Aflafréttir og fleira
Aflatölur hafa verið hluti af lífi mínu síðan ég var 12 ára gamall. Síðan byggist fyrst og fremst á aflalistum og svo myndum. Heimilt er að nota efni af síðunni þó eru 2.reglur. 1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill. 2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
Auglýsingapláss/styrkarlínur
auglýsingaplásstil
sölu,
og eða styrkarlínur.
Styrkja Síðuna
Styrktarreikningur síðunnarkennitala. 2008753709
bankabók.0142-05-001072
Eldra efni
Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Kirkjuvegur 15Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-05-001072Blogg
28.5.2010
Hvar er Sjóli RE 18??. ef ekki þá Blakkur RE.
Ég fékk nú ekki mikil viðbrögð við þessari leitun minni enn þó kom ein um sögn sem er hérna að neðan.
"Gísli þakka fyrir frábæra síðu, gaman fyrir fyrir gamlan sjóara að fylgjast með,varðandi Sjólan RE,þá man ég eftir honum þegar ég var að byrja til sjós á skaki á Blakknum RE, Sjólin var einnig á skaki, ég held að Sjólin RE hafi landað í Sjófang sem var fiskverkun úti á Granda. Kv, Eyjólfur. "
Verð nú að segja að þessi umsögn gladdi mig mjög því það er ansi ánægjulegt þegar þessar gömlu aflatölur ná að tengjast þeim sem lesa þær. Og af því að Eyjólfur var á Blakki RE þá ætla ég aðeins að líta á vægast sagt rosalegar tölur um bátinn árið 1971.
Blakkur RE var ekki stór bátur hann var ekki nema 45 brl. og á þeim tíma þá var mjög algengt að bátar upp undir 100 tonn og stærri voru að stunda handfæraveiðar á sumrin og þá aðalega á ufsanum.
Og þvílíkar tölur sem ég hef séð.
Blakkur RE. Mynd SNorri SNorrason.
Blakkur RE var á netaveiðum á vertíðinni og fór svo á handfærin í júní . hann landaði mest í Reykjavík og einni löndun í Vestmanneyjum. heildaraflinn í júní það ár var hvorki meira né minna enn 175 tonn í einungis 8 róðrum eða 22 tonn í róðrí.
Í júlí þá varð aflinn 152 tonn í 9 róðrum eða 16,9 tonn í´róðri. stærsti róður þá var 21,2 tonn.
Samtals á tveim mánuðum var því handfæraafli Blakks RE, 327 tonn.
Þetta er enginn smáafli og að mínu mati alveg tvímælalaust VÁ með stórum stöfum.
Enn stóra spurninginn er, Er til í dæminu að handfærabátur hafi náð yfir 200 tonna afla á mánuði???.
Og ég er enn að leita að mynd af Sjóla RE 18.
18.5.2010
Mikið líf á Húsavík
Málið er að þessar skýrslur miðast við fiskverkunarstöð og þá báta sem landa á viðkomandi stóð. Eitt fyrirtæki hefur bori' höfuð og herðar yfir fjölda báta og vigtunarblaða svo til öll árin sem ég hef verið að safna saman.
Þetta fyrirtæki hét Fiskiðjusamlag Húsavíkur (FK). og það tímabil sem ég tek hérna til að sýna ykkur er frá því í maí árið 1971. Vigtunarblöð voru alls 91 og bátar sem lönduðu þar voru alls 60. Stærstur hluti þessara báta voru litlir eikarbátar eða trillur og voru á flestum þeirra 2 menn. Alls var landað hjá FK 851 tonni og sjómenn voru alls 162. Stóru bátarnir Sæborg ÞH, Grímur ÞH, Kristbjörg ÞH, Svanur ÞH, Glaður SH voru allir með 8 menn um borð. Fanney ÞH og Hagbarður ÞH 7 menn og Þengill ÞH 5 menn.
Aðrar fiskverkunarstöðvar voru Vísir ehf enn þar landaði Svanur ÞH öllum þorksi og ýsu. rest var landað hjá FK. Bjarni Ásmundsson var svo með fiskverkun og hjá honum var það aðallega Orri ÞH sem landaði.
Ég útbjó tölfu sem sýnir í stafrófsröð bátanna og inní þeirri tölfu eru líka einstaklingar sem gerður út á bátum sem höfðu ekkert nafn.
Ég vil vekja athygli á kanksi þeim báti sem vekur hvað mesta athygli mína þarna. en það er Hrói ÞH 29. hann er á netum í þessaru tölfu og fiskar ansi vel svo ekki sé meira sagt. Hrói ÞH var ekki nema 5,3 brl og var með 2,7 tonn í róðri að meðaltali. Ég fann mynd af honum enn hún var svo lítil að ég gat ekki notað hana.
Ég veit ekki hvort þið þekkið bátanna en norðanmenn og þá sérstaklega Húsvíkinganir ættu að kannast við suma bátanna.
Allir þessir bátar lönduðu hjá FK nema 2 neðstu nöfnin. þau lönduðu hjá Bjarna Ásmundssyni og það gerði líka Orri ÞH um 80% af aflanum. Svanur ÞH var svo að mestu hjá Vísi.
Björgvin EA sem er þarna þetta er ekki stóri Björgvin EA heldur annar.
