Aflafréttir og fleira
Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Auglýsingapláss/styrkarlínur
auglýsingaplásstil
sölu,
og eða styrkarlínur.
Styrkja Síðuna
Styrktarreikningur síðunnarkennitala. 2008753709
bankabók.0142-05-001072
Eldra efni
Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Kirkjuvegur 15Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-05-001072Blogg
23.4.2008
60 tonn í 5 sjóferðum
60 tonn í 5 sjóferðum. það myndi nú teljast ansi góður afli hjá hvaða báti sem er. hvort sem það er dragnótabátur, línu eða netabátur.
Birta BA sem rær á línu frá Patreksfirði hefur heldur betur fiskað vel undanfarið, báturinn rauk upp línulistann fór úr því sæti númer 29 og í það efsta. ástæðan?, jú afli uppá 61,8 tonn í 5 ferðum sem gerir um 12 tonn í róðri.
Er þessi afli algert met. reyndar er aflinn úr síðustu 7 ferðum Birtu BA komin í tæp 80 tonn sem gerir 11,3 tonn í róðri.
þessir 5 róðrar sem gerðu 61,5 tonna aflann voru eftirarandi
fyrst 12,8 tonn þann 15 apríl, reyndar deginum áður þá var báturinn með 10,8 tonn.
18. var báturinn með 11,7 tonn.
19. Birta BA með 12,1 tonn.
20.Stærsti róðurinn 13,7 tonn.
og 21 11,8 tonn.
meginuppistaðan í öllum þessu róðrum sem og þeim 2 róðrum sem fara með aflann hjá Birtu BA uppí 80 tonn, er allt steinbítur.
Þess má geta að Birta BA rær frá Patreksfirði og þar eru líka Hulda GK, Bíldsey SH og Baddý GK. Afli Birtu BA er þó langtum meiri heldur enn allra annara báta á vestfjörðum og reyndar yfir landið allt.
Sjá má nánar stöðuna hjá hinum línubátunum á nýuppfærðum línulista hérna fyrir neðan
10.4.2008
Gott hjá Steinunni SF
7.4.2008
Esjar SH og Valgerður BA
Báðir bátarnir lönduðu síðast þann 17 mars. Ef staðan er skoðuð róður fyrir róður þá lítur hún svona út;
Eftir fyrsta róður beggja báta þá var Valgerður BA ofar með tæp 22 tonn á meðan Esjar SH var með tæp 12 tonn.
róður 2:. Valgerður BA kominn í 35,5 tonn, Esjar 26,8 tonn.
Róður 3: Valgerður BA kominn í 37,1 tonn, Esjar SH 29,6 tonn.
Róður 4: Valgerður BA kominn í 46,2 tonn, Esjar SH í 32,4 tonn. Þarna er Valgerður BA kominn með ansi gott forskot á Esjar SH.
Róður 5: Valgerður BA kominn í 60,2 tonn, Esjar SH saxar mjög á þar sem báturinn landar 21 tonni, og er kominn í 53,7 tonn.
Róður 6. Esjar SH fer framúr og er kominn í 70,2 tonn, Valgerður BA 66,7 tonn.
Róður 7:. Valgerður BA fer aftur framúr og er kominn í 84,1 tonn, Esjar SH 81,2 tonn.
Róður 8: Valgerður BA kominn í 95,9 tonn, Esjar SH 91,9 tonn.
Róður 9:Valgerður BA í 106,1 tonn, Esjar SH 99,8 tonn.
Róður 10:. Valgerður BA 122,1 tonn, Esjar SH fer aftur yfir 21 tonn í löndun og fer í 121,7 tonn.
Esjar SH heldur svo áfram og er búinn að landa 2 róðrum meira heldur enn Valgerður BA, og því er niðurstaðan þann 17 mars þannig að Esjar SH er kominn í 148,3 tonn, Valgerður BA 122,1 tonn.
