Aflafréttir og fleira
Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Auglýsingapláss/styrkarlínur
auglýsingaplásstil
sölu,
og eða styrkarlínur.
Styrkja Síðuna
Styrktarreikningur síðunnarkennitala. 2008753709
bankabók.0142-05-001072
Eldra efni
Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Kirkjuvegur 15Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-05-001072Blogg
11.5.2008
Vertíðarlistinn.
Listi. NR 36.
Vertíðinn er að vera abúinn, og það lítur út fyrir að Erling KE sé aflahæsti netabátur vertíðarinnar 2008. og Bárður SH er kominn í 4 sætið yfir alla netabátanna. ótrúlegur árangur. Reyndar eru enn nokkrir bátar enn að, t.d Magnús SH og Ósk KE.
Keilir II AK og Sæþór EA eru svo til nokkuð jafnir í öðru til þriðja sætinu, og má telja ólíklegt að þeir nái 400 tonna viðmiðinu, því það eru ekki nema 3 til 5 dagar eftir að reikna eftir því hvernig róðrarnir koma inn á vefinn.
Eitt er samt merkilegt við þenna næstsíðsta netalista, enn það er furðulega ´góður afli hjá Þorsteini GK sem gerir út frá Raufarhöfn. Hann kom með tæp 6 tonn að landi núna íbyrjun maí og er það stærsti netaróðut bátsins núna á vertiðinni. afli bátsins var um 20 tonn í 4 ferðum.
Fram til Vertíðarloka þá verður þessu tafla hérna að neðan meginhlutverkið í vertíðarlistanum. Hægt er að smella á .VERTÍÐ 2008 í Flokkum hérna til hliðar og komst þannig beint í töfluna.
Rétt er að minna á að 50+ þýðir bátar yfir 50BT og 50- eru bátar undir 50BT.
Í vertíðaruppgjöri sem birtist í Fiskifréttum eftir vetrarveríðina þá komast þeir bátar á blað sem yfir 400 tonn ná.
| Sæti | Nafn 50+ | afli | róðrar | Mest | Nafn | afli | róðrar | mest |
| 1 | Erling KE | 1214,9 | 54 | 55,8 | Bárður SH | 676,1 | 106 | 20,6 |
| 2 | Hvanney SF | 1086,5 | 63 | 41,1 | Keilir II AK | 354,4 | 90 | 16,1 |
| 3 | Friðrik Sigurðsson ÁR | 914,4 | 44 | 58,8 | Sæþór EA | 351,6 | 67 | 16,8 |
| 4 | Gandí Ve | 766,7 | 38 | 57,1 | Hraunsvík GK | 274,2 | 72 | 16,1 |
| 5 | Ósk KE | 664,6 | 85 | 33,5 | Sproti SH | 219,7 | 70 | 10,3 |
| 6 | Magnús SH | 651,6 | 78 | 18,6 | Ársæll Sigurðsson HF | 217,6 | 84 | 14,2 |
| 7 | Marta Ágústdóttir GK | 600,3 | 52 | 40,8 | Reynir Þór SH | 214,1 | 62 | 9,1 |
| 8 | Erlingur SF | 586,2 | 43 | 36,7 | Árni í Teigi GK | 212,7 | 64 | 12,1 |
| 9 | Þórir SF | 564,1 | 34 | 37,7 | Ísak AK | 212,3 | 80 | 9,7 |
| 10 | Grímsnes GK | 552,8 | 35 | 40,3 | Svala Dís KE | 209,9 | 60 | 14,2 |
| 11 | Ólafur Bjarnarsson SH | 477,2 | 59 | 28,6 | Katrín SH | 205,5 | 60 | 9,2 |
| 12 | Geir ÞH | 451,8 | 38 | 32,3 | Sunna Líf KE 1523 | 201,8 | 45 | 9,8 |
| 13 | Glófaxi VE | 413,1 | 30 | 32,3 | Maggi Jóns KE | 176,4 | 36 | 19,5 |