| Nafn Báts | Veiðarfæri | Afli | Landarnir | Meðalafli |
| Aron ÞH 105 | Færi | 14,350 | 11 | 1,3 |
| Fanney ÞH 130 | net | 67,530 | 17 | 3,9 |
| Björgvin EA | Færi | 1,810 | 1 | 1,8 |
| Bára ÞH 99 | lína | 17,160 | 11 | 1,6 |
| Bjarmi ÞH 277 | lína | 1,175 | 3 | 0,4 |
| Glaður ÞH | lína | 53,337 | 11 | 4,9 |
| Grímur ÞH 25 | lína | 74,050 | 20 | 3,7 |
| Hagbarður ÞH | net | 1,470 | 4 | 0,3 |
| Kristbjörg ÞH | lína | 85,845 | 20 | 4,3 |
| Svanur ÞH 100 | lína | 55,825 | 13 | 4,3 |
| Sæborg ÞH 55 | net | 33,185 | 16 | 2,1 |
| Þengill ÞH 114 | lína | 9,980 | 7 | 1,4 |
| Anna ÞH | Færi | 11,210 | 15 | 0,8 |
| Ásgeir ÞH 98 | Færi | 21,200 | 13 | 1,6 |
| Árni ÞH 127 | Færi | 13,500 | 15 | 0,9 |
| Ársæll ÞH 46 | Færi | 8,340 | 11 | 0,8 |
| Baldvín ÞH 15 | Færi | 7,950 | 15 | 0,5 |
| Bjarmi ÞH 118 | Færi | 13,150 | 15 | 0,9 |
| Brandur ÞH | Færi | 1,725 | 5 | 0,4 |
| Farsæll ÞH 68 | lína | 21,230 | 11 | 1,9 |
| Fram ÞH 26 | lína | 4,790 | 4 | 1,2 |
| Felix ÞH | Færi | 0,075 | 1 | |
| Gæfa ÞH | Færi | 11,950 | 9 | 1,3 |
| Guðrún ÞH 64 | Færi | 10,090 | 9 | 1,1 |
| Hafrún ÞH | net | 0,810 | 4 | 0,2 |
| Héðinn ÞH 176 | lína | 9,195 | 9 | 1,1 |
| Helgi ÞH | net | 11,515 | 14 | 0,9 |
| Hrönn ÞH 82 | Færi | 19,490 | 21 | 0,9 |
| Jói ÞH | Færi | 0,050 | 1 | |
| Kári ÞH 30 | lína | 5,175 | 10 | 0,5 |
| Kristján ÞH 5 | lína | 5,645 | 8 | 0,7 |
| Maggi ÞH 74 | lína | 14,080 | 19 | 0,7 |
| Mari ÞH | lína | 16,545 | 19 | 0,8 |
| Mummi ÞH | net | 27,340 | 13 | 2,1 |
| Mökkur ÞH | Færi | 1,385 | 2 | 0,7 |
| Óli ÞH | Færi | 8,645 | 13 | 0,7 |
| Orri ÞH 16 | Færi | 8,232 | 20 | 0,4 |
| Óskar ÞH | Færi | 3,280 | 6 | 0,6 |
| Otur ÞH | Færi | 3,380 | 5 | 0,7 |
| Sigurpáll ÞH | Færi | 10,955 | 13 | 0,8 |
| Smári ÞH | net | 14,055 | 8 | 1,8 |
| Sæfari ÞH 271 | lína | 22,535 | 16 | 1,4 |
| Ver ÞH 65 | Færi | 11,320 | 16 | 0,7 |
| Vilborg ÞH 42 | lína | 22,555 | 19 | 1,2 |
| Vinur ÞH 73 | lína | 18,050 | 21 | 0,9 |
| Vísir ÞH 262 | lína | 6,025 | 12 | 0,5 |
| Þráinn ÞH | Færi | 1,945 | 3 | 0,6 |
| Þórður ÞH | net | 6,710 | 8 | 0,8 |
| Öngull ÞH 23 | lína | 25,810 | 11 | 2,3 |
| Össur ÞH 69 | lína | 1,995 | 2 | 1 |
| Sævar ÞH 136 | lína | 11,255 | 8 | 1,4 |
| Hrói ÞH | net | 54,045 | 20 | 2,7 |
| Eiður Árnasson | Færi | 3,130 | ||
| Jón Friðbjarnarsson | Færi | 0,610 | ||
| Þorsteinn Bjarnarsson | Færi | 0,115 | ||
| Selá EA | Færi | 5,110 | 9 | 0,6 |
| Jóhannes Haraldsson | Færi | 1,540 | ||
| Gosi ÞH 9 | Færi | 12,120 | 8 | 1,5 |
| Stefán ÞH 151 | Færi | 7,450 | 11 | 0,7 |
| Heimir Sigurðsson | Færi | 0,788 | 1 | 0,8 |
| Hafdís ÞH | Færi | 6,149 | 15 | 0,4 |
16.5.2010
Apríl árið 1970.7.Hluti
Báturinn sem varð í 4 sætinu gerði út frá Vestmananeyjum og hét Huginn II VE.
Mynd úr safni Tryggva Sigurðsonar
Huginn II VE var aflahæsti Vestmannaeyjabátanna og hafði í febrúar og mars stundað loðnuveiðar. Fór svo á netin í april og vægast sagt rótfiskaði t.d þá fékk báturinn í 9 róðrum alls 299 tonn eða 33 tonn í róðri. Heildarafli bátsins var 639,5 tonn í 23 róðrum það gerir 27,8 tonn í róðri, og reiknað uppí 6 róðra sem var algengur róðrafjöldi þá gerðir það 166,8 tonn sem verður að teljast vera feiknagóður afli.
Næsti bátur var mikið aflaskip og þegar ég byrjaði að fjalla um þennan metmánuð þá kom ég með þá spurningu um hvaða bátar gætu hugsanlega verið þarna á toppnum. Orri hann giskaði á Geirfugl GK. sem er rétt.
Mynd Snorri Snorrason.
Geirfugl GK var eins og að ofan kemur mjög mikið aflaskip og náði æði oft að verða hæstur yfir landið. Og einmitt þessa vertíð árið 1970 þá náði Geirfugl GK að verða hæstur með 1704 tonn og bætti þar með aflamet Sæbjargar VE sem hafði verið sett árið 1969. Geirfugl GK réri á netum alla vertíðina og fékk t.d í febrúar 459 tonn í 20 róðrum sem gerir 22,9 tonn í róðri eða 138 tonna vikuafla miðað við 6 róðra.
Þennan umtalaða risaaprílmánuð þá fiskaði Geirfugl GK hvorki meira né minna enn 718 tonn í 26 róðrum. þetta gerir 27,6 tonn í róðri og miðað við 6 róðra þá gerir það 165,6 tonna vikuafla.
Þrátt fyrir þennan mokafla þá varð Geirfugl GK annar hæstur þennan mánuð.
Næsti bátur var nefnilega aflahæstur og það ekkert smá. Þarna er verið að tala um Albert GK.
Eldborg GK sem síðan varð Albert GK. Mynd Snorri Snorrasson.
Ég fann enga mynd af Alberti GK eða litla Alberti GK eins og hann var oft kallaður.
Albert GK var aflahæstur bátanna í apríl og aflinn var vægast sagt rosalegur. að ná yfir 600 tonna afla telst vera feiknargott. að ná yfir 700 tonna afla í netum á mánuði myndi teljast vera ótrúlega gott. enn að ná yfir 800 tonn eða þá 850 tonn á mánuði .??. slíkt myndi kanski kallast ótrúlegt.
Enn það var engu að síður rauninn með Albert GK því aflinn hjá bátnum var hvorki meira né minna enn 868,8 tonn (svona stóra tölu verður maður að hafa feitletraða). Og þennan afla fékk báturinn í 28 róðrum eða 31,2 tonn í róðri og það gerir 186 tonna vikuafla miðað við 6 róðra. Og eins og er skrifað þarna að ofan þá er þetta ekki rosalegur afli heldur ótrúlegur afli.