Nú er kominn lokastaða í þessa könnun mína. Niðurstaðann er sú að Esjar SH var með 182,7 tonn í 15 ferðum, enn Valgerður BA 122,1 tonn , Valgerður BA stoppaði 17 mars útaf vélarbilum og því má segja að könnuninn hafi verið ómarktæk eftir það. mjög jafnt var annars á bátunum fyrir stoppið hjá Valgerði BA
27.3.2008
4 yfir 200 tonn.
22.3.2008
Árni í Teigi GK
Mynd Villi Ara. færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Eins og flestir hafa tekið eftir þá er kominn hálfleikur á vetrarvertíðinni. Eða réttara sagt frí, sem líklegast flestir sjómenn á bátunum eru mjög fegnir að komast í. Því það er búið að vera mokveiði t.d núna í mars og bæði línubátar, dragnótabátar, trollbátar og ekki síst netabátarnir hafa verið að koma með fullfermi að landi.
Ég hef nú reyndar tekið svo stórt uppí mig að kalla þessa báta sem koma með fullfermi að landi, kafbáta.
Allavega þá fékk ég senda mynd sem Villi Ara á Árna í Teigi GK tók á vertíðinni 2007.
Eins og sést á myndinni þá er báturinn allsvakalega siginn, og voru þetta um 18.5 tonn. sem fengust í einungis 5 trossur eða um 4 tonn í trossu.
Enn er afli Árna á Teigi GK meiri á vertíðinni 2007 miðað við nú.?
Ég fór í smá rannsóknarleiðangur og niðurstaðan er þessi.
núna á vertíðinni 2008 þá er báturinn búinn að fara í 39 sjóferðir og kominn með 126,7 tonn, 3,3 tonn að meðaltali í róðri
í fyrra þá var aflinn 78,9 tonn í 35 ferðum eða 2,2 tonn í róðri, og það skal tekið fram að þarna miðað ég við 18 mars sem er sá tími sem er kominn á netalistann núna árið 2008.
Hérna neðar á síðunni er lítil frétt sem heitir "Er meiri afli núna heldur enn 2002", og svarið var Já. og svo furðulega virðst vera að allavega varðandi Árna á Teigi GK þá er meiri afli núna heldur enn í fyrra. skýtur mjög skökku við þar sem kvótinn var skorinn svona mikið niður.
Þess má svo að lokum geta að mesti afli Árna í Teigi GK núna á vertíðinni er tæp 10 tonn.
78,946/35
21.3.2008
Gleðilega Páska

Mynd Gísli Reynisson.
Langaði að óska öllum lesendum síðunnar gleðilegra páska, og miklar þakkir fyrir jákvæð viðbrögð við efni síðunnar.
og langaði svona í framhaldi skella inn mynd sem ég hef nokkuð dálæti af, og bara ein spurning, hvaða bátur er þetta sem myndin er tekinn úr??
þetta var ansi auðvelt. jú þetta er Bergur vigfús GK ég var á með Grétari Mar. Þarna eru við á leið til Fáskrúðsfjarðar með um 500 tonn af loðnu . vorum mjög langt úti það tók um 30 klukkutíma að siglja til hafnar.
Okkur fannst helvíti súrt að sjá þegar t.d Dagfari ÞH tók frammúr okkur á leið til hafnar. enn Bergur Vigfús GK fyrrum Keflvíkingur KE og núna Marta Ágúsdóttir GK var og er kanski enn í dag, ansi hægeng.
20.3.2008
Meiri veiði núna heldur enn 2002???
Maggi Jóns KE, sem árið 2002 hét Linni SH.
Ísak AK, sem hét sama nafni árið 2002.
Reynir Þór SH sem hét Pegron SH árið 2002.
Níels Jónsson EA sem hét sama nafni árið 2002.
Sunna Líf KE sem hét sama nafni árið 2002.
Máni ÁR sem hét sama nafni árið 2002.
Ef við byrjum á Mána ÁR þá var afli bátsins árið 2002 12,1 tonn í 12 ferðum, árið 2008 var aflinn 67,8 tonn eða hátt í 56 tonnum meiri.
Sunna Líf KE var með 23,4 tonn árið 2002, árið 2008 var aflinn 64,6 tonn eða 41 tonni meiri.