| 14 | Sigurður Ólafsson SF | 409,1 | 41 | 44,1 | Níels Jónsson EA | 174,6 | 72 | 7,8 |
| 15 | Haukaberg SH | 391,7 | 62 | 16,4 | Sjöfn EA | 173,5 | 44 | 11,1 |
| 16 | Maron GK | 374,8 | 72 | 16,1 | Eiður ÓF | 152,4 | 54 | 8,4 |
| 17 | Arnar SH | 354,4 | 40 | 23,7 | Sæborg ÞH | 148,8 | 39 | 11,1 |
| 18 | Saxhamar SH | 341,8 | 29 | 23,1 | Gullfari HF | 136,2 | 46 | 8,7 |
| 19 | Guðmundur Jensson SH | 335,4 | 56 | 15,1 | Askur GK | 133,5 | 21 | 11,1 |
| 20 | Þorleifur EA | 331,7 | 64 | 28,9 | Máni ÁR | 124,1 | 34 | 8,3 |
| 21 | Þórsnes II SH | 310,9 | 18 | 26,9 | Sandvíkingur ÁR | 123,1 | 48 | 8,6 |
| 22 | Reynir GK | 281,2 | 40 | 13,5 | Sæbjörg EA | 122,7 | 46 | 5,3 |
| 23 | Egill SH | 265,5 | 51 | 16,1 | Skátinn GK | 119,2 | 47 | 8,2 |
| 24 | Narfi VE | 211,6 | 29 | 12,3 | Keflvíkingur KE | 90,3 | 32 | 8,5 |
| 25 | Þorsteinn Gíslasson GK | 205,2 | 31 | 17,3 | Hafnartindur SH | 90,2 | 34 | 7,2 |
| 26 | Hafborg EA | 134,8 | 45 | 9,7 | Tryllir GK | 84,5 | 27 | 4,5 |
| 27 | Þorsteinn GK 15 | 131,1 | 67 | 5,6 | Nunni EA | 80,6 | 40 | 5,8 |
| 28 | Portland VE | 97,9 | 13 | 17,1 | Haförn ÞH | 80,2 | 45 | 5,9 |
| 29 | Fengur ÞH | 76,6 | 62 | 4,8 | ||||
| 30 | Hafsvala SH | 58,2 | 58 | 4,6 | ||||
| 31 | Fylkir KE | 52,1 | 39 | 4,1 | ||||
| 32 | Nanna Ósk ÞH | 49,8 | 48 | 2,9 | ||||
| 33 | Sigrún RE | 40,3 | 44 | 2,6 | ||||
| 34 | Björn Jónsson ÞH | 38,1 | 43 | 3,1 | ||||
| 35 | Sæþór AK | 25,6 | 45 | |||||
| 36 | Andri ÞH | 18,8 | 9 | 7,1 | ||||
| 37 | Hafborg SK | 15,1 | 15 | 4,7 | ||||
| 38 | Sunna Líf KE 1959 | 13,8 | 12 | 3,4 | ||||
| 39 | Hafborg KE | 12,8 | 20 | 1,6 |
11.3.2008
Maggi Jóns KE með fullfermi.
Myndir Gísli Reynisson
Í gær þá setti ég inn smá getraun um hversu mikinn afla menn héldu að Maggi Jóns KE hafi komið með. Niðurstöður úr því eru ekki komnar enn hérna eru fleiri myndir af aflanum á bátum þennan dag. Enn þeir áætluðu að aflinn væri eitthvað í kringum 10 tonn. og eins og sést þá voru þarna innan um stórir boltar eins og einn áhafnarmeðlimur heldur á.
Netaveiði hérna sunnanlands hefur verið mjög góð uppá síðkastið og má alveg búast við því að svona stórir róðrar og jafnframt stærri fari að líta dagsins ljós.
29.2.2008
Erling KE fyrstur

Gísli Reynisson
Friðrik Sigurðsson ÁR sem hefur verið efstur á netalistannum og var ekki nema rúmum 600 kílóum frá 400 tonna markmiðinu sem ég hef gagnvart netalistanum.
Erling KE sem var í öðru sæti hefur gengið nokkuð vel uppá síðkastið og fékk 68 tonn í 2 ferðum og það dugði honum til þess að komast í efsta sætið og ásamt því að verða fyrsti báturinn til þess að komast yfir 400 tonna viðmiðið.