Save the best for the last. myndi þýðast sem geymum það besta þar til síðast. á pottþétt við bátinn sem endar þetta yfrilit Þrátt fyrir þennan gríðarlega mikla afla hjá Alberti GK þá er báturinn sem endar þetta yfrilit samt sá bátur sem kom mér lang mest á óvart. Sá bátur hét Þórir RE.
Mynd Snorri Snorrason.
Já þegar ég sá að Þórir RE var þetta ofarlega þá var ég alltaf að leita að stálbáti því mér datt ekki til hugar að Þórir RE hefði verið eikarbátu. það var bara af og frá að það gæti hugsast . Eftir að ég fór að grafast betur fyrir um það þá kom í ljós að Þórir RE var eikarbátur og ekki nema 54 brl. Þrátt fyrir að vera þetta lítill þá gerði áhöfninn á Þóri RE þann ótrúlega atburð að verða þriðji aflahæsti báturinn í apríl. Og rétt er að rifja upp að í 4 sætinu var Huginn II VE. 2 sætinu Geirfugl GK og því fyrsta Albert GK. allir þessir bátar voru yfir 200 brl stálbátar.
Þórir RE byrjaði vertíðina á línu og var á henni fram í miðjan febrúar fór þá á netin og í mars þá gekk bátnum svona ekkert allt of vel var ekki með nema 131 tonn í 20 róðrum sem gerir 6,5 tonn í róðri og 39 tonna vikuafla.
Í apríl þá varð heldtur betur fiskur í netunum á þessum litla báti því Þórir RE landaði alls 655,3 tonnum í 28 róðrum eða 23,4 tonn í róðri. það gerir 140 tonna vikuafla.
Þess má geta að stærsti róður bátsins í apríl var all 55 tonn eftir daginn.
Er þar með þessu yfirliti lokið og öll þessi yfirlit eru á síðunn undir flokknuim "gömul tíð " og þar er hægt að lesa hin 6 yfirlitin.
Ég ætla að vona að menn hafi haft jafn gaman að því að lesa þessi yfirlit eins og ég hafði gaman að því að grafa þetta upp sem og búa þetta til.
kveðja
Gísli R
29.4.2010
6.Hluti apríls árið 1970.
Núna erum við kominn í 600 tonnin hvorki meira né minna og fyrsti báturinn sem í þessu yfirliti er ekki að stærri gerðinni,
Leó VE. Mynd Tryggvi Sigurðsson.
Já Leó VE var nú ekki stór bátur rétt um 100 brl. en þrátt fyrir stærðina þá varð báturinn aflahæstur allra Vestmannaeyjabáta þennan risamánuð. og afli bátsins var alls 600,1 tonn í 24 róðrum sem gerir 25 tonn í róðri. reiknað upp í 6 róðra þá er það150 tonna vikuafli. Stærstí róður bátsins var 55 tonn eftir daginn. Þetta er alveg rosalegur afli. 150 tonna vikuafli á ekki stærri báti.
Næsti bátur er nokkru stærri heldur enn Leó VE.
Þorri ÞH Mynd Hreiðar Olgeirsson.
´Fann því miður enga mynd af Þorra ÞH frá árinu 1970, en tel að þetta sé rétti báturinn. Þorri ÞH var mun stærri en Leó VE og gerði út frá Sandgerði þennan mánuð. Varð Þorri ÞH aflahæstur bátanna í Sandgerði, Afli bátsins var alls 603,3 tonn í 26 róðrum eða 23,2 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 139 tonna vikuafla. Ansi gott.
Næsti bátur er enn til í dag árið 2010 og er í fullri útgerð.
Þorsteinn RE mynd SNorri Snorrason.
á árinu 2010 er bátur gerður út sem heitir Kristín SU, árið 1970 þá hét þessi sami bátur Þorsetinn RE, og hafði verið gerður út á loðnu fram undir lok mars þegar skipt var yfir á netin. Og báturinn gerði út frá Keflavík og mokveiddi. fékk als 611,9 tonn í 25 róðrum sem gerir 24,4 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 146,8 tonna vikuafla.
Annar stór bátur er næstur í röðinni.
Þórkatla II GK mynd Emil Páll.
Þórkatla II GK var einn af þeim Grindavíkurbáturm sem fiskuðu vel í þessum mánuði og reyndar þeir bátur sem lögðu upp hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða fiskuðu allir vel. og má sjá í þessum flokki að það eru fjallað um fleiri báta sem lögðu upp þar. Þórkatla II GK aflaaði alls 614,8 tonn í 28 róðrum sem gerir 21,9 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 131,7 tonna vikuafla.
Þetta yfirlit endar á báti sem er eikarbátur. Já eikarbátur
Friðrik Sigurðsson ÁR Mynd Tryggvi Sigurðsson.
Allir þeir sem hafa fylgst með sjómennsku gegnuim árin vita að nafnið Friðrik Sigurðsson ÁR hefur verið ákaflega fengsælt. Og þó ég væri ekki viss um hvort þetta sé rétti báturinn þar sem hann var seldur árið 1971 til Grindavíkur og fékk þá nafnið Vörðunes GK. þá tel ég að í apríl árið 1970 hafi 77 brl eikarbáturinn verið Friðrik Sigurðsson ÁR. Þessi 77 brl bátur gerði sér lítið fyrir og varð fimmti aflahæsti báturinn á landinu í apríl og fiskaði alls 636,8 tonn í 28 róðrum sem gerir 22,7 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 136 tonna vikuafla.
Þvílíkt og annað eins.
19.4.2010
Árið 1970. Togarinn Maí GK 346.
Togarinn Maí GK sem var undir skipstjórn Halldórs Halldórssonar var gríðarlega mikið aflaskip og þar sem ég hef undir höndum gríðarlegt magn af aflatölum þá get ég staðfest hversu mikið aflaskip Maí GK var.
Ef skoðað er þessu flokkur ..Gömul tíð.. þá má sjá yfirlit yfir aflan hjá Maí GK árið 1965 en þá varð hann aflahæsti togarinn. Og árið 1970 þá varð Maí GK hæstur allra togaranna og hérna að neðan þá verður rennt í gegnum aflann mánuð fyrir mánuð.
Svona áður en það verður gert þá langar mér að koma einu að. Ég fann á einni síðu hérna sem var að fjalla um togara að þar var aflatala um Maí GK sem voru teknar af þessari síðu, en hvergi getið heimildar. Það er ekki alveg það sem ég vil og vísa í haus síðunnar um reglur hennar sem eru 2.
allavega þá í Janúar árið 1970 þá byrjaði togarinn á því að sigla til Bretlands og var með 209 tonn í einni löndun þar.
Í febrúar þá silgdi Maí GK tvisvar og landaði 221 tonni í fyrri ferðinni og 271 tonn í þeirri seinni eða 493 tonn í tveim löndunum.
