23 bala eða um 515 kíló á bala.
Ef hægt var að toppa þetta þá gerðu þeir það núna 10.febrúar. þeir fóru aftur með 23 bala og komu til hafnar með tæp 13 tonn, og reyndar sögðu þeir að uppistaðan hefði fengist á 18 bala. þessi afli er um 570 kíló á bala og ef miðað er við þessa 18 bala þá eru það um 723 kíló. Fékkst þessi afli um 17 mílur út frá Sandgerði. Þetta er algert metafli á bala og leitun af öðrum eins afla og uppistaðan þorskur.
Og það verður að koma inná bátinn sjálfann Mugg KE, því þvílík er burðargetan hjá bátnum að það sá varla á honum þegar hann kom til hafnar. allt komst fyrir í lest og samt var pláss fyrir meira. Þannig að ef á að spá í hvaða smábátur sé burðarmestur smábáta þá er Muggur KE þar örugglega ansi ofarlega á blaði.
Má svo geta þess að lokum að einungis tveir menn róa á bátnum feðganir Jón Jóhannsson og Jóhann Jónsson.
Var á bryggjunni þegar báturinn kom að landi og tók þá eftirfarandi myndir.
Myndir Gísli Reynisson
29.12.2009 02:27
Næturmyndasyrpa.
það er smá áskorun að taka vel heppnaðar myndir í myrkri. Vel mjá sjá árangur þess á síðunum þeirra Þorgeirs á Akureyri og Hafþórs á Húsavík. fleiri hafa verið að prufa sig áfram á þvi sviði og má þar t.d nefna Emil Pál, Sævar og fleiri.
þessa næturvakt mína í Hafnarfirði þá ákvað ég að prufa að smella nokkrum myndum af í myrkri enn allar myndirar eru teknar á milli klukkan 02:00 og 02:30 aðfaranótt 29.desember og eru allar teknar í Hafnarfirði.
og birtast þessar myndir hérna.
Væri gaman að vita ef áhugi er fyrir því hvaða mynd af þessum 8 er flottust.
Myndir Gísli Reynisson