Níels Jónsson EA var með 27,2 tonn árið 2002, árið 2008 var aflinn 42,7 tonn eða tæp 16 tonna meiri afli.
Pegron SH var með árið 2002 23,2 tonna afla, árið 2008 var aflinn 44,6 tonn eða um 21 tonni meira.
Ísak AK var með árið 2002 15,6 tonna afla, árið 2008 var aflinn 49,1 tonn eða tum 33 tonna meiri afla.
og svo að lokum báturinn sem allt snerist um í byrjun Maggi Jóns KE.
Árið 2002 þá var aflinn 22,7 tonn, árið 2008, 92,8 tonn, munurinn 70 tonn.
Þarna er munurinn allsvakalega mikill, reyndar verður að hafa í huga að Maggi Jóns KE og Linni SH voru að veiðum á sitthvorum staðnum, enn efast reyndar um að það hafi teljandi áhrif á afla bátsins.
Að lokum þá læt ég hérna töflu fylgja með þannig að menn geta séð samanburð á milli róðra árið 2008 og 2002.
| Maggi Jóns KE | Linni SH | Ísak AK | Ísak AK | Reynir Þór SH | Pegron SH |
| 2008 | 2002 | 2008 | 2002 | 2008 | 2002 |
| 2,761 | 0,801 | 5,209 | 0,98 | 5,482 | 1,022 |
| 5,335 | 1,811 | 3,3 | 0,735 | 3,925 | 1,308 |
| 2,711 | 0,879 | 4,142 | 0,632 | 2,728 | 1,723 |
| 4,718 | 2,8 | 2,815 | 0,944 | 2,313 | 1,949 |
| 4,663 | 1,204 | 3,001 | 1,881 | 4,459 | 3,55 |
| 9,73 | 0,858 | 5,224 | 1,043 | 6,794 | 5,347 |
| 7,092 | 1,401 | 3,91 | 0,62 | 3,426 | 2,238 |
| 14,411 | 4,114 | 2,166 | 3,906 | 3,22 | 0,842 |
| 12,191 | 1,334 | 4,99 | 1,388 | 2,026 | 0,601 |
| 8,04 | 1,416 | 5,643 | 1,293 | 6,429 | 2,555 |
| 13,493 | 2,165 | 4,103 | 0,807 | 2,078 | 1,214 |
| 7,716 | 3,963 | 4,551 | 1,436 | 1,77 | 0,896 |
| Níels Jónsson EA | Níels Jónsson EA | Sunna Líf KE | Sunna Líf KE | Máni ÁR | Máni ÁR |
| 2008 | 2002 | 2008 | 2002 | 2008 | 2002 |
| 1,862 | 0,94 | 3,884 | 1,242 | 1,445 | 0,543 |
| 5,248 | 1,261 | 5,238 | 1,071 | 6,173 | 0,248 |
| 2,376 | 3,951 | 5,296 | 1,417 | 3,214 | 1,095 |
| 2,027 | 3,23 | 2,711 | 0,893 | 6,679 | 0,922 |
| 4,039 | 0,97 | 3,79 | 2,372 | 4,043 | 2,277 |
| 2,526 | 4,011 | 8,455 | 5,595 | 5,707 | 1,323 |
| 2,115 | 0,883 | 5,865 | 2,999 | 8,053 | 1,177 |
| 4,307 | 2,236 | 5,96 | 1,527 | 8,161 | 1,924 |
| 6,287 | 1,53 | 5,741 | 1,544 | 7,337 | 0,464 |
| 2,479 | 1,556 | 6,003 | 0,357 | 8,022 | 1,376 |
| 7,792 | 3 | 6,008 | 2,667 | 3,958 | 0,426 |
| 1,645 | 3,6 | 5,72 | 1,85 | 5,059 | 0,373 |
16.3.2008
Líka góður afli hjá Dragnótabátum
Dagnótabátar hafa líka verið í mokfiski, og þá aðalega frá Sandgerði og snæfellsnesi. Ætla ég mér að renna hérna yfir nokkra báta frá 10. mars og til 14. mars.