Mars mánuður þá var landað heima og Maí GK landaði í Hafnarfirði enda var hann gerður þaðan út. og aflinn var 582 tonn í einungis 2 löndunum eða 291 tonn í róðri.
Hvað var fullfermi mikið hjá Maí GK. 200 tonn, NEI, 300 tonn, NEI, 400 tonn, gæti verið. Kanski hafi svarið við þeirri spurningu komið. Því í apríl árið 1970 þá kom Maí GK með að landi 438 tonn í einungis einni löndun.
Maí mánuður og þvílikur afli hjá togara sem hét Maí GK , því hann kom með að landi 971 tonn í einungis 3 löndunum eða 323 tonn í löndun. Jahérna hér.
Áfram koma stórar landanir því í Júní þá landaði Maí GK 568 tonnum í 2 löndunm eða 284 tonn í túr.
Júlí var líka risamánuður því Maí GK var með 794 tonní einungis 3 róðrum sem gerir 265 tonn í löndun.
engum afla var landað í Ágúst.
Maí GK silgd í Septemberi og landaði í Bretlandi alls 512 tonnum í 2 löndunum. Fyrri túrinn var 216 tonn og sá seinni 293 tonn.
Í Október þá landaði Maí GK líka í Bretlandi og var með 191 tonn í einni löndun.
Áfram var haldið áfram að landa í Bretlandi því í nóvember þá landaði togarinn 197 tonnum þar í einni löndun.
Og í Desember þá landaði togarinn í Hafnarfirði alls 267 tonnuim í einni löndun.
Heildarafli togarans var því 5221 tonn í aðeins 19 löndunum eða 275 tonn í túr. vægast sagt gott ár hjá togaranum og fáir ísfiskstogarar hafa og getað komið með yfir 400 tonn að landi eftir einn túr eins og gerðirst þetta ár.
Set aflann í tölfu líka
| Mánuður | Afli | Landanir | Meðalafli |
| janúar | 209,3 | 1 | 209,3 |
| febrúar | 492,9 | 2 | 246,4 |
| mars | 581,5 | 2 | 290,1 |
| apríl | 438,1 | 1 | 438,1 |
| maí | 970,8 | 3 | 323,6 |
| Júní | 568,6 | 2 | 284,3 |
| júlí | 793,5 | 3 | 264,5 |
| ágúst | enginn afli | ||
| september | 511,7 | 2 | 255,8 |
| október | 190,8 | 1 | 190,8 |
| nóvember | 196,5 | 1 | 196,5 |
| desember | 267,3 | 1 | 267,3 |
Mynd Jón Páll Ásgeirsson.
10.4.2010
Bátar árið 1970. í apríl.
tvær umsagnir hafa verið skrifaðar við nýjasta hlutann. reyndar ekki til að segja skoðun sína á þessum mánuði, heldur benda á rangar myndir við 2 báta.
Fyrri ábendinginn kom frá Sigurði Garðarssyni varðandi Hólmstein ÁR. ég birti mynd af Hólmsteini ÁR 27 sem hafði skipaskrárnúmerið 542. enn sá bátur fékk ekki það nafn fyrr enn árið 1972. bátur númer 574 er rétti báturinn, enn því miður þá finst enginn mynd af honum.
Og þessi bátur 574 var ekki nema 30 brl að stærð og smíaður í danmörku árið 1954.
þessi stærð á bátnuim 30 brl gerir þennan aflalista all rosalegan.
rifjum upp hvað var skrifað því Hólmsteinn ÁR 27 30 brl báturinn fiskaði hvorki meira né minna heldur enn 542,2 tonn í 29 róðrum sem gerir 18,7 tonn í róðri. vikuafli uppá um 112 tonn.
Verð nú bara að segja það að ég sagði lítið vá þegar ég sá þennan afla hjá Hólmsteini ÁR og hafði ég þá í huga að báturinn var 54 brl , enn nú þegar rétti báturinn er kominn fram og að hann er ekki nema 30 brl. þá er ekki annað hægt að seja nema VÁ, VÁ.
sjáiði bara fyrir ykkur Sölkuna GK hans Grétars Mars koma með tæp 19 tonn í hverjum róðrum í 29 róðrum. En Salka GK er kanski svipaður bátur og Hólmsteinn ÁR 27,574 var.
Hinn báturinn sem mér var bent á er Stígandi VE. ég birti mynd af Stíganda VE sem áður hét Hrafnkell NK. sá bátur er skráður seldur til eyja í febrúar árið 1971. Drífa SH sem er með númerið 795 og hét Stígandi VE lengi vel var seldur árið 1965 og hét þá Frár VE og hét því nafnið fram til 1981. Einn annar Stígandi VE var svo númer 68 og hét Guðrún Þorkelsdóttir SU , en sá bátur er ekki seldur til eyja fyrr enn árið 1977. og þá var þar líka Helgi Flóventsson ÞH sem fékk þá nafnið Stígandi II VE.
þetta er doldið furðulegt. og miðað við þetta þá gat ég ekki annað enn haft Stíganda VE þarna sem áður hét Hrafnkell NK. sá bátur hefur getað verið seldur til eyja árið 1970, enn ekki skráður fyrr enn 1971.
og fyrir þá sem vita ekkert hvað ég er að skrifa um hérna þá er hægt að lesa
Hluta 1. hérna
Hluta 2.Hérna
Hluta 3. Hérna
hluta 4.Hérna
Hluta 5.Hérna
Og það er einmitt í hluta númer 4 sem Hólmsteinn ÁR og Stígandi VE eru .
og varðandi það að þið séuð að segja ykkar skoðanir á því hvort þessi bátur sé réttur eða ekki . þá þigg ég það með þökkum.
3.4.2010
Ýmsir bátar í apríl árið 1970.
Fyrsti báturinn er jafnframt sá bátur sem alls enga mynd var að finna af þrátt fyrir mikla leit. Þarna er verið að tala um bátin Andey GK 19 sem var 10 brl eikarbátur. Gerði Andey GK út frá Höfnum og varð aflahæsti handfærabáturinn í þessum mánuði. fiskaði báturinn 35,9 tonn í 16 róðrum. sem gerir 2,3 tonn í róðri,.
Í Þessu yfirliti er einungis fjallað um 2 netabáta og sá fyrri var einn af minnstu netabátunum. Hét þessi bátur Farsæll GK og var 11 brl eikarbátur. þrátt fyrir litla stærð þá mokfiskaði báturinn þvi hann landaði anns 117,3 tonnuim í 24 róðrum, sem gerir 4,9 tonn í róðrum. Reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 29 tonna vikuafla. Og má geta þess að stærsti róður þessa 11 tonna báts var 12,2 tonn.
F
Farsæll GK. Mynd Emil Páll.
