> Aflafréttir og fleira - Blogg

 

Aflafréttir og fleira

Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir

Auglýsingapláss/styrkarlínur

auglýsingapláss
til
sölu,
og eða styrkarlínur.






 

Styrkja Síðuna

Styrktarreikningur síðunnar

kennitala.  2008753709

bankabók.0142-05-001072

Hvaða humarbátur verður hæstur árið 2010

 Ársæll ÁR

 Jón á Hofi ÁR

 Fróði II ÁR

 Kristbjörg VE

 Skinney SF

 Brynjólfur VE

 Þórir SF


Sýna niðurstöður

Hvað skoðar þú helst

 Smábátalista yfir 10 BT

 Smábátalista undir 10 BT

 NEtalista yfir 50 BT

 NEtalista undir 50 BT

 Dragnótalista

 Botnvörpunga

 Skoða alla lista jafnt

 Skoða helst Gömul tíð

 Línubátalista

 vill gerast styrkaraðili


Sýna niðurstöður

Sjá KVÓTASPJALL

 Já

 Nei


Sýna niðurstöður

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Kirkjuvegur 15

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-05-001072
Flettingar í dag: 1089
Gestir í dag: 311
Flettingar í gær: 2136
Gestir í gær: 426
Samtals flettingar: 1228366
Samtals gestir: 311039
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 16:57:43

Blogg

13.2.2009

Kvótaverð og verð á mörkuðum.

Tölur fyrir 12.febrúar.  leigurverð á þorski féll niður um 15 krónur og meðalverð á þorskinu fór upp um 3 krónur.  miðað við þessar tölur þá er liðlega 80 króna mismunur á milli leigurverð og markaðsverð.  það verð er það sem margir leiguliðar telja raunhæft að gera útá. 
verð á óslægðu ýsu fellur niður um 20 krónur milli daga.  

Fisktegund Slægt/óslægt Magn kg Hæsta verð meðalverð 11/2 Meðalverð 12/2 leiguverð 11/2 leiguverð 12/2
Þorskur Slægt 76936 278 239,37 242,27 179,27 164,01
Þorskur Óslægt 29795 222 205,84 200,47 179,27 164,01
Ýsa Slægt 1878 253 149,43 146,87 40,77 40,84
Ýsa Óslægt 69315 252 182,77 162,79 40,77 40,84
Ufsi Slægt 45739 122 114,04 117,79 13,82 8
Ufsi Óslægt 7434 107 95,51 98,92 13,82 8
Karfi 21821 199 112,3 100,04 20 35,37
Keila Slægt 7557 105 96,53 81,52 24,71 25
Keila Óslægt 2174 85 85,46 78,45 24,71 25
Steinbítur Slægt 9887 177 153,19 167,18 58,57 54,87
Steinbítur óslægt 1649 128 98,79 102,62 58,57 54,87

Skrifað 13.2.2009 kl. 12:05 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.2.2009

Leiguverð á kvóta og verð á mörkuðum.

ég hef nú hingað til ekki verið að láta skoðanir mínar í ljós hérna á síðunni varðandi ýmis málefni sem tengjast sjávarútveginum.  Enn þetta mál er eitthvað sem ekki er hægt að horfa frammhjá.  Á mínum bryggjurúntum undanfarna góðvirðisdaga þá hefur vakið athygli mína að netabátar hafa verið í landi þrátt fyrir góða sjótíð.  má þar nefna t.d Búdda KE,  Reynir GK, Hans Jakop GK.  
hvað veldur jú, í auðlindinni þann 3 febrúar var viðtal við skipstjórann á Katrínu SH og þar talaði hann um það að leiguverð á kvóta væri það hátt miðað við verð að fiskmörkuðum að hann ætlaði að taka upp netin þar sem hann var ekki að hafa nema um 18 til 22 krónur í sinn vasa.

ef litið er á leiguverð síðustu mánað þá sést að t.d leiguverð á þorski var í byrjun árs um 212 krónur og fór upp í um 220 krónur.  fór það svo niður undir miðan mánuð í 190 krónur og núna í tæpum 190 krónum.  Meðalverð á þorski á fiskmörkuðum var í byrjun árs rúmar 250 krónur og rokkaði á bilinu 220 til 255 krónur framm í enda janúar þá hríðféll verðið og er núna í 185 krónum.  semsé leiguverð er hærra heldur enn verð á markaðir.
hvernig stendur á þessu?.  nú er búið að gefa út 30.000 tonna þorskaukningu enn hver fór hún.?
þetta ástand er ansi slæmt og ég vona að annaðhvort leiguverðið lækki og verð á markaði fari nú að hækka til þessa að þessir bátar geti farið aftur út að róa.  
þetta kemur á ansi slæmum tíma.  hávertíð í gangi og mars mánuður á eftir að koma enn hann er yfirleitt mjög aflasæll og mokveiði í öll veiðarfæri.  



Skrifað 4.2.2009 kl. 16:09 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.12.2008

Oddur Kaupir Narfa VE

Færi fréttina um Odd og Narfa VE undir könnunina sem er hérna á síðunni til þess að menn geti betur tengt umræðuna sem er hérna undir fréttinni, við spurninguna í könnunni.

Myndin af Narfa VE. Gísli Hjartarsson. færi ég honum bestu þakkir fyrir. 

 

Þá er það komið í gegn.  Oddur Sæmundsson netakóngur með meiru hefur keypt Narfa VE.  Narfi VE hét fyrst Bára SU og var þá smíðaður fyrir útgerðamannin Árna Stefánsson.  Árni lést þann 21.október árið 1980.  Árni átti þar á undan bát sem hét Stefán Árnasson SU.  Réri Árni bæði á Stefáni Árnasyni SU sem og á Báru SU alltaf á vertíð frá Vestmannaeyjum. 

Oddur hefur nokkuð látið til sín taka núna í ár þótt að hann hafi ekki átt neinn bát til að róa á.  Ufsaveiðimokið sem hefur verið hjá Erling KE hefur að hluta verið Oddi að þakka. enda var hann með bátinn um tíma.  Myndin af Magga Jóns KE er þegar hann kom að landi með 20 tonn á vertíðnni núna í vetur.  Oddur var einmitt með bátinn í þessum túr, enn Oddur var með Magga Jóns KE að hluta á vertíðinni 2008.

Það verður mikill fengur að fá Odd aftur í slaginn með netabátunum og nú er bara spurning hvort sé ekki hægt að kalla fram hinn netakónginn sem var á sínum tíma oft í harðri keppni við Odd um aflasætið.  að sjálfsögðu er ég að tala þarna um Grétar Mar Jónsson sem lengst af var með Sæborgu RE  og seinna  meir með Berg Vigfús GK.

Skrifað 2.12.2008 kl. 8:46 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

17 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.12.2008

Könnun.

Oddur kaupir bát,  já það er frétt um það hérna á síðunni, og við þá frétt spunnust ansi góðar umræður milli Gunnars og Kristjáns Rafns.  Þar kom sú hugmynd fram að setja í könnun spurningu sem tengist þessu.

Spurninginn er ansi löng og kemst ekki öll fyrir í könnunardákinum og er því sett hérna fram í heilu lagi. 
og er hún eftirfarandi.

Finnst mönnum það í lagi að menn selji sig útúr sjávarútvegi og komi aftur inn með hundruði milljóna í forgjöf og keppi við menn sem núna eru á leigumarkaði?.

Þessi texti mun verða efstur á síðunni vegna þess að spurninginn verður að sjást.

Skrifað 2.12.2008 kl. 7:18 af Gísli.R

Bein slóð á færslu

29 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Tenglar

/body>