Byrja fyrir norðan á Blönduósi, Skagaströnd enn þar hefur Stefán Rögnvaldsson EA landað 8,7 tonni í 4 ferðum, mest tæp 6 tonn.
Ansi langt er í næsta stað. Alla leið til Þorlákshafnar. þar eru nokkuð margir bátar og þá aðlega útilegubátar.
Aðalbjörg II RE 22,5 tonn í 3 ferðum, mest 10,4 tonn.
Jóhanna ÁR 51,8 tonn í 2 ferðum, mest 29 tonn.
Fróði ÁR 37,1 tonn í einni ferð
Aðalbjörg RE 21,8 tonn í 3 ferðum. báturinn er reyndar núna komin til Grindavíkur
Sólborg RE 46,6 tonn í 3 ferðum, mest tæp 20 tonn
Hásteinn ÁR 76,1 tonn í 2 ferðum, mest 40,9 tonn.
Arnar ÁR 70,1 tonn í einni ferð
Jón á Hofi ÁR 65,6 tonn í einni ferð.
Grindavík:
Farsæll GK 46,9 tonn í 3 ferðum, mest rún 18 tonn.
Sandgerði:
Örn KE 64,7 tonn í 3 ferðum mest 22,7 tonn.
Geir KE 52,8 tonn í 4 ferðum, mest 18,3 tonn.
Siggi Bjarna GK 59,1 tonn í 4 ferðum, mest 18,8 tonn.
Sigurfari GK 51,3 tonn í 4 ferðum, mest 15,1 tonn.
Benni Sæm GK 35,9 tonn í 4 ferðum, mest 12,9 tonn.
Ásdís GK 14,4 tonn í 2 ferðum.
Arney HF 39,6 tonn í 3 ferðum, mest 18,7 tonn.
Njáll RE 38,5 tonn í 4 ferðum, mest 12,8 tonn,
og að lokum Margrét HF 87,8 tonn í einungis 3 ferðum, mest 32,7 tonn. gríðarlega góður afli hjá Margréti HF.
Rif:
Bára SH 15,1 tonn í 3 ferðum, mest 6,4 tonn.
Matthías SH 82,9 tonn í 4 ferðum, mest 24,9 tonn.
Esjar SH 63,7 tonn í 5 ferðum, mest 21,9 tonn.
Rifsari SH 113,4 tonn í 5 ferðum, mest 29,5 tonn. svakalega mikill afli hjá Rifsara SH og af þeim bátum sem hérna í þessu létta yfirliti eru teknir þá er Rifsari SH langhæstur.
Ólafsvík:
Sæberg HF 68,5 tonn í 4 ferðum, mest 22,3 tonn.
Gunnar Bjarnarsson SH 53,5 tonn í 3 ferðum, mest 18,7 tonn.
Valgerður BA 46,9 tonn í 4 ferðum, mest 17,8 tonn.
Steinunn SH 91,3 tonn í 5 ferðum, mest 24,4 tonn.
Sveinbjörn Jakopsson SH 17,5 tonn í einni ferð.
Jakop Einar SH 9,2 tonn í 3 ferðum.
Sandvík SH 18,8 tonn í 4 ferðum, mest 8,3 tonn.
Patreksfjörður:
Brimnes BA 25,2 tonn í 3 ferðum, mest 12,1 tonn.
Bolungarvík :
Páll Helgi ÍS 4,1 tonn í 3 ferðum.
Eins og sést á þessu stutta yfirliti þá er mjög góður aflí hjá mörgum bátanna, yfir 20 tonn á dag, og 30 tonn eins og hjá Margréti HF.
Svo varðandi könnunina þá virðsti vera samkvæmt þessari viku að Esjar SH sé að taka Valgerði BA. sem er þvert á móti því sem lesendur síðunnar hafa spáð, enn þar er Valgerður BA með meiri atkvæði heldur enn Esjar.
13.3.2008
MOK í netin
Erlingur SF 48,1 tonn í 4 ferðum.
Þórir SF 45,8 tonn í 6 ferðum
Sigurður Ólafsson SF 42,2 tonní 6 ferðum
Hvanney SF 125,5 tonn í 5 ferðum, ótrúlega góður afli hjá bátnum.