Bátur númer 3 hét líka Farsæll og var líka GK. en þó ekki gerður frá Grindavik því þessi Farsæll GK 76 var gerður út frá Höfnum og stundaði handfæraveiðar. Farsæll GK 76 er minnsti báturinn í þessu yfriliti því hann var ekki nema 6,55 brl að stærð. Fiskaði alls 31,5 tonn í 19 róðrum sem gerir 1,7 tonn í róðri.
Farsæll GK 76, Mynd Erling Brim Ingimundarsson.
Bátur númer 4 er enn til í dag þrátt fyrir að hafa ekki verið gerður út í nokkurn tíma. Það sem er merkilegt við þann bát frá þessum tíma er að hann var að mestu leyti gerður út á trolli þrátt fyrir að vera ekki nema 39 brl að stærð. Þessi bátur hét Kári GK, og stundaði trollveiðar í þessum mánuði og þrátt fyrir litla stærð bátsins þá rótfiskaði hann, því Kári GK landaði samtals 207,8 tonnum í 22 róðrum, það gerir 9,4 tonn í róðri. og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 56,7 tonna vikuafla.
Kári GK mynd. Tryggvi Sigurðsson.
Bátur númer 5 er eini báturinn í þessu yfirliti sem yfir 400 tonnin komst, og var þetta trollbátur og eini trollbáturinn sem komst yfir 400 tonnin. Þarna er verið að tala um Kofra ÍS sem var 176 brl stálbátur og gerði út frá Súðavík. Má segja að Kofri ÍS hafi fiskað eins og togari því hann landaði einungis í 4 skipti og kom með 460,2 tonn og það gerir 115,1 tonn í róðri.
Kofri ÍS ljósmyndari Ókunnur.
Bátur númer 6 er sérstaklega fyrir hann Hafþór á Húsavík. En Hafþór hefur látið mér í tjé myndir á síðunni og það verður að launa það vel. Þarna er um að ræða bát með nafinu Kristbjörg ÞH. Nafnið Kristbjörg er húsvíkingum mjög kært vegna þess að nokkuð margir bátar hafa verið gerðir út frá þeim bæ með þessu nafni, og um tíma voru þeir tveir. Kristbjörg ÞH og Kristbjörg II ÞH. Kristbjörg II ÞH var þar á undan Kristbjörg ÞH og er það báturinn sem um ræðir í þessu tilfelli. Kristbjörg ÞH réri frá Húsavík og stundaði netaveiðar. Þrátt fyrir að vera ekki með mokafla eins og bátarnir fyrir sunnan þá varð Kristbjörg ÞH engu að síður aflahæsti ´netabáturinn sem gerði út á norðulandi. fiskaði báturinn 95,8 tonn í 17 róðrum sem gerir 5,6 tonn í róðri. reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 34 tonna vikuafla.
Kristbjörg ÞH. Mynd Hafþór Hreiðarsson.
Þrátt fyrir að aðallínuveiði landsins hafi verið á Vestfjörðrum þá gerðist það í apríl mánuði árið 1970 að Línuveiði ansi margra báta frá suðuvestulandinu og þá aðalega frá Sandgerði og Keflavík var mun meiri heldur enn bátanna frá vestfjörðurm. Einn af þeim bátum sem stundðu línuveiðar var Manni KE sem réri frá Keflavík. Manni KE var 72 brl eikarbátur og landaði alls 228,8 tonnum í 24 róðrum sem gerir 9,5 tonn í róðri, og reiknað upp í 6 róðra þá gerir það 57 tonna vikuafla. og það verður að teljast ansi góður vikuafi á línu.
Manni KE. Mynd Snorri Snorrason.
Bátur númer 8 stundaði trollveiðar og hét Ólafur KE. Ólafur KE var ekki nema 40 brl eikarbátur og eins og Kári GK þá var mokveiði. Ólafur KE fiskaði alls 237,6 tonn í 21 róðri sem gerir 11,3 tonn í róðri. Þar sem róðrarnir eru ekki nema 21 þá gerir það um 5 róðra að meðataali á viku og geri því 56,5 tonna vikuaafla. miðað við 6 róðra þá eru það 67,8 tonn afli.
Ólafur KE. Mynd Snorri Snorrason.
Bátur númer 9 var alla tíð gerður út frá Sandgerði og bar aðeins eitt nafn. Steinunn Gamla KE. Steinunn Gamla KE stundaði línuveiðar og varð næst aflahæsti línubátur landsins í apríl. Fiskaði Steinunn Gamal KE alls 248,2 tonní 22 róðrum sem gerir 11.3 tonn í róðri. miðað við 6 róðra þá gerir það 67,6 tonna vikuafla.
Steinunn Gamla KE. Mynd Valur Kristinsson.
Bátur númer 10 hét Sævar KE og stundaði trollveiðari og lagði upp í Sandgerði. báturinn landaði nú ekki oft því hann landaði alls 16 sinnum enn var samt með 206,8 tonn afla sem gerir 12,9 tonn í róðri. það gerir sirka 4 róða á viku og gerir því 51,6 tonna vikuafla.
Sævar KE. Mynd Þóroddur Sævar Guðlaugsson.
Til er ensk máltæki sem er " save the best for the last", eða. Geymum það besta þar til síðast. og það á vel við um síðsta bátinn í þessu yfirliti. Þessi bátur gerði sér lítið fyrir og varð aflahæstur allra línubáta á landinu í apríl mánuði. Kemur mjög á óvart. Þarna er verið að tala um bát sem eins og Steinunn Gamla KE var alla tíð gerður út frá Sandgerði og báðir af sama fyritækinu Miðnesi Hf. Að sjálsögðu er verið að tala um bátinn Muninn GK 342. Muninn GK var 53 brl eikarbátur og að þessi liti bátur hafi náð að vera hæstur línubátanna er vægast sagt magnaður árangur. Fiskaði Muninn GK alls 260,6 tonn í 24 róðrum sem gerir 10,9 tonn í róðri. reiknað í 6 róðra þá gerir það 65 tonna vikuafla.
Munin GK mynd Snorri Snorrason.
Er þar með þessu langa yfrilit lokið. og ég vona að ykkur líki við þessa tilbreytingu frá netabátunum sem ég hef verið að fjalla um í apríl 1970.
3.4.2010
5.hluti Apríls árið 1970.
Við byrjum á Höfrungi III AK. Hann er stærsti báturinn sem fjallað hefuru verið um í þessum yfirlitum um apríl. Höfrungur III AK var 276 brl að stærð. og fram að þessum mánuði þá stundaði bátuinn loðnuveiðar, kláraði þær í byrjun apríl og fór þá á netin.
Höfrungur III AK fór ekki nema í 19 róðra enn landaði samt 523,8 tonnum, sem gerir 27,5 tonn í róðri. reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 165 tonna vikuafla.