Til hamingju með það áhöfn Erlings KE.
Þá er bara spurning hver verður næstur. eins og staðan er núna þá er Friðrik Sigurðsson ÁR ekki nema 600 kílóum frá því, enn Grímsnes GK er þar á eftir.
3.1.2008
Vetrarvertíð 2008
Mynd Gísli Reynisson
Á vetrarvertíð þá er yfirleitt líf og fjör í höfnum landsins.
Vetrarvertíðir hafa löngum dregið marga sjómenn og báta á mið suðvestalands og í breiðarfirðinum. Á tímabilinu milli 1950 og fram undir 1980 þá var ansi mikið fylgst með vertíðarafla báta og þá sérstaklega netabáta. Voru birtar oft myndir af fullhlöðnum bátum bæði í Morgunblaðinu og Vísi ásamt öðrum blöðum. Vestmannaeyingar höfðu það til siðs að sá bátur sem varð aflahæstur á vertíð fékk bikar.
Í dag er öldin önnur. netabátarnir eru svo til margir hverjir horfnir og vertíðarstemming langt því frá að vera eins og var hérna áður. Það á þá helst t.d við að núna er ekki eins mikið fjallað um vertíð og var hérna áður. Þótt það sé þá er alltaf mikið líf á höfnum og það kemur ansi oft fyrir að bátar koma drekkhlaðnir til hafnar með afla. Gott dæmi um það er á vertíð 2007 þá kom netabáturinn Ísak AK sem er 21Bt smábátur á netum og í 4 skipti í mars og apríl þá kom báturinn með meira enn 15 tonn í einu og mest 18 tonn í löndun. þetta er fullfermi og meira enn það.
Enn ekkert var fjallað um þennan afla. engar myndir og ekkert. þótti mér það ansi dapurt. víða um hafnir við sunnanvert landið sem og á snæfellsnesi þá voru margar svona álíka fullfermistölur. enn lítið sem ekkert var fjallað um það.
Á þessari vertíð 2008. þá ætla ég að reyna að brydda uppá smá ja hvað skulum við segja nýung. Ég ætla mér að fylgjast ansi vel með nokkrun völdum netabátum alla vertiðína, og reyna raða þeim upp eftir afla. Mun ég hafa listanna tvennskonar.Báta yfir 50BT(50+) og báta undir 50BT (50-).
Þeir bátar sem ég nefni hérna til sögunnar eru eftirfarandi. Rétt er að hafa í huga að ef menn vilja bæta við báti þá geta þeir gert það í umsögn hérna að neðan.
Ósk KE (50+)
Hvanney SF (50+)
Bárður SH (50-)
Keilir II AK (50-)
Árni í Teigi GK (50-)
Katrín SH (50-)
Sæþór EA (50-)
Erling KE (50+)
Friðrik Sigurðsson ÁR (50+)
Marta Ágústdóttir GK (50+)
Tjaldanes GK (50+)
Magnús SH (50+)
Glófaxi VE (50+)
Gandí VE (50+)
Ísak AK (50-)
Maron GK (50+)
Þorleifur EA (50+)
Haukaberg SH (50+)
Hafnartindur SH (50-)
Ársæll Sigurðsson HF (50-)
Nunni EA (50-)
Sandvíkingur ÁR (50-)
Portland VE (50+)
Sunna Líf KE (50-)
Hraunsvík GK (50-)
Haförn ÞH (50-)
Maggi Jóns KE (50-)
Hafborg KE (50-)
Skátinn GK (50-)
Þorsteinn GK 15(50+) frá raufarhöfn
Reginn ÁR (50-)
Geir ÞH(50+)
Sigurður Ólafsson SF (50+)
Erlingur SF (50+)
Skinney SF (50+)
Grímsnes GK (50+)
Egill SH(50+)
Á tímum þar sem kvóti stjórnar öllum veiðum og vertíðarbragur fyrri ára er ekki lengur til staðar er spurning hvort svona listi á nokkurn stað í samtímanum. Allavega þá hef ég þannig áhuga á þessum að ég læt reyna á þetta.