Vestmannaeyjar:
Portland VE 28,7 tonn í 4 ferðum
Gandí VE 63,6 tonn í 3 ferðum
Þorlákshöfn:
Máni ÁR 33,3 tonn í 5 ferðum enn hann er í 50- flokknum.
Grindavík:
Tryllir GK 24,5 tonn í 5 ferðum
Gullfari II HF 25,1 tonn í 5 ferðum
Hraunsvík GK 31,7 tonn í 4 ferðum, komst mest í rúm 16 tonn.
Reynir GK 37,5 tonní 4 ferðum, fór mest í rúm 11 tonn
Askur GK 41,6 tonn í 5 ferðum, mest rúm 11 tonn
Árni á Teigi GK 41,7 tonn í 6 ferðum, mest tæp 10 tonn
Grímsnes GK 46,8 tonn í 4 ferðum.
Þorsteinn Gíslasson GK 60,5 tonn í 6 ferðum,mest rúm 17 tonn.
Marta Ágústdóttir GK 73,9 tonn í 6 ferðum.
Sandgerði:
Maggi Jóns KE 28,9 tonn í 5 ferðum
Sunna Líf KE 26,7 tonn í 5 ferðum.
Keflavík:
Erling KE 37,1 tonn í 2 ferðum
Ósk KE 82,9 tonn í 5 ferðum, mest rúm 29 tonn. svakalega góður afli á ekki stærri báti.
Arnarstapi:
Keilir II AK 27,3 tonn í 3 ferðum, mest rúm 16 tonn.
Bárður SH 59,8 tonn í 7 ferðum.
Rif:
Magnús SH 27,6 tonn í 2 ferðum.
Ólafsvík:
Egill SH 33,3 tonn í 4 ferðum.
Sjöfn EA sem er í 50- flokknum 35,1 tonn í 5 ferðum.
Arnar SH 65,3 tonn í 3 ferðum.
Geir ÞH 92,1 tonn í 5 ferðum, mest tæp 27 tonn.
Grundarfjörður:
Sæþór EA 42,2 tonn í 5 ferðum, mest rún 12 tonn, báturinn er í 50- flokknum
Haukaberg SH 62,9 tonn í 5 ferðum.
og svo að lokum norður í land.
Ólafsfjörður:
Níels Jónsson 18,3 tonn í 6 ferðum
Eiður EA 22,6 tonn í 6 ferðum
Grímsey:
Sæbjörg EA 23,1 tonn í 5 ferðum.
Hafborg EA 23,6 tonn í 3 ferðum
Þorleifur EA 52,6 tonn í 5 ferðum.
10.3.2008
Höfrungur BA byrjaður

Mynd Grétar Þór Sæþórsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Innanfjarðarrækjuveiðar eru hafnar að nýju eftir nokkurt hlé. Að þessu sinni eru veiðar í Arnarfirði leyfðar, og eins og staðan er núna þá er Höfrungur BA sá eini sem er byrjaður. Báturinn byrjaði í enda febrúar og fór þá í einn róður og kom með 3069 kg.
núna í mars er báturinn búinn að landa einu sinni, og má segja að báturinn hafi komið með fullfermi því landað var úr bátnum 6925 kíló.
9.3.2008
Mikill munur á 7 árum
Ég fór til ársins 2001., Og það verður að segjast að þvílíkur munur á fjölda báta á þessum 7 árum er all svakalegur.
Á listanum sem ég er með núna eru 26 bátar sem eru 50BT og stærri. Á vertíðinni 2001 þá er fjöldi báta sem er yfir 50 BT alls 86 talsins.
Finnst mér þetta ótrúlega mikill munur á ekki nema 7 árum.
Ég hafði hugsað mér að reikna alla þessa 86 báta og setja samsvarandi lista til samanburðar við vertíðina núna.
Þá var nú nokkur meiri þorskkvóti í boði handa bátunum.
6.3.2008
smá getraun...
Það eru til alls konar tegundir af getraunum um allt og ekkert. Ég hef nú ekki verið mikið í að setja svona getraunir hérna á síðuna, enn ákvað að henda einni léttri hérna inn.