Höfrungur III AK. Mynd Snorri Snorrason.
Næstur í röðinni er Stígandi VE. Þó svo að upprunalegi Stígandi VE sé ennþá til undir nafninu Drífa SH, þá er það ekki sá bátur sem um ræðir í þessu tilfelli. Stígandi VE hét áður Hrafnkell NK og var 91 brl eikarbátur.
Þarna í apríl mánuði þá aflaði Stígandi VE 526,7 tonn í 27 róðrum sem gerir 19,5 tonn í róðri. og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 117 tonna vikuafla.
Þriðji báturinn í þessu yfirliti er bátur sem hefur ætíð vakið athygli mína fyrir mikin afla þrátt fyrir að hafa verið ekki beint stór bátur. Þessi bátur hét Hólmsteinn ÁR og var ekki nema 54 brl að stærð eikarbátur. svo til jafnstór og Gunnar Hámundarsson GK. Hólmsteinn ÁR réri alls 29 sjóferðir og landaði 542,2 tonni sem gerir 18,7 tonn í róðri. Reiknað upp í 6 róðra þá geir það 112 tonna vikuafla. rosalegur afli á ekki stærri báti.
Fjórði báturinn er líka ÁR bátur og það sem meira er að hann er minni heldur enn Hólmsteinn ÁR var. Ansi ótrúlegt. Sá bátur hét Fróði ÁR og var ekki nema 49 brl að stærð. Fróði ÁR var einn af nokkuð mörgum bátum sem fór í 30 róðra. sem sýnir að ansi vel hafi viðrað til róðra í þessum mánuði fyrir 40 árum síðan. Þessi litli bátur vægast sagt mokfiskaði því hann aflaði 556,1 tonn í þessum 30 róðrum sem gerir 18,5 tonn í róðri og reiknað upp í 6 róðra þá gerir það 111 tonna vikuafla. ótrúleg tala á ekki stærri báti.
Því miður þá fann ég enga mynd af Fróða ÁR sem hafði skipaskrárnúmerið 1082. sá bátur var smíðaður í stykkishólmi árið 1969.
fimmti báturinn er stálbátur og var einn af aflahæstu bátum þessa vertíð. Þessi bátur hét Arnfirðingur RE. og þrátt fyrir að vera RE þá lagði hann alltaf upp hjá Arnarvík í Grindavík á þessum árum. Arnfirðingur RE var 198 brl stálbátur. í þessum mánuði þá aflaði báturinn 573,6 tonn í 27 róðrum sem gerir 21,2 tonn í róðri og reiknað upp í 6 róðra þá gerir það 127,5 tonna vikuafla.
Arnfirðingur RE, Mynd Snorri Snorrason.
Sjötti báturinn gerði líka út frá Grindavík í þessum mánuði og lagði upp hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða. Þar á bær voru gerðir út bátar sem voru lengi gerðir út í Grindavík og í dag árið 2010 er t.d Þórkatla GK gerð úr þaðan. þessi bátur sem þarna um ræðir hét Þorbjörn II GK og var einn af stóru eikarbátunum því hann var 168 brl eikarbátur, en var síðan endurmældur árið 1970 og fór þá niður í 131 brl. Þorbjörn II GK fiskaði þarna alls 577,5 tonn í 28 róðrum sem gerir 20,6 tonn í róðri og reiknað upp í 6 róðra þá gerir það 124 tonna vikuafla.
sjöundi báturinn var gerður út frá Reykjavík og þar á bæ voru gerðir út nokkrir bátar sem iðulega fiskuðu vel á vertíð. Þeir áttu það reydnar allir sameiginlegt að vera nokkuð stórir og stunduðu sumir útilegur. enda langt að sækja frá Reykjavík. Þessi bátur hét Ásþór RE og var má segja alla sína tíð mikill netabátur, því hann hét síðan Stafnes KE . Ásþór RE var 193 brl stálbátur. Báturinn fiskaði alls 581,6 tonn í einungis 24 róðrum sem gerir 24,2 tonna meðalafla og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 145 tonna vikuafla.
Ásþór RE mynd Hafþór Hreiðarsson.
Þrátt fyrir að vera nálgast 600 tonna múrinn þá erum við ekki búinn að segja skilið við eikarbátanna, því áttundi báturinn var einmitt eikarbátur og það ekki af stærri gerðinni. Þessi bátur lagði upp hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða og hét einmitt Þórkatla GK. Þórkatla GK var 74 brl eikarbátur og fiskaði alls 593,2 tonn í 28 róðrum sem gerir 21,2 tonn í róðri og reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 127 tonna vikuafla.
Þórkatla GK mynd Tryggvi Sigurðsson.
Eins og sést á þessum þá svo til skipti ekki máli hvað báturinn var stór, það var mokveiði og meira á eftir að koma.
28.3.2010
Apríl mánuður árið 1970. 4 hluti.
Fyrsti báturinn í þessum yfirliti hét árið 1970. Gissur ÁR og var smíðaður í danmörku árið 1956 og var eikarbátur. Mældist báturin 56 brl.
Gissur ÁR var nú ekki beint stærsti báturinn sem réri þessa vertíð en það stoppaði bátinn ekkert því hann fiskaði alls 490,3 tonn í 28 róðrum sem gerir 17,5 tonn í róðri. reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 105 tonna vikuafla.
Mynd Snorri Snorrason.
Rán SU sem síðar varð Gissur ÁR
Næstur í röðinni er Reynir ÁR 18. Báturinn var smíðaður í Danmörku árið 1958 og var 72 brl.Þessi bátur er enn til árið 2010. og var t.d gerður út á net og humri á árinu 2009. Hefur heitið svo til mest alla tíð nafniu Reynir, VE, AK ÁR og GK. Mikilll aflabátur. Og í Apríl árið 1970 þá gerði þessi bátur sér lítið fyrir og komst yfir 500 tonnin. því báturinn aflaði alls 513,9 tonn í 28 róðrum sem gerðir 18,4 tonn í róðri. Reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 110 tonna vikuafla.
Mynd. Tryggvi Sigurðsson.
Reynir VE 15 sem varð síðan varð Reynir ÁR 18.
Við förum ekki langt í þriðja bátinn. því við förum aftur til Þorlákshafnar. þar voru nokkrir bátar að róa auk Gissurar ÁR sem getið er um að ofan. Þriðji báturinn hét Klængur ÁR 2. Sá bátur var smíðaður í Danmörku árið 1958 og var 71 brl. að nokkur leyti systurbátur Reynis ÁR. Klængur ÁR rótfiskaði því báturin landaði 523,4 tonnum í 28 róðrum sem gerir 18,7 tonn í róðri að meðatali. Reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 112 tonna vikuafla.
Mynd SNorri Snorrason.
Fjórði og síðasti báturinn í þessu yfirliti er jafnframt eini stálbáturinn sem við fjöllum um núna. Sá bátur var gerður út fram til ársins 2008 þegar hann var seldur í brotajárn. Er þarna að tala um 582. Hring GK. Hringur GK var smíðaður í hollandi árið 1955, og má segja að nafnið Hringur hafi verið hvað lengst á honum, sem Hringur SI, GK og SH.
Í þessum mánuði þá fór Hringur GK í 28 róðra eins og flestir bátanna gerðu og fiskaði báturinn 527,6 tonn sem geriri 18,9 tonn í róðri. reiknað uppí 6 róðra þá gerir það 113 tonn í vikuafla.
Mynd SNorri SNorrason.
Þrátt fyrir mikla leit þá fanst enginn mynd af bátnum þegar hann hét Hringur GK 18 árið 1970. og er því hérna mynd af honum þegar báturinn hét Hringur SH.
Eins og sést á þessu yfirliti þá er þetta enginn smáafli og meðalaflinn í róðri sýnir það svo sannarlega. En meira á eftir að koma.
23.3.2010
Nokkrir bátar í Apríl árið 1970.
Þetta er þriðji pistilinn um ´mokmánuðinn í Apríl árið 1970. búið er að koma fram að 99 bátar komust yfir 400 tonnin. og hérna koma nokkrir .
Það eru einungis myndir af 2 bátum, en hægt er að sjá myndir af Bergvík KE og Ólafi II KE inná.,www.snorrason.is
Bergvík KE sem var 71 brl eikarbátur var með 487,8 tonn í 27 róðrum sem gerir 18,1 tonn í róðri. og ef miðað er við 6 róðra sem var algengur róðra fjöldi báta á viku þá gerir það 108,6 tonn.
Ólafur II KE sem var 75 brl stálbátur, var með 418,6 tonn í 28 róðrum. Það gerir 14,9 tonn í róðri. miðað við 6 róðra þá gerir það 89,4 tonn í 6 róðrum .
Máni GK sem var 71 brl eikarbátur var með 438,8 tonn í 28 róðrum. Það gerir 15,7 tonn í róðri. Og gerir það 94,1 tonn sem vikuafla í 6 róðrum.
Mynd. www.eldey.123.is
Og svo minnsti báturinn í þessum yfirlit. og kanski sá sem vekur hvað mesta athygli. þessi bátur hét Blakkur RE og var ekki nema 45 brl. enn gaf stærri bátunum ekkert eftir og fiskaði 454,9 tonn í 27 róðrum. og gerir það 16,8 tonn í róðri. vikuafli 101,1 tonn í 6 róðrum.
Mynd Hafþór Hreiðarsson.
Eins og sést á þessu yfirliti þá er þetta rosalegur afli, og meira á eftir að koma.
20.3.2010
Risa Apríl mánuður árið 1970.
Eins og þið kanski vitið þá er ég ekki bara að halda um þessa aflalista sem eru á síðunni því ég er líka að safna sama aflatölum. og hluti af þessari síðu er að koma nokkrum þeim tölum hérna á síðuna. þó svo að ég viti reyndar ekki hvort þið hafið áhuga fyrir því. Enn þetta dæmi um Apríl árið 1970 er svo svaklegt er það er ekki hægt að sleppa því að fjalla EKKI um það.
mikið held ég að það hefði veirð gaman að vera til í april árið 1970. því í gegnuim þetta aflatölugrúsk mitt þá hef ég ekki séð svona marga báta fiska jafn mikið og einmitt í þessum umtala mánuði árið 1970.
ég var buinn að minnst á að 35 bátar voru komnir yfir 400 tonnin á svæðinu frá akranesi og til keflavíkur. núna er ég búinn að fara í gegnum allan apríl og hann er vægast sagt rosalegur.
Mælikvarði minn á stórar tölur er bara VÁ. og það eru ansi mörg VÁ í þessuim mánuði.
Annars eru helstu tölur fyrir þennan mánuð eftirfarandi.
Heildarafli í apríl árið 1970 var alls 171.140 tonn og er loðna inní þeirri tölu.
tek nokkur frysti hús hérna.
Miðnes HF í Sandgerði tók á móti 1970 tonnum í apríl.
Meitilill í Þorlákshöfn tók á móti 4362 tonnum,
Fiskiðjan í Vestmannaeyjum tók á móti 4621 tonnum,
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja tók á móti 4237 tonnum,
Ísfélag Vestmannaeyja tók á móti 3687 tonnum,
Vinnslustöðin tók á móti 4315 tonnum.
Og svo eru það öll þessi VÁ. því alls 99 bátar komust yfir 400 tonnin í apríl árið 1970. 99 bátar þetta er ótrúlega mikill fjöldi, voru þetta allt netabátar nema einn trollbátur Kofri ÍS.
nánari sundurliðun á þessum 99 bátum var þannig að :
1 bátur náði yfir 800 tonnin.
1 bátur var með 700 til 800 tonn
7 bátar voru með 600 til 700 tonn
23 bátar voru með 500 til 600 tonn
67 bátar voru með 400 til 500 tonn
auk þess þá var rosaleg veiði hjá línubátuunuim og þá sérstaklega þeim bátum sem réru frá Sandgerði og nokkrir þaðan komust yfir 200 tonnin á línuna.
Ég kem seinna með nokkur nöfn, því ég ætla að reyna að finna myndir af bátunum.
enn ég skil eftir handa ykkur smá verkefni. hvaða 2 bátar eru þetta sem fiskuðu svona rosalega þar sem annar komst í 700 tonn enn hinn í 800 tonnin.
þess má geta að heildarafli þessara 99 báta var alls 48252 tonn eða 487 tonn á bát og við skulum enn og aftur hafa í huga að þetta er bara EINN mánuður.
17.3.2010
Mok ,mok og meira mok
Þessi fyrirsögn á reyndar við árið 1970 eða fyrir 40 árum síðan. Ég er að skrifa inn aflatölur frá því ári og er að hakka mig í gegnum Apríl mánuð ári 1970.
og tölurnar sem ég er að sjá í þessum mánuði eru vægast sagt rosalegar, svo rosalegar að ég trúi þeim vart sjálfur.
Get nefnt sem dæmi að á svæðinu frá Akranesi og til Keflavíkur þá eru alls 35 bátar sem lönduðu meira enn 400 tonn í apríl mánuði. Þessi tala 35 á eftir að hækka því ég á eftir að fara í Sandgerði, Grindavík, Þorlákshöfn, Eyrarbakka, Stokkseyri og náttúrulega Vestmannaeyjar.