Myndina að ofan tók ég einn dag í febrúar. ég rölti síðan yfir til bátsverja á Dúdda Gísla GK og spurði þá hvað þeir ´væru með mikinn afla.
þeir sögðust vera með ......
og þegar upp var staðið þá var aflinn....
Og því spyr ég hvað halda lesendur síðunnar að báturinn sé með mikinn afla miðað við myndina??'
Jæja svo lítur út fyrir að Einar og Sveinn hafi skellt sér inná fiskistofuvefinn og skoðað þar aflatölur.
Enn Sævar Þór hafði að hluta rétt fyrír sér. þeir sögðu nefnilega 7,5 tonn við mig, enn það vigtaði 7032 kíló.
Hver veit nema að ég skelli annari samsvarandi "getraun " inn aftur.
6.3.2008
Bræður munu berjast!!

Mynd Alfons Finnsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Einhverstaðar standa þessu fleygu orð sem heiti pistilins stendur fyrir, enn óhætt er að segja að orðin eigi vel við bátanna Valgerði BA og Esjar SH. Í september í fyrra þá keypti Óskar H Gíslasson fyrrum skipstjóri á Þorsteini BA, bátinn Báru SH og skírði hann Valgerði, síðan þá má segja að báturinn hafi hreinlega mokfiskað. Valgerður BA á systurbát sem heitir Esjar SH, og þessir tveir bátar þó litlir séu hafa ekkert gefið þeim stærri eftir í varðandi afla. Til að mynda þá kom Esjar SH með 24,5 tonn í einni ferðinni á vertíðinni árið 2007.
Í febrúar núna þá voru bátarnir svo til jafnir þegar upp var staðið, báðir með rúmlega 147 tonn afla. Valgerður BA var með örlítið meiri afla.
Svona til að glöggva sig betur á þessum tveimur bátum þá ætla ég að líta á síðustu 4 róðranna hjá báðum bátum í febrúar og fyrstu 2 róðra í mars.
Esjar SH kemur með 7,5 tonn á Rifi þann 25. Valgerður BA réri ekki þennan dag heldur deginum eftir og landaði þá á Suðureyri 4,3 tonnum.
Valgerður BA færir sig svo til Ólafsvíkur og kemur með 16,8 tonn þann 27, á sama tíma er Esjar SH með 12,8 tonn.
Esjar SH bætir heldur við þann 28 þegar báturinn landað 20,4 tonnum. Valgerður BA aftur á móti er ekki með nema 14,6 tonn.
Esjar SH þann 29 er með 13,6 tonn, Valgerður BA aftur á móti 19,6 tonn.
Og svona til að toppa Esjar SH almennilega þá landar Valgerður BA þann 1 mars 21,9 tonni, á sama tíma er Esjar SH með 11,8 tonn.
Þann 3 þá er Valgerður BA með 13,6 tonn, Esjar SH 14,9 tonn.
Eins og sést á þessu þá eru þetta alls 6 róðrar og báðir bátarnir eru í 3 skipti með meiri afla enn hinn.
og heildaraflinn þessa 6 róðra. 81,1 tonn hjá Esjari SH og 90,8 tonn hjá Valgerði BA, þessi barátta ef má orða það svo er svo aldeilis ekki búinn, og verður áhugavert að fylgjast með þessum tveimur bátum, því núna eru þeir báðir á Rifi.
5.3.2008
Birta BA

Í febrúar þá var hægt að fylgjast með afla og stöðu krókabáta hérna á síðunni. Miðaðist hann við 30 efstu báta hverju sinni. Einn af þeim bátum sem réru í febrúar var Birta BA sem réri frá Patreksfirði. Birtu gekk það vel að báturinn var með næstmestan meðalafla allra smábáta í febrúar. Reyndar var Birta BA í hópi með Dögg SF og Tryggva Eðvars SH. enn allir þessir 3 voru með í kringum 7,6 tonn í róðri að meðaltali. Heildarafli Birtu BA var 38 tonn í einungis 5 ferðum.