Af þessum 35 bátum sem komust yfir 400 tonnin hafa 3 þeirra farið yfir 600 tonn. Ég vil helst hafa myndir með þegar ég er að fjalla um svona langt í tímann og þegar ég er buinn með apríl þá geri ég kanksi betur grein fyrir þessu. Þ.e.a.s ef að áhugi er fyrir því.
Og svo væri gaman að vita hvort að einhver lesandi síðunnar hafi verið á sjó í apríl árið 1970 og þá á hvaða báti.
9.2.2010
Mokveiði árið 1969.
Ég er að skrifa inn aflatölur frá í árinu 1969. þetta er einmitt árið þar sem Sæbjörg VE mokfiskaði á vertíðinni og setti líklegst heimsmet fyrir bát ekki stærri enn Sæbjörgin VE var. Tel að flestir viti hvað ég er að tala um.
Fyrir norðan land það ár þá voru ansi margir bátar gerðir út á þessum tíma og einn af þeim hét Sævaldur EA 35. ( skipaskrárnúmer 845). á vertíðinni þá réri hann frá Árskógsströnd á netum. fór svo á dragnót í maí og í einmitt í júlí það ár þá má segja að Sævaldur EA hafi rótfiskað.
Sævaldur EA var nú ekki stór hann var einungis 13 brl og var með 162 hestafla Scanía vél.
í Júlí það ár þá réri báturinn frá Ólafsfirði, Dalvík og í Hrísey þar sem báturinn landaði mestum hluta aflans.
og þar er komið að því afhverju ég er að skrifa um bátinn því í júlí árið 1969 fiskaði Sævaldur EA 35 alls 102 tonn i 15 róðrum eða 6,8 tonn í róðri,
og má geta þess að mesti afli í einum róðri hjá bátnum voru 13,5 tonn sem landað var í Ólafsfirði. Varð báturinn hæstur allra dragnótabáta frá norðanverðu landinu þennan mánuðin og verður það að segjast ansi gott miðað við hvað báturinn var lítill.
því miður þá fann ég enga mynd af bátnum undir nafninu Sævaldur og myndin er að bátnum þegar hann hét Óli ÍS. og er tekinn úr bókinni Íslensk skip.
13.12.2009
Þráinn NK 70 árið 1968
Mynd. tekið af www.leohundur.is
Þráinn NK var smíðaður í svíðþjóð árið 1943. Kom til Neskkaupstaðar árið 1946. 1962 þá var báturinn tekinn í slipp á akureyri og þar fóru fram mjög miklar endurbætur á honum. eins og fram kemur á síðunni www.aba.is, Þorsteinn Erlingsson skipasmiður teiknaði breytingar á bátnum enn vegna mikis þurrafúa sem kominn var í bátinn þurfi að rífa allan við sem var kominn þurrafúi í. og stóð þá lítið eftir annað enn 18 bönd, afturstefni og kjölur fram að vélarrúmsþili. Við þessa vinnu þá var báturinn stækkaður úr 58.86 brl uppí 90 brl.
1968 það ár sem um ræðir þá réri báturinn frá Vestmannaeyjum enn hann hafði róið þaðan á vertíðum undanfarin árþar á undan nema á síldinni.
Aflayfirlit fyrir árið 1968 lítur því svona :
Í janúar þá réri Þráinn NK á línu og fékk 15.9 tonn í 5 róðrum.
Febrúar þá var báturinn á línu og fiskaði nokkuð vel fékk 85.8 tonn í 18 róðrum eða 4.7 tonn í róðri.
MArs þá eins og svo til flestir bátar þá var Þráinn NK á netum og fékk 143 tonn í 13 róðrum eða 10.9 tonn í róðri.
Mokafli var hjá bátnum í apríl enn þá fór báturinn í 23 róðra og fékk 353 tonn eða 15.3 tonn í róðri. reiknað upp miðað við vikuafla t.d 6 róðra þá gera þetta 92 tonn á viku.
Fram til 11 maí þá landaði Þráinn NK eina löndun á net og var þá með 16 tonn.
Vertíðarafli 613 tonn.
í júní þá fór báturinn á troll og fékk 79 tonní 11 róðrum eða 7.2 tonn í róðri.
Mjög vel aflaði báturinní júlí enn þá landaði Þráinn NK átta landanir og kom með 125 tonn að landi eða 15.6 tonn í róðri.
í ÁGúst þá landaði báturinn 53 tonnum eftir 5 landanir eða 10.6 tonn í löndun. Stærsta löndun var 15.4 tonn.
í september þá var báturinn enn á trolli og landaði 63.3 tonnum úr 6 róðrum eða 10.5 tonn í róðri.
Október þá var báturinn með 9.1 tonn í 5 róðrum,
Þann 5 nóvember árið 1968 þá var suðaustan veður og stórsjór og mikið brim. Þráinn NK var þá á leiðinni til eyja og fórst hann. Þrátt fyrir mikla leit flugvéla og 40 báta þá fannst ekkert af bátnum, 9 manns fórust með bátnum.
Þetta ár 1968 þá var báturinn buinn að fiska 943.6 tonn og var 56 aflahæsti báturinn það ár miðað við bolfisk.
31.10.2009
Freyr SU 122
Báturinn var smíðaður árið 1953 í Keflavík og mælist 5.53 brl.
fyrst er reyndar getið um bátinn árið 1962 og þá undir nafninu Kópur KÓ 7.
23. mars árið 1962 fær hann nafnið Kópur GK 311 og er gerður út í höfnum.
Þar var hann gerður til ársins 1976 er hann var tekin af skipaskrá.
Báturinn var endurskráður í desember árið 1979 þá undir nafinu Sigþór RE 131.
í apríl 1986 fær hann nafnið Freyr RE 138.
árið 1995 báturinn með nafnið Freyr KE 99 og í desember það ár fær báturinn Freyr SU 122 nafnið.
Mynd Páll á Ástu GK.
Einhverjar aflatölur á ég til um bátinn. og t.d árið 1991 þá var heildarafli bátsins 16 tonn að mestu fengið í júní.
1996 var aflinn hjá bátnum 41 tonn.
Ef ég fer lengra aftur í tíimann
þá má nefna að árið 1963 þá fór báturinn í 81 sjóferð og var með 34 tonn eða um 400 kíló í róðri,
árið 1964 þá fór báturin í 71 sjóferð og va rmeð 41 tonna afla eða um 570 kíló í róðri.
árið 1967 þá landaði bátuirnn 25 tonnum og þar af var hann með 11 tonn í 21 róðri í maí það ár.
Þess má svo að lokum geta að þessi bátur er minnsti báturinn sem ég hef fjallað um aflalega sé. þrátt fyrir að heildartala sé ekki til.

